Tíminn - 06.02.1988, Qupperneq 18
18 Tíminn
Borgarfjörður - Nærsveitir
Sýnum hjá
Bílasölu Vesturlands Borgarnesi
NISSAN PRAIRIE 4 WD
frábæran fjölskyIdubíl og jeppa
iH INGVAR HELGASON HF.
Hugbúnaðarfyrirtæki
Fjárlaga- og hagsýslustofnun, ráðgjafanefnd um
upplýsinga- og tölvumál, býður hérmeð hugbúnað-
arframleiðendum, sem kynnu að vilja bjóða í verk
tengd hugbúnaðargerð hjá ríkinu, að láta skrá sig
á lista hjá nefndinni.
Vinsamlegast sendið upplýsingar um stærð fyrir-
tækis, helstu verkefni og sérþekkingu, og einkum
verkefni unnin fyrir ríkisstofnanir, til Jóhanns
Gunnarssonar, formanns nefndarinnar í Arnar-
hvoli. Einnig má hafa samband við hann hjá
fjárlaga- og hagsýslustofnun í síma 25000.
Verkakvennafélagið
Framsókn
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og við önnur trúnaðarstörf
í félaginu fyrir árið 1988. Og er hér með auglýst
eftir tillögum um félagsmenn í þau störf.
Frestur til að skila listum er til kl. 12 á hádegi
föstudaginn 12. febrúar 1988.
Hverjum lista þurfa að fylgja meðmæli 100 full-
gildrafélagsmanna. Listum ber að skila á skrifstofu
félagsins Skipholti 50A.
Stjórnin
Slökkvistöðin
í Reykjavík
Auglýsir eftir sumarstarfsmönnum.
Skilyrði er: séu á aldrinum 20-28 ára, hafi iðnmenntun
eða samsvarandi menntun og hafi meirapróf bifreiða-
stjóra.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar liggja
frammi á skrifstofu Slökkvistöðvarinnar.
Umsóknum skal skila fyrir 15. febrúar.
Fjórhjól til sölu
Af sérstökum ástæðum er til sölu Suzuki LT 500,
’87, eitt það kraftmesta á landinu, lítur út sem nýtt.
Upplýsingar í síma 96-26074.
Laugardagur 6. febrúar 1988
HIHIHH! FISKIMAL .|[|||||||!l||||||||||||||||||St|[|||||||||||jM|l|||||||||||||||||ll||||||[||||||||Hil|||||||||||||||||||il|||||||||||||iMil||||||||||||||ÍÍl||||||||||||||||||^
Verður allri netaveiði
hætt í Borgarfirði?
Þær fregnir berast frá Hvítársvæðinu í Borgarfirði, að
unnið sé að því að allri netaveiði á lax verði hætt í Borgarfirði
og eingöngu stunduð stangaveiði í þessu laxríkasta héraði
landsins.
Það eru umráðendur stangaveiði
ánna í Borgarfirði eða aðilar í tengsl-
um við þær, sem eru að vinna að
þessu máli. Forustu fyrir aðgerðum
þessum hefur Jón Baldvinsson, for-
maður Stangaveiðifélags Reykjavík-
ur, en félagið leigir Norðurá, sem
kunnugt er. Netabændum hefur ver-
ið gert tilboð um ákveðna greiðslu
fyrir hvert kíló af laxi, miðað við
laxveiði að undanförnu gegn því að
netaveiði verði hætt. Með þessu er
stefnt gagngert að því að auka
laxgengd á stangaveiðisvæðum Hvít-
ár og í Langá.
Ríflega 50 laxveiðilagnir
Gera má ráð fyrir að laxalagnir,
sem mál þetta varðar, séu um 40
talsins í Hvítá. Ármót Þverár og
Hvftár eru í 12 km fjarlægð frá sjó,
svo mið sé tekið af vegalengd. Auk
þess eru um 13 laxalagnir í sjó í
Borgarfirði. Árlegt meðaltal heild-
arlaxveiði s.l. 10 ár hefur verið um
12 þúsund laxar. Laxveiðin hefur í
grófum dráttum um langt skeið
skipst til helminga í stangaveiði
annars vegar og netaveiði hins vegar.
t>að má því segja að upptaka neta
myndi auka laxgengd á stangaveiði-
svæðin verulega.
