Tíminn - 14.09.1988, Síða 13

Tíminn - 14.09.1988, Síða 13
Miðvikudagur 14. september 1988 lllllillllllllllli ÚTLÖND ' Svisslendingar endurnýja her- gagnakost sinn Það er alkunna að í hergagnaiðn- aði er sífellt verið að hanna full- komnari hergögn og að herir hinna ýmsu landa endurnýja hergagna- birgðir sínar þegar nýjungar koma fram. Um þessar mundir er sviss- neski herinn að undirbúa endurnýj- un á hergagnakosti nokkurra her- sveita sem notað hafa sömu hergögn um áratugaskeið. Þetta nýja „leyni- vopn“ sem á að taka í notkun er ný tegund sérhannaðra reiðhjóla sem munu taka við af hefðbundnum reiðhjólum sem fyrst voru tekin í notkun hjá svissneska hernum árið 1905. Endurnýjun á reiðhjólaflota sviss- neska hersins á að vera lokið árið 1990, en gerður hefur verið samning- ur við þrjár svissneskar hjólreiða- verksmiðjur um framleiðslu reið- hjóla fyrir hina 3300 hermenn sem sérhæfðir eru í reiðhjólahernaði. Samningurinn hljóðaði upp á 300 milljónir íslenskra króna, sem þykir ekki há upphæð í samningum um framleiðslu hergagna. „Reiðhjól eru hraðskreið og hljóðlát" sagði J. Peter Flueckiger ofursti, talsmaður svissneska hersins. „Trukkur eða minni bíll veldur hávaða sem heyrist langa Svissneskir hermenn í fullum skrúða. Þeir eru nú um það bil að taka ný reiðhjól í þjónustu sína. leið, sérstaklega að nóttu til“ bætti hann við. Reiðhjólafyrirtækin þrjú hafa nú smíðað tilraunahjól sem nú er verið að prófa við allar hugsanlegar og óhugsanlegar aðstæður. Samkvæmt verksamningi verða hjólin að vera tveggja gíra, vera sterk og geta borið að minnsta kosti 150 kg, þyngd þeirra á að vera um 22 kg og kosta ekki meira en 45 þúsund krónur. Hermenn í reiðhjóladeildum geyma reiðhjólin og vopn sín heima- við, tilbúnir að rúlla af stað fullbúnir komi til átaka. Jafnvel þó fullbúinn hermaður beri útbúnað er vegur 80 kg þá telja sérfræðingar svissneska hersins að þeir séu fljótari í vígstöðu sína en „vélknúnir" hermenn, svo fremi sem áfangastaðurinn sé ekki fjær en 40 km. Það eru ekki eingöngu svissneskir hermenn sem nota reiðhjól í hern- aði. í vor var sagt frá því hér í Tímanum að „Bundeswehr“, land- her Vestur-Þýskalands hefði tekið reiðhjólið á ný í þjónustu sína. Reiðhjól eru ekki ný af nálinni í hernaði. Þau voru fyrst notuð í fransk-prússneska stríðinu árið 1870. Báðir aðilar notuðu reiðhjól mikið í fyrri heimsstyrjöldinni og þýski herinn hafði á að skipa um hundrað reiðhjólahersveitum í síð- ari heimsstyrjöldinni. Allir aðrir en Svisslendingar lögðu reiðhjólinu eft- ir þann hildarleik þar til „Bundes- wehr“ tók það aftur í þjónustu sína. Forsetakosningar í Bandaríkjunum er viökvæmt mál: Liðsmenn Bush fjúka vegna gyðingahaturs George Bush forsetaframbjóð- anda repúblikana helst illa á aðstoð- armönnum í kosningabaráttu sinni þessa dagana. Ástæðan er meint gyðingahatur þeirra, en eins og kunnugt er á sá forsetaframbjóðandi sem styggir gyðingasamfélagið í Bandaríkjunum ekki minnstu von um að ná kjöri. Gyðingar hafa yfir höfuð oftast stutt demókrata og hefur Bush að undanförnu reynt að vinna fylgi meðal þeirra. Því komu ásakanir um gyðingahatur starfs- manna Bush honum mjög illa. Alls hafa sjö starfsmenn Bush nú sagt af sér eftir að hafa verið sakaðir um gyðingahatur. í síðustu viku rak Bush aðstoðarmann sinn Jerome Brentar vegna tengsla hans við sam- tök er studdu John Demjanjuk sem ísraelskur dómstóll úrskurðaði sek- an um fjöldamorð í útrýmingarbúð- um nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Á sunnudag sagði Fred Malek ráðgjafi Bush af sér vegna ásakana um að hann hafi, er hann staríaði fyrir Nixon fyrrum forseta, tekið að sér sérstaka rannsókn á fjármálum voldugra gyðinga til að klekkja á þeim ef þurfa þótti. Malek neitaði þessum ásökunum, en sagði af sér svo tryggt væri að hann skaðaði ekki Bush. En gyðingamartröð Bush var ekki lokið því í gær sögðu fimm manns úr starfsliði hans af sér vegna ásakana um að þeir hefðu unnið gegn sam- tökum gyðinga. Bretland: Skotglöðum sendiráðs- manni vísað úr landi Sendiherra Kúbu og byssuglöðum aðstoðarmanni hans var vísað úr landi í Bretlandi í gær eftir að aðstoðarmaðurinn hafði skotið á vegfarendur fyrir utan heimili hans í London. Utanríkisráðuneyti Bret- lands sagði að brottvísun Oscars Femandez-Mell sendiherra Kúbu og Carlos Manuel Medina Perez efna- hagsfulltrúa í kúbanska sendiráðinu eigi að vera aðvörun til annarra sendiráðsmanna og að það verði ekki þolað að þeir gangi vopnaðir um götur Lundúna. Ekki er liðin vika frá því að víetnömskum sendi- ráðsmanni var vísað úr landi eftir að til hans sást sveiflandi skammbyssu utan við víetnamska sendiráðið í Lundúnum. Hvað mál Kúbverjanna áhrærir þá sagði lögreglan að Medina Perez, sem hóf skothríð á vegfarendur utan við heimili sitt á sunnudagskvöld, hafi talið lífi sínu stofnað í hættu og því látið blýið tala sínu máli. Sjónar- ,vottar sögu að hann hefði skotið fimm skotum að fjórum mönnum er lagt höfðu bifreið sinni fyrir framan heimili hans. Mennirnir hafi hlaupið á brott, einn þeirra blóðugur og önnur bifreið hafi tekið þá upp í nærliggjandi götu. Scotland Yard tók Medina Perez höndum á mánudagskvöld, en hon- um var sleppt eftir að hafa afhent skammbyssu sína, enda friðhelgur sem sendiráðsmaður. Tíminn 13 Jersey fatnaður Finnskir jerseykjólar stærðir 36-48 Einnig jersey pils, svört og flöskugræn. Stærðir 36-50. Verð kr 4.200,- og 4.600,-. Póstsendum mrnatRimm v/Laugalœk S: 33755. Miðstjórnarfundur Miðstjórn Framsóknarflokksins er boðuð til fundar laugardaginn 17. september kl. 13.30 á Hótel Sögu A-sal. Stjórn Framsóknarflokksins. Kjördæmisþing Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið á Súðavík dagana 30. sept. til 1. okt. 1988. Nánar auglýst síðar. Stjórnin

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.