Tíminn - 14.09.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 14. september 1988
— -
Kíkt undir grösin
Nú er tími kartöfluuppskerunn-
ar genginn í garð. Guðjón Viggós-
son notfærði sér hauststillurnar á
dögunum til að taka upp kartöfl-
urnar sínar í kartöflugörðunum
við Korpúlfsstaði. Hann var
ánægður með uppskeruna og sagð-
ist að þessu sinni hafa fengið stórar
og góðar kartöflur undan grösun-
um. (Tímamynd Gunnar)
Verölagsstofnun:
Vel tekist til
með eftirlitið
Heldur hefur dregið úr hringing-
um almennings í kvörtunarþjónustu
Verðlagsstofnunar frá því um miðja
síðustu viku. Nú hringja að meðal-
tali um 80 til 90 manns á dag, en
þegar mest var hringt, bárust um og
yfir 200 kvartanir á degi hverjum,
víðs vegar að af landinu.
Jóhannes Gunnarsson starfsmað-
ur Verðlagsstofnunar sagði aðspurð-
ur í samtali við Tímann, að þeim
fyndist þokkalega hafa tekist til með
eftirlit verðstöðvunarinnar, miðað
við hve margar verslanir, heildsala
og þjónustugreinar væri að ræða.
Hann sagði að með dyggum stuðn-
ingi almennings í landinu og einnig
seljenda, þá sýnist þeim þetta ætla
að takast ágætlega. -ABÓ
Á TÍU FINGRUM
Á tíu fingrum um heiminn, heitir
ný kennslubók í píanóleik, sem
hefur að geyma 24 létt píanólög,
sem öll eru eftir Elías Davíðsson
skólastjóra Tónlistarskóla Ólafsvík-
ur.
Fyrri hluti bókarinnar heitir
Freknur. Þar gefur að líta tólf lög
sem heita nöfnum eins og Tréfóta-
valsinn, Skopparakringlurnar, og
Grýla og Leppalúði.
Síðari hluti bókarinnar heitir, rétt
eins og bókin sjálf, Á tíu fingrum um
heiminn. Þá er nemandinn leiddur
um víða veröld og fær að kynnast
íslenskum húsgangi, indíánadansi,
færeyskum dansi og tyrkneskum
pipar. -ABO
Sjávarbyggöir aö sökkva í sæ:
Ný hverfi varasöm?
Hafa byggingayfirvöld lítið eða
ekkert samráð við jarðfræðinga og
jarðeðlisfræðinga þegar húsum og
öðrum mannvirkjum, jafnvel heilum
hverfum er valinn staður?
Svo gæti stundum virst, einkum
þegar athugað er hvar heilu hverfun-
um og ýmsum stórum mannvirkjum
er valinn staður. Nú er að rísa nýtt
hverfi á Álftanesi, mikil byggð er
upprisin á eiðinu milli Reykjavíkur
og Seltjarnarness og nýlega var vígð
brú yfir ölfusárósa - Öseyrarbrúin.
Hversu mörgum kynslóðum á hún
eftir að gagnast og hversu langt er
þangað til Kvosin ■ miðbæ Reykja-
víkur sekkur í sæ og hvenær verður
óbyggilegt á Eiðisgranda vegna þess
hve land sígur?
Tíminn hafði samband við Jón
Jónsson jarðfræðing sem manna best
þekkir til þessara mála. Hann hefur
rannsakað landsig á Islandi um lang-
an tíma og gagnrýnt mjög hversu
þessum málum er lítill gaumur
gefinn.
ísland allt sígur
„Allt ísland er að síga nokkuð
jafnt að því mér hefur virst, en þó
eru sum svæði að síga hraðar en
önnur, en vegna þessa er varasamt
að byggja mannvirki nálægt sjávar-
máli og sum svæði eru varasamari en
önnur,“ sagði Jón Jónsson jarðfræð-
ingur.
Seltjarnarnes og Álftanes eru
varasöm svæði, enda liggja þau lágt,
en á Álftanesi er nú að rísa nýtt
íbúðarhverfi. Landsig er þar heldur
meira en víða annarsstaðar og sem
dæmi má nefna að Garðatjörn er
ekki lengur tjörn heldur hafsvík,
enda hefur nesið sigið um 1,5 m frá
landnámsöld."
En á þá ekki að byggja á stöðum
sem þessum? Hvenær sekkur nýja
ráðhúsið?
