Tíminn - 12.11.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 12.11.1987, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 12. nóvember 1987 Tíminn 5 Hráolíuleiðsla hersins sprakk í þrýstiprófunum „Hráolíuleitin þráa“ á Suðurnesjum, sem staðið hefur frá föstudegi í síðustu viku og greint var frá í gær, hefur tekið óvænta stefnu. Nú er aftur farið að grafa niður á leiðsluna og nú er ætlunin að grafa hana upp endanna á milli, eða um 350 metra. Yfirlýst markmið varnarmálaskrifstofu er, að leitað skuli af sér allan grun um leka, en talið er þó fullvíst að eftir síðustu þrýstiprófun hafi sprungið göt á leiðsluna á stöðum, sem ekki finnast ofan jarðar. Að sögn starfsmanns á varnar- málaskrifstofu utanríkisráðuneytis- ins voru gerðar þrýstiprófanir á leiðslunni í gærmorgun og sett voru rétt rúmlega 200 pund á kerfið. Við þennan mikla þrýsting sprakk loki, sem er staðsettur nálægt tönkunum. Eftir að nýr loki var settur í staðinn, var reynt að nýju. Þá náðist ekki upp viðunandi þrýstingur og engin veila fannst á leiðslunni þar sem hún liggur ofan jarðar. Þykir því ljóst að eftir þessar miklu prófanir hafi leiðslan, sem komin er nokkuð til ára sinna, loksins látið undan. Þessu til samanburðar má geta þess að alla jafna hefur leiðsla þessi verið þrýsti- prófuð við 150 punda þrýsting. Hvernig svo sem málin hafa staðið fyrir viku síðan, er þó eitt orðið víst að leiðslan er örugglega orðin lek og trúlega stórskemmd að auki. Strax í gærkveldi var hafist handa við að grafa ofan af lögninni endi- langri, en til þessa hefur aðeins verið farið út í að grafa holur niður á leiðsluna til sýnatöku úr jarðvegi. Verður hvergi látið staðar numið fyrr en leiðslan er öll orðin sýnileg og hægt verður að ganga eftir henni með klúta og tvist. Ekki liggur fyrir hvort af þessu slysi hafi hlotist mikil olíumengun, en búast má við að fljótlega fáist úr því skorið. Ekki vildi starfsmaður varnarmál- askrifstofu tjá sig um afleiðingar þessa, varðandi mengun af hugsan- legum leka út í jarðveginn. Hann staðfesti hins vegar að til þessa hafa allar niðurstöður af rannsóknum á sýnishornum úr vatnsbólum og jarð- vegi, stutt þá kenningu að enginn leki hafi átt sér stað til þessa. Olíulekaleitartækin sem koma áttu frá Bandaríkjunum í gær voru ekki komin og var ekki ljóst hvenær þau sæjust. Koma þau væntanlega að góðum notum ef þau berast. Nú óttast menn mengunarslys, Tímamynd: Pjetur m i II ;* 'T' T Staðan hefur því versnað til muna varðandi leitina miklu að hráolíu hersins. Ekkert hefur fundist í sam- bandi við leitina að bókhaldsskekkj- unni eða neitt sem bendir til að um þjófnað sé að ræða, og nú er orðið ljóst að enginn mun nokkurn tíma öðlast vissu í því hvort leki hafi átt sér stað fyrir ítrekaðar þrýstiprófan- ir. KB Albert mun leiða Borgaraflokkinn í næstu borgarstjórnarkosningum: Ég er fæddur í Reykjavík en Davíð fæddist austan fjalls Albert Guðmundsson hefur fullan hug á því að leiða sjálfur lista Borgaraflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Þetta kom fram þegar Tíminn ræddi við Albert um aðild hans að þingsályktunartil- lögu um rannsóknir á lífríki Tjarnarínnar í Reykjavík, en Albert er mjög andvígur staðsetningu fyrirhugaðs ráðhúss. Þegar Albert var spurður hvort aðild hans að þingsályktunartillög- unni um Tjörnina væri fyrsta skrefið að framboði Borgaraflokksins til næstu borgarstjórnarkosninga svar- aði hann því á