Tíminn - 30.08.1988, Qupperneq 15
Þriðjudagur 30. ágúst 1988
Tíminn 15
MINNING
Ásgrímur Kristinsson
frá Ásbrekku í Vatnsdal
Fæddur 29. desember 1911
Dáinn 20. ágúst 1988
„Fer ég enn um farinn veg
fýsir síst til baka.
En heim í Vatnsdal vildi ég
vagni mi'num aka. “
Davíö Stefánsson.
Ásgrímur fæddist í Ási í Vatnsdal.
Ingibjörg móðir hans var Benedikts-
dóttir og systurdóttir Guðmundar
Ólafssonar alþm. í Ási og urðu þau
hjón Guðmundur og kona hans
Sigurlaug Guðmundsdóttir fóstur-
foreldrar hans. Var heimili þeirra
hjóna mannmargt og fastmótað með
hefðbundnum hætti þess tíma.
Faðir Ásgríms, Kristinn Bjarna-
son, af Bólu-Hjálnrars ætt, varð
strax á unga aldri kunnur hagyrðing-
ur og hafði erft hæfileika ættföðurins
í ríkum mæli.
Ásgrímur naut foreldra sinna
minna fyrir það að leiðir þeirra
skildu og bjuggu þau aldrei saman.
Ingibjörg Benediktsdóttir dó ung að
árum og átti ekki aðra afkomendur
en Ásgrím, en Kristinn Bjarnason
átti síðar margt barna í tveim hjóna-
böndum.
Snemma kom í Ijós að hneigðir
Ásgríms voru mjög sóttar í báðar
ættir hans. Fyrsta vísa hans er frá því
hann var sjö ára og tólf ára er hann
farinn að nota kenningar í vísum
sínum. Varð Ásgrímur ótrúlega
fljótt virkur þátttakandi í vísna- og
ljóðagerð sem á þeim árum var
iðkuð í Vatnsdal og er raunar enn,
þótt í minna mæli sé af ýmsum
ástæðum.
Á hinn bóginn var bóndaeðlið
mjög ríkt í Ásgrími. Strax á ungl-
ingsárum eignaðist hann kindur og
vildi hafa þær sér í húsi til þess að
hugsa um þær. Rúmlega tvítugur
tekur hann á leigu jörðina Kötlustaði
í Vatnsdal, þá nýgiftur og árið 1936,
þegar hann er 25 ára, stofna þau
hjónin nýbýlið Ásbrekku í Vatnsdal
á einum fimmta hluta jarðarinnar
Áss og var landið gjöf frá fósturfor-
eldrum hans. Býlið þurfti að reisa
frá grunni, bæði ræktun og byggingar
yfir fólk og fénað. Hafði efnahags-
kreppa bænda þá náð hámarki og
voru fjármunir af skornum skammti
svo að ótrúlegt er að nýbygging
heillar jarðar gæti orðið veruleiki.
Fóru þá í hönd svokölluð mæðiveiki-
ár er ollu bændum þungum búsifj-
um. En sigur vannst fyrir afdráttar-
lausan baráttuhug hjónanna beggja,
sem auk þess að fórna kröftum
sínum öllum, gættu þess að stilla
kröfum í hóf svo að hægt væri að
standa í skilum og við skuldbinding-
ar. Hafði bóndaeðli Ásgríms yfir-
höndina í lífi hans um þessar
mundir, en var þó kryddað af skálda-
eðli hans er tóm gafst til. Var mjög
leitað til Ásgríms meðan hann dvaldi
í Vatnsdal við ýmis tækifæri um að
koma fram og slá skáldhörpu sína.
Tók hann því misjafnlega vel, en er
líða tók að því sem til stóð, var sem
hann fcngi innblástur og færðist í
aukana. Kastaði hann þá með öilu
frá sér hversdagsleikanum og rétti úr
sér frá erfiði dagsins. Urðu honum
ljóð á munni, oft heil kvæði, á
ótrúlega skömmum tíma. Ljóðrænt
hrifnæmi hans var honum eðlisboriö
og að flytja ljóð sín með þcim
hrynjanda aö allra eyrum náði.
Samspil bóndans og listamannsins
í Ásgrími Kristinssyni gerði hann að
eftirsóttum félaga sem setti nijög
svip á menningar- og samkvæmislíf í
Vatnsdal rneðan hans naut við.
