Tíminn - 12.11.1987, Side 12

Tíminn - 12.11.1987, Side 12
12 Tíminn Fimmtudagur 12. nóvember 1987 ÚTLÖND lllllllll Bandaríkin: Reagan tilnefnir Kennedy Reagan Bandaríkjaforseti tiikynnti í gær að hann myndi tilnefna Anthony Kennedy dómara til að taka sæti í hæstarétti landsins. Þetta er þriðji maðurinn sem forsetinn tilnefnir í hið eftirsótta sæti sem laust hefur verið síðan Lewis Powell lét af störfum í júnímánuði. FRÉTTAYFIRLIT „Kennedy dómari tilheyrir því besta í bandaríska dómskerfinu... hann hefur fengið á sig það orð að vera réttlátur en harður dómari sem virðir lögin“, sagði Reagan á blaða- mannafundi í Hvíta húsinu þar sem Kennedy var einnig mættur. Reagan kallaði Kennedy „sannan íhaldsmann" og sagði að yfirvöld hefðu skoðað fortíð hans og emb- ættisferil mjög vel. Kennedy er 51 árs gamall og er búist við að hann eigi nokkuð víð- tækan stuðning, bæði meðal repúb- likana og demókrata í öldungadeild- inni. Tilnefning Reagans verður formleg þegar hann er búinn að leggja fram nafn Kennedys fyrir öldungadeildina. Nú eru í hæstarétti fjórir dómarar sem taldir eru frjálslyndir og fjórir hægrisinnaðir dómarar. Það er því ljóst að það skiptir miklu máli hver er níundi maðurinn í hæstarétt. Reagan hefur ekki gengið vel til þessa að koma manni að í hæstarétti, fyrst tilnefndi hann Robert Bork sem þótti of umdeilanlegur og var felldur og síðan var það Douglas Ginsburg sem sjálfur dró sig í hlé eftir að ýmsir þættir í fortíð hans komu upp á yfirborðið. Reuter/hb Pat Robertson sjónvarpsprestur vill komast í Hvíta húsið: Beitir drottni í atkvæðaveiðunum Pat Robertson sjónvarpsprestur: Fylgið fer vaxandi. sigur á þeim í Iowa myndi gera LUNDÚNIR — Bandaríkja- dalur varð stöðugri á pening- amörkuðum í gær eftir að hafa lækkað meira en nokkru sinni áður í gildi gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlum heims á þriðjudag. Hlutabréf féllu í verði á Asíumörkuðum en voru nokkuð stöðug á mörkuðum í Evrópu. JÓHANNESARBORG- Stjórnin í Suður-Afríku sagði að her sinn ætti í baráttu við her Angólumanna í suðurhluta þess ríkis og væri sá her vel studdur af Sovétmönnum og Kúbönum. Hernaðaryfirvöld í I Suður-Afríku sögðust hafa stutt við bakið á skæruliðaleið- toganum Jónasi Savimbi til að koma í veg fyrir að her Angólu- j manna næði yfirráðum í Cu- ando-Cubango héraði. LUNDÚNIR — Flugfélögin British Airways og British Cal- edonian fengu leyfi frá bresku stjórninni til að sameinast í eitt fyrirtæki. Þessi sameining var sögð vera nauðsynleg fyrir British Caledonian annars væri, rekstrargrundvöllurinn brostinn. TOKYO — Viðskiptajöfnuður Japans var ekki eins hagstæð- ur í októbermánuði eins og í septembermánuði og var þetta sjötti mánuðurinn í röð sem Japanir minnka hagstæðan vöruskiptajöfnuð sinn. Engu að síður hefur munurinn á hag- stæðum viðskiptajöfnuði Jap- ana og óhagstæðum viðskipta- jöfnuði Bandaríkjamanna sjaldan veriö meiri en nú. COLOMBO — Námsmenn mótmæltu á Sri Lanka og skæruliðar létu til sín taka. Lögreglan tilkynnti um lát að minnsta kosti 27 manna í nýj- um átökum á eynni milli tamíla og meirihlutahóps singhalesa. *!- __________ SOUTHAMPTON, Enq landi - Breskir tollverðir sögo- ust hafa náð um 250 kílóum af kókaíni úr flutningaskipi og er þetta mesta magn eiturlyfsins sem gert hefur verið upptækt. Slíkt magn væri hægt ao selja á götum Evrópu fyrir upphæð sem samsvaraði rúmum þrem- ur milljörðum íslenskra króna. TOKYO — Tvö japönsk fyrir- tæki kynntu nýja tegund raf- hlaða í gær. Þær má nota í heimahúsum og eru eins þunn- ar og sveigjanlegar og pappír og auk þessi minni og léttari en venjulegu rafhlöðurnar. Sjónvarpspresturinn Pat Robertson, sem Ieitar eftir útnefningu repúblikana sem forsetaefni þeirra, er óhræddur við að beita drottni í kosningabaráttu sinni sem sumir segja að líkist frekar krossferð en stjórnmálum. „Margir stuðningsmanna hans halda