Tíminn - 10.09.1988, Síða 19
Laugardagur 10. september-1988
Tíniihn Í9'
llll
um. Hann sat í hreppsnefnd 1954-
1978, oddviti árin 1956-1958, tók
við starfi deildarstjóra Sláturíélags
Suðurlands 1965, af föður sínum
látnum. En hann var búinn að vera
deildarstjóri hjá Sláturfélagi Suður-
lands frá upphafi. Einnig tók hann
við umboði Samvinnutrygginga af
föður sínum. f>á hafði hann með
höndurn fasteignamatið og var um-
boðsmaður skattstjóra. Þessi störf
hafði hann með höndum til dauða-
dags. Hreppstjóri var hann frá 1966
til 1984, lét þá af störfum fyrir
aldurssakir vegna nýrra laga.
Eiríkur unni mjög sögu okkar og
þjóðlegum fróðleik, þess ber merki
þáttur Ásahrepps í ritinu Sunnlensk-
ar byggðir. Þar vann hann mikið
starf af mikilli samviskusemi og
nákvæmni.
Fastmótaðar stjórnmálaskoðanir
hafði Eiríkur, var alla tíð traustur
stuðningsmaður Framsóknarflokks-
ins. Hreinn og einarður í skoðunum
og gat ýtt frá sér á þeim vígvelli ef
því var að skipta. Kunnugt var mér
um það að pólitískir andstæðingar
mátu hann stundum mikils og hefðu
talið feng að hafa hann í liði með sér.
Öll þessi störf leysti Eiríkur af hendi
með stakri reglusemi, geymdi ekki
til morguns það sem hann gat gert í
dag. í gegnum allt sitt félagsmála-
starf hygg ég að hann hafi viljað vera
skjól þeim er fátækari voru eða
stóðu á einhvern hátt höllum fæti í
lífinu. Þó greindi stundum á í
orðum, voru sátt, samlyndi og hlý-
hugur sú undiralda sem undir bjó.
Árið 1979 hætti Eiríkur hefð-
bundnum búskap, enda þreyta og
lamað vinnuþrek farið að segja til
sín. Þrátt fyrir það hafði hann alltaf
nóg að gera. Sneri hann sér meðal
annars að því að gróðursetja trjá-
plöntur. Eru komnir vel af stað tveir
mjög myndarlegir skógarreitir, sem
bcra vott um það að þar hefur verið
þó til Reykjavíkur einu sinni til
tvisvar á ári og dvaldi þá í Stuðlasel-
inu hjá Daníel og fjölskyldu. Þá
hittumst við alitaf þar og eins kom
hún í heimsókn til mín. Það var
alltaf tilhlökkun að fá þessa góðu,
gömlu konu í heimsókn. Hún var
svo hæg, hlý og einlæg. í sumar
veiktist hún og var flutt á Landakots-
spítala þar sem hún lést 30. ágúst
síöastliðinn.
Kæra Dalla. Okkar bestu þakkir
fyrir öll árin og vináttuna.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
og fjölskylda
unnið að af alúð og eljusemi enda
eru þau orðin mörg dagsverkin þessi
ár sem hann er búinn að leggja í
þetta. Vonandi fær þetta að vaxa og
þroskast og verða honum minnis-
varði um ókomna tíð. Þá lagði hann
mikla vinnu í að halda við húsum og
mannvirkjum og snyrta til úti og
inni. því hann hafði næmt auga fyrir
listrænu og hlýlegu útliti og Ijaga
hönd. Á síðastliðnu ári málaði hann
flest hús að miklu leyti, þök og
veggi. Það má því segja að þar sý í
öllu skilað af sér i' góðu standi að
loknu farsælu dagsverki. Jafnframt
þessu á síðustu árum gaf hann sér oft
tíma til aö heilsa upp á eldra fólk og
þá sem eitthvaö voru fatlaðir til
ferða. Veit ég með vissu að þar
sakna sumir vinar og vclgerðar-
manns.
