Tíminn - 10.09.1988, Side 23

Tíminn - 10.09.1988, Side 23
LáCÍQardagUí' 1Ö' séptéttiber'1‘988 SlS Tíminn 23 SPEGILL lllllllllllllllll!l!!!!l!lllll Sérkennilegt systrabrúðkaup - Tvær systur giftast aftur fyrrverandi eiginmönnum sínum Ástin er enn betri í annað sinn, kom þeim saman um, brúðhjónunum sem nú voru að ganga í það hcilaga í annað sinn. Það var ekki ha'gt að merkja liinn vanalega taugatitring og þá spennu sem oftast fylgir liinni liá- tíðlegu atliöfn þegar hjón eru gefin saman. þegar þær systurnar Ruth og Katherine giltust Davitl Priee og Robert Myers í tvöföldu kirkju- brúðkaupi. Parna voru heklur ekki neinir nýliðar á ferðinni. því að ba'ði brúðir og brúðgumar höfðu verið gift áður. þ.e. að þarna voru þessi hjón ba'ði að ganga í hjónaband hvert með öðru í annað sinn. Ba'ði hjónin höfðu verið skilin í nokkur ár. en tóku nú saman á ný. Katherine og Robert Myers gengu lyrir altarið saman IÓ55. en þá var brúðurin aðeins I6 ára. I>;m skildu svo 25 árum seinna. ..1 lann var á vöruflutningabíl og var oft heilu vikurnar að heiman," segir Katherine sem nii er 4S ára gömul. Henni fannst allar heimilis- áhyggjur og barnauppeldi leggjast algerlega á sig og luin gafst upp í hjónabandinu. A biðilsbuxunum í annað sinn! Rutlt og David giftu sig 1966. Hann vann sem félagsráðgjafi fyrir eiturlyfja- og áfengissjúklinga og lylgdi mikil spenna starfi Davids. Hjónaband þeirra sigldi í strand eltir 18 ára sambúð árið 1984. En það leið ekki nema hálft ár þar til David var farinn að biðla til Ruthar á ný. Hann sendi fyrrver- andi eiginkonu sinni blóm og hringdi olt til hennar. „Svo var það i lyrra." segir Ruth, sem nú er 46 áta. ,.að Robert bað mig að giftast sér aftur. Ég tók því vel, en sagðist vilja hugsa mig um. Síðan sagði ég Katherine systur Irá þessu. Hún var mjög glöð. og sagði: - Við skulum þá halda tvöl'alt brúðkaup, því að ég hef lofað David að giftast honum á ný!" I’að var svo 17. októbcr á sl. ári. að. Ruth og David Priee og Kathe- rine og David Myers. voru gefin saman i annað sinn. Athöfnin fór Iram í mcþódislakirkjunni í Cov- ington. Virginíu í Bandaríkjunum. Skipulögð framtíð Shalene McCall er ekki gömul að árum, ekki einu sinni oröin 16 ára. Þrátt l'yrir það hcfur henni tekist að afla sér fjögurra viður- kenninga fyrir leik í kvikmyndum og sjónvarpi. Við þekkjum hana einkum sem Charlie í Dallas, dóttur Jcnnu Wade. Shalenc ætl- ar þó ckki að vera þckkt fyrir Dallas í framtíðinni. Hún vill stærri hlutverk og er búin að akveða livað hún ætlar að gera að auki. Meðal þess, sem er á þeim lista, cr að fara á matargcrðar- námskeið í París, sýna baðföt í sportblöðum, skoða sjö furðu- verk heimsins, teikna föt og læra sálfræði. Hún hefur að minnsta kosti tímann fyrir sér. Farrah og Ryan á góðri stundu. SPRENGIHÆTTA!!! Cybill er líkt við eldfjallið St. Helenu. Hún getur gosið hvenær sem er. Tvær af skapmcstu ljóskunum í Hollywood, Farrah Fawcett og Cybill Shepherd, eru nú komnar í hár saman og þó ástvinur Förruh, leikarinn Ryan O’Neal, hafi hingað til verið talinn óhræddur við að segja meiningu sína undir lleslum kringumstæöum, stendur hann nú milli kvcnvarganna og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Tilcfni ósamkomulagsins cr að Ryan og Cybill eru að leika saman í nýrri kvikmynd, „Life after Lifc“, og fara upptökurnar fram í Wash- ington-borg. Farrah krcfst þcss að fá að vcra viðstödd og afleiðingin er sú að höfuðborgin er orðin hreinasti vígvöllur eins og starfs- maður við myndina orðaði það. Farrah kemur hvergi við sögu í myndinni en Ryan hefur leyft henni frjálsan aðgang að öllu og Cybill fannst heldur langt gengið, þegar hún fór að gefa henni ráð um leikinn ásamt leikstjóranum. - Afskiptasemi Förruh hefur gert Cybill svo reiða að hún er orðin eins og St. Helena og maður bíður með öndina í hálsinum eftir að sprengigos verði, segir starfs- maðurinn. — Cybill er búin að biðja bæði leikstjórann og Ryan að vísa Förruh burt, því hún æsi hana upp og trufli cinbcitinguna. Pessari bciöni var hafnað á þeim forscnd- um að hálfu verra væri að Farrah reiddist. Farrah frétti af þcssu ogskcllihló að Cybill fyrir að taka smámuni svona nærri sér. Einn sjóðheitan dag um daginn voru allir tilbúnir til að taka upp atriði fyrir utan Smithsonian-stofn- unina og Cybill lét bíða eftir sér í mcira cn klukkustund. Pá sendi hún manncskju til að scgja lcik- stjóranum, að annar tvíburinn væri lasinn og hún gæti tafist lcngur. Þá rciddist Ryan sjálfur og sagði svona lagað óþarfa, hún hcfði tvær barnfóstrur og hjúkrunarkonu auk fleira aðstoðarfólks við börnin. Hann barði búningsvagn Cybill allan utan og sá grcinilcga rautt af illsku. Þá birtist Farrah á sjónar- sviðinu og tók að kvarta líka. Farrah hcfur sér til málsbóta að hún tók á leigu stórfallegt gamalt setur handa Cybill meðan á upp- tökum stæði en sjálf hírast þau Rýan í hótelíbúð. - Ég skil ekki hvað þessi kven- maður hefur hér að gera, segir Cybill. - Henni kemur myndin alls ckkert við. Er hún hrædd um að ég sé að daöra við Ryan, cða hvað? Framlciðcndur myndarinnar hala nóg að gera við aö halda frið og draga úr spennunni. Ryan, Farrah og þcirra áhangcndur cru öðrum mcgin, cn Cybill, tvíburun- um og stuðningsfólki þeirra er haldið cins fjarri og unnt cr. Þaö má tíðindum sæta, ef ckki sýður upp úr, segir starfsfólk. En Farrah gctur svo scm gcrt flcirum lífið lcitt en Cybill, til dæmis vcslings Ryan, scm kunnug- ir scgja að láti hana bjóða sér aldcilis ótrúlcga mikið. Nýjasta uppátæki hcnnar er að spila á rafmagnsgítar. Þegar Ryan var að vcrða gráhærður, skipaði hann hcnni að fara út mcð gítarinn, hún mætti alveg spila á hann, en alls ekki heima. Þá gerðist það nýlega að þeim lenti saman utan við veitingastað og fauk hcldur í Förruh, þegar Ryan ætlaði að stinga af, áður en dcilan var útkljáð. Hún tók það ráð að fleygja bíllyklunum hans í vatn sem var þar við hendina. Hvergi fundust varalyklar, en áður en lásasmiðurinn kom á vettvang var allt fallið í ljúfa löð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.