Tíminn - 06.02.1988, Blaðsíða 13
12 Tíminn
Laugardagur 6. febrúar 1988
Laugardagur 6. febrúar 1988
Tíminn 13
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur:
Fylkir úr
fallsætinu
Fylkismenn fluttust fjær botn-
sætinu með sigri á UMFN, 22-21
í Njarðvík í 2. deildinni í hand-
knattleik í gærkvöldi. Um miðbik
deildarinnar áttust við Haukar og
Reynir og lauk þeirri viðureign
með sigri Hauka, 26 mörkum
gegn 23. - HÁ
NBA-Körfuboltinn:
Tap hjá
San Antonio
Pétur Guðmundsson og félagar
hans í San Antonio Spurs máttu
sætta sig við tap fyrir Denver
Nuggets á heimavelli á fimmtu-
dagskvöldið. Liðið er þó enn í 8.
sæti vesturdeildarinnar, heldur
áfram að vinna u.þ.b. annan-
hvorn leik.
Úrslit lcikja í bandaríska at-
vinnumannakörfuknattleiknum á
miðvikudags- og fímmtudags-
kvöld:
Boaton-Indiana 118-103
Philadelphia-Golden State 96-84
Washington-Cleveland 106-107
Denver-Dallas 115-105
Utah-Sacramento 123-93
Indiana-Philadelphia 109-95
New York-Detroit 100-93
Houston-New Jersey 115-87
Milwaukee-Boston 111-101
San Antonio-Denver 123-129
Phoenix-Chicago 101-113
LA Clippers-LA Lakers 86-117
Sacramento-Dallas 118-101
Portland-Utah 123-126
Seattle-Atlanta 109-119
Cleveland-Golden State 90-96
(framl.)
Ekkert verður leikið í deildinni
fyrr en á þriðjudaginn en um
helgina verður All-star leikurinn
í Chicago.____________-HÁ/Reuter
íslenska kvennalandsliðið í handknattleik
Barátta eftir hlé
íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik tapaði fyrir því sænska
með fjögurra marka mun, 21-17, í
vináttulandsleik í Svíþjóð í gær-
kvöldi. Staðan í leikhléi var 11 mörk
gegn 6 Svíum í hag.
Islenska liðið barðist mjög vel í
síðari hálfleik en þær báru full mikla
Guðríður Guðjónsdóttir hefur veríð mjög atkvæðamikil í leikjum íslenska
landsliðsins, markahæst í öllum leikjunum.
virðingu fyrir mótherjunum í þeim
fyrri. Þær stefna hinsvegar á að sýna
allar sínar bestu hliðar í síðari leik
liðanna í dag, að sögn Bjargar
Guðmundsdóttur fararstjóra. „Það
er mikil barátta í þeim, þær sáu hvað
þær gátu í seinni hálfleiknum og þær
stóðu sig allar mjög vel,“ sagði
Björg.
Margrét Theodórsdóttir var kosin
best í íslenska liðinu í þessum leik
og fékk kristalskál að launum og
Guðríður Guðjónsdóttir fékk
íþróttabúning fyrir að vera marka-
hæst.
Mörk íslands: Guðríður Guðjóns-
dóttir 6, Margrét Theodórsdóttir 4,
Erna Lúðvíksdóttir 3, Guðný Gunn-
steinsdóttir 2, Katrín Friðriksen 2.
Kolbrún Jóhannsdóttir varði 14 skot
og Halla Geirsdóttir 1. íslendingar
voru utan vallar í 6 mínútur í
leiknum, Svíar í 2.
Síðasti leikur íslenska liðsins í
þessari för verður í dag, þá mæta
þær Svíum öðru sinni. - HÁ
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Suðurnesjasigrar
Tveir leikir voru í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik í gærkvöldi. Njarð-
víkingar unnu Blika 89-74 í Digra-
nesi eftir að vera yfir í leikhléi 54-43
og Grindvíkingar unnu Þórsara 93-
68 fyrir norðan en staðan í hálfleik
var 34-24 fyrir UMFG.
Blikarnir höfðu yfir framan af
leiknum í Digranesi en urðu að láta >
pokann þegar á leið. Á
Akureyri voru Grindvíkingar hins-
vegar alltaf yfir og jókst munurinn
jafnt og þétt út leikinn. Þórsarar
gerðu mikið af klaufalegum mistök-
um í leiknum.
Guðmundur Bragason var bestur Grindvík-
inga og Hjálmar Hallgrímsson átti einnig
góðan leik. Stigin, UMFG: Guðmundur
Bragason 24, Sveinbjöm Sigurðsson 17, Jón
Páll Haraldsson 12, Steinþór Helgason 10,
Rúnar Ámason 9, Eyjólfur Guðlaugsson 8,
Hjálmar Hallgrímsson 8, Dagbjartur Willards-
son 3, óli Bjöm Björgvinsson 2. Þór: Konráð
óskarsson 14, Guðmundur Bjömsson 13,
Bjami össurarson 13, Eiríkur Sigurðsson 11,
Ágúst Guðmundsson 6, Jón Héðinsson 4,
Bjöm Sveinsson 3, Jóhann Sigurðsson 2,
Einar Karlsson 2.
HÁ/jb
íþróttaviðburðir helgarinnar
Guðmundur Bragason bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn á Akureyrí, bæði í vörn og sókn.
Hann var einnig stigahæstur Grindvíkinga, gerði 24 stig á móti Þórsurum.
