Tíminn - 06.02.1988, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Laugardagur 6. febrúar 1988
■■Ji——
FRÉTTAYFIRLIT
OSLÓ - Samkvæmt heimild-
um frá Noregi hafa Rónald
Reagan Bandaríkjaforseti og
Mikhail Gorbatsjov Sovétleið-
togi verið tilnefndir til Friðar-
verðlauna Nóbels árið 1988
fyrir að skrifa undir samning
um eyðingu meðaldrægra og
skammdrægari kjarnorku-
vopna, fyrsta samninginn þar
sem gert er ráð fyrir raunveru-
legri kjarnorkuvopnafækkun.
SÍDON, Líbanon - Pal-
estinskir skæruliðar rændu
tveimur Norðurlandabúum
sem báðir eru starfsmenn
Sameinuðu Þjóðanna í Suður-
Líbanon.
WASHINGTON -Atvinnu-
leysi í Bandaríkjunum var
5,8% í janúarmánuði, það
sama og í desembermánuði.
SÍDON - ísraelskar herþotur
flugu yfir Suður-Líbanon en
gerðu þó ekki árás. Ibúar í
Sídon sögðu að vélarnar hefðu
flogið lágt yfir borginni og farið
yfir flóttamannabúðir Pales-
tínumanna í Ain Al-Hilweh og
Miyeh Miyeh.
BANGKOK - Hersveitir
Tælendinga, sem reyna að ná
aftur á sitt vald hæð við landa-
mæri Laos, hafa fellt meira en
200 hermenn Laosstjórnar og
sært álíka marga. Þetta var
haft eftir tælenskum herfor-
ingja sem sagði að fjöldi fall-
inna í sínu liði væri aðeins
þriðiungur eða fjórðungur á
boro við fjölda fallinna her-
manna Laosstjórnar.
NAIROBI - Daniel Arap Moi
forseti Kenýa rauf þing til að
undirbúa þjóð sína fyrir kosn-
ingar og leysti úr haldi níu
pólitíska fanga sem haldið hef-
ur verið án dóms og laga allt
upp í sex ár. Allirframbjóðend-
urnir sem berjast um sætin
188 á þingi verða að vera
meðlimir Afrísku þjóðareining-
arinnar, eina löglega flokksins
í Kenýa.
EICHf-P
ÖK. ftöRT WALDKEiM
**»«*"«««• retwíMu. • ,
BELGRAD - Ríkisstjórnin í
Júgóslavíu íhugaði í gærhvort
hún ætti að verða við beiðni
um að reyna að f inna skjal sem
sagt er aö tengi Kurt Waldheim
forseta Austurríkis og fyrrver-
andi aðalritara SÞ vlð stríðs-
glæpi nasista. Það var nefnd
sagnfræðinga, er rannsakar
fortíðWaldheims, semfórfram
á þetta við júgóslavnesku
stjórnina en hún vildi ekki gefa
strax svar við beiöninni.
ÚTLÖND
illllllillllllllllllllllllllllllll
Sovétríkin:
Látnum bolsévíkum
veitt uppreisn æru
Hæstiréttur í Sovétríkjunum hef-
ur veitt þeim Nikolai Búkharin og
Alexei Rykov uppreisn æru. Þeir
hvíla báðir í gröfum sínum en voru
framarlega í hópi bolsévfka á fyrstu
árum Sovétlýðveldisins. Þeir komust
upp á kant við Jósef Stalín og voru
teknir af lífi árið 1938.
Heimildarmenn Reuters frétta-
stofunnar í Moskvu sögðu að réttur-
inn hefði komist að þeirri niðurstöðu
að Búkharin og Rykov væru saklaus-
ir af glæpum sem þeir voru fundnir
sekir um í sýndarréttarhöldum á
sínum tíma. Báðir voru lýstir „óvinir
þjóðarinnar'' og skotnir.
Niðurstaða hæstaréttar er merki-
leg og í samræmi við þá yfirlýstu
stefnu Mikhails Gorbatsjovs Sovét-
leiðtoga að nauðsynlegt sé að endur-
skoða sögu landsins.
