Tíminn - 13.09.1988, Qupperneq 10
10 Tíminn, ,.
Þriðjudagur 13. september 1988
Þriðjudagur 13. septémber 1988
Tíminn 11
Knattspyrna:
Ovæntur en sætur sigur
á fslandsmeisturum Fram
Það var tæplega hægt að merkja
langtímum saman hvort liðið væri á
toppi eða á botni 1. deildar, þegar
Völsungur og Fram mættust á Húsa-
víkurvelli, ■' 16. umferð 1. deildarinn-
ar í knattspyrnu.
Það má segja að andi rólegheita
hafi tekið sér bólfestu í megin hluta
fyrri hálfleiks. Það voru þó Völsung-
ar sem byrjuðu mun betur og reyndu
að leika af festu og krafti, en Fram-
arar voru að dútla þetta með boltann
með takmörkuðum eða engum ár-
angri. Það var fyrst á 15. mín. að
skot, sem kallast getur því nafni, leit
dagsins ljós, en þá átti Björn Olgeirs-
son þrumuskot á Fram-markið, en
Birkir var vel á verði og bægði
hættunni frá. Á 25. mín. klúðraði
Guðmundur Steinsson algjöru
dauðafæri, er hann hitti ekki boltann
rétt utan markteigs og fór þar gott
færi forgörðum hjá markakónginum
mikla. Næstur Framara til að reyna
skothæfni sína var Ómar Torfason,
en Þorfinnur markvörður Völsunga
sá við honum og varði í horn. Aftur
fékk Ómar gott færi á 35. mín. en
skot hans bar við hæstu fjallabrúnir.
Á 40. mín. fengu Völsungar gott
færi, er Sigtrrður Illugason sendi
þrumufleyg að markinu, en Fram-
vörninni tókst að bjarga í horn. Rétt
á eftir í næstu sókn Framara fékk
Vinningstölur 10. sept. 1988
Heildarvinningsupphæð:
Kr. 4.485.520,-
1. vinningur var kr. 2.066.997,-
Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur.
2. vinningur var kr. 618.844,- og skiptist hann á 131 vinn-
ingshafa kr. 4.724,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.440.891,- og skiptist á 4.327 vinn-
ingshafa, sem fá 333 krónur hver.
Bónustala 20
Bónusvinningur var kr. 358.788,- og skipt-
ist hann á 4 vinningshafa, kr. 89.697,- á
mann
Mílljonir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
Pétur Ormslev boltann óvænt, eftir
hrikaleg mistök í vörn heimamanna,
en brenndi af. Staðan var því 0-0 f
hálfleik.
Eitthvað hafa þjálfarar liðanna
sagt kjarnyrt við leikmenn liða sinna
yfir tebollanum í leikhléinu. Leikur-
inn varð allur annar í síðari hálfleik.
Strax á upphafsmínútum hálfleiksins
komst Helgi Helgason í þvílíkt
marktækifæri að elstu menn hér um
slóðir muna varla annað eins. Því
miður tókst honum ekki að vinna úr
því, skot hans varði Birkir af stakri
snilld. Fór nú að koma til meiri
barátta og kraftur beggja liða jókst
eftir því sem leið á hálfleikinn. Á 50.
mín. tók Ásgeir þjálfari Framara
Pétur Arnþórsson út af og setti hinn
skemmtilega leikmann Arnljót Dav-
íðsson inná, til að fríska uppá sókn-
arleik sinna manna. Sýndi hann
skemmtilega takta og er leikinn vel.
