Tíminn - 12.11.1987, Síða 16

Tíminn - 12.11.1987, Síða 16
16 Tíminn Fimmtudagur 12. nóvember 1987 Börnin kynnast vinnunni Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér litmyndabókina Við sem vinnum verkin eftir Anne Civardi og Stephen Cartwright. Bókin er ætluð yngstu kynslóðinni og þar er sagt frá þeim margvislegu störfum sem menn sinna. Ábókarkápusegirm.a.: „Hvað hefur fólk fyrir stafni mest allan daginn? Flestir fara reyndar í vinnuna. En hvað er fólkið svo að gera þegar það er komið í vinnuna? Hér getur þú séð hvernig þetta er á Borghólmi - en það er land sem ekki er á neinu landakorti. Þar býr samt fjöldinn allur af skemmtilegu fólki, borgarstjórinn Ráðhildur Hólm, Slorgeir Flakan sem selur fisk, Dómharður Lagalín yfirdómari, Bílgarður Pústmann og margir margir fleiri. Hvað æltar þú svo að starfa þegar þú verður stór?“ Við sem vinnum verkin er 37 bls. prentuð i Englandi. Bjarni Fr. Karlsson íslenskaði. I/] ID OG FLEIRI r\mjlVjUri FYRIRBÆRI fobucid SIGRÚNELDJÁRN Kuggur kominn ábók Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér nýja bók eftir myndlistarkonuna og barnabókahöfundinn Sigrúnu Eldjárn. Nefnist hún Kuggur og fleiri fyrirbæri og þar segir frá drenghnokka sem m.a. hefur gert garðinn frægan í Stundinni okkar. Sögur Sigrúnar hafa notið vinsælda meðal barna og í sumar hlaut bók hennar—B 2 - verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur sem besta frumsamda bamabókin árið 1986. í bókinni segir frá Kuggi og kostulegum vinum hans, Málfriði og mömmu Málfríðar — skrýtnum kerlingum sem ekki kalla allt ömmu sína þegar taka skal til hendinni, Gerólfibónda á Grísatá, að ógleymdum Mosa - glaðlyndu og hrekkjóttu kríli sem býr yfir ótrúlegum hæfileikum og leysir vanda vina sinna eins og ekkert sé. Kuggur og fleiri fyrirbæri er 32. bls., prýdd rúmlega fjörutiu litmyndum eftir höfundinn. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Ljóðskáldið Brecht Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér bókina Bertolt Brecht, Kvæði og söngvar 1917-1956. Brecht er eitt af mestu ljóðskáldum þessarar aldar og í bókinni gefst íslenskum bókmenntaunnendum i fyrsta skipti tækifæri til að kynnast stóm úrvali ljóða hans i búningi sextán íslenskra þýðenda. Einungis um þriðjungur ljóðanna hefur áður birst á prenti. Þorsteinn Þorsteinsson annaðist og þýðir mikinn hluta ljóðanna i bókinni. Auk þess ritar hann ítarlegan inngang um Ijóðskáldið Bertolt Brecht. Af öðmm þýðendum má nefna skáldin Halldór Laxness, Sigfús Daðason, Þorgeir Þorgeirsson, Þorstein frá Hamri og Þórarin Eldjárn. Úrvalið hefur að geyma á annað hundrað ljóða, þ.á m. safn söngva úr leikritum Brechts. Á kápubaki bókarinnar segir m.a.: „Öll mikil kvæði hafa heimildargildi, “ sagði Bertolt Brecht eitt sinn. - Ljóð hans em eftirminnilegri vitnisburður um nútímann en flest annað í ljóðagerð tuttugustu aldar. Þau em öðmm þræði átakanleg saga styrjalda, útlegðar og stéttabaráttu. Um leið vitna þau um djarfmannlega leit gáfaðs listamanns og þrotlausa baráttu fyrir mannúðlegri og betri heimi. “ Ævintýri á sjó Hjá bókaforlagi Máls og menningar er komin út bók fyrir böm með ljóði Jóhannesar úr Kötlum, Saga af Suðurnesjum, myndskreyttu af Ragnheiði Gestsdóttur. í kvæðinu segir frá dreng sem fer út á sjó að fiska í soðið og steypist útbyrðis. En hin unga aílakló dmkknar ekki aldeilis heldur skyrpir saltinu út úr sér og heimsækir son Faraós í kóralhöll hans neðansjávar og haUarfrúna fögm... Saga af Suðurnesjum var fyrst prentuð í Ömmusögum sem komu út árið 1933. Ragnheiður Gestsdóttir hefur gert þrettán klippimyndir í fullum htum við ljóðið. Bókin er 25 bls. Guðni Franzson klarínettleikari Guðni Franzson klarinett- leikari leikur með Sinfóníuhljómsveitinni 4. áskriftartónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands verða haldnir í Háskóla- bíói í kvöld, fimmtud. 