Tíminn - 06.02.1988, Page 23
Laugardagur 6. febrúar 1988
Tíminn 23
SPEGILL
Ekki klæðast „konulega“, Díana!
- segja breskir
Þegar þessi mynd birtist af Dí-
önu prinsessu í ensku blaði fyrir
jólin fylgdu mikil blaðaskrif í kjöl-
farið.
Tískukóngar, snyrtisérfræðingar
og hárgreiðslumeistarar höfðu
„Enginn gerir svo öllum líki... “
og þó Díana prinsessa sé glæsileg á
þessari mynd fékk hún slæma út-
reiö hjá „tískuskríbentum" blað-
anna
margt að athuga við útlit hinnar
fögru prinsessu. Snyrtisérfræðing-
ar settu út á það, að greinilegt væri,
að Díana hefði verið of nrikið í
sólarlömpum, því hún væri eidrauð
á nefinu (því miður er þetta ekki
litmynd hjá okkur) og með epla-
kinnar. t>á var hárgreiðslan sögð
mjög óklæðileg fyrir svo unga konu
og miklu fallegra væri fyrir Díönu
að hafa hárið styttra og létt burstað
og lifandi en ekki í hnút í hnakkan-
um eins og „eldri dama“. Tísku-
sérfræðingar sögðu kjólinn illa
hannaðan og alls ekki við hæfi
prinsessunnar, enda væri hún stíf
og óeðlileg í „dressinu".
Satt að segja sýnir þessi mynd
okkur bráðfallega unga konu í
stórglæsilegum samkvæmiskjól, og
það hlýtur að vera meira en lítið
álag að vera stöðugt undir smá-
sjánni eins og Díana prinsessa er,
þó hún sé sögð mjög vinsæl af allri
alþýðu manna í Bretlandi.
heimsókn á
fornar slóðir
Dansarinn Rudolf Nurejev
skrapp nýlega heim til Sovétríkj-
anna í stutta heimsókn. Þá hafði
hann ekki litið heimaland sitt aug-
um í 26 ár, eða síðan hann stakk
af á dansferðalagi í París 1961 og
baðst hælis sem pólitískur flótta-
maður. Nurejev, sem nú nálgast
fimmtugt, var mjög hrærður, þeg-
ar hann steig aftur fæti á sovéska
jörð. Hæpið er að hann hafi í
annan stað fengið innilegri mót-
tökur, en þær sem biðu hans á
flugvellinum við Moskvu. Hann
hafði vegabréfsáritun til 48
klukkustunda og eftir örstuttan
stans í Moskvu. flaug hann áfram
til Ufa í Úralfjöllum, þar sem
fjölskyldan hans býr. Tilgangur
ferðar Nurejevs var að heimsækja
móður sína, sem er veik. Hann
hefur árum saman reynt að fá
ferðaleyfi, henni til handa, eða
leyfi til að heimsækja hana. Glas-
nost hefur augljóslega sunts staðar
áhrif.
Nýjustu
fréttir
Duran
Á undanfömum mánuðum hefur
litdð frést af hinni geysivinsælu hljóm-
sveit „Duran Duran“. Stjömudýrð
þeirra stóð ekki lengi, en var því
æsilegri, því að aðdáendur þeirra
dýrkuðu þessa ungu poppara.
Heyrst hafði að Duran Duran
hljómsveitin hefði lagt upp laupana,
- en svo er alls ekki. Þeir em nú á
fullu við að spila inn á nýja LP- plötu
í París. Þeir Duran Duran-piltar
segjast nú vera með nokkur ný lög,
sem örugglega slái í gegn, og nú sé að
hefjast nýtt blómaskeið hljómsveitar-
innar.
Duran Duran piltamir í París að taka upp nýja plötu
Húnlét
heillast
Bruce Willis, leikarinn úr Has-
arleik, sem raunar er nokkuð
góður söngvari líka, kom öllum á
óvart skömmu fyrir jól, með því
að ganga í það heilaga. Hin
útvalda er leikkonan Demi
Moore, sem við sáum hér í mynd-
inni St. Elmo’s Fire. Allir töldu
víst að hún myndi brátt giftast
starfsbróður sínum, Milio Est-
evez, en Bruce kippti gjörsam-
lega undan henni fótunum í ein-
um grænum. Áður var Demi gift
rokkhljómlistarmanninum
Freddie Moore, en Bruce hefur
hins vegar verið piparsveinn alla
sína tíð og notið þess, að því
sögur herma.