Tíminn - 13.09.1988, Síða 15
Þriðjudagur 13. september 1988
Tíminn 15
Oskar Olafsson ..RÝMINGARSALA
frá Hellishólum
Áttatíu ára
Á bökkum Þverár í Fljótshlíð
stendur býlið Hellishóiar nokkurn
veginn í niiðri sveitinni. Paðan er
útsýnið heillandi. Við hafsbrún rísa
Vestmannaeyjar í blámóðu. í austri
brosa Eyjafjöllin yfirbragðsmikil
með jökulhjálminn bjarta en Þórs-
mörkin lokar Markarfljótsdalnum. í
norðri er Þríhyrningur og horfir
virðulega yfir frjósama sveit blár og
snjólaus. en að baki hans til land-
norðurs eru Tindfjöll þar sem fjalls-
eggjar teygja sig upp úr hvítu hjarni.
Þverá rann meðfram endilangri
Fljótshlíðinni í mörgum síbreytileg-
um álum og braut úr bökkum sínum
allt til ársins 1946, að hún varhneppt
í sinn forna farveg en nú eru komin
græn nytjalönd þar sem jökulálar
byltu sér fyrir rösklega fjórunt ára-
tugum.
Lengi bjó sama ættin í Hellishól-
um af farsæld. Systkinin Elínborg
Ólafsdóttir og Sigurður Ólafsson frá
árinu 1921 til 1958, þau ólu upp þrjú
systrabörn sín frá Neðra-Dal í Vest-
ur-Eyjafjallahreppi Ólaf, Elínu og
Lovísu en í Helíishólum fór vel um
alla, gamalt fólk, börn og búsmala.
Mér er í barnsminni hversu miklu
ástfóstri hún Elínborg tók við alla
kettina sína. Ég man þá malandi á
ábreiðum eða gæruskinni í gömlu
baðstofunni þar sent þeir pírðu aug-
un í sæluvímu og hún talaði við þá
sínum blíðasta rómi, enda fengu
þeir sömu umhyggju og ungbörn.
Sigurður í Hellishólum er einn af
þessum ógleymanlegu mönnum.
Hljóðlátur, vel viti borinn og fylgdist
vel með í þjóðlífinu, fastur fyrir.
Öðrum betri vatnamaður meðan
Þverá rann við túnfótinn, hafði gam-
an af hrossunum sínum og átti
vatnahesta. Börn sem dvöldu í sveit
hjá þessum systkinum bundust þeint
að vonum sterkum tryggðarbönd-
um.
Það var á fyrstu kreppuárunum að
ungur bóndasonur ofan úr Biskups-
tungum var kontinn austur að Hellis-
hólum. Hann heitir Óskar og er
Ólafsson, fæddur 26. ágúst 1908, að
Haukadalskoti, en frá Kjóastöðum
kom hann og þau Lovísa og Óskar
giftust 8. júlí 1933 og síðan hefur
bjartur brúðhjónasvipur fylgt þeim
báðum þótt meira en hálf öld sé
síðan og mikil vötn til sjávar runnin.
Foreldrar Óskars voru Ólafur
Guðntundsson frá Gýgjarholtskoti í
Biskupstungum og kona hans Sigríð-
ur Jónasdóttir ættuð úr uppsvcitum
Rangárvallasýslu, traust og gott
bændafólk. Foreldrar Lovísu voru
Ingvar Ingvarsson bóndi í Ncðra-
Dal mikill mannkostur og kona
hans. Guðbjörg frá Hellishólum,
systir Elínborgar sem áður er getið.
Enginn sem kynntist þessum systrum
gleymir góðvilja þeirra og hjarta-
hlýju.
Ungi bóndasonurinn sem kom á
kreppuárunum ofan úr Biskupstung-
unt austur að Hellishólum var nú
ekki aldeilis kominn til að sofa út á
morgnana eða lesa dagblöðin inni i
bæ á björtum dögum. Nei, hann var
kominn til að gera notalega jörð
betri. Hann var kontinn til að vinna
og vissi hvernig standa á að verki og
mátti margur af læra. Hann var mikitl.
sauðfjárræktarmaður. stofnaði tljót-
lega fjárræktarfélag í Fljótshlíðinni
og var fyrsti formaður þess. Þetta
félag lifir enn góðu lífi og heitir
„Hnífill". Allur búpeningur var
afurðamikill hjá ungu hjónunum og
garðaávöxtur gróskumikill. Hlöður
sneisafullar á haustdögum.
Óskar byggði upp í Hellishólum
rcisulegt íbúðarhús sem ber hátt og
horfir vel við sól, lyngmóar urðu að
grænum túnum. í Hellishólum var
allt með snyrtilegum ntyndarbrag,
blessun í búi. dagsverkin löng og oft
erfið. Þó er afmælisbarnið enn létt í
spori og ekkert markað af mikilli
vinnu.
Börn Lovísu og Óskars voru tólf
og eru tíu þeirra á lífi. myndarlegt
dugnaðarfólk sem hvarvetna sómir
sér.
Og svo var það gantla fólkið sem
átti góða daga í Hellishólum. Þórunn
og Magnús voru sambýlingar og
vinnufólk og féllu þar frá t hárri elli.
Þar sem hjartarými er skortir
aldrei húsrýnti.