Eftir þunga sókn Völsunga og hama-
gang og mikil læti í vítateig Fram,
áttu Völsungar þrjú skot í röð, en
Frömurum tókst að bjarga á síðustu
stundu. Leikurinn var nú í jafnvægi
og leikmenn börðust um hvern
bolta. Á 30. mín. náðu Framarar
góðri sókn sem endaði með því að
Guðmundur Steinsson komst einn
innfyrir, en Þorfinnur markvörður
bjargaði meistaralega og hirti bolt-
ann beinlínis af tám hans. En viti
menn, Friðjón dómari benti með
tilþrifum á vítapunktinn og dæmdi
vítaspyrnu á Völsung. Það var Pétur
Ormslev sem tók spyrnuna og þrum-
aði boltanum yfir markið og uppund-
ir lægstu ský. Rétt þar á eftir voru
Framarar í þungri sókn og Sigurður
Illugason bjargaði á línu og sluppu
Völsungar þar með skrekkinn. Á 80.
mín. setti Arnar þjálfari Völsunga
Skúla Hallgrímsson inná fyrir Skarp-
héðin ívarsson og það var einmitt
hann sem skoraði sigurmark heima-
manna á 85. mín. eftir góða sókn
þeirra grænklæddu. Skúli var svo
aftur á ferðinni stuttu síðar með
feykigott viðstöðulaust skot, eftir
sendingu Helga Helgasonar og þar
þurfti Birkir markvörður sannarlega
að sýna hvað í honum býr, varði
hreint meistaralega.
Síðustu mín. vörðust Völsungar
með kjafti og klóm. Er flauta
Friðjóns dómara gall í leikslok varð
að sjálfsögðu mikil gleði í herbúðum
Völsunga, því það er ekki á hverjum
degi sem Islandsmeistarar í knatt-
spyrnu eru lagðir hér og það sannar-
lega verðskuldað.
Bestu leikmenn Völsungs voru
Helgi fyrirliði, Jónas Hallgrímsson,
sem barðist allan tímann af fullum
krafti og Unnar Jónsson, sem tók
Pétur Ormslev algjörlega úr umferð.
Þar fer sannarlega leikmaður fram-
tíðarinnar. Birkir markvörður var
yfirburðamaður í liði Fram, einnig
átti Viðar Þorkelsson mjög góðan
leik.
Þáttur dómarans verður ekki tí-
undaður hér.
Jónas Hallgrímsson fékk gult
spjald fyrir kjaftbrúk. HJ/BL
Dvöl Leifturs í
1. deild á enda
Frá Jóhannesi Hjarnasyni fréttamanni Tímans:
KA-menn gerðu nágrönnum sín-
um frá Ólafsfírði þann Ijóta grikk á
laugardaginn, að sigra þá með 2
mörkum gegn einu, í 16. umferð 1.
deildarinnar í knattspyrnu, en
leikurinn fór fram á Akureyri.
Leiftursmönnum var nauðsynlegt
að hljóta 3 stig, en tapið gerir út um
nær allar vonir um 1. deildarveru
næsta sumar. Samtals 5 leikmenn
liðanna voru í leikbanni, þrír úr KA
og tveir Leiftursmenn, Jón og Er-
lingur Kristjánssynir auk Guðjóns
Þórðarsonar þjálfara fengu frí og
Steinar Ingimundarson og Hörður
Benónýsson höfðu það einnig náð-
ugt í stúkunni.
Leikurinn var allfjörugur á köflum
og virkuðu KA-menn heldur sterkari
í fyrri hálfleik. Þeir fengu óskabyrj-
un, þegar Þorvaldur Örlygsson skor-
aði gott mark á 4. mín. með skoti úr
miðjum teig, eftir laglegan undir-
Staðan í
1. deild
Fram ........ 16 14 1 1 32-6 43
Valur....... 16 11 2 3 30-13 35
ÍA.......... 16 9 4 3 28-19 31
KR ......... 16 7 3 6 23-20 24
KA ......... 16 8 2 6 29-26 26
Þór......... 16 5 5 6 21-25 20
ÍBK......... 16 3 5 8 17-29 14
Víkingur ... 16 4 3 9 14-26 15
Leiftur.....16 1 5 10 10-22 8
Völsungur .. 16 2 2 12 10-30 8
búning Gauta Laxdal og Anthony
Karls. Leiftursmenn reyndu hvað
þeir gátu til að jafna, en sóknir
þeirra voru bitlitlar og hættuminni,
en sóknir KA-manna. Á 27. mt'n.
