Tíminn - 12.11.1987, Page 4

Tíminn - 12.11.1987, Page 4
4 Tíminn Fimmtudagur 12. nóvember 1987 Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi: RARIK-87008: Raflínuvír 180 km. Opnunardagur: Fimmtudagur 10. desember 1987, kl. 14:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og veröa þau opnuð á sama staö að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudegi 12. nóvember 1987 og kosta kr. 200,- hvert eintak. Reykjavík 11. nóvember 1987 ^RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Laus staða Dósentsstaða í byggingaverkfræði við verkfræðideild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Dósentinum er ætlað að hafa umsjón með og stunda rannsóknir og kennslu á einhverjum eftirtalinna sviða: Aðveitur-fráveitur; byggðarskipulag; framkvæmdafræði; landmælingar; samgöngumál; teiknifræði. Rannsóknavettvangur verkfræðideildar er Verkfræði- stofnun Háskóla íslands. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritstörf og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Jafnframt skulu þeir láta fylgja eintök af vísindalegum ritum sínum, prentuðum sem óprentuðum. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. desember 1987. Menntamálaráðuneytið, 10. nóvember 1987 Laus staða Staða framkvæmdastjóra Menntamálaráðs og Bókaútgáfu Menningarsjóðs er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil, sendistmenntamálaráðuneytinu, Hverf- isgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 10. desember 1987. Menntamálaráðuneytið, 10. nóvember 1987 Frá æfinga og tilraunaskóla Kennaraháskóla íslands Starfsmaður óskast vegna fyrirhugaðrar tilraunar með nám fatlaðra barna í almennum bekk. Til greina kemur sérkennari, kennari með reynslu af kennslu fatlaðra barna, þroskaþjálf i eða sérmenntuð fóstra. Um er að ræða % úr starfi á yfirstandandi skólaári. Viðkomandi þarf að geta hafið starf nú þegar. Upplýs- ingar veitir skólastjóri Æfingaskólans í símum 84565 og 44837. ÁSKRIFTARSÍMl 686300 t Faðlr okkar Björgvin Filippusson Hjallavegi 23, Reykjavík sem andaðist 6. nóvember verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudag- inn 13. nóvember kl. 13.30. Börn hins látna Þingsályktunartillaga Guðna Ágústssonar o.fl.: LEITAD LEIDA TILAD NÝTA KARTÖFLURNAR Guðni Ágústsson (F.Su.) hefur ásamt 5 öðrum þingmönnum lagt fram þingsályktunartillögu um nýt- ingu á kartöflum, þar sem ríkis- stjórninni verði falið að kanna með hvaða hætti hægt er að nýta þær miklu kartöflubirgðir, sem til eru í landinu. í greinargerðinni er bent á að uppskera kartaflna í ár hafi slegið öll met og gera megi ráð fyrir að umframbirgðir nemi 8000 til 10.000 tonnum. Hins vegar nemi markaður fyrir ferskar kartöflur um 8000 tonn- um á ári og þar fyrir utan hafi kartöfluverksmiðjurnar tvær, í Þykkvabæ og á Svalbarðseyri, unnið allt að 2000 tonnum. Það bendi því allt til að henda þurfi helmingi kartöfluuppskerunnar í ár, ef ekkert verður að gert. Þá er minnt á að ekkert hafi verið að gert til að koma í veg fyrir innflutning franskra kartaflna er- lendis frá, en ef innlendu verksmiðj- urnar framleiddu nægar franskar kartöflur fyrir innanlandsmarkað þá væri þar um að ræða 2000-3000 tonn í viðbót. Guðni Ágústsson. Bent er á að skilaverð til kartöflu- bóndans sé 12-14 kr. fyrir kílóið, en söluverð út úr verslun 40-45 kr. fyrir kílóið. Telja flutningsmenn að þessi munur á skilaverði til bóndans og útsöluverði úr verslunum sé allt of mikill. Því sé kartöfluræktendum nú mikilvægast að ná samstöðu um skipulag í sölumálum ásamt því að finna leiðir til að nýta umframupp- skeruna. Telja flutningsmenn að stjórnvöld geti lagt þeim lið hvað síðara atriðið varðar með því að láta kanna hvemig auka megi kartöflu- neyslu landsmanna og hvort hag- kvæmari leiðir til nýtingar finnist. Benda flutningsmenn á fjórar leiðir. í fyrsta lagi að vinna kartöflur og nýta þær til fóðurs. í öðm lagi að nýta kartöflur til iðnaðar. f þriðja lagi að framleiða úr kart- öflum ýmsa rétti til manneldis. f fjórða og síðasta lagi að kanna hugsanlega möguleika á útflutningi, t.d. til Norðurlanda. Þá er í þessu sambandi hugsanlegt að athuga hvort, vegna legu landsins, væri hægt að stunda hér stofnrækt og selja útsæði til útlanda. ÞÆO Skip á korti Gerð hafa verið kort eftir vatnslita- myndinni „Skip“, eftir Jónas Guð- mundsson, rithöfund og listmálara. Kort þessi eru hugsuð sem jóla- eða gjafakort. Unnt er að panta kortin í síma 99-3448 Alþýðusamband Vesturlands: Verður það lagt niður? Stjóm Alþýðusambands Vestur- íð Alþýðusambands Vesturlands. lands hefur ákveðið að efna til Þessi ákvörðun var tekin í sam- allsherjaratkvæðagreiðslu um framt- ræmi við samþykkt 5. þings Alþýðu- FERTUGS- AFMÆLI FLUGMÁLA- STJÓRA Pétur Einarsson flugmálastjóri, varð fertugur nýlega, og mun hann halda upp á það föstudaginn 13. nóvember. Flugmálastjóri mun taka á móti gestum í Fóstbræðra- heimilinu frá kl 17-19 og 20-22. sambandsins sem haldið var fyrr á árinu og þar var samþykkt ályktun um að leggja skyldi sambandið niður. f þeirri atkvæðagreiðslu greiddi 21 atkvæði með ályktuninni en 19 voru andvígir en auk þess var ákveðið að allsherjaratkvæðageiðsla færi fram um framtíð sambandsins. Atkvæðagreiðslan fer fram dag- ana 19.-20. nóvember n.k. og spurt verður einfaldlega. Viltu að Alþýðu- samband Vesturlands starfi áfram? Laugardaginn 28. nóvember verður síðan haldið aukaþing Alþýðusam- bands Vesturlands, þar sem úrslit allsherj aratkvæðagreiðslunnar verða kynnt og endanleg ákvörðun verður tekin. Aðildarfélög Alþýðusambands Vestfjarða eru 12 talsins en sam- bandi sjálft var stofnað árið 1977. Núverandi formaður þess er Jón Agnar Eggertsson í Borgarnesi. ABS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.