í ljóðabók Ásgríms, sem út kom
árið 1981 er áberandi mikið af af-
mælisljóðum til sveitunga lians, bæði
karla og kvenna og var hann sann-
kallað hirðskáld Vatnsdælinga um
árabil. Þá eru gangnavísur hans
landskunnar margar hverjar:
Harðnar rei' erjáls og frí
færist leiðin . ir.
Blærinn seidi kur í
arma heiðar
Ei mun finnast örðug leið
eftir kynning bjarta.
Vakir minning vona heid
vermir inn að hjarta.
I kvæðinu Æskuminning er þctta
erindi:
Ég hef unnað vorsins veldi.
vakað einn á fögru kveldi
og það lyfti anda mínum.
allt var kyrrt og hljótt.
Bergði ég af brunni þínum
bjarta júnínótt.
Þannig var í rauninni lífsviðhorf
Ásgríms á Ásbrekku. En veröldin
brosti ekki alltaf við honum. Við
andlát konu sinnar Ólafar K. Sigur-
björnsdóttur, ættaðri úr Dölum
vestur, alið hafði honum fjögur börn
og barist harðri baráttu við hlið
hans, orti Ásgrímur þessa látlausu
vísu:
Peim sem eiga yl í sál
og unna hlíðum grænum
sárt er að missa um sumarmál
sólskinið úr bænum.
Varð um skeið erfitt tímabil í æfi
Ásgríms, en hann hopaði ekki af
hólmi og sólskinið kom aftur í bæ
hans. Guðný Guðmundsdóttirættuð
vestan af fjörðum kom til hans sem
ráðskona með ungan son sinn. Varð
hún síðari kona hans og búskapurinn
á Ásbrekku hélt áfram. Börnunum
fjölgaði og Guðnýju fataðist hvergi
í hlutverki sínu sem eiginkona, móð-
ir og stjúpmóðir. Tíminn leið og upp
óx stór systkinahópur: Guðmundur
Ólafs, nú bóndi á Ásbrekku, Þor-
steinn Erlings, bóndi og oddviti á
Varmalandi í Skagafirði, Sigurlaug
Ingibjörg, Ólafur Sigurbjörn - var
skírður við kistu móður sinnar -
Guðrún Ása, Ólöf Hulda og svo tvö
hálfsystkin Snorri og Lilja Huld. Öll
eru þessi systkin búsett í Reykjavík
nema tveir elstu bræðurnir. Hag-
mælsku hafa þau í heiðri og bera
uppruna sínum gott vitni.
Er Ásgrímur hafði búið átján ár á
Ásbrekku, brá hann búi þar um
tveggja ára skeið. En hann kom
aftur heim og búskapnum var haldið
áfram til haustsins 1962 að elsti
sonurinn tók við jörð og búi. Eftir
það dvöldu þau hjón í Reykjavík
meðan bæði lifðu. Um nokkur ár
starfaði Ásgrímur hjá Samb. ísl.
samvinnufélaga en vanheilsa tók
með öllu fyrir vinnugetu hans. Eins
fór um konu hans Guðnýju að hún
missti heilsu og lést fyrir aldur fram
fyrir fjórum árum. Þannig voru Ás-
grími settar skorður er hann fékk
ekki umflúið. Börn hans og tengda-
börn voru verndarar hans upp frá
því en einkum kom það í hlut þeirra
Ólafs og Ásu. Til síðustu stundar
tókst Ásgrími að sjá sér efnalega
farborða enda taldi hann það frurn-
skilyrði þess að vera frjáls maður í
samfélaginu.
Skömmu eftir að þau Ásgrímur og
Guðný fluttu suður bjuggu þau um
tíma í litlu býli innan við Reykjavík.
Hús voru þar gömul og ekki nýtísku-
leg. Varð þá þessi vísa Ásgríms til:
Hingað bar mig gamlan gcst.
Glöggvast farið minni.
Áður var og enn er best
undir skarsúðinni.
Eitt sinn er Ásgrímur þurfti að
hverfa til vinnu sinnar í Reykjavík
en úti var sumar og sól, varð honum
að orði:
Þegar attga blómin blá
bjóða vanga og gef'ann
örðug gangan er ntór þá
inn í fangaklefann.
