Tíminn - 13.09.1988, Qupperneq 13
Þriðjudagur 13. september 1988
Típiinn 13
UTLÖND
Áöur óþekkt samtök í Suður-Kóreu setja strik í reikninginn:
Hóta hryðjuverkum
á ólympíuleikunum
Áður óþekkt samtök hafa hótað
hryðjuverkum á ólympíuleikunum í
Seoul fái Norður-Kórea ekki að
halda hluta leikanna sem hefjast á
laugardaginn. Talsmaður öryggis-
lögreglunnar í Seoul sagði að hópur-
inn hafi hótað svipuðum aðgerðum
og palestínskir skæruliðar höfðu i
frammi á ólympíuleikunum í Miin-
chen árið 1972, en þá tóku þeir
ísraelska íþróttamenn í gíslingu og
drápu sautján þeirra.
Talsmaðurinn sagði að hótunin
hafi borist í bréfi til ólympíunefndar-
innar og hafi það verið undirritað af
„Krossförum Mudungsan" í síðasta
mánuði. Juan Antonio Samaranch
forseti alþjóða ólympíunefndarinnar
afhenti lögreglunni í Seoul bréfið er
hann kom til borgarinnar í síðustu
viku. Hefur lögreglan verið að rann-
saka málið síðan þá.
Norður-Kóreumenn hafa sagst
munu sniðganga leikana eftir að upp
úr slitnaði í viðræðum þeirra við
yfirvöld í Suður-Kóreu um að fá
hluta ólympíuleikanna til Norður-
Kóreu.
Auk Norður-Kóreu hefur Kúba,
Eþíópía, Albanía, Níkaragva, Ma-
dagaskar og Seychelleseyjar hætt
við þátttöku í leikunum. Samaranch
forseti ólympíumefndarinar harm-
aði þetta mjög í ræðu í gær og sagðist
ekki geta fundið orð til að lýsa
vonbrigðum sínum með að stjórn-
völd í þessum löndum skuli blanda
stjórnmálum og íþróttum saman og
koma í veg fyrir að íþróttamenn
landanna geti tekið þátt í þessum
mestu íþróttaleikum heims.
Undanfarna þrjá daga hafa stúd-
entar í Seoul tekið upp hanskann
fyrir Norður-Kóreumenn og staðið
fyrir mótmælagöngum gegn ólymp-
Hraustur og
TRAUSTUR
Einn vinsælasti og söluhæsti smábíll í Evrópu.
Opel Corsa er bfllinn sem bílaleigurnar velja.
Okkar einstöku greiðslukjör. Lánum ailt að
helmíngi kaupverðsins í eitt ár - án vaxta og
verðtryggingar. Og til þess að mæta lántöku-
kostnaði bjóðum við auk þess umtalsverðan af-
slátt á Opel Corsa.
stgr.verð kr. 449.000,-
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Öryggisgæsla á ólympíuleikunum er
hefjast í Seoul á laugardaginn verður
gífurlega ströng. Sérþjálfaðir örygg-
issveitarmenn sem þessi hafa æft
stíft að undanförnu og mun ekki af
veita því ólympíunefndinni hefur
borist bréf þar sem hryðjuverkum er
hótað.
íuleikunum og Roh Tae-woo forseta
landsins.
BILALEIGA
með utibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi?.
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Hreyfilsmenn
Vegna félagatals og sögu Hreyfils, sem
nú er verið að Ijúka við, eru allir sem
hafa starfað á stöðinni lengri eða
skemmri tíma, bifreiðastjórar og af-
greiðslufólk, sem ekki hefur náðst til
beðið að hafa strax samband við sögu-
ritara í síma 85522 eða koma á skrif-
stofu Hreyfils kl. 13 til 15 næstu daga.
Stjórn Hreyfils
Tölvuritari
Búnaðarfélag íslands óskar að ráða í starf tölvu-
ritara. Til greina kemur fullt starf eða hlutastarf.
Starfið felst í skráningu margvíslegra gagna úr
landbúnaði. Starfsreynsla æskileg. Umsóknir
sendist Búnaðarfélagi íslands, Tölvudeild, Póst-
hólf 7080, 127 Reykjavík, fyrir 21. september.
Búnaðarfélag íslands
Nýtt umboð
Laugarvatni
Halldór Benjamínsson, Flókalundi, sími 98-61179.
Tíminn, Lynghálsi 9, Reykjavík
Miðstjórnarfundur
Miðstjórn Framsóknarflokksins er boðuð til fundar laugardaginn 17.
september kl. 13.30 á Hótel Sögu A-sal.
Stjórn Framsóknarflokksins.
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið á
Súðavík dagana 30. sept. til 1. okt. 1988. Nánar auglýst síðar.
Stjórnin