Tíminn - 10.02.1988, Page 20

Tíminn - 10.02.1988, Page 20
 Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Ökeypis þjónusta 686300 Tímlnii T Tímiiiii Auka má verömæti lambakjötstonnsins um 4000-5000 krónur: VERDUR BANDARISKA BRYTJUNIN OFAN Á? Samkvæmt niðurstöðum rann- sókna, sem Rannsóknastofnun landbúnaðarins hefur haft for- göngu um að undanförnu, bendir allt til að með nýrri aðferð við brytjun lambakjöts, svokallaðri bandarískri aðferð, megi auka verðmæti hvers tonns af lamba- kjöti um 4-5000 krónur. Þessar upplýsingar komu fram í erindi Guðjóns Þorkelssonar á ráðu- nautafundi RALA og Búnaðar- félags íslands í gær. Skýringin á þessari verðmæta- aukningu liggur í hagkvæmari nýtingu á kjötinu. Bandaríska aðferðin er frábrugðin þeirri ís- lensku í því að kjötskrokkarnir _ eru ekki bógbundnir og hryggur- inn er stærri á kostnað framparts. Slög eru mjórri og ná fram á bringu. Hryggnum er skipt í tvennt, mjóhrygg og rifjasteik. ..; æ Grófstykkjun lamhakjötsskrokks. rísku aðferðarinnar. Háls og skankar eru skornir af frampartinum svo eftir verða Samanburður íslensku banda- ferköntuð stykki, sem öll nýtast í steikarsneiðar. í erindi sínu lagði Guðjón áherslu á nauðsyn þess að kynna þessa aðferð í sláturhúsum um allt land á næstunni, þannig að þau verði tilbúin að beita henni fyrir sláturtíð í haust. í mjög fróðlegu erindi sínu á ráðunautafundinum, gerði Guð- jón Þorkelsson grein fyrir marg- háttuðum rannsóknum á nýtingu og vöruþróun lambakjöts, sem unnið er nú að á RALA. Meðal annars nefndi hann nokkrar hug- myndir um vörur sem biðu frekari útfærslu og þróunar. Þar má nefna lambaskinku, kjötrúllur fyrir mötuneyti, örbylgjurétti, skyndibita og niðursuðurétti. Guðjón nefndi einnig í þessu sambandi raunhæfa leið til að bæta bragð og geymsluþol ís- lenska hangikjötsins, en þessir veikleikar hafa komið fram að undanförnu með aukinni sprautusöltun kjötsins, í stað pækilsöltunar. Sú leið sem Guð- jón nefndi felst í því að nota ræktaða gerla svipaða og gert er með osta. Hann sagði að nú væru komnir á markaðinn í Evrópu ræktaðir og þurrkaðir gerlar sem hafa verið einangraðir úr vel verkuðum hráskinkum, sem gæfu kjötinu bæði bragð, lit og geymsluþol. Gerlana er nú verið að prófa í sprautusaltaðar skink- ur til að gefa þeim bragð og lengra geymsluþol. Mjög dýrt er að gera þessar prófanir og hugs- anlega starf fyrir einn mann í a.m.k. eitt ár, því gera þarf efnagreiningar, gerlamælingar, bragðprófanir og nýtingarmæl- ingar auk þess að standa í sjálfri framleiðslunni," sagði Guðjón Þorkelsson. óþh Landsins forni fjandi kominn Hafíshrafl er í kringum Grímsey og teygir sig þaðan í átt til strandar. Veðurstofan spáir áframhaldandi norðanátt, sem ber ísinn nær landi. Talið er að hann reki urn eina sjómílu á klst. Einstaka ísjakar eru undan ströndum og hafa sést norður af Tröllaskaga og austur að Langa- nesi. Þeir eru ckki stórir. Könnunar-' flug á vegum Landhelgisgæslunnar hefur ekki verið flogið vegna veðurs. Samfellt él hefur verið á þessum slóðum, en hafísinn verður kannað- ur um leið og verður flugfært. Vilborg Sigurðardóttir, eiginkona hreppstjóra í Grímsey, sagði að íshrafl umlykti eyna, en það sæist illa vegna slæms skyggnis. Hún sagði • að erfitt gæti orðið að koma vistum til Grímseyjar, þegar ís hamlaði för. Sjómenn í Grímsey hafa séð sig neydda til að taka upp net sín vegna hafíssins. Veðurstofan taldi að ísinn væri enn sem komið er mjög gisinn og ógnaði ekki skipaferðum. Þó yrði að fara með gát, sérstaklega þar sem skyggni væri lélegt og hvass vindur, sem bæri ísinn hratt. Engir borgarísjakar hafa sést enn þá. Þj Samningar stéttarfélaga um orlofsferðir í sumar: Sólarferð á 7000 kr. f gær komu heim til íslands full- trúar VR og BSRB eftir helgardvöl í Lúxemborg þar sem þeir voru til viðræðna við flugfélagið Lion Air um hugsanlegar orlofsferðir í sumar á lágum fargjöldum fyrir allt að 2.500 félagsmenn. Heimildir eru til fyrir því að Lion Air bjóði fargjöld til og frá Lúxemborg á kr. 7000 og er það því langlægsta tilboðið. Flog- ið yrði með Boeing 747 breiðþotu flugfélagsins, sem tekur 495 manns í sæti. Vegna samningsumleitana stéttar- félaganna við erlent flugfélag brást starfsfólk Flugleiða hart við og hefur lýst því yfir að það telji um grófa aðför að hagsmunum þeirra 500 starfsmanna Flugleiða sem eru félag- ar í VR að ræða og þeirra fjölmörgu sem þar að auki greiða í lífeyrissjóð Verslunarmannafélagsins. Verði af samningum við Lion Air og tekju- möguleikar starfsfólks Flugleiða um leið skertir hótar það að segja sig úr VR og stofna eigið stéttarfélag. þj Carrington lávarður í heimsókn Carrington lávarður, fram- ton á Reykjavíkurflugvelli. í dag þingis. kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- mun Carrington eiga viðræður við* Carrington lávarður lætur af emb- lagsins, kom til landsins í gær, og Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís- ætti framkvæmdastjóra NATO í mun dvelja hér fram á fimmtudag. lands og forsætis- og utanríkisráð- sumar. Eftirmaður hans verður Steingrímur Hermannsson, utan- herra. Einnig mun Carrington eiga Manfred Wörner, varnarmálaráð- ríkisráðherra, tók á móti Carring- fund með utanríkismálanefnd Al- herra Vestur- Þýskalands.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.