Tíminn - 06.02.1988, Page 3
Tíminn 3
Laugardagur 6. febrúar 1988
Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra:
Þenslustefna Reykjavíkur
setur ríkisstjórn í vanda
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, átti í gær fund með
forsvarsmönnum Verkamanna-, Vinnuveitenda- og
Vinnumálasambandsins. Þar var rædd sú staða sem upp er komin
í samningaviðræðum, eftir strandsiglingu þeirra s.I. miðvikudag.
Ekki voru á þessum fundum teknar neinar stórákvarðanir. Hitt
er Ijóst að vegna fyrirætlana aðila vinnumarkaðarins um samning
til lengri tíma, áramóta eða vors 1989, má ætla að stjórnvöld komi
nánar að samningsgerð en hingað til.
Þorsteinn Pálsson sagði á Al-
þingi í fyrradag að ekki væri
skynsamlegt að grípa beint inn í
viðræður samningsaðila, en hins-
vegar myndi ríkisstjórnin fylgjast
áfram með framvindu mála. Har.n
lét í það skína í ræðu sinni að ekki
væri ástæða til beinna efnahagsað-
gerða, á meðan lokaúrslit hefðu
ekki fengist í samningaumleitunum
Verkamannasambandsins og
vinnuveitenda.
Steingrímur Hermannsson,
utanríkisráðherra, segir að forsæt-
isráðherra hafi yfirstjórn efnahags-
mála og það sé því í hans verka-
hring að hafa frumkvæði um að-
gerðir ríkisstjórnar. „En ég er
sammála forsætisráðherra í því að
á meðan þessi samningatilraun er í
gangi, er erfitt að grípa til efna-
hagsaðgerða. Ég tel því að það hafi
verið hárrétt hjá honum að ræða
við aðila vinnumarkaðarins um þá
erfiðu stöðu sem nú er komin upp
í samningamálunum," sagði
Steingrímur.
Hann sagðist áður hafa talað um
að í febrúarmánuði skýrðist hvort
ríkisstjórninni tækist að snúa verð-
bólguþróuninni við. „Ég nefndi
febrúar vegna þess að nú er svo
komið að mörg okkar útflutnings-
fyrirtækja eru í þann veginn að
Steingrímur Hcrmannsson.
stöðvast. Það verður því að fara að
taka af skarið með að tryggja
þessum fyrirtækjum rekstrar-
grundvöll. Liður í þessu er að
endurgreiða söluskattinn, eins og
þegar hefur verið ákveðið. Einnig
koma skuldbreytingar til greina.
Og ég tel að komi til greina að
hverfa frá launaskattinum. Það
þarf að mínu mati að endurskoða
skattalögin, hverfa að einhverju
marki frá veltusköttum og taka
meira upp tckjutengda skatta.
Hinsvegar er rétt að hafa í huga að
svigrúm ríkissjóðs á þessum
þenslutímum er ekki mikið. Og ég
tel m.a. þess vegna ekki rétt að
lækka bensín nú, eða skatta
almennt."
Steingrímur sagði ennfremur að
m.a. til að slá á þensluna í þjóðfé-
laginu ætti Seðlabankinn að
ákvarða hámarksvexti, en um þetta
væru bæði alþýðuflokksmenn og
sjálfstæðismenn sér ósammála.
„Ég álít, í ljósi rúmra 30 prósenta
verðbólgu nú, að ekki sé hjá því
komist að draga mjög úr heimild-
um til lántöku erlendis. Og mér
finnst einnig koma til greina í
þessari stöðu að hægja á fbúða-
byggingum. Það er þó nokkuð
erfitt, vegna margra áðurútgefinna
lánsloforða".
Aðspurður sagði Steingrímur að
nýsamþykkt fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar, sem felur í sér 63%
aukningu fjárfestingar frá fyrra
ári, gæti velt áformum ríkisstjórn-
arinnar að ná tökum á verðbólg-
unni. „Það er auðvitað sorglegt að
stærsta sveitarfélag landsins, þar
sem þenslan er og hefur verið
mest, skuli blása svo harkalega í
glóðirnar. Og það er óskiljanlegt
að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki
sjá hag sinn og þjóðarinnar í að
hægja á þenslunni," sagði Stein-
grímur Hermannsson.
