Tíminn - 13.09.1988, Qupperneq 19
**Þriðjuctegur‘t3.iseptemUert988’i..................................................................... , .,,
Rómantíkin blómstrar
Hin gullfalelga leikkona Jane
Seymour er afskaplega rómantísk,
bæði í útliti og að innræti, enda
segist hún gera það sem hún geti til
að halda rómantíkinni lifandi. Til
dæmis úðar hún frönsku ilmvatni á
ljósaperurnar í svefnherberginu til
að gleðja eiginmanninn, David
Flynn.
Þegar þau giftu sig fyrir fimm
árum, vildi hún Ifkjast sem mest
Ófelíu úr Hamlet, hafa síða hárið
flóandi um allt og þakið ferskum
blómum. - Ég var fjórar klukku-
stundir að ganga frá hárinu áður en
það varð eins og ég vildi hafa það,
segir hún. - En það tók líka meiri
hluta brúðkaupsnæturinnar að tína
blómin úr aftur.
Það er svo sem ekki í eina
skiptið, sem Jane hefur gengið um
með blómskrýtt höfuðið. Nýlega
bar hún sigur úr býtum í keppni um
frumlegasta höfuðfatið í Holly-
wood. Hatturinn hennar var búinn
til úr blómum, sem öll voru ræktuð
í hennar eigin garði.
Pað tók hana tvo tíma að setja
upp hattinn og ennfremur þurfti að
vökva hann á hálftíma fresti. Allt
gekk það vel og þó Jane væri orðin
blaut um kollinn áður en yfir lauk,
þóttist hún vel að verðlaununum
komin, en þau voru ferð til Parísar
til að kanna það nýjasta í tískuhús-
unum.
Jane er fyrirtaks leikkona, eins
og allir vita og hefur nú fengið
nafnbótina „Drottning framhalds-
myndanna“ enda leikur hún í
hverri slíkri á fætur annarri, nú
seinast í mynd um Onassis og það
fólk, þar sem hún fer með hlutverk
Mariu Callas.
Nýlega lauk hún við hlutverk
Wallis Simpson f mynd um ævi
hertogahjónanna af Windsor. Hún
tók það hlutverk mjög alvarlega,
léttist um fimm kíló til að komast
í fötin, sem voru nákvæmar eftir-
líkingar af fötum hertogafrúarinn-
ar og gekk til talkennara. En þegar
farið var fram á að hún notaði
bláar linsur í grænu augun sín,
fannst henni nóg komið og harð-
neitaði.
Jane Seymour og fjölskylda. Eigin-
maðurinn heitir David Flynn og
börnin Kattie, 5 ára og Sean, 2 ára.
Auk þess á David 10 ára dóttur frá
fyrra hjónabandi.
Hárfínir dómar
Leikkonurnar Sybill Shepherd
og Jaclyn Smith þykja hafa einna
fallegast hár og greiðslu af frægum
konum, ef marka má skoðana-
könnun sem framleiðandi hár-
snyrtivara í Bandaríkjunum lét
fara fram nýlega. Mörg hundruð
manns voru spurðir og var fjöldan-
um réttlátlega skipt milli venju-
legra viðskiptavina og sérfræðinga
um hár. Einnig var spurt, hverjar
væru með versta hárið og greiðsl-
una.
Niðurstöðurnar voru í stuttu
máli þær að Sybill og Jaclyn þóttu
Engin aðspurðra kvenna vildi líkjast Cyndi Lauper til höfuðsins. Flestar
töldu hár hennar dautt og greiðsluna Ijóta.
hafa eðlilegast hár og því fallegast.
Tætt hár og áberandi litað fékk
minnsta aðdáun. svo sem hárið á
Cyndi Lauper, Madonnu og Tinu
Turner. Margir tóku fram að hár
þeirra þriggja hlyti að vera löngu
ónýtt og lífvana.
Linda Evans fékk mörg atkvæði
þó svo allir viti að hár hennar er
litað. Hins vegar þykir litunin hafa
tekist einkar vel og sé alls ekki
öfgakennd. Þá fari greiðslan Lindu
sérlega vel.
Joan Collins var líka ofarlega á
listanum, þó hún dekki hár sitt
töluvert. Fáar konur á hennar aldri
þola að vera svarthærðar, en hún
ber það glæsilega.
Um hárið á Sybill sagði fólk, að
Hárið á Cybill Shepherd þótti fal-
legast vegna þess hvað það er
heilbrigt og eðlilegt.
þó það væri ekki hnausþykkt, væri
það heilbrigt og lifandi og kæru-
leysisleg, gamaldags greiðslan þótti
einkar þokkafull.
Um Cyndi Lauper var sagt að
engin sem komin væri af unglings-
aldri, vildi líkjast henni til höfuðs-
ins. Hárið væri greinilega dautt og
uppþornað af kemiskum efnum.
Enginn gæti heldur kallað hár-
greiðslur Cyndi fallegar.
Tina Turner fékk þá dóma að
hvort sem hún væri með eigið hár
eða hárkollu, væri þetta allt of
öfgakennt og færi henni heldur
ekki vel. Slíkt gæti gengið á sviði,
en ekki sem daglegt útlit.
Um Madonnu var fólk sammála
um að hvorki ljósi liturinn né stíf
greiðslan ætti við fallega andlits-
drætti söngkonunnar. Auk þess
virðist hár hennar stórskemmt af
sterkum efnum.