Tíminn - 14.09.1988, Side 20

Tíminn - 14.09.1988, Side 20
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 Canon Ljósritunarvélar FC-3, 43.600 stgr. FC-5, 46.300 stgr. Skrifvélin, sími 685277 ( STRUMPARNIR Tímiiin Stefnubreyting í málefnum aldraðra í vændum: Aldnir dvelji lengur heima Samráösfundur yfirmanna á vegum hins opinbera sem starfa að málum er varöa aðbúnað aldraðra á Norðurlönd- um var haldinn í Reykjavík á dögunum. Þessir aðilar hafa hist árlega undanfarin ár og borið saman bækur sínar, en nokkur munur er á hvernig að málum þessum er staðið milli landanna. Fundinn sátu 20 manns og voru flutt mörg erindi, bæði félags- og læknisfræðilegs eðlis. Hrafn Páls- son deildarstjóri öldrunarmála hjá heilbrigðis- og félagsmálaráðu- neytinu sagði fréttamönnum að mjög hefði verið rætt að efla þyrfti heimaþjónustu við aldraða og þeim þannig gert mögulegt að dvelja sem lengst á eigin heimili, æsktu þeir þess sjálfir. Hrafn sagði að hér væri að nokkru um stefnubreytingu að ræða á íslandi, enda hafa Finnar og íslendingar haft nokkra sérstöðu undanfarin ár með að leggja aðal- áherslu á byggingu vistunarstofn- ana fyrir aldrað fólk. Steinunn Sigurðardóttir hjúkr- unarfræðingur, sem er formaður ráðgjafarnefndar um málefni aldr- aðra, sagði að eindreginn vilji hefði komið fram á fundinum um að stórefla alla hjúkrun og þjónustu við aldraða á þann hátt að efla menntun og menntunarmöguleika og bæta kjör þeirra, sem við þessi störf fást. Þessi mikilvægu störf væru nú lágt metin til launa, enda gengi erfiðlega að fá fólk í þau. Steinunn sagði ennfremur að fundurinn hefði talið að ekki skyldu byggð fleiri hefðbundin dvalarheimili aldraðra heldur skyldi öll áhersla lögð á í framtíð- inni að aðstoða fólk inni á heimil- um sínum í lengstu lög. Hún sagði að þetta væri einnig eindreginn vilja þeirra sem um öldrunarmál fjalla hérlendis. Hins vegar gengi mjög erfiðlega að fá fólk til að vinna við heimilisþjón- ustustörf í víðri merkingu. Fólk staldraði stutt við í slíkum störfum og eitthvað yrði að gera til að gera störf þau aðlaðandi. Það kom fram hjá þeim Stein- unni og Hrafni að áður en stað- greiðslukerfi skatta var tekið upp, var tekna í framkvæmdasjóð aldr- aðra aflað með nefskatti en nú væri það ekki svo lengur, heldur væri sjóðurinn nú kominri upp á náð fjárveitingavaldsins og þessa stundina væri sjóðurinn heldur rýr. Ráðgjafanefnd um málefni aldr- aðra, sem Steinunn Sigurðardóttir er formaður fyrir, mun því leggja til við stjórnvöld að tekjur sjóðsins framvegis fari eftir hversu margir aldraðir eru á hverjum tíma. -sá Störf í öldrunarþjónustu eru vanmetin og illa gengur að fá fólk til þeirra. Þessu þarf að breyta að mati yfirmanna öldrunarmála á Norðurlöndum. Tímamynd: Ámi Bjama Offramboð saltfisks veldur SÍF áhyggjum „Það kom mjög ntikill kippur í veiðarnar hjá Kanadamönnum síð- ast t júlí scm stóð út ágústmánuð og það hefur valdið auknu frant- boði á saltfiski þaðan á markaði í Evrópu,1- sagði Magnús Gunnars- son, forstjóri Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðcnda, í