Tíminn - 06.02.1988, Page 1
TOLFDUKA BRUNI
ÁHÓTELBORGÍ
HÁDEGINUl GÆR
• Blaðsíða 3
Þenslustefna borg-
arinnar setur ríkis-
stjórnina í vanda
• Blaðsíða 3
1
Lagði heimsrisa
Jóhann Hjartarson sigraði Victor Kortsnoj í
v áttundu einvígisskák þeirra í St. John í gærkvöldi
og stendur því uppi sem sigurvegarinn í einvíginu.
Óhætt er að fuiiyrða að með þeim sigri hafi Jóhann
uppfyllt draum þjóðarinnar og er nú kominn í hóp
þeirra átta skákmanna sem munu berjast um réttinn
til að skora á heimsmeistarann í skák. Með sigri
sínum á heimsrisanum Kortsnoj hefur Jóhann
komist lengst íslenskra skákmanna í keppninni um
eftirsóttasta titilinn í skákheiminum.
Kortsnoj féll á tíma I skákinni. Hann rauk á fætur
og sagði við Jóhann um leið og hann strunsaði
burtu: „aðstæður voru ómögulegar“.
Skákspekingar voru sammála um það í gær að
Kortsnoj hefðu orðið á mistök, þegar hann hætti sér
út í vafasamar flækjur í miðtaflinu.
Við skýrum skákina í þriðjudagsblaðinu. Við
óskum Jóhanni til hamingju með sigurinn. - ES
Steypudagurinn 1988 var haldinn
í gær að tilhlutan Steypufélags
íslands. Formaður félagsins ræddi
um steypu almennt við þetta tæki-
færi og sagði hann m.a. að alkalí-
skemmdir myndu minnka storlega
á næstunni. Hinsvegar yrðu vanda-
mál framtíðarinnar sprungur, leki
og ryðmyndanir. Ekki væri hægt að
ráða niðurlögum þessa nema með
góðri aðhlúun og því að niðurlögn
steypu yrði bætt til muna frá því
sem nú er. Eitt dæmi var sérstak-
lega tekið um hvernig betur mætti
hlúa að steypu. Oft vill það bíða
uppundir sólarhring að breitt sé
plast yfir steyptar plötur, eða þar til
þær hafa verið vélslípaðar. Þetta ku
vera hin mesta fífldirfska og á að
breiða yfir plötuna um leið og hægt
er. • Blaðsíða 5
Þeir eiga að breiða yfir plötuna um leið og hægt er.
Timamynd Pjetur
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjötíu ár
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988 - 29.TBL. 72. ÁRG.
Steypudagurinn 1988 haldinn hátíðlegur um land allt í gær:
Sprungur, leki og ryð
arftakar alkalískemmda
)