Tíminn - 10.09.1988, Blaðsíða 5
Laugardagur 10. september 1988
Tíminn 5
Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins í samtali við Tímann að afloknum „Stykkishólmsfundinum11:
Mjög ánægður með stuðn-
inginn við niðurfærsluna
„Eg vil lýsa ánægju minni með ályktun Sambands fískvinnslust-
öðva, þar sem þeir lýsa yfír stuðningi við niðurfærsluleiðina,“ sagði
Steingrímur Hermannsson þegar Tíminn náði tali af honum í
gærkvöldi eftir að „Stykkishólmsfundinum“ lauk.
Steingrímur sagði að við vonbrigðatón hefði kveðið hjá fundarm-
önnum. „Menn sem ég ræddi við og heyrði tala á fundinum veltu
fyrir sér spurningunni hvað tæki við. Eg heyrði á mörgum að þeir
óttuðust um fyrirtæki á heimaslóðum sínum sem væru að stöðvast.
Stöðvist þau fyrirtæki held ég að önnur komi í kjölfarið. Slíkt áfall
yrði ekki metið í milljónum heldur miiljörðum króna,“ sagði
Steingrímur.
Áttu von á því að ályktun fundar-
ins, þar sem stuðningi er lýst við
niðurfærslu, breyti einhverju um
afstöðu samstarfsflokkanna varð-
andi leiðir í efnahagsmálum?
Steingrímur sagðist ekki eiga von
á því. „Mér virðist sem frjálshyggju-
gaurarnir í Sjálfstæðisflokknum ráði
of miklu.“
Ræður Þorsteinn ekki við þann
hóp?
„Ekki virðist mér það,“ sagði
Steingrímur.
Millifærsla, byggða á hugmyndum
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
barst í tal á fundinum í gær. Stein-
grímur sagði að megn óánægja hefði
komið fram meðal fundarmanna
varðandi þær tillögur.
Þorsteinn hefur mikið talað um
skilyrði Framsóknar og krata varð-
andi niðurfærsluna. Hann segir að
þið hafið krafist þess að laun lækk-
uðu mismikið og nefnir til sögunnar
sjómenn og fiskvinnslukonur. Hver
voru þessi skilyrði?
„ Áf reynslu minni sem forsætis-
ráðherra verð ég að segja að það er
fyrsta skylda hans að reyna að halda
ríkisstjórninni saman. Það gerir
hann ekki með svona ummælum."
Steingrímur tiltók ummæli forsætis-
ráðherra frá því á miðvikudagskvöld
er hann kom fram í sjónvarpssal og
talaði um hókus pókus aðferðir.
„Við höfðum komið okkur saman
um að gefa ekki út yfirlýsingar eftir
fund okkar fyrr um daginn. Þá varð
ég afar undrandi er ég heyrði um-
mæli hans í DV í morgun. Parer haft
eftir honum að ég sé í nýjum stjórn-
armyndunarviðræðum. Þettaerekki
rétt. Forsætisráðherra ætti að reyna
að lægja öldurnar í stað þess að ýfa
Aðalfundur Sambands fiskvinnslustöðva:
Niðurfærslan er
farsælasta leiðin
Aðalfundur Sambands físk-
vinnslustöðva var haldinn í
Stykkishólmi í gær. I ályktun
sem samtökin samþykktu á
fundinum segir að nú sé komið
að krossgötum í baráttu við
verðbólguna, sem verið hefur
landlæg frá stríðslokum. Að-
eins einn mælikvarði verður
lagður á stjórnvöld, hvernig
þeim tekst til í baráttunni við
verðbólguna.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, segir í viðtali við Tímann
eftir fundinn sem birtist annars
staðar á síðunni, að forsvarsmenn
fiskvinnslufyrirtækja hafi gert sér
grein fyrir því að niðurfærsluleiðin
væri út úr myndinni. f ályktun
samtakanna kemur hins vegar fram
að niðurfærsluleiðin sé farsælasta
lausnin á efnahagsvanda þjóðar-
innar.