Helstu sagnfræðingar Sovétríkj-
anna hafa að undanförnu lagt til
oftar en einu sinni að nauðsyn sé að
endurskoða réttmæti örlaga sumra
leiðtoga byltingarinnar. Gorbatsjov
ýtti svo undir þessar kröfur í nóv-
ember á síðasta ári þegar hann
skýrði frá þvf að sérstök nefnd hefði
verið skipuð til að „endurreisa rétt-
lætið“.
Gorbatsjov minntist á Búkharin
þegar hann tilkynnti um skipan
nefndarinnar, sagði að þessi háttsetti
kennimaður bolsévíka hefði gert
mistök en hefði verið eins og Lenín
sagði „eftirlæti allra í flokknum".
Búkharin var helsti pólitíski and-
stæðingur Stalíns á síðari hluta ann-
ars áratugar og í byrjun þriðja
áratugarins. Hann var rekinn úr
framkvæmdastjórn kommúnista-
flokksins árið 1929 eftir að hafa
mótmælt áætlunum Stalíns um sam-
yrkjubúskap í landbúnaði og hraða
uppbyggingu iðnaðar. Milljónir
manna létu lífið úr hungri eftir að
Stalín hafði hrundið af stað sam-
yrkjubúskaparáætlunum sínum í
byrjun þriðja áratugarins og látið
andstöðu fólks sig litlu skipta.
Nokkuð ljóst þótti strax í fyrra að
Rykov yrði veitt uppreisn æru þegar
dagblað stjórnarinnar Izvestia skýrði
frá því að hann hefði verið meðlimur
fyrstu ríkisstjórnarinnar sem Lenín
skipaði eftir byltinguna.
Kommúnistaflokkar um allan
heim munu sj álfsagt líta á endurreisn
Búkharins sem sérlega mikilvæga.
Þótt Búkharin hafi að vísu ekki
verið neinn lýðræðissinni í vestrænni
Jósef Stalín: Myndi sjálfsagt snúa
sér við í gröfinni ef hann gæti lesið
sovéska fjölmiðla nú.
merkingu þess orðs voru kenningar
hans þó öllu frjálslegri en kenningar
Stalíns og félaga. Reyndar mágreina
áhrif Búkharins í stefnu kommún-
istaflokka í Vestur-Evrópu og marg-
ir vestrænir sérfræðingar telja að
umbótaáform Gorbatsjovs Sovét-
leiðtoga nú megi að nokkru leyti
tengja kenningum hans. hb
Egyptaland:
FLJOT AN VATNS
Bateau A1 Khayyam veitingahúsið
í Kairó er vanalega góður staður til
að borða á og útsýnið yfir Nílarfljót
og umferðina þar oft lystauki. Þessa
dagana er þó lítið að sjá út um
glugga Bateau A1 Khayyam annað
en drullugan botn fljótsins fræga. Já,
það eiga kannski sumir erfitt með að
trúa því en hið mikla fljót er nú
vatnsminna en nokkru sinni áður.
Ástæðan? Miklir þurrkar í Aust-
ur-Afríku á síðustu níu árum hafa
endanlega neytt egypsku stjórnina
til að draga mjög úr vatnsflæði frá
Aswan stíflunni sem er í um þúsund
kílómetra fjarlægð suður af Kairó.
Að vísu verður vatnsmagnið aukið
að nýju innan skamms og í raun er
ekki óalgengt að Nílarfljót sé vatns-
minna á þessum árstíma þar sem þá
er vanalega unnið að hreinsunum og
viðgerðum á stíflunni miklu.
Engu að síður hefur aldrei verið
hleypt minna magni af vatni í gegn-
um stíflugarðinn síðan hann var
reistur árið 1970. Og þótt aftur verði
skrúfað frá þegar viðgerðum lýkur
innan fárra vikna óttast margir að
raunverulegur vatnsskortur sé ekki
langt undan.
Það er vatnið á bak við stíflugarð-
ÚTLÖND
Stalín lýst
sem valda-
gráðugum
einræðis-
herra
Virtur sovéskur félagsfræðingur
lýsti í gær Jósef Stalín sem valda-
gráðugum einræðisherra og sakaði
þá, sem reyndu að bera í bætifláka
fyrir hann, um að vera í raun að
grafa undan umbótaáformum
Mikhails Gorbatsjovs Sovétleið-
toga.