„Við verðum að spyrja okkur
hversu margar kynslóðir eftir okkur
eiga eftir að njóta þessara mann-
virkja sem verið er að byggja nú á
þessum stöðum. Hversu mörgum
kynslóðum endist nýja ráðhúsið í
Reykjavík? Það má heita undarlegt
að ekki skuli mælt hversu mikið allt
landið sígur og hve afstaða breytist
milli sjávarborðs og lands því nú
bætist að líkindum við landsigið
gróðurhúsaáhrifin, jöklar bráðna og
sjávarborð hækkar af þeim sökum
einnig. Það er ákaflega auðvelt að
setja upp mælipunkta um landið og
fylgjast síðan með þeim. Ástæðan
ætti varla að vera fjárskortur því
slíkar mælingar eru afar einfaldar og
ódýrar.
Ófært út á Seltjarnarnes
Það er þó alveg ljóst að landið
hefur sigið mikið. Eg hef sjálfur
fundið leifar lífs sem myndast hefur
í ferskvatni. Þær leifar voru hins
vegar úti í Hornafjarðarósi 7,7 m
undir sjávarmáli.
Frá Stað í Grindavík var hjáleiga
nokkur í byggð til ársins 1922 en við
tóftirnar þar sem áður var bæjartún-
ið, er nú stórgrýtt fjara.
Þá má minnast þess að árið 1800
varð mikill stormur og flóð sem gekk
yfir eiðið þar sem nú er Eiðisgranda-
byggðin. Þá varð ófært á hestum út
á Seltjarnarnes. Hvað yrði um
mannvirki sem eru þar nú í slíkum
hamförum? [Einkum ef þess er gætt
að hafi land sigið að meðaltali 3,8
mm á ári þau 188 ár sem síðan eru
liðin þá er land þarna rúmum 70 sm
lægra en það var þá. Innsk.
blaðam.].
Það er af þessum ástæðum afar
mikil skammsýni hjá skipulagsyfir-
völdum og almenningi að taka ekk-
ert tillit til þessara hluta þegar nýjum
hverfum og öðrum mannvirkjum er
valinn staður,“ sagði Jón Jónsson
jarðfræðingur að lokum. -sá
Hreinar og fallegar Strandir:
Umgengni verðlaunuð
Nýlega voru afhentar viðurkenn-
ingar sem Héraðssamband Stranda-
manna (HSS) veitir fyrir bestu um-
gengnina í sveitum og þéttbýli í
Strandasýslu.
Kirkjuból í Kirkjubólshreppi
hlaut að þessu sinni viðurkenningu
HSS sem snyrtilegasta sveitabýlið.
Á Kirkjubóli er tvíbýli. Á öðrum
bænum búa hjónin Grímur Bene-
diktsson og Kristjana Ingólfsdóttir,
en á hinum bænum hjónin Sigurður
Benediktsson og Sigrún Valdimars-
dóttir. Grímur og Sigurður eru synir
Benedikts Grímssonar sem bjó
kunnu myndarbýli á Kirkjubóli í
nær hálfa öld. Forfeður hans höfðu
búið á Kirkjubóli óslitið frá 1843.
Hjónin Guðmundur R. Jóhanns-
son og Guðrún Guðmundsdóttir,
Austurtúni 2 á Hólmavík hlutu
viðurkenningu HSS fyrir fegurstu
þéttbýlislóðina í Strandasýslu. Hús-
ið að Austurtúni 2 var byggt um
1980, en þrátt fyrir það hefur lóð
þeirra hjóna borið af flestum öðrum
lóðum í sýslunni í nokkur ár. Lóð
Guðrúnar og Guðmundar hlaut
sams konar viðurkenningu frá HSS
1985, og einnig sérstök verðlaun frá
aðstandendum Skeljavíkurhátíðar
1987.
Viðurkenning HSS fyrir góða um-
gengni í sveitum var nú veitt í 4.
sinn. Smáhamrar í Kirkjubólshreppi
hlutu viðurkenningu 1983, Gröf í
Bitrufirði 1984 og Bær í Hrútafirði
1985.
Viðurkenning HSS fyrir fegurstu
þéttbýlislóðina var veitt í 3. sinn.
Lóðin að Kópsnesbraut 5 á Hólma-
vík var verðlaunuð 1984, og eins og
áður sagði hlauti lóðin að Austurtúni
2 viðurkenningu árið 1985.
Stefán Gíslason.
Lóðin að Austurtúni 2 á Hólmavík hlaut viðurkenningu HSS sem fegursta þéttbýlislóð í Strandasýslu 1988.
Kirkjuból í Kirkjubólshreppi, snyrtilegasti sveitabær í Strandasýslu 1988.
Tlmamyndir: Stefán Gislason.