Tíminn - 06.02.1988, Qupperneq 17
Laugardagur 6. febrúar 1988
Tíminn 17
lllllliM LESENDUR SKRIFA ' *!!|iii!lllll!lllilll!iÍÍliii!lliií!Íll;!Íllllllllllllllll!!M^ .
„Það var og“
Hr. ritstjóri!
Ég get ekki orða bundizt. Nær
óþekktur, íslenzkur, rithöfundur
hlýtur bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs, kr. 720.000,- og segist,
aðspurður hafa orðið kampakátur
fyrir hönd íslenzku þjóðarinnar, er
fréttin barst honum um verðlaunin.
Það er ekki aðeins Norðurlanda-
met, heldur heimsmet, að rithöf-
undi, sem örfáir kannast við af
aflestri byrjana bóka hans, skuli
hampað og hann hafinn til skýjanna!
Eitt verður þó að segjast, að
mikið er hans lítillæti, er hann gleðst
með þjóð sinni, sem leyfði honum,
óáreittum, að heyja harða baráttu
frá „velmegun til fátæktar". Væntan-
lega skiptir hann því verðlaunafénu
bróðurlega milli landa sinna, eins og
sönnum sósíalista hæfir, enda ís-
lendingar vel að því komnir, sam-
kvæmt hans eigin ummælum.
Hver landi hlyti því kr. 2,97 í sinn
hlut, og til þess að öll fjárhæðin færi
ekki í frímerki og umslag, gætum við
landarnir vitjað peninganna og
fengjum jafnframt rauðan lit á nögl
litla fingurs vinstri handar, til að
fyrirbyggja tvígreiðslu.
Verst er, að ekkert almennilegt
fæst fyrir hverja fjárhæð, ekki einu
sinni „eins-eyris-kúla“, sem var svo
gómsæt í gamla daga.
í útvarpsstöðinni Rót heyrði ég
fyrir nokkru þann ágæta mann
Sveinbjörn á Draghálsi, allsherjar-
goða, vera að kveða Völuspá á
þann hátt, sem ég hygg vera að
minnsta kosti vel frambærilegan í
nútíðinni, þótt ekki viti ég, hvort
kveðið var þessu líkt á þeim tíma,
sem Völuspá var ort. Hvert atkvæði
var skýrt og vel fram borið, í öllu
hinu langa kvæði, enda enginn gler-
kringlu-ákefðar-asi á kvæðamann-
inum. Að fá að njóta Völuspár á
þennan hátt var mikil lækning frá
hringlanda og glamranda tíðarinnar.
En þetta átti þó ekki að verða efni
míns máls, þó að mikilsvert sé,
heldur annað sem konan mín opnaði
fyrir í sömu útvarpsstöð sunnudag-
inn 31. janúar kl. 22.30.
Hulda Jensdóttir, ljósmóðir, flutti
þarna furðulega gott erindi um
mannsfóstrið og þróun þess, svo vel
fram sett og vel fram borið, að menn
hljóta að spyrja sig, hvort þessi
hávaði og rugl, sem við þykjumst
heyra allt í kringum okkur sé nokkuð
annað en blekking og hégómi,
eitthvað sem ekki er, að íslenskan sé
enn lifandi mál, og það hugarfar sem
góðu málfari fylgir. Sá sem talar af
góðu hugarfari, honum mælist betur
en þeim, sem vikið hefur frá þeirri
stefnu. Glögglega rakti þessi ljós-
móðir, hvemig þróun fóstursins er
nokkurskonar fyrirframskráning
mannsævinnar: öll aðalatriðin koma
f tilefni af verði á eggjum og
kjúklingum vakna ýmsar spurning-
ar.
Sagt er að óheppilegt sé að fram-
leiðendur hafi samráð um verðlag.
Því er spurt:
Er óheppilegt að launþegar hafi
samráð um verð á vinnu sinni.
