Tíminn - 06.02.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Laugardagur 6. febrúar 1988
Listasafn íslands:
Leiðsögn um saf nið
Starfsemi Listasafns Islands í nýju
húsnæði, að Fríkirkjuvegi 7, er nú
að hefjast af fullum krafti.
Nú er í gangi sýning í safninu, sem
ber heitið Aldarspegill, en þar er
kynnt íslensk myndlist frá árunum
Mynd febrúarmánaðar
Kjarval.
í Listasafni Islands, Fantasía eftir Jóhannes S.
1900-1987. Næstkomandi sunnudag
frá kl. 13-14 verður boðið upp á
leiðsögn sérfræðings um þessa sýn-
ingu. Ætlunin er að þessi þjónusta
verði veitt næstu sunnudaga á sama
tíma.
Safnið hefur tekið upp þá ný-
breytni að kynna vikulega „Mynd
mánaðarins". Febrúarmynd er Fant-
asía, eftir Jóhannes Kjarval, máluð
árið 1940. Sérfræðingur kynnir al-
menningi mynd mánaðarins alla
föstudaga kl. 13.30-13.45. Safnast
er saman í anddyri safnsins.
Aðsókn að áðurnefndri sýningu
Listasafnsins, Aldarspegli, hefur
verið mikil til þessa og því hefur
verið ákveðið að hafa safnið opið á
laugardögum og sunnudögum frá kl.
11.30-19.00. Aðra daga er safnið
opið frá kl. 11.30-16.30, nema
mánudaga. Aðgangur er ókeypis.
óþh
íslenska óperan fer af stað 19. febrúar:
Frumsýnir Giovanni
Æfingar á óperu W. A. Mozarts,
Don Giovanni, eru nú í fullum
gangi hjá íslensku óperunni, en
þar sem húsið hefur verið þétt setið
undanfarnar vikur og mánuði, hafa
æfingar þurft að fara fram utan
hússins. Nú er unnið að uppsetn-
ingu leikmyndar og er áformað að
henni ljúki um eða fyrir helgi.
Hljómsveitarstjóri er enginn
annar en Anthony Hose, sem er
íslenskum óperuunnendum að
góðu kunnur síðan hann stjórnaði
óperu Verdis, II Trovatore á sínum
tíma og leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir. Einsöngvararnir eru
hver öðrum þekktari, Kristinn Sig-
mundsson, Gunnar Guðbjörnsson,
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Viðar
Gunnarsson, Elín Ósk Óskarsdótt-
ir og Sigríður Gröndal, en auk
þeirra koma fram kór og hljóm-
sveit íslensku óperunnar.
Æfingastjórar eru Catherine
Williams og Peter Locke, Una
Collins sér um hönnun leikmyndar
og búninga, lýsingu annast Sveinn
Benediktsson og Björn R. Guð-
mundsson, en sýningarstjóri er
Kristín S. Kristjánsdóttir.
Forsala aðgöngumiða er hafin
og ósóttar pantanir á fyrstu þrjár
sýningarnar verða seldar eftir 10.
febrúar. Frumsýning verður 19.
febrúar næstkomandi. -SÓL
>
Útboð
Norðausturvegur um Hafralónsá í Þistilfirði
VEGAGERÐIN Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Lengd vegarkafla 2,0 km, fyllingar 3.600 m3 og burðarlag 7.000 m3. Verki skal lokið 1. október 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis- ins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 10. febrúar n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 29. febrúar 1988.
Vegamálastjóri
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Gatna
málastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í
gatnagerð og lagnir í Grafarvog 3, 1. áfanga.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudegi
9. febrúar, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn
24. febrúar kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Fiðlusnillingurinn Stephane Grappelli verður meðal margra aufúsugesta á
Listahátíð í Reykjavík í júnímánuði.
Listahátíð
í Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík 1988 verð- fslands, Vigdís Finnbogadóttir, en
ur haldin dagana 4. til 19. júní. heiðursforseti Vladimir Ashkenazy.
Verndari hátíðarinnar er forseti Hann mun og halda einleikstónleika
á hátíðinni.
m Dagvist barna
MT Tjarnarborg
Fóstru eða starfsmann vantar nú þegar. Um
hlutastarf eftir hádegi er að ræða.
Upplýsingar í síma 15798.
1| Dagvist barna
Nóaborg
Vantar starfsmann eftir hádegi í stuðning.
Upplýsingar í síma 29595.
Dagvist barna
Dyngjuborg
Vantar yfirfóstru allan daginn frá 20. febrúar.
Einnig fóstru eða manneskju til stuðningskennslu
fyrir börn með sérþarfir og starfsmann í hálfa
afleysingastöðu.
Upplýsingar í síma 31135.
Þakka innilega sveitungum og sýslunefnd Rangár-
vallasýslu, öllum skyldmennum og vinum mínum
sem sýndu mér hlýhug með heimsóknum, gjöfum og
heillaóskum á sjötíu ára afmæli mínu þann 9. janúar
síðastliðinn.
Með kveðju
Eyjólfur Ágústsson,
Hvammi
Landssveit
Stórbílaþvottastöðin
Höfðabakka 1 auglýsir
Höfum opnað aftur reglulega að nýju.
Takið eftir opnunartími nú frá 8 til 20 mánud. til
föstud. Frá 10 til 16 laugard. og sunnud., því opið
alla daga.
Áhersla lögð á sanngirni í viðskiptum. Sími
688060.
Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík
er fjölbreytt svo sem vera ber;
sýningar og fyrirlestrar, tónleikar,
leiklist, bókmenntir og dans. Sé
gripið niður í fyrirliggjandi drög að
efnisskrá vekur Chagall sýning í
Listasafni fslands athygli, tónleikar
tríós Stéphanes Grappellis, söngur
kóioratúrsópransins Debru Vander-
linde með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands undir stjórn Gilberts Levine
og frumsýning Þjóðleikhússins á
Marmara eftir Guðmund Kamban,
svo eitthvað sé nefnt af mörgu
athyglisverðu.
Framkvæmdastjóri Listahátíðar í
Reykjavík er Rut Magnússon, en
formaður fulltrúaráðs er mennta-
málaráðherra, Birgir ísleifur Gunn-
arsson og er Davíð Oddsson varafor-
maður. f framkvæmdastjórn eru Jón
Þórarinsson, tónskáld, Valur
Valsson, bankastjóri, Karla Krist-
jánsdóttir, deildarstjóri í Listasafni
íslands, Arnór Benónýsson, forseti
BÍ L, og Gunnar Egilsson, skrifstofu-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Blaðafulltrúi er Sonja Jónsdóttir.
þj
Útlensk egg
í kransa-
kökurnar?
Landssamband bakarameistara
hefur óskað eftir leyfi frá landbúnað-
arráðuneytinu til að flytja inn allt að
25 tonn af eggjum á mánuði, í þrjá
mánuði til reynslu.
Bakarar segja þetta leið til að geta
verið samkeppnisfærir í verði við
innfluttar kökur. Þeir segja að nú sé
gífurlegur munur á eggjaverði hér á
landi og heimsmarkaðsverði, og
reikna megi með að bakarí landsins
geti sparað sér um eina milljón á
mánuði með eggjum erlendis frá.
óþh