að hann hafi orð sín frá Guði“, segir einn af æðstu mönnum Rep- úblikanaflokksins í Iowafylki. Þar fara fram forkosningar í febrúar- mánuði sem þykja mikilvægar og líklegar til að sýna hverjir standa best að vígi til að hljóta útnefningu repúblikana fyrir forsetakosningarn- ar síðar á árinu. George Bush varaforseti og Ro- bert Dole öldungadeildarþingmaður eru taldir eiga mesta möguleikann að hljóta þessa útnefningu en Ro- bertson gæti veitt þeim harða keppni og hefur sýnt að undanförnu að hann á vaxandi fylgi að fagna. Robertson fær mest fylgi nú frá fólki innan evangelísku kirkjunnar sem trúir mjög á krossför hans fyrir hægrisinnuðum gildum. Robertson segist sjálfur hafa beint samþand við Guð og einu sinni hafi honum tekist með miklum bænum að bægja frá hvirfilbyl. Robertson er vinsæll í Iowa og gæti jafnvel unnið sigur á Bush, Dole, Jack Kemp þingntanni frá New York, Alexander Haig fyrrum utanríkisráðherra og Pierre du Pont fyrrum ríkisstjóra í Delaware í for- kosningunum í febrúar. Þessir menn leita eftir útnefningu repúblikana og Robertson að þjóðkunnum manni sem hann er ekki nú. Reuter/hb Lottómenn gera mistök í Brasilíu: Að eiga áttatíu milljónir einn eftir- miðdaginn Það er ekki bara á íslandi sem lottómenn gera mistök. Lottófyrirtæki í Brasilíu hafði um daginn tilkynnt að Jose Julio Nogueira nokkur hefði unnið upphæð sem svaraði tæpum áttatíu milljónum íslenskra króna eftir að hafa verið með allar fintni tölurnar réttar. Jose þessi býr í borginni Belo Horizonte í höfuðborg Minas Gerais héraðs í suðausturhluta landsins. Hann var ekki heima hjá sér þegar lottómennirnir hringdu. Það varhins vegar kona hans og var hún að sjálfsögðu himinlifandi. Bráðlega komu fréttamenn á staðinn og réði konan sér vart af kæti, sagðist ætla að fara með Jose sinn í ferðalög til útlanda, kaupa nýtt hús og eiginlega hefja nýtt líf, langt í burt frá gránia hversdagsleikans. Grámi hverdagsleikans tók þó fljótt yfirhöndina þegar maður henn- ar snéri heim. Hann trúði ekki orðum konu sinnar, leit á miðann og uppgötvaði að hann hefði ekki verið með allar tölurnar réttar. Mistökin komu brátt í ljós, Jose var ekki rétti maðurinn heldur 62 ára gamall maður sem heldur nafni sínu leyndu öryggis síns vegna. Reuter/hb Blaöið Komsomoiskaya Pravda í Sovétríkjunum: GEDLÆKNINGAR GROF LEGA MISNOTAÐAR Opinberir einbættismenn í Sovétríkjunum senda heilbrigt fólk á geðsjúkrahús í samstarfi við geðlækna. Það var í dagblaði ungra kommúnista í Iandinu sem greint var frá þessu í gær þar sem misnotkun geðsjúkdómameðferðar var harkalega gagnrýnd. Komsomolskaya Pravda sagði geðlækna gefa sjúklingum gagnslaus lyf, skrifa upp á sjúkravottorð fyrir glæpamenn gegn mútum og kynna sér ekki nútíma geðlækningar. Blaðið minntist ekki beint á að geðsjúkdómar hefðu verið lognir upp á pólitíska andófsmenn en gagnrýnin var harðorð og á sér engan líka í fjölmiðlum þar eystra. „Rammgerðar girðingar hafa í mörg ár skýlt geðsjúkdómafræðum og geðlækningum frá opnunar- stefnunni (glasnost),“ sagði I Komsomolskaya Pravda. Blaðið sagði frá tuttugu ára gam- alli verkakonu í Leníngrad, Mar- inu að nafni. Hún kvartaði opin- skátt um aðbúnað á vinnustað og yfir framkvæmdastjóra sínum og var stuttu síðar send á geðsjúkra- hús og sjúkdómsgreind sem geð- klofi þrátt fyrir að hafa aldrei sýnt einkenni þessa sjúkdóms. „Hvað varðar Marinu, þá var hún augljós- lega heilbrigð“, sagði Komsomol- skaya Pravda. Blaðið gagnrýndi geðlækna sem og aðbúnað á geðsjúkrahúsum. Dæmi voru tekin um slæmt ástand þessara mála í Moskvu en það var samt sagður barnaleikur miðað við marga staði í sumum lýðveldum landsins. Sagt var frá geðlæknum á sjúkrahúsi í þorpi einu á ónefndum stað sem höfðu misnotað aðstöðu sína á margvíslegan hátt t.d. dregið gulltennur úr tveimur sjúklinga sinna. Reuter/hb

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.