Tíminn - 05.12.1987, Blaðsíða 24

Tíminn - 05.12.1987, Blaðsíða 24
, JÞetta var voðalega góð Það var í desember í hitteðfyrra, sem Theodóra Gústafsdóttir, fiskverkakona og einstæð móðir frá Siglufirði hreppti þann stóra í Happdrætti SÍBS. „Það fyrsta sem ég hugsaði var hvað það væri gott að losna úr skuldasúpunni. Ég hafði tekið þá ákvörðun, að reyna að gera við húsið og var búin að fá víxla fyrir byrjuninni. Ég var fljót að borga þá upp þegar vinningurinn kom. Ég hef gert heilmikið síðan. Þessi vinningur hefur gjörbreytt stöðunni. Við fórum t.d. í sumar- frí í fyrsta skipti sonur minn og ég, fórum til Mallorca í 3 yndislegar vikur. Annar sonur minn er þroskahefur og býr á Sólborg á Akureyri. Þau sárvantaði sjónvarp þar, svo að ég lét þau fá fyrir því og eitthvað meira. Það breytti miklu fyrir vistfólkið. Ég lauk við húsið og meira en það og nú er ég búin að gera það sem ég ætlaði mér og get slak- að á. Ég vinn mína vinnu í fiskinum og er laus við stress af peningaáhyggjum. Vinningurinn kom á besta tíma fyrir mig. Ég á bara einn miða og ætla auðvitað að eiga hann áfram". Er röðin komin aö þér? Hver verður sá þrælheppni í þetta sinn? Það veit enginn. Allir sem eiga miða eiga möguleika. Kannski er röðin komin að þér. „Eg trúi þessu ekld . 44 sagði Guðrún Jóhannesdóttir, húsmóðir að Rauðbarðaholti í Hvammssveit, þegar Ása, umboðsmaður Happdrættis SÍBS í sveitinni hringdi um kvöldmatarleytið þann 5. desember í fyrra og tilkynnti henni að hún hefði unnið hæsta vinninginn í happdrættinu. Heppnin hafði ekki leikið við Guðrúnu og fjöl- skyldu hennar fram að þeim tíma. Allt fé þeirra var skorið niður vegna mæðuveiki í upphafi búskaparins og skömmu síðar misstu þau einu kúna, nýborna. Við þetta bættist að húsbóndinn veiktist og hefur verið öryrki síðan. Börnin 6 að tölu, hafaverið lán þeirra í lífinu. „Það var þungt í mér þennan dag, ég fékk reikningsyfirlitið frá Kaupfélaginu og á því var ansi Ijót skuld. Svo hringdi dóttir m ín frá Akranesi og sagði mér frá öllum jólavarningnum sem kom- inn væri í búðirnar. Ég sagði: Nú nefnir þú engar jólagjafir, ég get engar keypt í ár nema eitthvert kraftaverk gerist. Og kraftaverkið gerðist. Ég áttaði mig ekki á því lengi vel hvað þetta var há upphæð. Ég hef aldrei haft nokkra krónu á milli handanna. En þessi vinningur hefur breytt miklu í mínu lífi. Ég byrjaði á því að borga skuldirnar en fyrir utan dráttarvélina og jólagjafirnar sem við keyptum hef ég legið ájDesu eins og ormur á gulli. Þetta fé gefur okkur styrk til þess að hugsa til ellinnar. Svo bætti ég við 2 miðum í SÍBS. Ég vil ein- dregið styrkja málefnið, mér finnst það eiga það skilið og svo virðist ég vera heppin í spilum..."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.