Tíminn - 10.02.1988, Síða 19

Tíminn - 10.02.1988, Síða 19
Miðvikudagur 10. febrúar 1988 Tíminn 19 Kannske er eins gott að virða vel fyrir sér náungann lengst til vinstri, því óvíst er að hann sjáist aftur í eigin líki. Þetta er leikarinn Ron Perlman, hinn myndarlegasti mað- ur, sem undanfarið hefur fengið þannig hlutverk, að enginn þekkir hann. í myndinni Nafni rósarinnar lék hann vanskapaðan munk, sem sak- aður var um ótal morð innan klausturmúranna og tók það fjórar klukkustundir í hvert sinn, að koma honum í gervið. Þá var hann orðinn að náunganum á miðmynd- inni. í Fríðu ogdýrinu (The Beauty and the Beast), sem við sjáum á Stöð 2 á laugardögum, er Ron falinn á bak við gervi dýrsins, veru að nafni Vincent, sem hefst við neðanjarðar í New York. Það er útgáfan til hægri. Ron lætur þetta lítið á sig fá. - f mínum augum er mikilvægast fyrir leikara að týna sjálfum sér í hlut- verkinu, segir hann. Þau Pam ?aðWbfeaV2urfu hiónin ‘ mon eru so f i HoUywooo • Nýt.ur sin i a Karl-kynbomban Mark Harmon M I ark vakti fyrst at- hygli sjónvarpsáhorfenda sem fal- legi læknirinn dr. Caldwell í fram- haldsmyndaflokknum ..St. Else- where". Síðan lék hann í sjón- varpsþáttunum „Hasarleikur" (Moonlighting) á móti hinni fögru Cybill Shepherd. Þar lék hann ungan glæsilegan mann, sem kven- hetjan (Cybill) varð ástfangin af. Hann hefurjafnvelveriðtilnefndur sem arftaki „stórsjarmörsins" Dons Johnson í þáttunum „Miami Vice“, en Don hefur þótt sá allra- sætasti í Hollywood - og þótt víðar væri leitað. Blaðamaður, sem kom frá Eng- landi til að eiga viðtal við Mark, sagði síðar: „Ég hugsaði með sjálf- um mér, að þetta væri bráðlaglegur maður, en ekki neitt unglamb leng- ur (Mark er 35 ára). mjög þægileg- ur í framkomu. kurteisog hæversk- ur, - en þcnna glæsileika og sjarma sá ég ekki. Síðan sá ég hann fyrir framan myndatökuvélamar, og þá breytt- ist maðurinn. Hann var töfrandi og aðlaðandi og blátt áfram geislaði af „sjarma". Mark fæddist í Los Angcles, sonur Toms Harmon, sem var fótboltastjarna og íþróttafréttarit- ari, en niamma hans var Elyse Knox leikkona. Mark var góður í íþróttum í háskólanum (University of California), en sagðist þó aldrei hafa haft áhuga á keppni. Honum bauðst fljótlega eftir tvítugt að leika sntáhlutverk í kvikmyndum, fyrst í mynd með Jane Fonda og síðan í sjónvarpsþáttunum St. Elsewhere og þá kom frægðin fljúgandi til hans. Mark Harmon og leikkonan Pam Dawber giftu sig fyrir einu ári og eiga von á barni í vor. Þau höfðu þekksl í nokkur ár og verið góðir vinir, en allt í einu breyttist sambandið. „Við viljum halda einkalífi okkar utan við starfið, og höfum forðast að taka „vinnuna nteð heim". Við höfum aldrei unn- ið saman og höfum ekki áhuga á því,“ sagði kynbomban Mark, og bætti þvf við, að hann hefði alltaf hugsað sér að hjónabandið ætti að duga allt lífið, og þvf hefði hann beðið svona lengi með að gifta sig - til 34 ára aldurs - þar til hann fann réttu stúlkuna. „Kynþokkafyllsti karlmaður í heimi.“ “Ég hlæ að þessum titli, - og konan mín hlær með mér,“ segir leikarinn Mark Harmon, en vinsælt ameriskt leikarablað sæmdi hann þessum heiðurstitli um áramótin Mark Harmon, sem dr. Caldwell í St. Elsewhere. Kvennahjörtun slá örar fyrir framan sjónvarpið,“ seg- ir í kvnningu á þáttunum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.