Tíminn - 06.02.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Laugardagur 6. febrúar 1988
Steinullarverksmiðjan hf:
Tapiðvarminna
en búist var við
Framleiðsla og sala Steinuliar-
verksmiðjunnar hf. á Sauðárkróki
var það góð á síðasta ári að rekstr-
artap verksmiðjunnar varð mun
minna en áætlað var í fjárhagsáætl-
un sem gerð var vegna endurskipu-
lagningar rekstrarins sem fram fór
árið 1986. Tapið varð liðlega tíu
milljónir króna í stað þeirra þrjátíu
milljóna sem ráð var fyrir gert. Var
hagnaður verksmiðjunnar fyrir
fjármagnskostnað 22,5 milijónir
króna.
Innanlandssalan á steinull frá
Steinullarverksmiðjunni nam 3030
lestum á síðasta ári á móti 2250
lestum árið áður. t>á náðist góður
söluárangur í Færeyjum og er gert
ráð fyrir vaxandi sölu þangað og til
Bretlandseyja á þessu ári.
Ný vöruafbrigði af steinull frá
Steinuliarverksmiðjunni á Sauðár-
króki eru væntanleg á markaðinn á
þessu ári. Miða þau að því að nýta
þá kosti sem steinuilin hefur m.a.
sem bruna-, hljóð- og hitaeinangr-
un.
Forsvarsmenn Steinullarverk-
smiðjunnar benda á að fastgengis-
stefna ríkisstjórnarinnar hafí kom-
ið fyrirtækinu til góða á síðasta ári
og telja að gengisfelling muni eyða
þeim afkomubata sem varð á síð-
asta ári.
Vísir að bílasafni í B.S.Í: „Nýi Ford“ árgerð 1929 í eigu formanns Fornbflaklúbbsins. (Tíminn: Gunnar)
Gamlir bílar sýndir í
Umferðarmiðstöðinni
Bifreiðastöð íslands og Forn-
bílaklúbbur íslands hafa nú hafið
með sér samstarf sem felst í sýn-
ingu gamalla bíla í Umferðarmið-
stöðinni, til að efla áhuga almenn-
ings á verndun þeirra og jafnframt
til gagns og gamans þeim, sem fara
um stöðina.
Miður þykir að ekkert bílasafn
sé til á íslandi og því tilhlýðilegt,
samhliða stórfelldum endurbótum
á Umferðarmiðstöðinni, að koma
þar upp vísi að slíku safni. Árlega
heimsækja um 700.000 manns Um-
ferðarmiðstöðina, sem þýðir
m.ö.o. að sérhver íslendingur
gengur um hana þrisvar á ári.
Ætlunin er að skipta um bíla
einu sinni í mánuði, svo almenningi
gefist kostur að líta sem flesta
gamla bíla augum, en að öðrum
kosti eru þeir lokaðir inni í dimm-
um geymslum um allan bæ um
veturmánuðina, þar sem enginn
sér þá. Fyrsti bíllinn sem sýndur er
í hinum nýja safnvísi í Umferðar-
miðstöðinni er Ford Model A, „nýi
Ford“, árgerð 1929 í eigu Rúdolfs
Kristinssonar, formanns Fornbíla-
klúbbsins. -þj
Minnkandi ullarviöskipti við Sovétríkin:
Leiða til fækkunar
sovéskra diplómata?
í umræðum á Alþingi í gær um
fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar
til Friðriks Sóphussonar iðnaðarráð-
herra um stöðu ullariðnaðarins kom
fram ný leið til að greiða fyrir við-
skiptasamningum við Sovétríkin.
Þar kom fram að iðnaðarráðherra
'hefur beðið viðskiptaráðherra um
upplýsingar um viðskipti íslands og
Sovétríkjanna í því skyni að þær geti
skapað grundvöll fyrir að kannað
verði hvort jafna megi þann gífur-
lega halla sem er nú á viðskiptum
íslands við Sovétríkin. En eins og
kunnugt er hafa samningar ekki
tekist við Sovétríkin um sölu ullar-
vara þangað og mun það hafa alvar-
legar afleiðingar í för með sér fyrir
ullariðnaðinn hér á landi.
Sagði ráðherra ennfremur að það
hlyti að verða verkefni íslenskra
stjórnvalda að auka útflutning til
Sovétríkjanna ellegar þá draga úr
innflutningi þaðan. Ogefminnkandi
viðskipti ríkjanna yrði staðreynd þá
hlyti að mega að fækka í hinu
fjölmenna starfsliði sovéska sendi-
ráðsins í samræmi við það. ÞÆÓ
Frá uppfærslunni á Akranesi.