óþh
Tólf dúka bruni
á Hótel Borg í gær
Klukkan tíu mínútur yfir eitt í gærdag kviknaði í kalda borði
Hótels Borgar meðan gestir sátu enn að snæðingi. Sprittlampar eru
notaðir á öðrum enda borðsins til að halda heitum mat, sem að þessu
sinni var saltkjöt og baunir. Virðist sem spritt hafi runnið í bakka,
sem hafður er undir þessum lömpum, og síðan kviknaði í sprittinu.
Fyrstu aðgerðir voru að þrífa
bakkann og koma honum niður á
gólf. Vantaði nú hvergi góð ráð til
stúlkunnar sem í þessu stóð. Kunnur
framkvæmdastjóri hér í borg kallaði:
Leggið dúk yfir bakkann. Það var
gert, en áður en slokknaði í bakkan-
um hafði eldur borist í dúkhorn á
kalda borðinu. Logaði glatt í
dúknum. Framkvæmdastjórinn gaf
þá enn frekari fyrirmæli úr sæti sínu:
Kastiði dúkum á eldinn. Það var
gert. En á sama tíma voru afgreiðs-
lustúlkur að slá með dúkum til
eldsins og glaðnaði hann heldur við
það. Þá var gripið til þess ráðs að
sækja vatn í eldhúsið og urðu af því
nokkur hlaup.
Vegna asans við að slökkva kom
næsta lítið vatn í ílátum til baka en
á meðan gamnaði eldurinn sér við
einn borðfótinn og seildist lengra til
kalda borðsins, sem var að mestu
hroðið eins og venjulega, enda eru
þarna yfirleitt kræsingar á boðstól-
um. Brugðu nú menn við til hjálpar
afgreiðslustúlkum. Helsti lög-
fræðingur Útvegsbankans gekk
vasklega fram í slökkvistarfinu og
framkvæmdastjórinn vildi meiri
dúka. Einn af yfirmönnum Bruna-
bótafélagsins var fyrir nokkru geng-
inn úr salnum þegar þetta varð, og
söknuðu menn hans við þetta tæki-
færi. Einn af bankastjórum ríkis-
bankanna sat kyrr í sæti sínu og sneri
baki í eldinn og lét sér fátt um
finnast, enda vanur verðbólgubál-
inu. Haft var á orði að maður
Brunabótar væri fjarri góðu gamni,
einkum ef innbú Borgarinnar væri
tryggt hjá Sjóvátryggingarfélaginu.
Þá var þess ekki að vænta að af þessu
tilviki spryttu lög um notkun spritt-
lampa af því Albert Guðmundsson
var farinn með liðsmönnum sínum
frá fastaborði sínu.
Sá varð endir þessa máls, eftir að
eldur hafði leikið um stund við
borðshornið hjá baunaskálinni, að
skrifstofustúlka kom á vettvang með
rautt slökkvitæki og sprautaði á
eldinn. Hann lét sérsegjast en spratt
aðeins upp aftur undan dúkahrúgu á
borðinu, en fékk þá enn frekari
meðferð með slökkvitækinu, og þar
með lauk þessari viðureign. En
framkvæmdastjórinn, sem hafði lagt
til dúkameðferðina í byrjun lýsti þvi
yfir að í þessari lotu hefðu farið tólf
dúkar, og þykir það ekki mikið,
þegar á það er litið að bæði súr
hvalur, slátur, reykt kjöt, grænmeti
og sósur voru í bráðri hættu á
tímabili.
Verðlagsráð fundaði i gær:
Svartolía og
bensín lækkar
Á fundi verðlagsráðs í gær var
ákveðið að lækka verð á bensíni og
svartolíu. Nýtt verð tekur gildi í
dag.