Algengast er að laxveiðilögn sé
fyrirstaða (grjótgarður eða staurar
reknir niður og net sett á þá) og neti
lagt út frá fyrirstöðunni. Víst er að
lagnir eru misgóðar og skiptir máli
hvar þær eru staðsettar í straum-
vatni. Almennt séð eru sumar bestu
veiðijarðir landsins ekki endilega
neðstu jarðirnar við straumvatn. í>ó
kemur laxagangan nær óskipt inn í
sjávarós ár og rýrnar eftir því sem
ofar dregur að fjölda til, vegna tolls
þess sem hver veiðivél tekur. í þessu
efni ráða fjöldi lagna frá jörð og
umhverfisaðstæður miklu.
Ekki skal lagður á það dómur,
hvort það eigi eingöngu að veiða lax
í net eða á stöng í Borgarfirði. í því
efni gera lög um lax- og silungsveiði
engan mun, þó frkar megi segja, að
þau takmarki stangaveiðina umfram
hrein ákvæði gagnvart netaveiði í
lögunum, þar sem gert er ráð fyrir
að ákveðinn sé fjöldi stanga sem
nota megi mest samtímis í veiði-
vatni. Um nýtinguna hafa eigendur
sjálfir ákvörðunarrétt sameiginlega
eða hver fyrir sig, eins og málum er
háttað í Hvítá sjálfri, hvort veitt sé
með neti eða á stöng. Hitt er augljós
staðreynd, að frá fjárhagslegu sjón-
armiði gefur stangaveiddur lax
margfalt meira í aðra hönd en net-
veiddur fiskur.
Hve hátt hlutfall af
göngunni veiðist?
Eins og fyrr greinir, er eftir tölu-
verðu að slægjast fyrir stangaveiði-
menn, að netin verði tekin upp í
Borgarfirði. Þó möguleikar á að
auka hlutdeild stangar, frá því sem
nú er, séu á vísum stað, er ekki vissa
fengin fyrir því hversu hátt hlutfall
af aukinni laxagengd, t.d. inn í
þverárnar, komi til með að fást á
stöngina. Vitneskja um þetta atriði
er af skornum skammti hér á landi.
Þó er vitað að það er breytilegt frá
einni á til annarrar og frá einu ári til
annars. Talað hefur verið um, að
þegar laxgengd sé í meðallagi eða
minni, veiðist hærra hlutfall á stöng-
ina en þegar mjög mikil laxgengd er.
Allt um það ætti sú ráðagerð um
upptöku neta, að geta í miðlungs
eða lakari laxveiðiárum að tryggja
betur en áður góða veiði á stanga-
veiðisvæðum Hvítár og í þverám
hennar. Vel má hugsa sér að um
helmingur af aukningu laxgengdar,
ef netin verða tekin upp, veiðist á
stöngina á Hvítársvæðinu að meðal-
tali.
Hagur stangaveiði
vænkast mjög
Víst er það því skynsamlegt
keppikefli fyrir veiðieigendur við
stangaveiðisvæðin í Borgarfirði, sem
leigja út árnar fyrir mjög hagstætt
verð, að geta með fyrrgreindum
hætti aukið laxgengdina. Til þess að
sú fyrirætlan megi takast þurfa báðir
aðilar að hafa af því fjárhagslegan
hagnað. Auk þess má minna á. að
tilfinningaleg sjónarmið koma við
sögu þeirra, sem netaveiði hafa
stundað, svo sem veiðigleði þeirra,
sem oft er ekki síðri en annarra
veiðimanna, og þeir vilja ógjarnan
verða án. Pá býr vafalaust sá uggur
í brjósti sumra netabænda, að verði
netaveiði tekin upp núna, megi allt
eins búast við að hún verði aldrei
tekin upp aftur á þessu svæði. Slíkir
samningar eru því vandasamir, eins
og málum er háttað.
En hvað sem þessu og öðru líður,
er á ferðinni stórt hagsmunamál
fyrir báða aðila, netabændur og þá,
sem leigja út til stangaveiði. Fjár-
hagsleg afkoma í landbúnaði er í
óvissu þessi árin vegna hinna hefð-
bundnu búgreina. Auknar tekur af
öðru þurfa því að koma til. Ætli það
verði ekki þyngst á metaskálunum
þegar til kastanna kemur. Eða spila
aðrir hlutir þar meira inn í? eh
Þverá Flóka