Annars verð ég að lýsa undrun
minni yfir þeirri ósvífni, aðúthlutun-
arnefnd Norðurlandaráðs skuli æ
ofan í æ ganga fram hjá hinum
geysilega vinsæla rithöfundi, Guð-
mundi Haraldssyni frá Háeyri, sem
lítið sem ekkert hefur komið sér á
framfæri í fjölmiðlum, þótt segja
megi, að hann og verðlaunahafinn
hafi báðir leikið í kvikmyndum, sem
kemur að sjálfsögðu ekkert bókritun
þeirra við.
Guðmundur á glæstan feril að
baki. Hann hefur t.d. haldið sér frá
blautu barnsbeini á lægri kanti
heimsins lífsgæða, en reisn hans og
lifandi stíll, bæði til orðs og æðis, er
viðbrugðið. Setningar eru stuttar og
hnitmiðaðar, og þegar spennuþrung-
in frásögnin nær hámarki og lesand-
inn er um það bil að missa stjórn á
sér af eftirvæntingu, gerir listamað-
urinn sér lítið fyrir og stöðvar há-
spennuna með þessum lítillátu og
hógværu orðum: „Það var og."
Guðmundur Haraldsson hefur
ekki skrifað margar bækur, en allar
eru þær óviðjafnanlegar. Sífellt selj-
ast þær upp eftir ótal endurprentan-
ir.
Til marks um vinsældir bóka hans
vil ég geta þess, að ég þekki mann,
sem á mörg eintök af sömu bókinni
og hann hefur lesið þau öll!
fram, meðan verið er á fósturstiginu
(auðvitað að fráteknum slysum og
mistökum). Þetta vekur til umhugs-
unar um það, hversu geysilega þýð-
ingarmikið hlutverk það er að ganga
með barn. Göfugt er það og eftir-
sóknarvert í sjálfu sér. Og þetta
erindi var ekki orðin tóm, ekki
fræðslan ein, svo mikilsverð sem
hún er, heldur er þessu fylgt eftir
með því að gera það að markmiði að
koma af þeirri lagasetningu, sem
leiddi til þess, að fóstureyðingar
urðu tískufyrirbæri á íslandi.
Með þessu erindi tel ég, að hinni
nýju kvennahreyfingu á Islandi sé í
raun gefið það markmið, sem hún
aðeins átti eftir að koma orðum að.
Konur hafa fundið á sér, betur en
karlmenn að „eitthvað þurfti að
gera“, skynjað nánar anda tíðarinn-
ar og ófarir margs mannslífs - en
ýmisiegt hefur villt fyrir. En hvað
gæti verið verðugra markmið kvenna
en að bjarga lífi í stað þess að eyða
því? Munu ekki konur hér eftir meta
karlmenn mest eftir því, hvernig
þeir snúast við slíku meginmáli?
Munu þær ekki í framhaldi af þessu
erindi Huldu Jensdóttur sýna, að
sjálfar eru þær ekki aðeins rödd til
gagnrýni heldur einnig afl til fram-
kvæmdar. Með því að beita styrk
sínum til afnáms hinna ómannúð-
legu laga frá 1975, mundu þær sýna,
að enn eru til íslenskar konur, sem
réttnefndar eru því nafni.
Þorsteinn Guðjónsson.
Sé svo ekki, í hverju liggur þá
munurinn?
Neytendasamtök vilja frjálsan
innflutning á eggjum. Hvað segja
þau um ráðningar erlendra manna á
íslensk skip ef þeir bjóðast fyrir
minna en íslenskir sjómenn?
H.Kr.
Aldrei hefur bók eftir Guðmund
verið skilað til bóksala, hvorki
fyrir eða eftir jól, og mun það vera
einsdæmi.