Frá mér persónulega hrannast upp
hafsjór minninga eftir nær 65 ára
samleið. Alla tíð voru samskipti
náin og ýmiskonar viðskipti fóru
fram okkar á milli, sem yfirleitt voru
á þann veg að þau voru mér frcmur
í hag.
Varla er hægt að Ijúka svo þessum
línum að ekki skjóti upp lífsmynd af
foreldrum Eiríks. Guðjóns í Ási
minnist maður sem athafnamanns,
stjórnanda, hcilsteypts og trausts.
Einnig sem bónda, félagsmála- og
fræðimanns. Ennþá lifir minningin
um Ingu konu hans. líísglaða, bros-
andi ogblíða á brá, scm heilsteyptrar
húsmóður, móður og ömmu sem
hlýhugur og sólskin geislaði frá.
Seint mun ég gleyma því frjálsræði
sem ég naut hjá henni og börnum á
heimili hennar. Mér hefur oft fundist
að þar hafi vcrið önnur móðir. Þá
ósk ber maður í brjósti að þetta
heimili byggist upp af góðu fólki, að
ný kynslóð megi vaxa þar úr grasi,
bylgjandi töðuvellir og búsmali á
beit.
Og nú að lokum, þegar leiðir
okkar skilja um stundarsakir, bið ég
og fjölskylda mín Guð að blessa
Eirík á þessari ferð sem hann er
lagður upp í, að Hann leiði hann af
sinni mildi og forsjá um sólarlönd
eilífðarinnar og hann megi þar una
glaður við sitt, eins og þegar hann
dvaldi á mcðal okkar. Guðrúnu
systur hans, systkinum öllum og
öðrum nákomnum ættingjum, sem
nú sjá á bak kærum bróður og
frænda, vottum við innilega samúð.
Biðjum þann, sem öllu ræður, að
gefa þeim bjarta og blessunarríka
ævi.
Vertu sæll, Eiríkur. Hjartans
þökk fyrir samleiðina.
Guðbjörn Jónssun
Eiríkur frændi dáinn, nei það gat
ckki verið. Hann hafði nokkrunr
dögum áður verið á meðal okkar í
sveitinni. kátur og hress að vanda og
engan grunaði að hann hyrfi á braut
svo skjótt.
Við vorum lengi að átta okkur á
því að hann var ekki tengur á meðal
okkar. Söknuðurinn var mikill.
Eiríkur Guðjónsson var fæddur
að Ási, Ásahreppi í Rangárvalla-
sýslu árið 1913, næst elstur 5 syst-
kina. Foreldrar hans voru Guðjón
Jónsson bóndi í Ási og Ingiríður
Eiríksdóttir. Það kom í hlut Eiríks
að taka við búi föður síns. sem hann
gerði með miklum ntyndarskap og
framsýni. en fáar jarðir eru betur
fallnar til ræktunar en einmitt Ásinn.
Landbúnaðarmálum fylgdist liann
vel með og var fljótur að tileinka sér
nýjungar í búskap.
Eftir fráfall föður síns sinnti hann
móður sinni af einstakri alúð ásamt
Guðrúnu systur sinni, én samband
mæðginanna hafði ávallt verið mjög
gott. Þegar amma féll frá tók liann
við hlutverki hennar sem sameining-
artákn fjölskyldunnar. Síðustu árin
héldu hann og Guðrún saman heini-
ili í Ási.
Auk búskaparins vann hann mikið
í félagsmálum sveitarinnar og fólu
sveitungar hans honum mörg
ábyrgðarstörf m.a. starf hreppstjóra
Ásahrepps sem hann gegndi 1976-
1984, en varð að hætta sakir aldurs.
