Tíminn - 04.03.1988, Blaðsíða 19

Tíminn - 04.03.1988, Blaðsíða 19
Föstudagur 4. mars 1988 Tíminn 19 Þrjársemvoru í sviðsljósinu 1987 - hverniq verður árið ‘88 hjá þeim Jessica Hahn - hlýtur ekki vel- gengni ■ Hollywood. Þær voru mikið umtalaðar í Ameríku og víðar stúlkurnar þrjár sem við birtum hér myndir af. Allar eru þær laglegar og kyn- þokkafullar, dömurnar, - og það var líklega ekki síst það sem varð þess valdandi að þær komust í fréttirnar. Nú hefur Fredrick Davies, stjörnuspámaður bandarísks tíma- rits, lagt sig fram um að spá um hvernig árið 1988 verði hjá þessum stúlkum. Hann segist fara eftir gangi him- intungla, en manni virðist þó sem spádómar hans séu getgátur út í hött. En smáútdrátt úr spádómun- um setjum við þó með myndunum af þeim. Nöfn þeirra eru: Jessica Hahn, Fawn Hall og Donna Rice. Kannski eru margir búnir að gleyma fyrir hvað þær urðu frægar. En frægðarefni Jessicu Hahn var, að hún varð til þess að svipta helgigrímunni af sjónvarpspredik- aranum Jim Bakker og Tammy konu hans, svo þau komu grátandi fram í sjónvarpinu og játuðu á sig ólifnað og fjársvindl og fóru svo á hressingarhæli fyrir óreglufólk. Jessica Hahn sagði frá því að Bakker hefði flekað sig saklausa og gleyptu fjölmiðlar við frásögn- um hennar. Spámaðurinn segir, að Jessica Hahn haldi áfram, fyrstu mánuði ársins ’88, að hagnast á frægðinni, en smám saman muni sviðsljósið af Bakkers-málinu færast yfir á önnur atvik og aðra sjónvarpspredikara, Sér- hannað Skota- pils Brigitte Nilsen, fyrrverandi eiginkona Sylvesters Stallone, vekur alltaf eftirtekt hvar sem hún fer, - hvort heldur hún er kappklædd í leðurkápu eða sem sagt óklædd á ítalskri baðströnd. Hér sjáum við eitt uppátækið hennar Brigitte, þegar hún var nýlega á ferð í Bretlandi. „Er skotapilsið mitt ekki fínt? Ég elska skotapils!“ sagði hún þegar ljósmyndarar þyrptust að hinni hávöxnu ljósku til að mynda hana. Einhver lét þau orð falla, að hann hefði nú aldrei fyrr séð „skotapils með sokkaböndum!“ „Allt er einu sinni fyrst,“ svar- aði Brigitte og bætti við að svona „skotapils“ yrðu áreiðanlega mest móðins í sumar. og áhuginn á Jessicu minnka. Hún reynir að komast að sem leikkona og tekur þátt í lélegri kvikmynd sem ekkert gengur, - en Jessica verður ástfangin af umboðs- manninum sínum. Fawn Hall var einkaritari Ol- ivers North, sem var í aðalhlut- verki í yfirheyrslunum vegna írans - vopnasölumálsins og aðstoðar Bandaríkjanna við Contra-skæru- liðana í Nikaragúa. Undir hans framburði var komið, hvort Ron- ald Reagan hafði vitað um málið fyrirfram, - eða jafnvel átt mestan þátt í því - eður ei. Fawn Hall kom fram sem vitni og vakti mikla athygli fyrir glæsileik. í>á komust á kreik sögur um að auðvitað hefði Oliver North haldið við hana, en hún bar á móti því harðlega og North sagðist vera mikill heimilis- faðir og ekki hugsa um aðrar konur en sína eiginkonu. Fawn hafði eyðilagt segulbandsspólur sem þótti grunsamlegt, en framkoma hennar f réttinum var mjög góð. - Fawn Hall verður sú eina sem eitthvað „græðir“ á „Irangate"- málinu, segir spámaðurinn. Hennar fyrsta happ á árinu var það að kynnast leikaranum Bruce Jenner og þau urðu ástfangin og eru sögð mjög hamingjusöm. Bruce Jenner er fráskilinn, og nú hafa þau, Fawn og Bruce, tekið saman. Þau hafa mikið unnið í kynningarstörfum fyrir Vetrar-OI- ympíuleikana í Calgary, og spá- maðurinn segir að fyrir Fawn verði árið 1988 eins og allar óskir hennar rætist, því henni gengur allt í haginn. Hún verði í uppáhaldi hjá íhaldssömum republikönum og komi til með að koma fram í sambandi við forsetakosningarnar. Hún skrifar bók um hlutverk kvenna á níunda áratugnum og bókin fær góða dóma, og ég sé ekki annað en Fawn verði „stórstjarna" á árinu, segir hinn „alvitri" Davies spámaður. Donna Rice var aðalástæðan fyrir því að forsetaframbjóðandinn Gary Hart hætti um tíma við framboð sitt. Hann gat ekki fríað sig af sögunum um að hafa haldið fram hjá konu sinni með Donnu. Hann hefur þó aftur farið á kreik og tekur nú þátt í forkosningum. Davies spáir því, að í sambandi við forsetakosningarnar muni Donna Rice koma fram í sjónvarpi og reyna að biðja Hart og eigin- konu hans fyrirgefningar á fram- komu sinni, en það hefur ekki góð áhrif og Donna mun finna fyrir því á árinu, að almenningur snýst gegn henni. Hún gefst upp, breytir um nafn og reynir að flýja sviðsljósið, sem hún áður sóttist eftir. En spámaðurinn sér þó eitt gott við árið hennar Donnu, því hún muni giftast stórbónda frá Wyo- ming og verða hamingjusöm eigin- kona og móðir. Það er mikið hvað sumir eru spakir og forvitri, -eða hvað finnst ykkur!? Fawn Hall - draumarnir rætast á árínu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.