Á þessu ntannmarga heimili var
alla tíð gestkvæmt og gestum fagnað
með rausnarlegunt hætti, þar sem í
öðru voru hjónin samhent.
Fyrir átján árum fluttu þau Óskar
og Lovísa að Birkivöllum á Sclfossi.
Þangað scndum við Margrét heiö-
urshjónunum óskir um bjarta og
blessunarríka daga%
Pálmi Eyjólfsson.
Útlendir ferðamenn í Portúgal
Ferðaiðnaður í Portúgal er enn í
örum vexti og námu áætlaðar saman-
lagðar tekjur hans 1986 um $ 1,57
milljörðum. Ef til útlendra ferða-
ntanna eru taldir Spánverjar í
dagsferð, voru þeir 1986 um 13,1
milljón. En ef aðeins eru taldir þeir,
sem sólarhring dveljast eða lengur,
voru þeir það ár 5,4 milljónir og í
þeim hópi voru Spánverjar enn
flestir, en næstir komu Bretar, lið-
lega 1 milljón. í þriðja sæti voru
Vestur-Þjóðverjar, 395.000, og í
fjórða sæti Frakkar 350.000. Að
meðaltali eyddu útlendir ferða-
menn, ef allir eru til taldir, $ 27 á dag
(en á Spáni það ár $ 52).
Af breskum ferðaiðnaði
Á Bretlandi vegnaði ferðaiðnaði
miður vel 1986, jafnvel þótt flogið
væri með 12,6 milljónir ferðamanna
úr landi í hópferðunt, 26% fleiri en
1985. Samanlagður nettó hagnaður
30 stærstu bresku ferðaskrifstofanna
var 1986 £ 35,6 milljónir (41% lægri
en 1985), en velta þeirra var £ 2,13
milljarðar. Sex þeirra voru reknar
með tapi (sem samtals nam liðlega £
14 milljónum).
Stærsta ferðaskrifstofa Bretlands
er Thomson Travel, sem er í eigu
Seld sæti í hópferðum hjá 10 stærstu ferðaskrifstofum
á Bretlandi 1986 og 1987. Milljónir og aukning í %.
1986 1987 %
ThomsonTravel 2,43 3,75 54,3
InterLeisureGroup 1,23 1,81 47,2
Horizon Holidays 0,59 0,88 49,2
British Airways 0,64 0,84 37,5
Wings 0,41 0,45 9,8
BestTravel 0,24 0,27 12,5
Yugotours 0,22 0,25 13,6
Cosmos 0,25 0,25 -
Falcon Leisure 0,20 0,20 -
RedwoodTravel 0,11 0,15 36,4
Thomson Organization of Canada.
Næst kemur Inter Leisure Group
(IntaSun), sem hluti starfsmanna
keypti í ársbyrjun 1987 ogrekursem
einkafyrirtæki. Þriðja í röðinni er
Horizon Travel, sent Bass-ölgerðin
keypti á £ 92 milljónir fyrir hálfu
Ileimild: Civil Aviation
Authoríty
Stígandi
öðru ári. Alls eru breskar ferðaskrif-
stofur um 4.500.
í fyrra, 1987, var afkoma breskra
ferðaskrifstofa mun betri en 1986,
enda mikil aukning í umsvifum
þeirra, eins og eftirfarandi yfirlit
sýnir:
Nýir vörubílahjólbarðar
Mjög lágt verð
900x14 PR.Nylon ....
1000x20/16 PR. Nylon
1100x20/16 Pr. Nylon .
1000x20 Radial.......
11R 22,5 Radial.....
12R 22,5 Radial.....
1400x24/24 PR.
EM Nylon............
kr. 9.500.00
kr. 10.800.00
kr. 11.800.00
kr. 12.800.00
kr. 12.900.00
kr. 14.900.00
kr. 36.000.00
Gerið kjarakaup
Sendum um allt land.
Barðinn h.f., Skútuvogi 2
Sími: 30501 oa 84844.
Hií
' r rtrcxíriErcI-ö
Tilkynning til
söluskatts-
greiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir ágúst mánuð er 15.
september. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Frá menntamálaráðuneytinu
Laus er til umsóknar staða deildarfulltrúa (skrif-
stofustjóra) læknadeildar Háskóla íslands.
Háskólamenntun æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu berast menntamálaráðuneytinu fyrir 5.
október n.k.
Menntamálaráðuneytið
7. september 1988
t
Faðir okkar
Kjartan Þorkelsson
andaðist á Sjúkrahúsinu á Akranesi þann 9. september.
Kristín Kjartansdóttir
Björn Kjartansson Svala Árnadóttir
Guðrún Kjartansdóttir
Þorkell Kjartansson
Ásmundur Kjartansson
Anna Lilja Kjartansdóttir Guðmundur Oskarsson
Ragnheiður Kjartansdóttir
Halldór Kjartansson Kristin Valdimarsdóttir
Svanborg Kjartansdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Ef óhapp
verður -
skiptir
öUu máli
að vera
með beltið
spennt/i^
vfíTy
444 NOTAÐAR 444
HEYBINDIVÉLAR
CLAAS M-65 árg. 1987, sem ný. kr. 390.000,-
IH. 435 árg. 1980, nýyfirfarin .. kr. 195.000,-
IH. 435 árg. 1980, ný yfirfarin . kr. 185.000,-
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
XS BÚNADARDEILD
59 SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900