Bensínverð lækkar um 5%, lítr-
inn lækkar úr 33,70 í 31,90 krónur.
Bensínlækkunin stafar að stærstum
hluta af lækkun innkaupsverðs og
lækkun á gengi dollars.
Svartolíulækkunin nemur
14,5%, verð á tonni svartolíu lækk-
ar úr 6900 í 5900 krónur. Sömu
ástæður eru gefnar fyrir þessari
lækkun og með bensínið, lækkun
innkaupsverðs og dollars.
Gasolíuverðið verður óbreytt,
enda markaðsverð á henni í hærri
kantinum um þessar mundir.
Bensínverð var síðast ákveðið í
1. nóvember s.l. og svartolíuverð í
október s.l. Erfitt er að spá fyrir
um hve lengi nýtt verð helst
óbreytt, en þess má geta að verð
hafa haldast fremur lág á heims-
markaði að undanförnu, og ekki er
þar útlit fyrir miklar breytingar. Þó
ber að slá þann varnagla að ef t.d.
gengi dollars hækkar á næstunni,
sem nú er að vísu ekki útlit fyrir,
má gera ráð fyrir hækkun olíuvara
aftur.
óþh
Sr. Alfreð Jolson vígður biskup kaþólsku kirkjunnar á íslandi:
Viðamesta vígslu-
athöfn síðan 1929
Bankaráð réð Tryggva Pálsson:
Nýr bankastjóri
Verslunarbankans
Á fundi í bankaráði Verslunar-
bankans, sem haldinn var í hádeg-
inu í gær, var samþykkt að ráða
Tryggva Pálsson, hagfræðing, aðal-
bankastjóra við Verslunarbankann
og mun hann hefja störf í næsta
mánuði. Tryggvi hefur verið yfir-
maður fjármálasviðs Landsbank-
ans.
Bankastjóm Verslunarbankans
verður eftirleiðis skipuð banka-
stjórunum Höskuldi Ólafssyni,
Kristjáni Oddssyni og Tryggva
Pálssyni. Formaður bankastjórnar-
innar verður Höskuldur Ólafsson.
þj
Sr. Alfreð Jolson verður í dag kl.
10.30 vígður til biskups kaþólsku
kirkjunnar á íslandi í Landakoti.
Hann kemur frá því að þjóna banda-
rískum söfnuðum og hefur verið
valinn að hætti kaþólsku kirkjunnar
til þjónustu, en í því felst margslung-
ið undanval til að tryggja, sem mest
má verða, handleiðslu Heilags anda.
Jóhannes Páll páfi valdi Alfreð Jol-
son endanlega í desember á síðasta
ári.
Biskupsvígslan verður trúlega ein
viðamesta athöfn sem orðið hefur í
kaþólsku kirkjunni á íslandi síðan
Moulenberg var vígður til sama
embættis árið 1929.
Alls verða 10 biskupar viðstaddir
vígsluna og 25 prestar og verður það
trúlega mikilfengleg sjón að sjá svo
marga skrýdda menn í kómum við
eina athöfn. Meðal þeirra sem hing-
að em komnir er erkibiskupinn í
New York, John kardínáli
O'Connor, er stýra mun vígslunni.
Sendiherra páfa er erkibiskupinn í
Kaupmannahöfn, H. Lemaitre.
í tilefni af útkomu sumaráætlunar
Útsýnar 1988 nú um helgina verður
opið hjá Útsýn á sunnudag kl. 14.00-
18.00 í Austurstræti 17, og á sölu-
skrifstofum og hjá umboðsmönnum
J.Foley erkibiskup frá Rómarborg
verður og viðstaddur auk formanns
biskuparáðs á Norðurlöndum, P.
Verchuren Finnlandsbiskup.
Sr. Alfreð Jolson mun flytja sína
fyrstu biskupsmessu strax núna á
sunnudaginn kl. 10.30 í Landakoti.
KB
um land allt.
Sumaráætlun ásamt verðskrá mun
liggja frammi og allar upplýsingar
eru veittar.
Opið hjá Útsýn ásunnudag