dæmdi Ólafur Lárusson vítaspyrnu
á Sigurbjörn Jakobsson er hann
handlék knöttinn innan teigs og
skoraði Þorvaldur Örlygsson sitt
annað mark úr vítaspyrnunni. Þetta
var neyðarlegt fyrir Sigurbjörn, því
aðeins mínútu fyrr hafði hann átt
besta færi Leiftursmanna í hálfleikn-
um, en þá lét hann Hauk markvörð
verja frá sér úr góðu færi. Leifturs-
mönnum tókst að minnka muninn á
62. mín. þegar Hafsteinn Jakobsson
skoraði eftir góða sókn. Lúðvík
Bergvinsson sendi knöttinn fyrir
markið, Róbert Gunnarsson skallaði
knöttinn fyrir fætur Róberts, sem
skilaði honum í netið. Ólafsfirðing-
arnir þyngdu sókn sína eftir markið,
en KA-menn áttu þó hættuleg færi,
sérstaklega Bjarni Jónsson fyrirliði
og Valgeir Barðason.
Síðustu mín. var þung pressa að
KA-markinu og fékk Friðgeir Sig-
urðsson algjört dauðafæri, en hitti
ekki tómt markið frá vítateigslínu.
Þetta var dæmigerður leikur fyrir
Leifturs-liðið, það átti mikið í leikn-
um, en hann tapaðist samt. Bestir
þeirra voru þeir bræður Hafsteinn
og Sigurbjörn Jakobssynir og auk
þeirra átti Árni Stefánsson ágætan
leik. Bjarni Jónsson og Stefán Ölafs-
son áttu góðan dag með KA-liðinu,
auk þess sem Þorvgldur Öriygsson
átti ágætan fyrri hálfleik. Steingrím-
ur Birgisson batt vörnina vel saman,
en við hlið hans spilaði Halldór
Kristinsson sinn fyrsta 1. deildarleik
og stóð sig vel í stöðu Erlings
Kristjánssonar. JB/BL
Þórður Marelsson í harðri baráttu við Þórsara í leiknum á laugardag.
Tímamynd Pjetur
Víkingar góðir
Víkingar unnu sanngjarnan sigur á Þórsur-
um, frá Akureyri, í leik liðanna í 1. deildinni í
knattspyrnu á velli Víkinga við Stjörnugróf á
laugardag. Lokatölur urðu 3-1.
Víkingar mættu ákveðnir til leiks og allt
annað var að sjá þá heldur en í leiknum gegn
Val um fyrri helgi. Þórsarar voru yfirspilaðir
og ekki leið á löngu áður en mark leit dagsins
ljós. Björn Bjartmarz var þar að verki, eftir að
hafa fengið sendingu frá Lárusi Guðmunds-
syni. Áfram hélt sókn Víkings, en á 22. mín.
náðu Þórsarar skyndisókn. Þrír norðanmenn
gegn tveimur Víkingum og þeim viðskiptum
lauk með því að Halldór Áskelsson renndi
knettinum í netið, eftir sendingu frá Kristjáni
Kristjánssyni. Halldór hafði nægan tíma til að
athafna sig, enda fáir varnarmenn Víkings að
flækjast fyrir honum. Víkingar létu ekki deigan
síga þrátt fyrir jöfnunarmarkið, þeir sóttu
áfram og gerðu oft harða hríð að norðanmark-
inu. Undir lok hálfleiksins átti Björn Bjart-
marz skot í stöng, eftir að hafa leikið laglega
inní vítateiginn. Rétt á eftir var svipað uppá
teningnum við mark Víkinga. Kristján Krist-
jánsson átti þá skot í stöng.
