Tíminn - 28.05.1988, Side 6
6
1
HELGIN
Laugardagur 28. maí 1988
Kínverjar selja „löndum sínum handan hafsins“ greftrunarstaði:
forfeðrunum
Auglýsingaskilti við lendingarstað hafnarferju Hong Kong
státar af því að geta boðið upp á „hagstæða staðsetningu“ í aðeins
þriggj3 kflómetra fjarlægð frá hraðbrautinni milli Kanton og
Shenzhen, og heitir því að öll skriffinnska sé „einföld“ og býður
upp á að tekið sé við pöntunum, það nægi að hafa samband
símleiðis.
Það sem fyrirtækið „Hamingja og langt líf, lóðareign hf.“, sem
er í eigu kínverska alþýðulýðveldisins, býður upp á í mesta
verslunarhverfi Hong Kong sem sjaldgæft tækifæri, er skiki í
kirkjugarði í Kína!
„Hjátrú frá lénstímanum"
er nú orðin verslunarvara
Kínverskir kommúnistar hafa
löngum haft þann áróður uppi að
jarðsetning látinna ástvina heyri til
„hjátrú frá lénstímunum". En nú
er sá tími upp runninn að þeir hafa
áhuga á að færa sér í nyt þann sið
ríkra frænda sinna í kapitalistisku
bresku nýlendunni Hong Kong að
halda við hefðum allt frá tímum
Konfúsíusar og vilja gjarna láta
grafa sig í jörðu niður í rauðmál-
aðri harðviðarlíkkistu.
Hinir núverandi raunsæju vald-
hafar í Kína bjóða þess vegna nú
„löndum sínum í Hong Kong“,
sem á sfnum tíma sneru þúsundum
saman baki við gamla landinu og
flýðu til Hong Kong, greftrunar-
stað í jörð gamla föðurlandsins.
Talsmaður fyrirtækisins leggur
áherslu á að ábyrgst sé að sá
greftrunarstaðurinn „verði til ei-
lífðar".
Greftrunarstaðir í Hong
Kong aðeins til sex ára
Opinberu kirkjugarðarnir í
Hong Kong standa greftrunar-
stöðunum á meginlandinu ekki
snúning hvað þetta tilboð varðar.
Par fá hinir látnu ekki að hvíla í
friði nema sex ár. Þá verða líkams-
leifarnar brenndar og komið fyrir í
krukkum. Það er landneyð í Hong
Kong, jafnvel fyrir þá sem lifandi
eru.
í Hong Kong búa yfir fimm
milljónir manns á aðeins 1068 fer-
kílómetra landsvæði og telst þar
með til þéttbýlustu borga heims.
Að meðaltali eru meira en 5000
manns á hverjum 1000 fermetrum
og því eru íbúðir og byggingarlóðir
torfengnar og dýrar. Grafir eru
hreinn lúxus.
Eigi greftrunarstaðurinn að vera
til frambúðar verður fólk þess
vegna að greiða sem svarar yfir
600.000 krónum fyrir legstað í
einkakirkjugörðum. Þessi mikli
kostnaður leiðir til þess að flestir
verða að láta sér lynda krukkustaði
fyrir líkamsleifar látinna.
Friðsamleg
greftrun boðar hamingju
barna og barnabarna
Það er þess vegna til einhvers að
hlakka fyrir kínverska íbúa Hong
Kong þegar Kínverjar taka þar
endanlega við stjórnartaumunum
1997, að geta sýnt látnum viðeig-
andi virðingu og geta þar með
tryggt velgengni og blessun niðjun-
um til handa. Gamalt kínverskt
máltæki segir: „Að hljóta friðsam-
lega greftrun þýðir hamingju til
handa börnum og barnabörnum.“
Sama fyrirheit felst í áletruninni
á hliðinu að „eilífum grafargarði
fyrir Kínverja í útlöndum" í u.þ.b.
30 km fjarlægð frá Kanton. Þar eru
risnar, að baki byggingu setn líkist
musteri, skrifstofubyggingar, mat-
stofa og um 3000 legstaðir.
Valdhafarnir raunsæju hafa við
skipulagninguna haldið sig við lög
hinnar hefðbundnu samlyndis-
kenningar „Vindur og vatn“. Sam-
kvæmt henni gildir að byggingar og
legstaðir verða að vera í samhljómi
við strauma liins svokallaða al-
heimsanda: „Andspænis hafi hins
langa lífs, þar sem er skuggsælt og
umkringt vatni, eru legstaðirnir
mjög gifturíkir", segir í auglýsinga-
bæklingi fyrirtækisins.