þessa leið: „Við bjóðum fram hvernig sem þetta ráðhúsmál fer. Það eru mörg önnur mál en þetta og ég held að það séu fáir sem þekkja vandamál Reyk- víkinga, einstaklinganna og þær þarfir sem fátækt fólk hefur, betur en ég. Ég held það hafi komið fram í störfum mínum sem borgarfulltrúi og ég ætla mér að vinna að þeim málum áfram með mínum flokks- mönnum í Borgaraflokknum. Borg- araflokkurinn býður fram í sveitar- stjórnarkosningum hvernig sem þetta ráðhúsmál fer. Ég er búinn að vera í borgarstjórn, borgarráði og forseti borgarráðs í mörg ár, þannig að ég er búinn að vera með tillögur um Tjörnina og umhverfi hennar í mörg ár. Ég er ekki aðeins þingmaður Reykvík- inga. Ég er fæddur og uppalinn í miðbænum í Reykjavík. Borgar- stjóri er fæddur á Stokkseyri eða Eyrarbakka svo ég er ekki að tala um þetta sem þingmaður Reykvík- inga, heldur sem innfæddur Reyk- víkingur alinn upp í miðborginni." Kemur til greina að þú leiðir sjálfur lista Borgaraflokksins í borg- arstjórnarkosningum? „Já, það kemur mjög til greina. Þau áhugamál mín sem snerta fólkið í borginni og vandamál þess þau verða ekki betur leidd af öðrum en mér og á meðan ég hef krafta og vilja til að starfa fyrir fólkið í borginni þá geri ég það.“ Albert sagðist vera sammála borg- arstjóra um að ráðhús þurfi að reisa en ekki við Tjörnina. Þegar Albert var spurður álits á því kappi sem borgarstjóri legði á að korna ráðhúsinu við Tjörnina sem fyrst, svaraði Albert því til að borg- arstjóri væri ekki kjörinn af borgar- búum sem siíkur heldur væri hann ráðinn borgarstarfsmaður af meiri- hluta borgarstjórnar. Því þurfi Davíð Oddsson að taka tillit til þess að hann er borgarstjóri Reykvíkinga allra og geti ekki vaðið áfram með prívatskoðanir á móti þeim sem búa í borginni. Það væri ekki bara verið að reisa ráðhús fyrir Sjálfstæðis- flokkinn heldur borgarbúa alla. - HM Alþjóðlegt skák- mót í Stapa: í ham Það var Hannes Hlífar Stefánsson sem leiddi alþjóða skákmótið á Suðurnesjum eftir fyrstu þrjár um- ferðirnar. Hann hafði hlotið 2 1/2 vinning, en Björgvin Jónsson, Weldon, Þröstur Þórhallsson og Guðmundur Sigurjónsson voru með 2 vinninga. Þröstur á möguleika á einum vinningi til þar sem hann á inni biðskák gegn Helga Ólafssyni sem hsfur 1 1/2 vinning. Þeir Hannes Hlífar, Björgvin Jónsson og Þröstur Þórhallsson keppa allir að því að ná áföngum að alþjóðlegum meistaratitlum á þessu móti og þurfa þeir að ná 7 vinningum af 11 til að ná því takmarki. Fjórða umferð var tefld í gærkvöldi í Stapa, en úrslit skáka lágu ekki fyrir þegar Tíminn fór í vinnslu. - HM Tveir menn yfirheyrðir: FANNST LÁTINN Á ÍBÚÐARGANGI Komið var að látnum manni þar sem hann lá á gangi í íbúðarhúsi á ísafirði aðfaranótt þriðjudags. Tveir menn, sem voru f húsinu ásamt hinum látna, voru teknir til yfirheyrslu og haldið í einn sólar- hring. Ekkert hefur komið fram sem bendlar þá við lát mannsins né heldur með hvaða hætti dauða hans bar að. Líkið hefur verið sent til krufningar í Reykjavík. Sá sem kom að manninum látn- um kvaddi lögreglu þegar til. Mennirnir tveir voru þá fyrir í húsinu. Yfirlögregluþjónn segir þá hafa verið vakandi, en ekkert bendir til að til átaka hafi komið í íbúðinni. Ætíð þegar menn finnast látnir annars staðar en á sjúkrahúsi fari fram ítarleg rannsókn á þennan hátt og þurfi ekki að kvcikja neinar grunsemdir um misjafnt athæfi. þj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.