Víkingar héldu áfram að sækja í síðari
hálfleik. Oft brá fyrir laglegum samleik, sem
kom mönnum á óvart sem fylgst hafa með
Víkingsliðinu að undanförnu. Þórður Marels-
son tók hornspyrnu frá hægri á 58. mín. Hann
sendi háa sendingu inní vítateiginn þar sem
Trausti Ómarsson kom á fullri ferð og skallaði
knöttinn í bláhornið hægra megin, óverjandi
fyrir Baldvin markvörð, sannkallaður þrumu-
skalli og staðan orðin 2-1 fyrir Víking. Trausti
hafði lítt komið við sögu í leiknum fram að
þessu, en á 64. mín. var honum vikið af
leikvelli. Trausti, sem búinn var að fá gula
spjaldið fyrr í leiknum, brá einum leikmanni
Þórs, og rauða spjaldið fór á loft. Strangur
dómur svo ekki sé meira sagt. Þórsarar færðust
nokkuð í aukana eftir brottreksturinn og þeir
Jónas Róbertsson og Valdimar Pálsson áttu
báðir heiðarlegar tilraunir til að jafna leikinn,
en hvorugur hitti markið. Víkingar beittu
skyndisóknum og ein slík bar ávöxt á 79. mín.
Lárus gaf sendingu uppí hægra hornið á Hlyn
Stefánsson, sem sendi fyrir markið. þar stökk
Björn Bjartmarz manna hæst og skallaði t'
netið, 3-1. Víkingar voru búnir að bæta við
marki þrátt fyrir að vera manni færri. Stuttu
síðar átti Sveinbjörn Jóhannesson skot að
marki Þórs en rétt framhjá. Mínútu síðar
kiksaði Bjarni Sveinbjörnsson fyrir framan
mark Víkings, en Bjarni kom nú inná í fyrsta
sinn í sumar, eftir meiðsl.
Sigur Víkinga í þessum leik var sanngjarn.
Þeir léku oft mjög vel og virðast í mikilli
framför um þessar mundir. Björn Bjartmarz,
Atli Einarsson og Lárus Guðmundsson áttu
allir stórleik í framlínunni og vörn Víkings
virkaði, aldrei þessu vant, örugg. Guðmundur
Hreiðarsson hafði óvenju lítið að gera í
markinu, en var öruggur í aðgerðum sínum að
vanda. Hjá Þór var fátt um fína drætti og ekki
verður farið útí hér að telja einn leikmann
þeirra öðrum betri.
Mjög fáir áhorfendur mættu á leikinn, eða
innan við 100 manns. BL
Sigurjón markahæstur
Frá Margréti Sanders fréttamanni Tímans:
Valur vann ÍBK 3-1 í Keflavík á laugardag-
inn í 1. deildinni í knattspyrnu. Staðan í
hálfleik var 1-0 fyrir Val.
Leikurinn var í jafnvægi íbyrjun. Fyrstafæri
leiksins átti Sigurjón Kristjánsson á 10. mín.
Hann komst innfyrir vörn Keflvíkinga, en
Þorsteinn Bjarnason varði vel. Valsarar skor-
uðu síðan á 25. mín. og var Sigurjón þar að
verki. Hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf
Guðmundar Baldurssonar. Ragnar Margeirs-
son fékk gott færi til að jafna á 30. mín. en
hann skaut framhjá og staðan í hálfleik var því
1-0 fyrir Val.
Valsmenn voru meira með boltann í byrjun
síðari hálfleiks, án þess að skapa sér færi. Það
voru Keflvíkingar sem áttu fyrsta færið í þeim
hálfleik, Ragnar Margeirsson var dauðafrírj
inní markteig Valsara, en skot hans fór beim
í fang Guðmundar markmanns Baldurssonar.
Á 61. mín. bættu Valsmenn öðru marki við.
