Tíminn - 09.09.1988, Page 13
Föstudagur 9. september 1988
Tíminn 13
ÚTLÖND
Utanríkisráðherrar Norðurlanda með sameiginlega áskorun á Sameinuðu þjóðirnar:
SÞ kanni efnavopna-
hernað gegn Kúrdum
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna hafa skorað á Sameinuðu þjóðirnar að samtökin
rannsaki hvort ásakanir um að írakar noti efnavopn í árásum á þorp Kúrda ættu við rök að
styöjast. Sameiginleg áskorun ráðherranna var send til Perez de Cuellar aðalframkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna í gær.
Fóru utanríkisráöherrarnir fram á inga í nafni samtakanna. Skæruliðar Kúrda fullyrða að ír-
að sérfræðingar á vegum Sameinuðu NúeruumfimmtíuKúrdarbúsett- akskir hermenn hafi drepið og sært
þjóðanna verði sendir til írak og ir í Svíþjóð í hungurverkfalli til að þúsundir óbreyttra borgara í efna-
rannsaki málið og hafa Svíar fyrir vekja athygli á árásum Iraka á árásum undanfarna mánuði. írakar
sitt leyti boðist til að senda sérfræð- Kúrda í norður írak. hafa vísað þeim ásökunum á bug.
Þjóðverjar spurðir spjörunum úr:
Sjónvarpsstöðvar
í kynlífsstríði
Kynlífsstríð hefur nú brotist út
milli vesturþýskra sjónvarpsstöðva.
Tele 5 sem er kapalstöð að nokkru
leyti í eigu ítalska fjölmiðlakóngsins
Siívio Berlusconi reið á vaðið með
þættinum „Kynlífskvöld'*. Þátturinn
cr sendur út seint á þriðjudagskvöld-
unt og er hann samansettur úr lítt
siðprúðum myndböndum og létt-
bláum kvikmyndum.
Þetta framtak Tele 5 varð til þess
að forsvarsmenn RTL Plus sjón-
varpsstöðvarinnar risu upp og
ákváðu að senda út eigin kynlífs-
dagskrár. Einn þátturinn „Kynlífs-
glópska" er spurningaþáttur með
nýstárlegu sniði. Ef þátttakendur
svara spurningum rangt þá verða
þeir að klæða sig úr spjör. Þannig er
fólk beinlínis spurt spjörunum úr við
mikinn fögnuð áhorfenda. Sam-
kvæmt áhorfendakönnunum hefur
gláp á RTL sjónvarpsstöðina aukist
um 10% eftir að þessi nýbreytni var
tekin upp.
Fylkisstjóra New Yorks ríkis er margt til lista lagt:
Cuomo hleypur
uppi töskuþjóf
Mario Cuomo ríkistjóri New York
fylkis brá fyrir sig betri fætinum í gær
þar sem hann átti leið um hið
illræmda Harlem hverfi New York
borgar og hljóp uppi töskuþjóf
ásamt vopnuðum bílstjóra sínum
Mary Ellen Fitzpatrick.
Cuomo sem nú er 56 ára að aldri
var á yngri árum liðtækur körfu-
knattleiksmaður og var greinilegt að
hann hefur haldið sér í góðu formi.
Cuomo var á leið á fund þegar hann
sá töskuþjóf á flótta. Cuomo beið
ekki boðanna heldur rauk út úr
bílnum og skipaði Mary Ellen að
elta þjófinn með sér.
„Flann rauk út úr bílnum án þess
að við gætum stöðvað hann,“ sagði
John Iaccio sérlegur aðstoðarmaður
ríkisstjórans. „Fitzpatrick tók af sér
háhæluðu skóna, dró upp byssuna
og þau hlupu saman yfir götuna".
Þau skötuhjúin náðu að hlaupa
þrjótinn uppi og var hann handtek-
inn í skóbúð þar sem hann hugðist
leita sér hælis.
Skrúfað frá barnakrananum í Kína:
Bændur mega nú
geta tvö börn
Nú hefur á ný verið skrúfað frá
barnakrananum í Kína, því nú mega
kínverskir bændur geta tvö börn, en
eins og kunnugt er hefur um árabil
verið bténdakvóti á Kínverja. Hver
hjón hafa einungis mátt eignast eitt
barn. Með þessu hafa Kínverjar
reynt að halda fólksfjölgun í skefjun,
en nú er vel rúmur milljarður Kín-
verja á rölti um þetta víðfeðma ríki.
