Tíminn - 12.11.1987, Page 9

Tíminn - 12.11.1987, Page 9
Fimmtudagur 12. nóvember 1987 Tíminn 9 VETTVANGUR lllllllilltlllllll! Illlllllllllllllllll Níels Árni Lund, starfsmaður landbúnaðarráðuneytisins: Fiskeldi er búgrein Fáar atvinnugreinar hafa vaxið jafn hratt á síðustu árum og fiskeldi og fiskirækt. Frá 1984 til ársloka 1986 fjölgaði eldisstöðvum úr 40 í 102 og á þessu ári munu um 30 hafa bæst við. (Sjá mynd 1). Jafnhliða fjölgun fiskeldisfyrirtækjanna hef- ur orðið gífurleg framleiðsluaukn- ing. Sem dæmi má nefna að 1985 voru alin 800 þúsund gönguseiði, á þessu ári um 4 milljónir og á árinu 1988 er áætlað að framleiðslan nemi um 8 milljónum gönguseiða. í hafbeit var sleppt á þessu ári um 950 þúsund gönguseiðum sem er um 500% aukning frá því í fyrra og áætlað er að sleppa um 2 milljónum seiða á næsta ári. Á síðasta ári voru um 250 tonn framleidd af matfiski, í ár nam framleiðslan um 1000 tonnum og á næsta ári má gera ráð fyrir að framleiðsla á laxi og regnboga- silungi verði milli 1500-2000 tonn. (Sjá mynd 2). í>að eru því miklar vonir bundn- ar við fiskeldið og líklegt að það verði ein af undirstöðum íslensks efnahags haldi svo áfram sem horfir. Samkvæmt lögum nr. 76/1970 um lax og silungsveiði, heyra þessi mál undir landbúnaðarráðuneytið. t>ví er hins vegar ekki að neita að stóraukin umsvif í fiskeldi kalla á ýmsar nýjar reglur varðandi fisk- eldi sem tök yrðu að setja ef lög nr. 76/1970 og önnur lög sem varða fiskeldi yrðu endurskoðuð með tilliti til hinna stórstígu breytinga sem orðið hafa í fiskeldi á síðustu árum. Fyrir nokkru boðaði landbúnað- arráðherra, Jón Helgason, til kynningafundar um þátt landbún- aðarráðuneytisins og stofnana þess í fiskeldismálum. t þessari grein, og annarri, sem m.a. byggja á upplýsingum sem þar komu fram, er sýnt fram á hversu nátengd þessi atvinnugrein er landbúnaðinum, og stofnunum sem honum eru tengdar. Fiskeldi hefur lengi verið á við- fangsefnalista hjá landbúnaðar- ráðuneytinu og má rekja það allt til ársins 1932 er sett voru lög um lax- og silungsveiði. Þá fór atvinnu- málaráðuneytið með þennan mála- flokk og allt til 1969 er landbúnað- arráðuneytið var sett á fót. Lögin voru síðan endurskoðuð 1970 og í auglýsingu um Stjórnarráð íslands frá þeim tíma er sérstaklega kveðið á um að landbúnaðarráðuneytið skuli „fara með mál er varða veiði í ám og vötnum svo og önnur veiðimál, er eigi ber undir annað ráðuneyti". í lax- og silungsveiðilögunum 1932 er það einstaka lagaákvæði sem ekki þekkist hjá nokkru öðru landi að laxveiði í sjó er bönnuð. Þetta lagaákvæði hefur gjörbreytt skilyrðum til fiskræktar í ám og þó sérstaklega varðandi hafbeit, enda augljóst að til lítils væri fyrir ein- staklinga að ala upp seiði og sleppa ef hver sem er mætti síðan veiða laxinn úti fyrir ströndum. Þá má nefna að í jarðalögum er kveðið á um að jarðanefndir þurfi að samþykkja allar ráðstafan- ir lands utan þéttbýlissvæða og þarf þannig samþykki þeirra fyrir ráðstöfun lands undir fiskeldisfyr- irtæki. Þá skal þess einnig getið að landbúnaðarráðuneytið hefur um- sjón með flestum ríkisjörðum og hefur það undanfarin ár stuðlað að því að land ríkisins væri notað til fiskeldis. Fyrir fáum árum sætti slík ákvörðun landbúnaðarráðherra harðri gagnrýni af nokkrum alþing- ismönnum enda þótt