Víst er, að þegar loks fulltrúum
Norðurlandaráðs hlotnast sú ham-
ingja að afhenda rithöfundinum,
Guðmundi Haraldssyni frá Háeyri,
rífleg verðlaun, þá mun hýrna yfir
þessum ástsæla gleðimanni íslands,
sem skilur aldrei svo við lesanda sinn
eða viðmælanda, að báðir ljómi ekki
í framan af einskærri ánægju og
ómælanlegri gleði yfir óvenjulegum
viðskiptum, sem eiga vafalaust rætur
að rekja til forfeðra rithöfundarins,
er settu sterkan svip á umhverfi sitt
meðan þeir voru og hétu.
íslendingar eru stoltir af því að
vera samtíðarmenn þessa ástsæla
höfundar og lítilláta. Verðlaunin
þurfa ekki að vera há, enda mun
þjóðin hafna skiptingu þeirra. Þau
eiga að notast af honum sjálfum til
að ylja brjóst hans og veita honum
kraft til dáða í erli dagsins.
„Það var og.“
3601-4113
ÓTRÚLEG
VERÐLÆKKUN
Þetta er fullkomnasta
BRAUN rakvélin.
Hún kostaði fyrir tolla-
og vörugjaldsbreytingu
kr. 8.980,00
Nú kostar hún 4.000 kr.
minna, eða
4.980,00
Nú græðir enginn lengur
á að kaupa hinar viður-
kenndu BRAUN vörur
erlendis.
Verslunin
PFAFF
Kringlunni og
Borgartúni 20
íslensk kvenna-
hreyfing
SPURT VEGNA
EGGJAVERÐS
Honda Civic Wagon ’83
Góður og fallegur dekurbíll, 5 dyra, 5 gíra með
orginal dráttarbeisli, útvarpi, vetrar-/sumardekk,
ekinn 49000 km.
Skuldabréf kemur til greina.
Til sýnis og sölu. Opið í dag kl. 1-5.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687BOO
VESTFjAROALEID lóhanncs Ellcrlsson S.t-itin! •»
Scrleyfi á Vcslfirfti - Hopfcrðabilar 11-60 s.vla.
U!» Kcyk|.itik Simi J'ÞIK)
Auglýsing um áætlun
Reykjavík - Ðúðardalur - Króksfjarðarnes
- Reykhólar - Reykjavík
Gildirfrá 1. febrúar 1988
Vestfjarðaleið
áætlun gildir frá febrúar 1988
su má þri mi fi fö
Frá Reykjavík - veslur 18.00 18.00 08.00 18.00 08.00 18.00
18.00 18.00
fráBorgarnesi-vestur 20.00 20.00 10.00 20.00 10.00 20.00
20.00 20.00
úrBúðardal-vestur 11.45 11.45 22.00
frá Króksfjarðarnesi - vestur 23.15
fráReykhólum-suöur 15.15
frá Króksfjarðarnesi - suður 16.00 14.00 15.00
fráBúðardal-suður 17.30 08.00 08.00 08.00 08.00 08.00
15.30 17.30
fráBorgarnesi-suður 19.15 09.45 09.45 09.45 09.45 09.45
17.15 19.15
ÁaetlaðirkomutímartilReykjavíkur 21.00 11.45 11.45 11.45 11.45 11.45
19.00 21.00
Áætlaðirkomutímartil Búðardals 21.15 21.15 11.15 21.15 11.15 21.15
21.15 21.15
Áætlaður komutimi til Reykhóla 24.00
Ofangreindir tímar miðast við að ekið sé um Böttubrekku
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Alþýðubankans h/t verður haldinn í
Átthagasal Hótel Sögu, Reykjavík, laugardaginn
20. febrúar 1988 og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
a) Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við
ákvæði 32. greinar samþykkta bankans.
b) Tillaga um breytingar á samþykktum bankans.
c) Tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
d) Tillaga um heimild til bankaráðs um nýtt
hlutafjárútboð.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar
verða afhentir í aðalbankanum, Laugavegi 31,
dagana 17., 18. og 19. febrúar næstkomandi.
fh. bankaráðs Alþýðubankans hf.
Ásmundur Stefánsson, formaður