Litli sótarinn
á Akranesi
Barna og fjölskylduóperan Litli
sótarinn var frumsýnd á Akranesi
fyrir skemmstu og er nú í ráði að
íslenska óperan flytji verkið einnig í
Reykjavík. Það var 30. janúar sem
frumsýningin fór fram á Akranesi,
en fyrsta sýning í Reykjavík verður
laugardaginn 6. febrúar. Þá verða
tvær sýningar yfir daginn, sú fyrri kl.
14.00 og sú síðari kl. 17.00.
Helgina 13.-14. febrúar er áform-
að að fara með óperuna norður og
sýna hana í félagsheimilinu á
Blönduósi og í Miðgarði í Varma-
hlíð.
Vegna undirbúnings á frumsýn-
ingu á Don Giovanni verða aðeins
þrjár sýningar á Litla sótaranum í
Reykjavík fram að 20. febrúar.
Álls taka þátt í sýningunni um 20
manns og eru barnahlutverkin tví-
setin. Hljómsveitarstjórn annast Jón
Stefánsson og leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir. Leikmynd gerði Una
Collins. Nánari umfjöllun um Litla
sótarann verður í Helgarblaði Tím-
ans á morgun. KB
Óspakur spekingur
Stjörnuspekingur breska dömu-
blaðsins Woman spáir í himin-
tunglin og stjörnurnar fyrir þrjár
valdamiklar konur, sem hafa áhrif
á umheiminn: Margaret Thatcher,
Corazon Aquino og Vigdísi Finn-
bogadóttur. Um Thatcher, forsæt-
isráðherra Breta, segir hinn spaki
að unnið verði gegn henni innan
flokks og utan. Um Aquino, for-
seta Filippseyja, segir að hún eigi
við andstreymi að stríða við endur-
heimt lýðræðisins.
sem verður að ráða bráðan bug á,
og er vonast til að finnist ritstjóri
flnnist einnig ráð og blaðinu verður
mörkuð stefna.
Sagan segir að leitað hafi verið
til Ingólfs Margeirssonar, ritstjóra
Alþýðublaðsins, og hann beðinn
að koma aftur til Helgarpóstsins
enda hljóti hann að vera búinn að
taka út refsingu sína á Alþýðublað-
inu fyrir gamlar syndir á HP. En
þar var að sögn ekki áhugi. Þá var
leitað til Halls Hallssonar, sjón-
varpsfréttamanns.
Hallur þakkaði hins vegar pent
fyrir sig og sagði sér liði vel í
sjónvarpi. Það mun þvi enn um
skeið koma út stjórnlaust vikublað.
Ýmist gott eða slæmt
Jón L. Áraason hefúr sig allan
við í skákskýringum sjónvarpsins
„Vigdís Finnbogadóttir," ritar
stjörnuspekingurinn, „sem hefur
haft mikil áhrif í alþjóða stjómmál-
um með mótmælum sínum gegn
mengun í heiminum verður óstöðv-
andi 1988. Blaðamenn verða innan
tíðar að læra hvernig eigi að staf-
setja og bera fram nafn hennar.“
Þessu vildi Dropí trúa, ef hinn
spaki hefði bara ekki titlað forseta
lýðveldisins íslands, Vigdísi Finn-
bogadóttur, forsætisráðherra ríkis-
stjórnarinnar.
Það eru fleirí en íslendingar sem
ekki hafa gert sér grein fyrir að
þeirri stöðu gegnir maður að nafni
Þorsteinn ...
Ráðvilla á Helgarpósti
Þetr eru ráðvilltir á Helgarpóst-
inum þessa dagana og vita ekki
hvera skuli ráða í lausa ritstjóra-
stöðu. Stefnuleysi ríkir á blaðinu,
að hrekja leiktillögur Halls Halls-
sonar, fréttamanns. Þegar þeir
kumpánar bíða þess að skákjöfr-
arnir í St. John í Kanada leiki
sínum vel ígrunduðu leikjum á
taflborðinu leggur Hallur ýmislegt
til með Jóni L. yfir skáktöflunni,
en er yfirleitt sagt að tillöguraar
séu ekki góðar.
Ilallur tók svo kæti sína aftur í
fyrstu skák aukaein vígisins og náði
sér heldur en ekki niðri á félaga
sínum Jóni L. Þar lék Kortsnoj
leik, sem Jón L. sagði í sjónvarpinu
að Hallur hefði fyrr lagt til og
útskýrði hvaða kosti sá leikur
hefði. Hallur skaut þá inn í skýring-
una: „En þú sagðir áðan að þetta
væri slæmur leikur hjá mér!“
Þótt Kortsnoj hefði verra tafl
knúði hann fram jafntefli. Þeir eru
sannarlega snjallir, Kortsnoj og
Hallur.