Tíminn - 09.09.1988, Síða 4
4 Tíminn
Föstudagur 9. september 1988
Verðlaunamynd, Radek Sikorski, sem ber titilinn „Fórnarlömb“. Myndin sýnir fórnarlömb sprengjuárásar í
Afghanistan. Kona með tvö börn sín hafði leitað skjóls í kjallara í íbúðarhúsi. Dómnefndin lét þess getið þegar
myndin var valin til fyrstu verðlauna að hún minnti á fórnarlömbin ■ borginni Pompei á Ítalíu.
MAR SH seldi 186,5
Hin árlega fréttaljósmyndasýning World Press Photo verður
opnuð í Listasafni ASÍ laugardaginn 10. september n.k. kl.
14.0».-
Árið 1956 bundust nokkrir hollenskir frcttaljósmyndarar
samtökum urn að efna til alþjóðlegrar samkeppni um bestu
blaðaljósmyndirnar. Tilgangurinn var m.a. að vekja áhuga
almennings á fréttaljósmyndun og einnig var þetta liöur í
baráttu fyrir frjálsri fréttamiðlun í heiminum, og þar með
auknum skilningi manna og þjóða í milli.
Þessi óformlegu samtðk urðu smárn saman að stofnuninni
World Press Photo Foundation, sem árlega gengst fyrir þessari
fréttaljósmyndasamkeppni. Stofnunjn dreifir einnig farands-
ýningum á verðlaunamyndum, og var Listasafn ASÍ einn af
fyrstu aðilunum til þess að halda slíkar sýningar.
í ár bárust í keppnina 9.202 myndireftir 1.215 ljósmyndara
frá 64 löndum. Veitt voru vcrðlaun í 9 efnisflokkum, en auk
þess hlutu allmargar ljósmyndir sérstaka viöurkenningu.
Auk verðlauna í hinum ýmsu flokkum cr árlega valin
fréttaljósmynd ársins. Ennfremur eru veitt verðlaun kennd
við Oskar Barnack, upphafsmann Leicamyndavélarinnar,
fyrir þá ljósmynd, sem besl túlkar mannúöarhugsjón og
samband manns og umhverfis. Pá eru einnig veitt sérstök
verðlaun Búdapestborgar fyrir ljósmynd sem sýnir jákvæðar
aðgerðir til varðveislu lífs á jörðinni.
Aö þessu sinni eru 159 ljósmyndir á sýningunni. Hún verður
opin alla virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20.
^Sýningunni lýkur 25. septcmber.
tonn í Bremerhaven
GUÐMUNDUR KRISTINN SU
404 seldi tæpt 51 tonn í skipasölu í
Grimsby 30. ágúst fyrir samtals tæp-
ar 4 milljónir króna. Meðalverð á
kíló var kr. 77,53. SIGUREY BA 25
seldi um 92 tonn þann 31. ágúst á
samtals tæpar 8,2 milljónir króna og
var meðalverð á kíló kr. 88,71.
OTTO WATHNE NS 90 fékk kr.
74,71 á kíló fyrir þau 168,3 tonn sem
hann seldi í skipasölu fyrir samtals
tæpar 12,6 milljónir króna, 1. þessa
mánaðar í Grimsby. ÓSKAR
HALLDÓRSSON RE 157 seldi í
Huil þann sama dag tæp 84 tonn á
samtals tæpar 6,8 milljónir króna.
Meðalverð á kíló var kr. 80,89.
ÞORRI SU 402 seldi tæp 47,8 tonn
í Grimsby 2. þessa mánaðar á rúmar
4,3 milljónir króna og var meðalverð
á kító kr. 88,82.
Samtals voru rúm 325,3 tonn seld
í skipasölu dagana 28.8.-2.9. í Bret-
landi, fyrir samtals 27,5 milljónir
króna. Meðalverð á kíló var kr.
84,63. Tæpar 4,5 milljónir króna
fengust fyrir 47 tonn af ýsu og var
meðalverð á kíló kr. 95,51.
Þá voru rúm 27,3 tonn af karfa
seld á samtals unt 1,4 milljón króna.
Meðalverð á kíló var kr. 52,19.
Meðalverð á kíló af ufsa var kr.
29,98 og voru 15,7 tonn seld á tæp
471 þúsund krónur. Tæp 21,2 tonn
af blönduðum afla voru seld á 1,3
milljónir króna og var meðalverð kr.
61,19.
I gámasölu seldust 226,4 tonn af
þorski fyrir samtals 17,8 milljónir
króna. Meðalverð á kíló var kr.
78,49. Um 119,5 tonn af ýsu voru
seld fyrir 9,5 milljónir og var meðal-
verð kr. 79,80. í>á fengust 7,9 rrflll-
jónir króna fyrir tæp lOOtonn af kola
og var meðalverð kr. 78,98 á kílóið.
Um 54,6 tonn af blönduðum afla
+++ NOTAÐAR *++
HEYBINDIVÉLAR
CLAAS M-65 árg. 1987, sem ný. kr. 390.000,-
IH. 435 árg. 1980, ný yfirfarin . kr. 195.000,-
IH. 435 árg. 1980, ný yfirfarin . kr. 185.000,-
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
BÚNAÐARDEILD
ÁRMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
voru seld á 5,2 milljónir króna og var
meðalverð kr. 95,16. Tæp 12 tonn af
grálúðu voru seld á kr. 74,45 að
meðaltali fyrir kílóið og var söluverð
tæp 890 þúsund krónur. Minna var
selt af ufsa og karfa.
MAR SH 127 seldi 186,5 tonn í
Bremerhaven í Þýskalandi 30. ágúst
fyrir 9,7 milljónir króna og var
meðalverð kr. 51,81 á kíló. H APPA-
SÆLL KE 94 seldi rúm 90 tonn í
Cuxhaven 31. ágúst fyrir3,9 milljón-
ir króna og var meðalverð kr. 43,07
á kíló. Sama dag seldi HAUKUR
GK 25 136,5 tonn í Cuxhaven fyrir
8,3 milljónir króna og var meðalverð
kr. 60,78 á kílóið.
Langmest var selt af karfa í Þýska-
landi dagana 29.8.-2.9., rúm 250
tonn á tæpar 15 milljónir króna.
Meðalverð fyrir karfa var kr. 59,59
kílóið. í>á voru 116,7 tonn af ufsa
seld á kr. 44,29 að meðaltali fyrir
kílóið. Söluverð var 5,2 milljónir
króna. Samtals voru tæp 16 tonn af
þorski seld fyrir rúma milljón króna.
Meðalverð var kr. 63,93. Þá voru
24.5 tonn af blönduðunt afla seld
fyrir tæp 510 þúsund krónur og var
meðalverð kr. 20,78 kílóið. Aðeins
5.5 tonn af ýsu voru seld, á meðal-
verð kr. 63,93. JIH
yUMFBKWR
Gefum okkur
táina í umferðinni.
Leggjum tímanlega af stað!