Eiríkur brá búi af heilsufarsástæð-
um og því tók það hann nokkurn
tíma að átta sig á breyttum aðstæð-
um, þá tók aðaláhugamálið við, en
það varskógrækt. Hún átti hug hans
allan og var þar ekkert gefið eftir
frekar en fyrri daginn. Fyrst aflaði
hann sér allra þeirra trjátegunda
sem komu til greina, og kannaði svo
hvaða tegundir þrifust best í landi
hans. Fyrst braut Eiríkur land til
ræktunar, síðan skildi hann við þaö
alsett fögrum skógarlundum, betra
minnismerki er vart hægt að hugsa
sér.
Við munum Eirík ávallt léttan í
lund og félagslyndan, þó var hann
fastur fyrir í skoðunum og ekki
auðvelt að snúa honum í þeim
efnum.
Börn hændust mjög að Eiríki og
náði hann sérstöku sambandi við
þau, og börn okkar hlökkuðúalltaf
mjög mikið að fara austur að Ási.
Viljum við þakka Eiríki allar þær
ánægjustundir og þá aðstöðu sem
hann bjó okkur.
Minningin um ástkæran frænda
mun ávallt lifa í hjörtum okkar.
Systkinabörn.
||| PAGVI8T BARMA
Fóstrur, þroska-
þjálfar, áhugasamt
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfsfólki í
gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastöf bæði fyrir og eftir hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna dagvistar-
heimila og skrifstofa Dagvistar barna, sími 27277.
Vesturbær - miðbær
Drafnarborg v/Drafnarstíg s. 23727
Njálsborg Njálsgötu 9 s. 14860
Nóaborg Stangarholti 11 s. 29595
Valhöll Suðurgötu 39 s. 19619
Vesturborg Hagamel s. 22438
Ægisborg Ægisíðu 104 s. 14810
Austurbær
Stakkaborg Bólstaðarhlíð 38 s.39070
Miðstjórnarfundur
Miðstjóm Framsóknarflokksins er boðuð til fundar laugardaginn 17.
september kl. 13.30 á Hótel Sögu A-sal.
Stjórn Framsóknarflokksins.
Borgaraleg ferming
-Ertþú eðaáttþú ungling nálægtfermingaraldri?
- Vilt þú valkost við kirkjuathöfn?
- Veist þú að í Noregi fermast nú 10% barna
borgaralega ár hvert?
- Vilt þú vita meira?
Hringdu í HOPE KNÚTSSON, s. 73734.
Ritari
Stofnun í Reykjavík óskar að ráða í starf ritara.
Góð íslenskukunnátta áskilin og nokkur tungu
málakunnátta.
Þeir sem áhuga hafa, leggi umsóknir inn á
afgreiðslu blaðsins fyrir 18. september n.k. merkt
„Ritari 7080“.
Borgarlæknir
Viðskiptafræðingur
óskast til starfa á skrifstofu borgarlæknis.
Starfið felur í sér eftirfarandi:
1. Rannsóknir á heilbrigðisþjónustu þ.á.m. á sviði
heilsuhagfræði.
2. Skýrslugerð um heilbrigðismál.
3. Umsjón með gerð rekstraráætlana.
Laun samkvæmt kjarasamningum starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar.
Upplýsingar um starfið veitir undirritaður í síma
22400.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 20. september n.k.
Borgarlæknirinn í Reykjavík.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓUNN
LAUFÁSVEGUR 2 - 101 REYKJAVÍK
Innritun er hafin
Vefnaður 12. sept.
Silkimálun 17. sept.
Fatasaumur 19. sept.
Prjóntækni 19. og 28. sept.
Myndvefnaður 20. sept.
Tauþrykk 20. sept.
Útskurður 21. sept.
Leðursmíði 22.sept.
Bótasaumur 27. sept.
Tuskubrúðugerð 27. sept.
Knipl 29. sept.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans að Laufásvegi
2 II. hæð og í sýningarbás skólans á Veröldinni ’88
í Laugardalshöll. Námskeiðaskrá afhent við innrit-
un og hjá ísl. heimilisiðnaði, Hafnarstræti 3.
Upplýsingar í síma 17800 frá kl. 16.15-19.00
daglega.