flestir ef ekki allir séu nú sammála um réttmæti þeirrar ákvörðunar. Stofnanir sem heyra undir land- búnaðarráðuneytið og sinna fisk- eldismálum eru margar. Þar má nefna Veiðimálastofnun, Fisksjúk- dómanefnd og dýralækni fisksjúk- dóma, Rannsóknarstofnun land- búnaðarins og Bændaskólana á Hólum og á Hvanneyri. Auk þess sinna Búnaðarfélag Islands, Stofn- lánadeild landbúnaðarins og Fram- leiðnisjóður mikilvægu hlutverki gagnvart fiskeldi. Enda þótt sjá megi á ofan- greindu að fiskeldi tengist landbún- aðarráðuneytinu á veigamiklum sviðum er það samt þannig að mörg önnur ráðuneyti hafa afskipti af þessum málaflokki. starfar undir stjórn Iðnaðarráð- herra. Þar sem fiskeldi byggist mikið á jarðhita verður ekki annað séð en að vinnsla og nýting jarðhita í þágu fiskeldis lúti stjórn iðnaðar- ráðherra. Deildarstjóri Rannsóknardeild- ar fisksjúkdóma er skipaður af menntamálaráðherra. Rannsókn- ardeildin annast m.a. sjúkdóms- greiningu og rannsóknir á fisksjúk- dómum auk þess sem deildarstjóri hennar er Fisksjúkdómanefnd til ráðgjafar. Menntamálaráðherra hefur því afskipti af fiskeldi. Sjávarútvegsráðuneytið fer með mál er varða Fiskveiðisjóð ísiands, Hafrannsóknastofnun og Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins. Fisk- veiðisjóður hefur gengið í ábyrgðir á erlendum lánum til fiskeldis svo Þróun matfiskeldis á íslandi (SPÁ) Fyrri grein í lögum nr. 109/1984 um holl- ustuhætti og heilbrigðiseftirlit er heilbrigðisráðuneytinu falið að fylgjast með mengunarvörnum fiskeldisstöðva og af þeim sökum er staðsetning seiða- og fiskeldis- stöðva háð samþykki heilbrigðis- ráðherra. Samkvæmt lögum um varnir gegn mengun sjávar fer Siglinga- málastofnun með umsjón þar að lútandi og hún lýtur stjórn sam- gönguráðherra. Orkustofnun annast eftirlit af hálfu ríkisins með jarðhitasvæðum og jarðhitamannvirkjum. Hún sem honum er heimilað skv. lögum og þótt ekki hafi verið um beina lánafyrirgreiðslu að ræða af hálfu sjóðsins hefur hann á þennan máta veitt fiskeldisfyrirtækjum verulega aðstoð. Þá er Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins falið að annast rann- sóknir á hráefnum og framleiðslu fiskiðnaðarins þ.á m. fiskeldisfyr- irtækja. Af þessu má sjá að a.m.k. 5 ráðuneyti fyrir utan landbúnaðar- ráðuneytið fara með mál sem tengjast fiskeldi, þótt í misjöfnum mæli sé og því hefur sú krafa orðið háværari að skýrar verði kveðið á um hvaða ráðuneyti skuli fara með yfirstjórn þess til framtíðar. Á félagsfundi Landssambands fiskeldis- og hafbeitastöðva var í haust samþykkt sú stefna félagsins að „sjávarútvegsráðuneytið fari með yfirstjórn fiskeldismála", og færa rök helst því til stuðnings að markaðsmálin séu ekki ólík og gerist í sjávarútvegi. Hér skal ekki lagður dómur á það hversu veiga- mikil rök þau eru en víst er að margir aðrir og ekki veigaminni þættir tengja fiskeldið órjúfanlega landbúnaði og ráðuneyti þeirrar atvinnugreinar. Landssamband veiðifélaga sam- þykkti aftur á móti á aðalfundi sínum í vor ályktun þess efnis að „eðlilegt sé að yfirstjórn á veiði, ræktun og eldi laxfiska og áls, heyri undir landbúnaðarráðuneyti, eins og verið hefur“. í sama streng hefur Búnaðarfé- lag íslands gert. Á fundi stjómar þess þann 23. október s.l. var gerð eftirfarandi bókun: „Vegna umræðna um skipun fiskeldis í