Tíminn - 05.12.1987, Blaðsíða 13

Tíminn - 05.12.1987, Blaðsíða 13
Laugardagur 5. desember 1987 'Tíminn 13 Silfurstóllinn kominn út Hjá Almenna bókafélaginu er komin út bókin Silfurstóllinn eftir C.S. Lewis. Er þetta fjórða ævintýrabókin eftir C.S. Lewis sem kemur út á íslandi. Hafa bækurnar eignast marga aðdáendur hér ekki síður en annars staðar í heiminum. í Silfurstólnum er Kaspían konungur í Namíu orðinn gamall. Einkasyni hans Rilían hefur verið rænt, en nú er mikil þörf fyrir hann til að taka við konungdómi s vo að ríkið lendi ekki í höndum óvinanna. . Tveir breskir skólakrakkar, Elfráður Skúti og Júlía, eru eftir töfraleiðum komnir til Narniu. Það kemur í þeirra hlut að leita kóngssonar, en þau hefðu ekki komist langt á hinum hættulegu leiðum sem þau verða að fara ef fenjavingullinn Dýjadámur hefði ekki slegist í för með þeim. Hin íslenska þýðing Kristínar R. Thorlacius er frábærlega góð, enda hefur hún verið verðlaunuð af Skólamálaráði Reykjavíkiu:. Bókin er 252 bls. að stærð. Setningu, prentun og bókband annaðist Prentverk Akraness hf. smjorlikisgerð«^£> SÍMI 96-21400 • AKUREYRI Tíl dJuptlcHu.'Sit. t kaftonum. klttrnm. kfoh og l'Ski iujöm tnn.r.uio m a AKwiutfH A S_G C I R J A K Q B S S O N ■ ði iLumut MVA1WAR JAIUJXX II.VIIKVUil MMCUi.VSO.Vlff StUGCSir BÆRI BYRJUN ALDAR HAFNARFJÖRÐUR HAFNARFJARÐARJARLINN Einars saga Þorgilssonar Ásgeir Jakobsson Bókin er ævisaga Einars Þor- gilssonar wn leiö og hún er 100 ára útgerðarsaga hans og fyrirtækis hans. Einar hóf út- gerð sína 1886 og var því út- gerðin aldargömul á síðasta ári og er elzta starfandi út- gerðarfyrirtæki landsins. Þá er og verzlun Einars Þorgilssonar einnig elzta starfandi verzlun landsins, stofnuð 1901. Einar Þorgilsson var einn af „feðrum HafnarQarðar," bæði sem atvinnurekandi og bæjar- fulltrúi og alþingismaður. Þá er þessi bók jafnframt almenn sjávarútvegssaga í 100 ár og um það saltfiskiíf, sem þjóðin lifði á sama tíma. FANGINN OG DÓMARFNN Þáttur af Sigurði skurdi og Skúla sýslumanni Ásgeir Jakobsson Svonefnd Skurðsmál hófust með því, að 22. des. 1891 fannst lík manns á skafli á Klofningsdal í Önundarfirði. Mönnum þótti ekki einleikið um dauða mannsins og féll grunur á Sigurð Jóhannsson, sem kallaður var skurdur, en hann hafði verið á ferð með þeim látna daginn áður á Klofningsheiði. Skúla sýslu- manni fórst rannsókn málsins með þeim hætti, að af hlauzt 5 ára rimma, svo nefnd Skúla- mál, og Sigurður skurður, sak- laus, hefur verið talinn morð- ingi í nær 100 ár. Skurðsmál hafa aldrei verið rannsökuð sérstaklega eftir frumgögnum og aðstæðum á vettvangi fyrr en hér. BÆR í BYRJUN ALDAR HAFNARFJÖRÐDR Magnús Jónsson Bær í byrjun aldar — Hafnar- fjördur, sem Magnús Jónsson minjavörður tók saman, er yfirlit yfir íbúa og hús í Hafn- arfirði árið 1902. Getið er hvar húsin voru staðsett í bænum, hvort þau standa enn o.s.frv. Síðan er getið íbúanna. Og þar er gífurlega mikill fróðleikur samankominn. Ljósmyndir eru af íjölda fólks í bókinni. Allur aðaltexti bókarinnar er handskrifaður af Magnúsi, en aftast í bókinni er nafnaskrá yfir þá sem í bókinni eru nefndir, alls 1355 nöfn. SKUGGSJÁ - MEÐMÖRGUIÓLKI ÖSPIN OG ÝLUSTRÁID Audunn Bragi Sveinsson Haraldur Magnússon Auðunn Bragi Sveinsson, fyrr- verandi kennari og skólastjóri, hefur ritað margt sem birst hefur í blöðum og tímaritum í gegnum árin í ljóðum og lausu máli, og einnig hefur hann ritstýrt nokkrum bók- um. Bók sú sem hér birtist íjallar fyrst og fremst um fólk við ólík skilyrði og í mismun- andi umhverfi, — frá afdal til Austurstrætis, ef svo má að orði komast. Með mörgu fólki er heitið, sem höfundur hefur valið þessu greinasafni sínu. Mun það vera réttnefni. Haraldur Magnússon fæddist á Árskógsströnd við Eyjafjörð 1931. Hann ólst upp íEyja- firði og Skagafirði fram að tvítugsaldri. Nú býr hann í Hafnarfirði. Þetta smásagna- safn er fyrsta bók Haraldar, en þessar sögur og íleiri til hefur hann skrifað í frístundum sín- um undanfarin ár. Sögurnar eru að ýmsu.leyti óvenjulegar og ílestar fela þær í sér boð- skap. Þetta eru myndrænar og hugmyndaauðugar sögur, sem höfða til allra aldurshópa. BÓKABÚÐ OUVERS STEINS SE PRISMA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.