Eftir hornspyrnu barst boltinn út til Guðmund-
ar Baldurssonar sem lék að markteigshorni og
skoraði með föstu skoti. Þriðja mark Vals-
manna kom síðan á 83. mín. Þar var Sigurjón
enn á ferðinni, hann skoraði með föstu skoti
utan úr teig, eftir góðan undirbúning Vals
Valssonar. Keflvíkingar náðu að minnka mun-
inn á 88. mín. Ragnar Margeirsson skoraði
eftir hornspyrnu Jóns Sveinssonar.
Bestir hjá Val voru Guðmundur Baldursson,
Sævar Jónsson og Sigurjón Kristjánsson, sem
eftir þessa umferð er markahæstur í 1. deild
með 12 mörk. Hjá Keflvíkingum var Ragnar
Margeirsson bestur í annars áhugalausu liði.
Dómari var Guðmundur Haraldsson, en
athygli vakti hversu lítill áhugi var fyrir
og aðeins um 300 áhorfendur mættu
MS/BL
111 | athygli v£
irj j leiknum o
[ á leikinn.
Knattspyrna:
KR sótti en mörkin
KR og Akranes gerðu jafntefli
1-1, í 1. deildinni í knattspyrnu á
KR-vellinum við Frostaskjól á
sunnudag.
KR-ingar voru sterkari aðilinn í
leiknum og sóttu án afláts. Þeim
tókst þó ekki að skapa sér umtals-
verð marktækifæri, utan einu sinni
að Gunnar Oddsson átti hörkuskot
rétt yfir mark Skagamanna. Hinum
megin á vellinum fengu Akurnesing-
ar líka færi til að skora, úr skyndi-
sókn átti Karl Þórðarson gott skot
yfir markið, enda í þröngri stöðu.
í síðari hálfleik komu Skagamenn
nokkuð meira inní leikinn, en KR-
ingar voru áfram meira með
knöttinn. Það kom því flestum mjög
á óvart að Skagamenn tóku foryst-
una á 69. mín. leiksins. Sigurður B.
Jónsson fékk skyndilega sendingu
inná vítateig KR, lék áfram án þess
að KR-ingar reyndu að elta hann,
Sigurður afgreiddi síðan knöttinn í
hornið og var sjálfur jafn hissa á
ósköpunum og leikmenn KR, sem
án efa hafa talið Sigurð rangstæðan.
Öllum til mikillar furðu var markið
dæmt gott og gilt og Skagamenn
komnir yfir 1-0. Undirritaður sá þó
ekkert athugavert við markið og
KR-ingar ættu að vita að það er
aðeins flaut dómara sem stöðar leik-
inn. Skagamenn færðust nokkuð í
aukana eftir markið og KR-ingar
sömuleiðis. Litlu munaði að Skaga-
menn skoruðu annað mark tveimur
mfn. eftir það fyrra, þegar Haraldur
Ingólfsson átti gott skot rétt framhjá
KR-markinu. Á 75. mín. átti Jó-
steinn Einarsson skot yfir mark
Skagamanna úr þokkalegu færi og 5
mín. síðar átti Rúnar Kristinsson
þrumuskot sem hafnaði í utanverðu
hliðarneti marks Skagamanna. Will-
um Þórsson jafnaði leikinn fyrir
KR-inga 6 mínútum fyrir leikslok.
Willum lék á varnarmann ÍA og
síðan inní vítateiginn þar sem hann
skaut góðu skoti í netið, óverjandi
fyrir Olaf Gottskálksson markvörð
telja
1A.
Það má því segja að KR-ingar hafi
sloppið með skrekkinn að þessu
sinni. Þeir voru betri aðilinn í leikn-
um og áttu ekki skilið að tapa.
Jafntefli var þeim því nokkur sára-
bót, þrátt fyrir að þeir væru betri
aðilinn í leiknum lengst af.
Bestir í liði KR voru Willum
Þórsson og Þorlákur Árnason nýliði
í liðinu. Hjá Skagamönnum var
Sigursteinn Gíslason sprækur og þeir
Guðbjörn Tryggvason og Mark
Duffield voru sterkir í vörninni.
Ólafur Gottskálksson var mjög ör-
uggur í markinu. BL