stjórnkerfi landsins og ályktana um að fela sjávarútvegs- ráðuneytinu að fara með fiskeld- ismál í stað þess að þau heyri áfram undir landbúnaðarráðuneytið, lýs- ir stjórn Búnaðarfélag íslands því yfir að hún styður það eindregið að landbúnaðarráðuneytið fari með fiskeldismál“. í mörg ár hefur verið rætt um fiskeldi sem nýbúgrein og víst er að fiskeldi getur talist búskapur, enda eldisfiskur í raun búpeningur. í kandídatsritgerð sem Þuríður Kristín Halldórsdóttir skrifaði á þessu ári og fjallar um fiskeldisrétt nefnir hún eftirfarandi rök því til sönnunar, sem byggjast á upplýs- ingum Árna Mathiesen, dýralækni fisksjúkdóma: 1. Alinn fiskur vex hraðar en villtur fiskur og minna er um afföll. 2. Eldisfiskur tímgast undir manna höndum, rétt eins og annar búpeningur. Erfðafræði og ræktun er beitt á sama hátt og við búfé. 3. Eldisfiskur er fóðraður á sama hátt og búfé. 4. Ekki ráði úrslitum við þessa aðgreiningu, hvort dýr hafi heitt eða kalt blóð. Síðan segir Þuríður Kristín: „Þeir sem aðhyllast þetta sjónar- mið, telja því að landbúnaðarráðu- neytið eigi að fara með stjórn fiskeldismála. Jafnframt benda þeir á að fiskeldi fari hérlendis aðallega fram á landi, jafnvel langt inn í landi. Síðast en ekki síst lúti flest þau stjórnvöld, sem af- skipti hafi af fiskeldismálum yfir- stjórn landbúnaðarráðherra.“ Ofangreind rök hljóta að teljast þung á metunum þegar ákvarða þaf um staðsetningu fiskeldis í stjórnkerfinu. í síðari grein minni mun ég segja frá starfi stofnana landbúnaðar- ráðuneytisins sem hvað mest tengj- ast fiskeldi. BÓKMENNTIR |||||j|||||||||j|||| lllllllllllllll llllll 1 Færeyskur sagnaheimur Wllliam Heinesen: Töfralampinn, nýjar minningasögur, Þorgeir Þorgeirsson þýddi, Forlagið, Þýöingaútgáfan, Rv. 1987. Rithöfundurinn William Heines- en er vel þekktur hér á landi, kannski ekki síst fyrir margar þýð- ingar á verkum hans sem Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur hefur sent frá sér á liðnum árum. Að því er segir á bókarkápu heitir bókin á frummálinu Laterna magica. og mun það vera heiti á myndsýningartæki, eins konar fyrrennara kvikmynda- vélarinnar, sem notað mun hafa verið til að varpa kyrrmyndum af glerplötu upp á vegg gegnum sjóngler. Með því að hreyfa þetta tæki mátti renna myndunum eftir veggjum, og segir þarna að ráða megi af frásögnum þeirra sem á horfðu að það hafi verið öllu áhrif- ameira að sjá kyrrmyndir æða upp veggi, loft og gluggatjöld en nú að sjá kvikmynd hreyfast í föstum ramma. Með þessari vísun til gamallar myndsýningartækni, sem raunar er álitamál hvort ekki hefði farið vel á að halda einnig í heiti íslensku þýðingarinnar, verður ekki annað séð en að Heinesen sé að tengja þessa síðustu bók sína við horfna tíma í Þórshöfn í Færeyjum. Efni hennar er frásagnir af mönnum og málefnum þar svona á að giska í kringum síðustu aldamót, en þó er ekki hægt að segja að hér sé á ferðinni dæmigert safnrit af sögnum, og því síður af því sem oftast er kennt við þjóðlegan fróðleik. Frásögnin er þess eðlis að ekki fer á milli mála að farið er um með listamannshöndum, og öll alúð við það lögð að bregða upp svipmyndum af atvikum og fólki. Efniviðurinn er hins vegar síður en svo settur hér fram undir yfirskini sannsögulegra frásagna, heldur ber þvert á móti allur stíllinn og