Tíminn - 27.08.1988, Page 9
Laugardagur27. ágúst 1988
HELGIN
19
;akamál sakamál sakamál sakamál saka
Þegar handtöku- og húsleitar-
heimildir lágu fyrir, fóru lögreglu-
mennimir til hússins og þar voru
bæði Gerald og Dave fyrir. Þegar
Holland var tilkynnt að fyrir lægi
heimild til að handtaka hann, grun-
aðan um morðið á Krystal King,
sagðist hann ekki hafa hugmynd
um neitt og ekki þekkja neina sem
héti þéssu nafni.
- Viltu að við komum með
stúlku sem var hérna í gærkvöldi?
spurði Payne.
Holland yppti öxlum. - Þá það,
svaraði hann. - Þær voru hérna. Ég
reyni að koma fram við þessa
krakka eins og ég eigi þá. Ekkert
sérstakt gerðist.
- Það gerðistheldurekkert, þeg-
ar þú nauðgaðir telpunni í Texas,
sagði Payne ögrandi. - Krystal
King var hérna í gærkvöldi og lík
hennar fannst grafið við Saucier í
morgun.
Skyndilega hraut út úr Holland:
- Jæja, en það var slys.
Áður en Holland sagði meira,
var honum lesin réttarstaða hans
og bent á að ef hann kysi að tala,
mætti nota gegn honum allt sem
hann segði. Hann kaus að tala.
Lék sér að hníf
Hann sagði að vinkona Krystal
hefði farið og Krystal setið eftir í
dagstofunni, þar sem stór veiði-
hnífur lá á borði rétt hjá. Krystal
hafði tekið hann upp og farið að
fitla við hann.
- Við fórum inn í svefnherbergið
og þá var hún enn með hnífinn,
sagði Holland á myndbandi, sem
síðar var tekið upp. - Hún lék sér
að honum, þangað til hún rispaði
mig á kviðnum. Ég seildist eftir
hnífnum, því mér leist ekkert á
þennan leik, hélt hann áfram.
- Áður en ég náði honum, rakst ég
á hana og hnífsblaðið gekk inn í
bringuna á henni. Hún hrópaði:
- Ég er dauð.
Lögreglumönnunum fannst ekki
ástæða til að fara nánar út í þetta
að svo stöddu. Þeir gætu seinna
borið söguna saman við niðurstöð-
ur krufningsskýrslunnar.
- Þá varð ég galinn, hélt Holland
áfram. - Hver myndi trúa því að ég
hefði drepið 15 ára krakka af
slysni?
Þegar hann var búinn að ganga
úr skugga um að Krystal væri
raunverulega dáin, fór hann út í bíl
sinn, sótti felgujárn og barði hana
nokkrum sinnum í höfuðið með
því.
- Ég varð að láta líta svo út að
kynferðislega brjálaður náungi
hefði drepið hana, svo ég skar
hana svolítið, útskýrði Holland.
- Svo vafði ég hana í plastið og
setti svo lakið utan um. Ég ók út í
kjarrið og gróf hana þar.
Hinn maðurinn, Dave, sagði að
eftir að vinkona Krystal fór, hefði
hann farið inn til sín, lokað að sér
og horft á sjónvarpið. Hann kvaðst
ekki hafa vitað um neitt sem fram
fór, fyrr en Holland hefði tilkynnt
honum að stúlkan hefði látist fyrir
slysni og hann hefði farið með líkið
og grafið það á góðum stað. Hol-
land staðfesti þennan framburð
mannsins. Hnífurinn fannst í hús-
inu, svo og blóðug föt Hollands.
Slys útilokað
Ýmsar tafir urðu á því að málið
kæmist fyrir rétt. Verjandi tafði
það á þeim forsendum að Holland
hefði ekki verið lesin réttarstaða
hans nægilega skýrt við handtök-
una og því væri framburður hans
ógildur.
Loks hófust þó réttarhöldin 10.
nóvember 1987. í opnunarræðu
sinni bað Carrano sækjandi kvið-
dóminn um að áfellast ekki
Krystal. Þótt hún væri óábyrgur
unglingur, hefði hún alls ekki átt
Gerald Holland hélt því fram, að
um slys hefði verið að ræða.
Lögreglan vissi að fólki er ekki
nauðgað, það stungið, skorið,
barið og kæft i ógáti.
skilið svona dauðdaga og allra síst
í afmælisgjöf.
Síðan var sýnt myndbandið með
framburði Hollands og ’loks lesin
upp krufningsskýrslan. Þar kom
fram að Krystal hafði verið nauðg-
að, áður en hún lést. Ennfremur
hafði hún verið lifandi, þegar hún
var barin í höfuðið. Nærbuxunum
hefði verið troðið niður í háls
hennar til að kæfa ópin. Dánaror-
sökin var annað hvort köfnun eða
hálsskurðurinn. Ekki var mögulegt
að ákvarða, hversu mikið af hnífs-
stungunum á líkinu hafði verið
veitt eftir dauðann.
Læknirinn aftók með öllu að
Krystal hefði getað látist af hnífs-
stungu fyrir slysni.
Holland kom í vitnastúkuna og
fullyrti að um slys hefði verið að
ræða. Hann var með tárin í augun-
um, þegar hann ávarpaði kviðdóm-
inn: - Mér líður hræðilega vegna
dauða barnsins og ef ég gæti lífgað
hana við, mundi ég gera það á
stundinni.
Kviðdómendur létu ekki sann-
færast. Ekki liðu nema 15 mínútur,
þar til þeir komust að þeirri niður-
stöðu að Holland væri sekur um
morð að yfirlögðu ráði. Dómarinn
fékk miða frá þeim, sem á stóð:
- Við viljum dæma Holland til
dauða.
Skylt er þó að hlusta á framburð
ákæranda og verjanda áður en
dómur er kveðinn upp og eftir það
tók það kviðdóminn tæpa klukku-
stund að koma sér saman um að
Holland skyldi dæmdur til dauða
með eitursprautu. Dauðadómar
áfrýjast af sjálfu sér og því þarf
málið að koma fyrir hæstarétt,
áður en dómnum verður fullnægt.
ÁRMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
CHERVOLET MONZA árg. 1986, beinsk. m/áfl-
stýri.
Góður bíll - Skipti hugsanleg á MF dráttarvél.
Upplýsingar í síma 91-687300 eða 91-39810.
BíLVANGURsf
BÁSAMOTTUR
FRÁ ALFA-LAVAL
Sterkar og einangra mjög vel.
Stærð:
MUSAFÆLUR
220 volt
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SiMI 38900