12. nóvember. Þá leikur Guðni Franzson klarinettleikari i fyrsta skipti einleik með hljómsveitinni, Klarínettkonsert nr. 2 eftir Weber. Auk þess verður á dagskrá Vespurnar eftir Vaughan-Williams og Sinfónía nr. 5 eftir Tschaikovsky. Stjórnandi á tónleikunum verður Frank Shipway. Hann stjórnaði fyrstu tónleikunum í haust og verður nú hér á Iandi fram í desember og mun stjórna á fimmtu og sjöttu reglulegu tónleikum hljómsveitarinnar. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 í kvöld í Háskólabíói. Miðasala verður samdægurs í skrifstofu hljómsveitarinnar í Gimli við Lækjargötu og við innganginn. Vegamái Vegamál - fréttabréf 3. tbl. 10. árg. er nýkomið út. Vegamál er fréttabréf Vegagerðar ríkisins. Það flytur fréttir af mönnum og málefnum er varða vegagerð og er ætlað öllum þeim sem áhuga hafa á vegamálum, innan stofnunar og utan. Vegamál koma út fjórum sinnum á ári. Áskrift er endur- gjaldslaus, en sækja þarf um hana skrif- lega og tilgreina ástæður fyrir áhuga. Umsókn um áskrift, breytingar á heimilis- fangi og efni í blaðið, á að senda til: Vegagerð ríkisins c/o Viktor Ingólfsson, Borgartúni 7, 105 Reykjavík. Á forsíðu er mynd frá vegarlagningu í Ljósavatnsskarði. Af efni í blaðinu má nefna Bláskeggsá í Hvalfirði, en þar eru sýndar gamlar og nýjar myndir af brú yfir ána og umhverfi. Sagt er frá ráðstefnu vegalögfræðinga, sem haldin var hér á landi 23.-25. júní sl. og stjórnarfundi NVF. Gamlar myndir frá vega- og brúa- framkvæmdum eru í blaðinu, manna- myndir vegna afmæla starfsmanna vega- mála á íslandi og fleiri myndir. Kort er af íslandi þar sem sýnt er hve langt er komið að leggja bundið slitlag á vegakerfi landsins. Ritstjóri er Viktor Ingólfsson. Almanak Háskólans komið út Út er komið Almanak fyrir fsland 1988, sem Háskóli íslands gefur út. Þetta er 152. árgangur ritsins, sem komið hefur út samfellt síðan 1837. Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarnfræðingur hjá Raun- vísindastofnun Háskólans hefur reiknað almanakið og búið það til prentunar. Ritið er 96 bls. að stærð. Auk dagatals með upplýsingum um flóð og gang himin- tungla flytur almanakið margvíslegan fróðleik. I heild er yfirbragð ritsins svipað og undanfarin ár, en ýmsar töflur og teikningar hafa verið endurskoðaðar með hliðsjón af nýjustu upplýsingum. Af nýju efni má nefna yfirlitstöflu sem sýnir stærð, mannfjölda og höfuðborgir allra sjálfstæðra ríkja í heiminum. Taflan er sérstæð að því leyti, að tölur um stærð og mannfjölda miðast allar við stærð íslands og fjölda fslendinga. Þá er þama að finna yfirlit um tímareikning á íslandi, þar sem sjá má m.a., hvenær svonefndur sumar- tími var í gildi. Háskólinn annast sölu almanaksins og dreifingu þess til bóksala. Almanakið kemur út í 8500 eintökum, en auk þess eru prentuð rúmlega 3000 eintök, sem Þjóðvinafélagið gefur út sem hluta af sínu almanaki með leyfi Háskólans. Ný spænskukennslubók HABLAM0S ESPAN0L Út er komin hjá Vöku-Helgafelli ný spænskukennslubók með sjónvarpsþátt- unum, sem byggðir eru upp með þarfir ferðamanna í huga. Endursýning á þáttunum sem sýndir voru í byrjun þessa árs hefur staðið yfir frá því í september, en 31. okt. hófust sýningar á nýrri þáttaröð, sem ekki hefur verð sýnd áður. 1 nýju bókinni, Hablamos Espanol 2, er fjallað áfram um efnið á sama hátt og í fyrri bókinni. Bókin skiptist niður í þrettán