Tíminn - 13.11.1987, Blaðsíða 3
Föstudagur 13. nóvember 1987
Tíminn 3
v»r nýiliKv* «'0k- M,riy.l*nn* *
n»"'uniJ?,toín “*«'" “ w»r vtru tfu »* <*of6a,'l
'lern^ noWVr. ,rin;' V^r*" aflSöIn «n*riMl
»»nJ' U"' ’rðun UU'llf‘ cn ‘0 iVVndío Uluv'oH
pc'rrl ‘ti Jiun‘*un°, V hinm h‘,ð ,kr» V>lW»rn'i"v
aöcld v»»»un' ** in i Þ»nnlf .. icluu»
'•f’líw4' funk\t^»r'«ndu*lVrUn<*tt h,'“í
Horöur^ Noröur-M
...,a 1>W“
°r rc »* N°rflur \cc»nh'u»» Þ
*en» »uð‘ uB» rl»lurn' * " an»n»nk‘nn *
”“6 ‘•■"K''íshí- >f“
infiav»öt* u#n, iri vit4“,n‘- „
StfgO&tíS
»nn* ,«Jnu«“ *romm hc(ur u»»r'
UOd \Vc vcl "m oK h‘r
þ»ð. hv h»k»n'un*m4n hiv*
“ö .6 .»l'uu'au he>m>vc16'
vtsi"."
‘ijóTmnn''
ssJS^rrs^
_ _^,rlk»n i
;;r< ioftáP4 ■*' * is/4n(J ur°'. hVOf
i.«. *i '>«. srr*
\k... *•'*■« v... dn«/,.f.„„ r' r/ui.i
JSSSssSS^^:
........................
^XT'-CTfr- ™;
5«v“» S*v**' >.m «£&*/;
ívrir L*’4' hi»r< lj* knrn‘ö up,!'n..'nrrk‘. að ,,
Ör,f l'ánJrUn,"n i »"") \!j'l,'",n Jó,
,lrn«iikt JJ hr*u<ina Za? °K "‘ /JL,d*r r*l\
«*«s *«»,«2* ""'• «• m,,t
‘'&Z'ffiZ.T"*'
Kaldastríðsskýrslur Bandaríkjamanna um Island birtar hér á landi 1976:
Morgunblaðið leyniskjal
norska sagnfræðingsins?
Fréttir ríkisútvarpsins í vikunni og alvarlegar ásakanir um að Stefán
Jóhann Stefánsson hafí átt í leyniviðræðum við bandarísku leyniþjónust-
una á árunum frá 1947 til 1949 og ekki síður framhald Þjóð viljans af þeim
fréttaflutningi hafa orðið til þess að málið kom til umfjöllunar á Alþingi
í gær. í fréttaflutningi Þjóðviljans er alfarið visað til frétta í ríkisútvarpi
um ný leyniskjöl. Ríkisútvarpið vísar hins vegar til norsks sagnfræðings
Dag Tangen sem kveðst hafa undir höndum leynisköl sem sýna tengsl
Stefáns Jóhanns við CIA, bandarísku leyniþjónustuna. Hjá fréttastofu út-
varps fengust þær upplýsingar í gær að um værí að ræða 3 leyniskjöl sem
Tangen þessi kveðst hafa undir höndum, þar af fjallaði eitt þeirra um
Stefán Jóhann. Fréttastofan hefur ekki fengið að sjá umrætt skjal, hjá
norska sagnfræðingnum, en hefur orð hans fyrir innihaldi þess. Hins vegar
segist ríkisútvarpið vera að reyna að fá Ijósrít af þessum pappírum, en það
gangi illa.
Það sem unnt er að ráða af
fréttaflutningi af því sem í leyni-
skjölunum stendur. virðist hins
vegar benda til að hér sé að stofni
til um vel þekkt skjöl að ræða,
skjöl sem íslenskir sagnfræðingar
og biaðalesendur hafa þekkt á
annan áratug. Árið 1976 birti
Morgunblaðið bálk undir heitinu
„Úr bandarískum leyniskýrslum“.
í þeim skjölum er að fmna allt það
sem Þjóðviljinn hefur sagt uni
þessa uppgötvun norska sagnfræð-
ingsins og tengist íslandi beint.
Með einni undantekningu. Hvergi
er talað um þcssi tengsl Stefáns
Jóhanns og CIA.
í forsíðufrétt Þjóðviljans í fyrra-
dag er sagt um nýjar upplýsingar
sem koma úr skýrslum sem Norð-
maðurinn „uppgötvaði": „í skýrsl-
unum er skýrt frá umræðum í
Þjóðaröryggisráðinu í Washington
um íslensk efni. Þar kemur fram að
ekki er talin hætta á sovéskri
hernaðarógn, en hins vegar rætt
um hugsaniega byltingu sem
“kommúnistar“ gætu gert hér.