„Sú fastgengisstefna sem reynd
var meðan kostnaðarhækkanir
geisuðu hér innaniands skaðaði
útflutningsatvinnuvegi þjóðarinn-
ar á hinn skelfilegasta hátt. Stöðugt
gengi íslensku krónunnar stenst
ekki í reynd nema það sé jafnframt
tryggt að jafnvægi sé í öllum þátt-
um efnahagslífsins.
Ef verðbólga heldur áfram
samhliða minnkandi fiskafla, þá
leiðir það til hörmunga og atvinnu-
leysis. Auðvitað má lengi fleyta sér
áfram á lánum. t*að á við um þjóðir
jafnt og fyrirtæki og einstaklinga.
En lán þarf að endurgreiða.
Erum við reiðubúin að lifa áfram
á erlendum lánum, sem börn þessa
lands verða að greiða? Samtök
fiskvinnslustöðva hafna þeirri leið.
Alveg eins og sú kynslóð sem nú er
orðin öldruð skilaði okkur góðu
þjóðfélagi, þá berum við skyldur
gagnvart næstu kynslóðum," segir
í ályktuninni.
Síðar segir:
„Samtökin benda á, að nú verði
að reka ríkissjóð með tekjuafgangi
og taka fyrir aukningu á erlendum
lánum. Þeir sem ekki treysta sér til
þessa eru uppgjafarmenn. Samtök-
in telja að þjóðarvakning í baráttu
við verðbólgu, sem hæfist með
niðurfærslu launa, verðlags og
vaxta sé affarasælasta leiðin í efna-
hagsmálum. Þannig verði óumflýj-
anleg kjaraskerðing léttbærust fyr-
ir launþega þessa lands. Hagsmun-
ir útflutningsfyrirtækja og laun-
þega fara saman í að lækka vexti
og lækna verðbólgumeinið.
Samtökin telja að mismunun
fyrirtækja og greina innan útflutn-
ingsatvinnuveganna sé ekki væn-
legur kostur og vara eindregið við
öllum slíkum hugmyndum. Lán-
veitingar til einstakra greina sjáv-
arútvegs í stað þess að ráðast að
rótum vandans eru fráleitar.
Útflutningsfyrirtækin eru stað-
sett um landið allt, oft í smáum og
dreifðum byggðarlögum. Brestur í
afkomu útflutningsframleiðslunn-
ar getur leitt til þess, að heilu
landhlutarnir fari í eyði. Til þess
má aldrei koma.
Samtök fiskvinnslustöðva eru
reiðubúin að leggja allt sitt í barátt-
una við verðbólguna og styðja
stjórnvöld í því, að árangursríkar
og réttlátar leiðir séu farnar. Það
er ósk þessa aðalfundur að sérhags-
munum allra einstaklinga og hópa
innan þjóðfélagsins sé fórnað fyrir
heildina á meðan þessi barátta
stendur." JIH
þær.“
Er hann þá að búa þessi áður-
nefndu skilyrði til?
„Ég vil minna á að það var
Sjálfstæðisflokkurinn sent hafnaði
niðurfærsluleiðinni. Það er bókað í
t'undargerðum ríkisstjórnarinnar."
Nú hefur Guðmundur J. Guð-
mundsson einn af miðstjórnarmönn-
um ASÍ lýst því yfir í Tímanum að
hann telji að niðurfærsluleiðin Itafi
ekki verið rædd til þrautar. Hefði átt
að reyna lengur að þínu mati?
„Ég tel mighafa fyrir því vitneskju
að margir innan ASÍ hcfðu gjarnan
viljað ræða niðurfærsluna frckar ef
íylgt hefði með í viðræðunum út-
færsla á niðurfærslu verðlags, vaxta
og gjaldskrár opinberrar þjónustu
þcgar í stað.
Mér finnst það furðulegt að Sjálf-
stæðisflokkurinn virðist leita söku-
dólga, logandi ljósi, þcgar það er í
raun tilgangslaust. Þeir höfnuðu
niðurfærslunni.