.Frjálsíþrótta- og sundmót í gærkvöldi:
Tvö heimsmet
- hjá Gross í 200 m skriðsundi
jog Schönlebe í 400 m hlaupi
Tvö heimsmet féllu á íþróttamótum á megin-
landi Evrópu ígærkvöldi. í Parissynti V-Þjóðverj-
inn Michael Gross 200 m skriðsund á 1:44,14 min.
sem er heimsmet í 25 m laug. Hann átti sjálfur
gamla metið, 1:44,50 mín. Thomas Stachewicz frá
Ástralíu varð annar í sundinu ■ gærkvöldi á 1:46,95
mín.
í Sindelfíngen í V-Þýskalandi bætti A-Þjóðverj-
inn Thomas Schönlebe eigiö innanhússuict í 400 m
hlaupi og skyggði alveg á kanadíska spretthlaupar-
ann fræga Ben Johnson sein tognaði þegar hann
vann 60 m hlaupið. Schönlebe hljóp á 45,05 sek.
og bætti metið um 36/100. - HÁ/Reutcr
Michael Gross
Á Flugleiðahótelunum Hótel Loftleiðum og Hótel
Esju er höfðinglega tekið á móti þér þegar þú
kemur til höfuðborgarinnar.
Flugleiðaskutlan sér um flutninga til og frá flug-
velli daglangt og þegar inn á hótelin er komið
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA S HÓTEL
verður vinalegt viðmót starfsfólks til þess að þér
finnst þú vera komin inn á þitt annað heimili.
Dekraðu við sjálfan þig og láttu okkur snúast í
kring um þig og þína.
<
HDTBL í
FLUGLEIDA
yiifn
’HÓTEL
Canon
Rétti tíminn til
reiknivélakaupa.
Mikiö úrval.
Lækkaö verö.
<rifvélin hf
Suðurtandsbraut 12.
S:685277 - 685275
Handknattleikur
1. deild karla:
KA-Valur Akureyri ld.
ÍR-Þór Selaskóla ld.
Fram-UBK Höll sd.
KR-FH Höll sd.
kl. 14.00
kl. 14.00
kl. 20.00
kl. 21.15
12. umferð lýkur síðan með leik Stjörnunn-
ar og Víkinga á miðvikudagskvöldið.
2. deild karla:
Selfoss-tBV Selfossi Id. kl. 14.00
Grótta-UMFA Seltjarn. ld. kl. 15.15
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild:
KR-ÍR Hagaskóla sd.
1. deild kvenna:
Haukar-ÍS Hafnarf. sd.
KR-ÍBK Hagaskóla sd.
1. deild karla:
Léttir-ÍS Seljask. sd.
Blak
1. deild karla:
Þróttur N-ÍS Neskaup. ld.
1. deild kvenna:
Þróttur N-ÍS Neskaup. ld.
Bikarkeppni karla:
KA-ódinn Glerársk. ld.
Þróttur-HK Hagaskóla sd.
Bikarkeppni kvenna:
Þróttur-HSK Hagaskóla sd.
UBK-Víkingur Digranes sd.
kl. 14.00
kl. 21.30
kl. 17.15
kl. 14.30
kl. 14.45
kl. 13.30
kl. 20.00
Badminton
Deildakeppni BSÍ í Laugardals-
höll, laugardag og sunnudag kl.
10.00. Keppt er í fyrsta sinn í
þremur deildum og eru 22 lið skráð
til keppni, alls um 180 keppendur.
Frjálsar íþróttir
íslandsmeistaramót innanhúss 15-
18 ára, í Seljaskóla laugardag kl.
9.30 og í Baldurshaga laugardag kl.
16.30 og sunnudag kl. 10.00.
Héraðsmót HSK, 14 ára og yngri,
Selfossi sunnudag.
Skíði
Visa-bikarmót SKÍ, FN-mót í
skíðagöngu. Keppni hefst kl. 11.00 í
Hlíðarfjalli laugardag og sunnudag.
Karate
Unglingameistaramót, fjölmenn-
asta karatemót ársins. Laugardag
kl. 14.00 í íþróttahúsi Hagaskóla.
Keppendur verða á annað hundrað
frá átta karatefélögum. Reiknað er
með að úrslit hefjist kl. 16.30 en
mótslok verða kl. 18.00.
i«'diL..ra\e'ds
S S
S'E
ffpSö aaaaKrKt
1 i,
R$K 5.07
Uí p.iOM'timni
Frumrlt
OflóHutkiai
EINDAGI
. SKILA .
A STAÐGRBÐSLUFE
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reiknuðu
endurgjaldi mánaðariega. Skilin skulu
gerð eigi síðar en 15. hvers mánaðar.
Ekki skiptir máli í þessu
sambandi hversu oft í mánuði laun eru
greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram
eða eftirá.
Með skilunum skal fylgja greinargerð á
sérstökum eyðublöðum „skilagreinum",
blátt eyðublað fyrir greidd laun og rautt
fyrir reiknað endurgjald. Skilagrein ber
ávallt að skila einnig þó svo að engin
staðgreiðsla hafi verið dregin af
í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera I
heilum krónum.
Allir launagreiðendur og sjálfstæðir
rekstraraðilar eiga að hafa fengið send
eyðublöð fyrir skilagrein. Þeir sem
einhverra hluta vegna hafa ekki fengið
þau snúi sértil skattstjóra, gjaldheimtna
eða innheimtumanna ríkissjóðs.
- gerið skil fýrir fímmtánda.
RSK
RÍKISSKATTSUÓRI