Því var gerð tjörn af manna
höndum og hólar umhverfis hana.
sem gerðir voru í samræmi við
smekk útlendu Kínverjanna. Hól-
arnir fjórir sem risnir eru hlutu
nöfnin „Fjall hins lánsama friðar“,
„Fjall hinnar lánsömu kyrrðar",
„Fjall hamingjusamra manna“ og
„Fjall hins hamingjusama langa
lífs“ og í hlíðum þeirra verða grafir
hinna framliðnu.
Heppileg lega og ódýr vist
Það er þó ekki eingöngu heppi-
leg lega staðarins sem lokkar Kín-
verja frá Hong Kong eða lengra að
til að sækjast hér eftir hinstu hvílu.
Pláss í kirkjugarði alþýðulýðveldis-
ins er líka ódýrara en annars staðar
þekkist. Þar kostar einn legstaður,
sem minnst er 4 fermetrar að
stærð, frá því sem svarar til 44.000
ísl. kr., sem aðeins er lítið brot af
kostnaðinum í Hong Kong, og þar
er legsteinn og áskrift á hann
innifalin.
Þó að ráðamenn kirkjugarðsins
séu yfirlýstir trúleysingjar hafa þeir
ekkert á móti trúarlegum athöfn-
um. Útfarir búddhatrúarmanna
eru gerðar á sama hátt og forfeðra-
dýrkun Konfúsíusar gerir ráð fyrir,
þ.e. kommúnistarnir brenna reyk-
elsi og færa trúarlegar fórnir - gegn
viðeigandi gjaldi.
Líka hægt að kaupa
greftrunarstað fyrir
ættingja í Kína
Sem eðlilegt er í viðskipta-
heiminum hefur „hinn eilífi grafa-
garður" í Kanton þegar fengið
samkeppni. í Shenzhen, sem er
sérstakt stjórnsýslusvæði í ná-
grenni Kantons, hafa hinir snjöllu
kommúnistar líka komið auga á þá
möguleika á auknum viðskiptum
sem felast í þeirri lotningu fyrir
forfeðrunum sem enn er raunveru-
lega fyrir hendi meðal Kínverja í
útlöndum. Þar er nefnilega hægt
að festa kaup á greftrunarstöðum
fyrir ættingja í Kína. Eina skilyrðið
er að greitt sé fyrir í beinhörðum
Hong Kong dollurum.
f byrjun ársins var líka opnaður
„Garður hinna heimkomnu“ rétt
fyrir utan Shanghai, en þaðan eru
upprunnir margir þeirra Kínverja
sem sest hafa að í öðrum löndum.
Samkvæmt fréttum opinberra
blaða er tilgangurinn sá að „koma
til móts við vonir hinna fjölmörgu
Kínverja sem búsettir eru í öðrum
löndum og ættingja þeirra, sem
lengi hafa borið þá von í hjarta að
eignast hinsta legstað í gamla land-
inu.“
Hinir hugmyndaríku stjórnend-
ur kirkjugarðsins í Shanghai, sem
bjóða löndum sínum greftrunar-
stað fyrir allt frá 6.000 ísl kr. á
fermetra, hafa á prjónunum áætl-
anir um að byggja á þessu 8
hektara stóra svæði byggingu fyrir
jarðarfarir að vestrænum sið, þegar
þcir hafa lokið við að reisa „Sal
helgisiðanna“.
„Fallandi lauf
leita aftur tii rótarinnar"
Þarna liggur stórhugur að baki
en enn sem komið er hefur kirkju-
garðsmönnum í Kanton ekki tekist
að verða sér úti um nógu marga
viðskiptavini. Þeir eru samt ekkert
á því að láta hugfallast og segja
hugmyndina eiga framtíðina fyrir
sér. „Því að,“ segir einn þeirra,“við
Kínverjar erum bundnir átthögum
okkar sterkum böndum. Fallandi
lauf leita aftur til rótarinnar."
Viðskipti með lotni
Lækkað verð - Nordic Radial sumarhjólbarðar
Eigum til á lager takmarkað magn af eftirtöldum fólksbíla-
hjólbörðum frá NORDIC í Svíþjóð.
155-SR13..................Kr. 2.249.-
165-SR13..................Kr. 2.399.-
165-SR14................. Kr. 2.699.-
175-SR14..................Kr. 2.924.-
Greiðslukortaþjónusta.
Og mundu nú eftir því aö viö viljum bara
blýlaust bensín Haraldur