Ég hef lagt mikla áherslu á að
forsætisráðherra ber skylda til að
reyna að halda stjórninni saman.
Vilji hann það ekki getur hann
hvenær sem er farið til Bcssastaða
og skilað af sér umboði sínu.
Hinsvcgar vil ég taka það skýrt
fram að ég tel kosningar við þessar
aðstæður, þegar undirstöðuatvinnu-
greinarnar eru í flakandi sárum,
mjög alvarlcgan hlut.” sagði Stein-
grímur.
Stcingrímur var spurður út í af-
stöðu Landsbankans til lánveitinga
til sjávarútvegs, en haft var eftir
Sverri Hermannssyni í útvarpsfrétt-
um að Landsbankinn myndi ekki
lána til fiskvinnslunnar ncma hefð-
bundin afurðalán.
Hann sagðist ekki hafa heyrt þetta
en ef þetta væri tilfcllið þá sagðist
hann ciga von á því að fljótlcga færu
fyrirtæki að stöðvast, því Lands-
bankinn hefði undanfarið haldið
fjölmörgum sjávarútvegsfyrirtækj-
um á floti með lánvcitingum. -ES
Þorsteinn Pálsson við komuna til Reykjavíkur eftir aðalfund Sambands fiskvinnslustöðva í Stykkishólmi í gær.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráöherra, eftir aðalfund Sambands fiskvinnslustöðva:
Skilyrði samstarfs-
flokkanna fáránleg
Formenn stjórnarflokkanna þriggja, Þorsteinn Pálsson forsæti-
sráðherra, Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra, sátu fyrir svörum á aðal-
fundi Sambands fískvinnslustöðva á Stykkishólmi í gær. Tíminn tók
Þorstein Pálsson tali er hann steig út úr flugvél flugmálastjórnar á
Reykjavíkurflugvelli eftir fundinn í gær. Steingrímur og Jón Baldvin
urðu ekki samferða forsætisráðherra til Reykjavíkur.
Hafa þær umræður sem fram fóru
á þessum fundi einhver áhrif á þær
efnahagstillögur sem ríkisstjórnin er
nú að ræða?
„Nei, hann breytir þeim í engu en
þetta var að mínu mati mjög gagn-
Iegur fundur og gott að hitta þessa
forystumenn. Vandinn hefur verið
alveg ljós og fundurinn breytir ekki
neitt því sem verið er að gera.“
Það er þá ekki inni í myndinni að
niðurfærslan verði aftur tekin til
álita?
„Nei, enda kom þarna fram í
orðum flestra sem þarna tóku til
máls að eftir að Framsóknarflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn settu það
skilyrði að launalækkunin komi ekki
jafnt niður á öllum - meiri launa-
lækkun á fiskverkakonur en sjó-
menn svo dæmi séu nefnd - var
flestum sem þarna voru alveg Ijóst
að það var búið að henda þessu út af
borðinu um leið og þessi skilyrði
voru sett af Framsóknarflokknum
og Alþýðuflokknum. Ég held að
menn hafi alveg gert sér grein fyrir
því að með svo óraunhæfum skilyrð-
um, og ég vil segja fáránlegum, gat
það aldrei gengið upp. Mér heyrðist
flestir fiskvinnslumenn gera sér fulla
grein fyrir þessu.“
Hver voru viðbrögðin við þeim
nýju tillögum sem þú hefur lagt
fram?
„Það á eftir að koma í ljós þegar
þær hafa verið fullunnar. Bæði
Framsóknarflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn hafa lýst sig stikkfrí og
sagt sem svo „við berum enga
ábyrgð“. Það er út af fyrir sig alveg
rétt, Sjálfstæðisflokkurinn ber einn
ábyrgð og sýnir einn ábyrgð í þessari
stöðu. Svo á eftir að koma í ljós
hvort aðrir vilja koma með,“ sagði
Þorsteinn. JIH