Mælt er með því að sendar verði
hersveitir til landsins til að koma í
veg fyrir þessa byltingu. í frétt
útvarpsins sagði að af samhengi í
skýrsiunni megi ráða að Stefán
Jóhann hafi verið á sama máli.“
Svo virðist sem Þjóðviljinn hafi
kosið að ná þessum upplýsingum
eftir krókaleiðum frá Noregi í
gegnum ríkisútvarpið, í stað þess
að lcsa skýrsluna í heild sinni eins
og hún birtist, ásamt fleiri skýrslum
í Morgunblaðinu 1976, en sú
skýrsla fjallar einmitt um þessar
umræður um ísland í Þjóðarörygg-
isráðinu (NSC). Þar segir um þetta
í skýrslu frá 29. júlí 1949 sem ber
nafnið „Um stöðu Bandaríkjanna
að því er varðar hagsmuni þess og
öryggi Norður-Atlantshafsins,
hvað ísland snertir.“: „Öryggisráð
Bandaríkjanna hefur með skjali
NSC númer 10 staðfest hernaðar-
legt mikilvægi íslands sem og
Grænlands og Azoreyja." Síðan
segir í sömu skýrslu: „I viðræðum,
sem fóru fram í Washington í mars
1949, milli íslenska utanríkisráð-
herrans og fulltrúa bandaríska
utanríkisráðuneytisins og her-
málaráðuneytisins, voru menn
sammála um það, að hugsanleg
bylting íslenskra kommúnista væri
mesta hættan, sem vofði yfir (s-
landi. Hversu mikil sú hætta er,
kom grcinilega í ljós í uppþotum
kommúnista meðan umræður um
Norður Atlantshafssáttmálann
fóru fram á Alþingi 31. mars."
Ekkert er hægt að ráða af samhengi
þessarar skýrslu um Stefán Jóhann,
enda hvergi á hann minnst.
Rétt er að taka fram að hér er
um að ræða bandarísk skjöl og mat
bandarískra embættismanna á ást-
andi og horfum hvað varðar banda-
ríska hagsmuni á (slandi í upphafi
Kalda stríðsins. Mat þcirra á við-
horfum og gerðum íslenskra
stjórnmálamanna verður því að
skoðast í því samhengi. Samkvæmt
kvöldfréttum útvarps í gær, þcgar
loksins var greint frá efnisiegu
innihaldi þess leyniskjals sem teng-
ir Stefán Jóhann við CIA, munu
tengslin vera þau að bandarískur
embættismaður ritar Truman for-
scta bréf um að íslenski forsætis-
ráherrann „skuli ákveða hvaða ís-
lendingar hafi samband við Banda-
ríkjamenn og hann átti einnig að
ákveða hvaða (slcndingar áttu að
taka þátt í baráttunni gcgn hugsan-
lcgri byltingu kommúnista." í þeim
skýrslum sein þcgar hafa verið
birtar og sýna mat Bandaríkja-
manna sjálfra á íslensku stjórn-
málaástandi kemur efnislega það
sama fram, þ.e. að þeir lelja að
íslensk stjórnvöld séu orðin með-
vituð um nauðsyn þess að styrkja
lögreglu vegna möguleikans á
kommúnískri byltingu.
Á meðan ckki fást afdráttarlaus-
ari upplýsingar, en fullyrðing um
reglulega fundi forsætisráðhcrra ís-
landsogsendiherra Bandarfkjanna
ásamt þriðja manni, um innihald
þess skjals sem norski sagnfræð-
ingurinn hefur undir hönduni verð-
ur að líta svo á aö hann hafi rekist
á skjöl sem íslendingum voru löngu
kunn, en hann sökum ókunnug-
leika talið mikla uppgötvun.
Hráolíuhvarfiö hjá hernum
Sjö tankbílar
skila sér ekki
Mögulegum skýringum á hvarfi
75.000 lítra af hráolíu ameríska
hersins, hefur nú fækkað um eina.
Búið er að grafa ofan af öllum þeim
kafla leiðslunnar, sem grunsemdir
hafði vakið. Einnig er búið að fara
eftir allri leiðslunni með skynjunar-
tæki og á jarðveginn í kring. Ekkert
hefur komið fram, sem bendir til
þess að magn, sem svarar til sjö
tankbíla hafi hripað þar niður eða út
í jarðveginn.
„Eins og hlutirnir líta út núna eru
engin ummerki um mengun," sagði
starfsmaður varnarmálaskrifstofu
eftir að niðurstöður höfðu verið
ræddar í vinnuhópnum, sem utan-
ríkisráðherra skipaði vegna þessa
máls. Sagði hann að þessar niður-
stöður þýddu það að fara yrði betur
ofan í saumana á bókhaldi öllu. Það
væru Bandaríkjamenn, sem hefðu
sjálfir umsjón með því, þannig að
það væri í sjálfu sér ekki beint á
verksviði íslendinga að kanna það.
Áður hefur verið getið um aðrar
mögulegar leiðir olíunnar burt úr
tönkunum samkvæmt því sem vinnu-
hópurinn starfar eftir. Þær helstu
hafa þegar verið nefndar, en það er
bókhalds- eða skráningarskekkja
eða stuldur.
Þegar Tíminn átti viðtal við Frið-
þór Eydal, blaðafulltrúa varnarliðs-
ins, við uppgröftinn í gær, lagði
hann áherslu á, að það eina sem
skipti máli væri spurningin um það
hvort mengun hefði átt sér stað eða
ekki. Allt annað í þessu máli væri
aukaatriði.
KB
Lítill hluti uppgraftarins, dæluhús
og tankurinn.
Lengst til vinstri á myndinni er nýi
lokinn sem settur var í, þegar sá
gamli gaf sig við þrýstiprófanir.
Tímamynd Pjelur