meginkafla. Bækurnar fást í flestum bókaverslunum landsins og þættina er hægt að kaupa á myndböndum hjá Sjónvarpinu eða leigja út á þeim bókasöfnum sem bjóða slíka þjónustu. Kennslubókin Hablamos Espanol 2 er 138 bis. Guðrún Halla Tuliníus menntaskólakennari þýddi íslenska texta bókarinnar. Langenscheidt útgáfufyrirt- ækið annaðist gerð bókarinnar, en það hefur sérhæft sig í útgáfu orðabóka og efnis á sviði tungumálakennslu. Prent- smiðjan Oddi í Reykjavík annaðist prent- un og bókband. Bókin mun fást í öllum bókaverslunum landsins og kostar 1448 krónur með söluskatti. Basar Verkakvenna- félagsins Framsóknar Verkakvennafélagið Framsókn minnir félagskonur sínar á basarinn, sem verður á laugard. 14. nóv. kl. 14:00 í húsi félagsins Skipholti 50 A. Basarnefndin Upplýsingamiðstöð ferðamála Upplýsingamiðstöð ferðamála hefur aðsetur að Ingólfsstræti 5. Þar eru veittar allar upplýsingar um ferðaþjónustu á lslandi og það sem er á döfinni í Reykja- vík. Opið er mánudaga til föstudaga kl. 10:00 - 16:00, laugardaga kl. 10:00-14:00, en lokað er á sunnudögum. Síminn er 623045. Fundur í Sálarrannsóknar- félaginu í Hafnarfirði Fundur verður haldinn í kvöld, fimmtud. 12. nóvember, í Sálarrannsókn- arfélaginu í Hafnarfirði í Góðtemplara- húsinu og hefst kl. 20:30. Dagskrá: Úlfur Ragnarsson læknirflyt- ur erindi, Jóhanna Linnet syngur við undirleik Guðna Þ. Guðmundssonar og upplestur - Hulda Runólfsdóttir. Stjórnin Félagsvist Húnvetningafélagsins Spiluð verður félagsvist hjá Húnvetn- ingafélaginu í Reykjavík á laugardag, 14. nóv.,kl. 14:00. Spilað er í félagsheimilinu Skeifunni 17. Þriggja daga keppni að hefjast. Allir velkomnir. Ný sýning i Slúnkaríki Georg Guðni opnar sýningu í Slúnka- ríki á ísafirði laugardaginn 14. nóvember. Hann mun sýna þar landslagsmyndir. Sýningin verður opin til 1. desember. Slúnkaríki er opið fimmtudaga, föstu- daga, laugardaga ogsunnudaga kl. 16:00- 18:00. '% rr ■> JÖHANNA KRISTÍN YNGVADÓTTIR Gallerí B0RG: Sýning Jóhónnu Kristínar Yngvadóttur Jóhanna Kristín Yngvadóttir heldur sýningu á nýjum olíumálverkum í Gallerí Borg dagana 12.-24. nóvember. Jóhanna útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskólanum árið 1976. Að því námi loknu hélt hún til Hollands og stundaði þar listnám í fjögur ár. Jóhanna Kristín hlaut starfslaun á síð- asta ári og dvaldist þá um nokkurra vikna skeið á Grænlandi, en hluti þeirra mynda sem hún sýnir í Gallerí Borg eru einmitt unnar þar og í framhaldi af þeirri dvöl. Sýningin verður opnuð í dag, fimmtu- daginn 12. nóvember og stendur til 24. sama mánaðar. Rúna Gísladóttir við eitt verka sinna á sýningunni á Kjarvalsstöðum. Kjarvalsstaðir: Sýning Rúnu Gísladóttur Rúna Gísladóttir opnaði einkasýningu að Kjarvalsstöðum laugard. 7. nóv. kl. 14:00. Þetta er fyrsta einkasýning hennar, en hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum, m.a. FlM sýningum 1981 og ’83 o.fl. Rúna Gísladóttir er fædd í Kaup- mannahöfn 1940. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Islands 1962 og stund- aði kennslu í Reykjavík og á Vatnsleysu- strönd um tíu ára skeið. Hún nam síðan málun og myndvefnað í Noregi og var við nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands og útskrifaðist úr málaradeild 1982. Rúna starfar nú sem listmálari á vinnu- stofu að Selbraut 11 á Seltjarnarnesi, þar sem hún stundar einnig myndlistar- kennslu í námskeiðaformi. Á sýningunni að Kjarvalsstöðum verða málverk og collage-myndir sem hún hefur unnið á undanfömum árum. Sýningin er opin daglega kl. 14:00- 22:00 til 22. nóv.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.