Reyndar fæddust 22 milljónir kín-
verskra barna á síðasta ári, afurð
„barnasprengingarinnar" sem varð í
Kína á sjötta áratugnum þegar gífur-
lega stórir árgangar sáu dagsins Ijós.
Ástæða þess að bændum er nú
leyft að eignast tvö börn er sú að
útburður stúlkubarna hefur tíðkast í
sveitum landsins allt fram á þennan
dag, enda er það rótgróin hefð í
Kína að drengur sé það eina sem
máli skiptir í hamingjusamri fjöl-
skyldu. Til að koma í veg fyrr slíka
harmleiki hefur þeim 800 milljónum
bænda er nú búa í Kína verið leyft
að reyna aftur ef fyrsta barn er
stúlkubarn.
Flugslysið í Ramstein:
Tvö fórnar-
lömb létust
ínótt
Enn fjölgar fórnarlömbunum í
hinu hræðilega slysi á flugsýning-
unni í Ramstein 28. ágúst síðast-
liðinn. í nótt létust tveir áhorf-
endur af sárum sínum og hafa því
fimmtíu og sex manns látist af
völdum þessa harmleiks þegar
þrjár ítalskar herþotur skullu
saman á flugsýningu og logandi
brak dreifðist yfir áhorfendur.
Nú eru hundrað og sextíu manns
enn á sjúkrahúsi og eru ekki allir
komnir úr lífshættu.
Tvö fórnarlömb flugslyssins í
Ramstein létust í nótt og hafa því
56 látið lífið. Hér sést ein þotan
falla til jarðar.
ÚTL
UMSJÓN:
Hallur
Maqnússon
BLAÐAMAÐ
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍ KUR
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar að ráða starfs-
menn í eftirtalin störf.
Loftlínulagnir/götuljós. Óskað er eftir rafvirkjum
eða línumönnum.
Gagnavinnsla. Óskað er eftir starfsmanni með
reynslu við tölvuvinnslu.
Bókhald. Óskað er eftir starfsmanni í bókhald
með bókhaldsþekkingu.
Aðstoðargjaldkeri. Óskað er eftir starfsmanni
með reynslu í skrifstofustörfum.
Birgðavörður. Óskað er eftir starfsmanni með
rafvirkjamenntun.
Rafmagnseftirlit. Krafist er menntunar rafiðn-
fræðinga.
Rafmagnsveita Reykjavíkur býður upp á gott
starfsumhverfi í tæknivæddu fyrirtæki. Mötuneyti
á staðnum.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 19.
sept. n.k. og ber að skila umsóknum til starfs-
mannastjóra á þar til gerðum eyðublöðum sem
fást á skrifstofu Rafmagnsveitunnar að Suður-
landsbraut 34.
Upplýsingar um störfin veitir starfsmannastjóri í
síma 686222 kl. 10-12 alla daga.
Starfsmannastjóri.
Evrópuráðið býður fram styrki til framhaldsnáms
starfandi og verðandi verkmenntakennara á árinu
1989. Styrkirnir eru fólgnir í greiðslu fargjalda milli
landa og dagpeningum fyrir hálfan mánuð eða allt
að sex mánuði.
Umsækjendur skulu helst vera á aldrinum 26-50
ára og hafa stundað kennslu við verkmenntaskóla
eða leiðbeiningarstörf hjá iðnfyrirtæki í að minnsta
kosti þrjú ár.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Um-
sóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 10.
október 1988.
Menntamálaráðuneytið,
7. september 1988.
NýlegurVOLVO F1225
til sölu.
Upplýsingar í síma 91-73045 eftir kl. 20.00.
Amoksturstæki óskast
Trima 1220 eða 1420 tvívirk. Upplýsingar á
auglýsingadeild Tímans sími 686300.
Vantar starfsmann
á fuglabú, góð laun fyrir samviskusaman mann.
Upplýsingar í síma 98-66053.
t
Eiginmaður minn
Sigurður Þórðarson
bóndi, Tannastööum
verður jarðsunginn frá Kotstrandarkirkju laugardaginn 10. september
kl. 14.00.
Blóm og kransar afbeðin, en þeir sem vildu minnast hans eru beðnir
um að láta Sjúkrahús Suðurlands njóta þess.
F.h. aðstandenda
Halldóra Hinriksdóttir