frásagnarmátinn yfir- bragð skáldsögunnar. Þó er efni bókarinnar allt miklu fremur með smásagnasvip; þetta eru tiltölulega stuttir kaflar, og fjallar hver um afmarkað efni, þótt víða liggi þræðir frá einum til annars. Ef þess vegna ætti að skilgreina þessa bók eftir aðferðum bókmenntafræðinnar þá lægi trúlega einna næst að tala um hana sem safn af sögulegum smásög- um. Þama er annars nokkuð víða kom- ið við, en einna eftirminnilegust og átakamest má þó virðast frásögnin þarna sem heitir Ballaðan um Bólu- strákinn. Þar er okkur smátt og smátt gefið hitt og þetta í skyn af listrænu innsæi í vel saminni frásögn, og loksins fáum við svo að vita að það sem málið snýst um eru ástir tveggja unglinga, sem komast ekki að því fyrr en of seint að þau eru systkini, og þá með hörmulegum afleiðingum. Þar er á ferðinni vel skrifuð og listræn frásögn af vand- meðförnum atburðum. Fleira er þarna áhugavert, svo sem frásögnin Óskasteinn, þar sem vel er til skila haldið heldur frum- stæðum mannlýsingum tveggja at- hafnamanna í plássinu. Ástin og dauðinn eru líka viðfangsefnið í þætti sem þarna er og heitir Synda- fall. Hann sýnir að holdlegar freist- ingar hafa ekki legið langt undan á liðinni tíð í Færeyjum, frekar en endranær og annars staðar. Þá má ekki heldur gleyma þarna loka- kaflanum sem heitir Glíman við brunadæluna og er sá hluti bókarinn- ar þar sem gamansemin nær hvað ákveðnast yfirhöndinni. Það liggur vitaskuld ákaflega beint við að gera ráð fyrir að í þessari bók William Heinesen ríthöfundur. styðjist Heinesen meira og minna við raunverulega atburði, en hér á landi rennum við þó að sjáifsögðu blint í sjóinn með það að hve miklu leyti hann hefur breytt þeim yfir í skáldskap í bókinni. Hins vegar fer ekki á milli mála að hann beitir hér skáldgáfu sinni af listfengi til þess að draga upp myndir af fólki og atburð- um í Færeyjum, og í heildina verður ekki annað sagt en að honum farist það ákaflega vel úr hendi. Þrátt fyrir heldur smágert ytra form sitt er þessi bók hin fróðlegasta, og dregur les- anda sinn raunar býsna rækilega inn í liðna tíma í þessu nágrannalandi okkar. Þýðing Þorgeirs Þorgeirssonar er sem búast má við kjarngóð og hin læsilegasta í alla staði. Þó er að því að gæta að hann gerir dálítið af því að nota í ritmáli sínu frávik frá þeirri stafsetningu sem kennd er í íslenska skólakerfinu. Þetta er honum að sjálfsögðu heimilt, en ekki kann ég þó að öllu leyti að meta það. Sjálfur hef ég alltaf litið svo á að stafsetning væri síður en svo nokkurt sáluhjálparmál, heldur fyrst og fremst samkomulagsatriði manna á milli um tæki til að koma hugsunum sem greiðast á milli sín. Persónuleg sérviska í stafsetningu, líkt og hér er beitt í talsverðum mæli, verður því að mínu viti fyrst og fremst til að tefja fyrir skilningi og þannig eigin- lega verri en tilgangslaus. Þó má segja að flest af þessu sé smávægilegt og skipti þannig ekki miklu máli. En þó mislíkaði mér töluvert að sjá talað um „skelvingu“ á blaðsíðu 87. Ég hélt fyrst að þetta væri prentvilla, en rakst svo aftur á sama rithátt á blaðsíðu 93, sem mér þykir sýna að svo sé ekki. Ekki get ég að vísu sagt að ég hafi orðið „skelfingu“ lostinn út af þessu, en að ósköp kann ég þó illa að meta svona lagað. -esig.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.