Igor Bestuzhev-Lada, prófessor
við Moskvuháskóla, sagði að blöð
fengju mörg bréf frá fólki sem lýsti
því sem skyldu sinni að verja
Stalín. Hann skrifaði hinsvegar í
grein sinni í vikublaðinu Nedelya
að Stalín hefði ekkert gott látið af
sér leiða og reyndar hefði öll
sovéska þjóðin verið fórnarlömb
hræðilegrar stjórnarstefnu hans á
árunum 1924-’35.
Bestuzhev-Lada lýsti Stalín sem
valdaþyrstum manni er þjáðist af
ofsóknarbrjálæði. Félagsfræði-
ngurinn sagði að Stalín ætti sér enn
verjendur í öllum aldursflokkum
þótt þeim færi fækkandi. Hann
bætti við að hættulegustu verjend-
ur einræðisherrans væru þeir sem
reyndu að grafa undan „glasnost"
eða opnunarstefnu Gorbatsjovs
núverandi höfðingja í Kreml. hb
Bergsson ,
BLAÐAMADURj|
Bateau AI Khayyam veitingahúsið
við bakka Nflarfljóts stendur á þurru
þessa dagana.
inn sem veldur mönnum áhyggjum.
Yfirborð Nasservatns hefur stöðugt
verið að lækka á síðustu árum þar
sem stjórnvöld hafa ekki hætt þeirri
iðju að hleypa meira vatni frá stífl-
unni heldur en komið hefur í það.
Yfirborðið hefur lækkað um 56 fet
frá árinu 1981 og þótt vissulega sé
landbúnaði þeirra Egypta enn ekki
hætta búin af vatnsskorti telja sér-
fræðingar að haldi áfram sem horfi
geti þurrkar farið að hafa svipuð
áhrif í landinu og í grannríkjunum
Súdan og Eþíópíu.
Aswanstíflan, Nasservatn og Níl-
arfljót hafa hingað til verið lífakkeri
egypsku þjóðarinnar en haldi þurrk-
ar áfram gætu stjórnvöld þurft að
takmarka frekar vatnsmagnið sem
hleypt er í gegnum stífluna og þar
með gæti Níl kannski orðið að
samskonar fljóti og það er þessa
dagana. Newsweek/hb
Botha forseti Suður-Afríku flutti stefnuræðu sína á þingi í gær:
Engar breytingar á
aðskilnaðarstefnu
P.W. Botha forseti Suður-Afr-
íku flutti stefnuræðu sína á þingi í
gær og talaði þar um fyrirhugaðar
breytingar á efnahagslífi landsins.
Forsetinn minntist hinsvegar lítið á
kynþáttaaðskilnaðarstefnu stjórn-
valda nema að haldið yrði áfram að
uppræta stjórnarandstæðinga úr
hópum blökkumanna og yrði neyð-
arlögum, sem í gildi hafa verið
síðustu tuttugu mánuði, áfram
beitt í því skyni.
„Ríkisstjórnin er ákveðin í að
halda áfram að viðhalda reglu
innanlands og gera óstarfhæf þau
öfl sem enn reyna að gera lítið úr
stöðugleika og vinna gegn yfirvöld-
um,“ sagði Botha í ræðu sinni.
Neyðarlögunum var komið á til
að hægt væri að berja niður mót-
mæli blökkumanna í landinu. Þau
mótmæli hafa kostað um 2.500
manns lífið síðan árið 1984.
Ræða Botha snérist að mestu
um efnahagsmál. Stjórnvöld hyggj-
ast standa fyrir meiri einkavæðingu
á þessu ári og reynt verður að
draga úr verðbólgu sem var 14,7%
á síðasta ári.
Forsetinn flutti ræðu sína í nýrri
þinghöll sem rúmar alla meðlimi
þingsins. Þar eru hvítir menn,
litaðir og menn af indverskum
uppruna. Meirihlutahópur
blökkumanna á hinsvegar engan
fulltrúa á þinginu. hb