Ásgrímur var alltaf sami bóndinn í
eðli sínu og ræturnar við hans görnlu
heimasveit slitnuðu aldrei. Hann var
mikill aufúsugestur er hann kom
norður berandi með sér nýjar stökur
og ljóð, ásamt upprifjun sagna og
samskipta við vinafólk og samferða-
menn. Ljóðadísin var honum trú til
síðustu stundar, þótt sjá þvrfti hann
af báðum eiginkonum sínum.
Við andlát síðari konu sinnar orti
Ásgrímur:
Dýrar sakir drottinn minn
dómar þínir sýna.
Tókstu af mér annað sinn
eiginkonu mína.
Enginn vafi er á því, að Ásgrímur
frá Ásbrckku er einn þcirra alþýðu-
skálda tuttugustu aldarinnar sem
reist hafa sér óbrotgjarnan minn-
isvarða með Ijóðagerð sinni, þannig
að stökur hans munu lifa á vörum
ljóðelskra karla og kvenna um langa
tíð.
Því hafa hér verið í þessum
minningarorðum tilfærð nokkur sýn-
ishorn af Ijóðagerð Ásgríms, að
telja má að þau lýsi manninum
sjálfum betur en með öðru móti
mætti vera. Eftirfarandi vísa hans
bendir til þess að sú skoðun sé ekki
fjarri lagi:
Vísan stendur öld og ár
oft er send til varnar.
Hún er að benda á bros og tár
bak við hcndingarnar.
Með Ijóðagerð sinni reis Ásgrímur
á Ásbrekku yfir hversdagslcikann
og vcitti okkur næstu nágrönnum og
öðrum samferðamönnum ómælda
gleði á góðum stundum. Fyrir það
þökkum viö nú að leiðarlokum og
sendum börnum hans, tengdabörn-
um og barnabörnum samúðarkveðj-
ur.
Ásgrímur veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 30.
ágúst.
Grímur Gíslasoii.
REYKJÞMIKURBORG f*l
^ ^-----------• «*«
'I* Aeuitevi Stödun. 'l^
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar að ráða eftirtalið starfsfólk:
Aðstoðarmann við skólatannlækningar, hluta-
starf.
Skólahjúkrunarfræðing við Öskjuhlíðarskóla.
Meinatækni í afleysingar.
Hjúkrunarfræðing með Ijósmóðurmenntun í 50%
starf við mæðradeild til að annast foreldrafræðslu.
Upplýsingargefurhjúkrunarforstjóri í síma22400.
Hef opnað
lögmannsstofu að Borgartúni 28, 4. hæð, sími
624061. Tek að mér öll venjuleg lögmannsstörf.
Kjartan Ragnars
hæstaréttarlögmaður
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Ásgrímur Kristinsson
frá Ásbrekku
síðast til heimilis að Beykihlíð 1, Reykjavík
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. ágúst kl.
15.00.
Ása Asgrímsdóttir
Ólöf Hulda Ásgrímsdóttir
Guðmundur Ó. Ásgrímsson
Þorsteinn E. Ásgrímsson
Sigurlaug I. Ásgrimsdóttir
Ólafur S. Ásgrímsson
Snorri Rögnvaldsson
Lilja Huld Sævars
Ólafur R. Árnason
Pálmi Bjarnason
ÓlafíaS. Pétursdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Birna Halldórsdóttir
Magnús Jóhannsson
og barnabörn
t
Þökkum innilega auðsýnda virðingu og vinarhug við andlát og útför
Guðrúnar Þorsteinsdóttur
kennara
Sérstakar þakkir færum við starfsliði Hjúkrunarheimilisins Ljósheim-
um Selfossi fyrir kærleiksríka umönnun.
Jóhanna Þorsteinsdóttir
Sigurlaug Guðmundsdóttir
Guðrún Hulda Guðmundsdóttir
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Ingibjörg Pálsdóttir.
t
Eiginkona mín og móðir okkar
Sigrún Sigurðardóttir
Norðurbraut 7b. Hafnarfirði
lést föstudaginn 26. ágúst.
Kristján Guðmundsson
Ólafía Kristjánsdóttir
Sigurður Kristjánsson.
t t Bróðir okkar
Rafn Sigurðsson Bjarni Guðbjörnsson
til heimilis að Engihjalla 9 Grettisgötu 32
lést á heimili sínu þann 27. ágúst. andaðist í sjúkrahúsinu Lundi, Svíþjóð 25. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar. Anna Guðbjörnsdóttir
Ingvi Rafnsson. Elín Guðbjörnsdóttir.