samtali við Tímann. „Ég hef mjög þungar áhyggjur af þessu því að þetta aukna framboð veldur okkur veru- legum erfiðleikum. Fiskurinn frá Kanada kcmur inn á alla hefðbundnu markaði í Evr- ópu sem við höfum verið að selja á og ofíramboðið skapar þrýsting á verðið. Þegar það fer saman við þann toll sem skellur á saltfisknum héðan, kemur það sér mjög illa fyrir okkur. Þessi kvóti sent er á saltfisk til Evrópubandaiagsins er uppurinn t.d. í Portúgal og það þýðir að það kennir 13% tollur á allan fisk sem fer héðan þangað,*" sagði Magnús. Saltfiskinnflutningur til Evrópu- bandalagsins var lcngst af leyfður án tolla. samkvæmt sérstakri undanþágu, en árið 1985 ákvað EB að nýta tollaheimild á saltfisk sem 13% á flattan fisk en 20% á þorskflök. Samkvæmt Gatt-sam- komulagi er þó 25.000 tonna tollfrjáls kvóti af flöttum fiski sem dreiíist á meðlimalönd samkvæmt ákvörðun í Brussel. Þessi kvóti, auk 6.000 tonna kvóta sem samið var um við Kan- ada, nægði að mestu leyti fyrir innflutningi á saltfiski til EB-landa, áður en Spánn og Portúgal gengu í það. Árið 1986 var heimilað65.000 tonna kvóti til viðbótar, meö3,7% tolli. í ár var þessi kvóti ákveðinn 52.500 tonn með 5% tolli. Á þorskflök er síðan 20% tollur. „Það sem skiptir mestu máli fyrir saltfiskiðnaðinn er að íslensk- um stjórnvöldum takist að ná að komast að einhverju samkomulagi við EB um þessa tolla. Þeir valda okkur miklum erfiðleikum," sagði Magnús. „Á síðasta ári greiddunt við samtals 450 milljónir króna í tolla af íslenskum saltfiski. Ef það væri greitt af öllum útflutningnum á þessu ári, þýddi það scnnilega 1,2-1,3 miiljarða, þannig að þetta er gtfurlcga stórt mái fyrir saltfisk- inn.“ f Fiskifréttum þann 9. september er greint frá því að Portúgalar hafi tryggt sér ítök í kanadískum salt- fiskiðnaði með því að kaupa tvö salfiskverkunarfyrirtæki á Ný- fundnalandi. Óstaðtesta. fregnit herma að til þess að komast hjá tollum EB sé þessi fiskur fluttur til Evrópu með viðkomu á frönskum smáeyjum við strendur Kanada. „Égveitekki hvernigþettageng- ur fyrir sig en það gctur verið að þeir láti uppruna fisksins vera frá þessum cyjum, sent er franskt yfirráðasvæði og hefur því frjálsan aðgang að Evrópubandaiaginu án. þess að borga to!!a,“ sagði Magnús. í Fiskifréttum þennan sama dag er haft eftir Hreiðari Júlíussyni, framkvæmdastjóra More Fish á Nýfundnalandi að hráefnisverð sé innan við 20 kr. á kílóið í Kanada og að það fari alveg niður í 11 kr., sé ftskurinn mjög smár. Hráefn- isverð á mörkuðum hérlendis hefur hins vegaf verið á bilinu 40-50 kr. sfðustu vikur. Þetta taldi Magnús Gunnarsson ekki síður valda ís- lenskum saltfisksútflutningi erfið- leikum. „Nú verðum við bara að sjá til hvað gerist í þessu, en ég held að því miður sjáunt við vaxandi erfið- leika framundan í saltfiskverkun. Maður má ekki leggjast í einhverja örvæntingu en hins vegar er rétt að undirstrika það að þetta er hlutur sem réttir ckki úr kútnum undir eins. Það fer eftir því hvcrnig stórir aðilar eins og Kanadamenn haga sínum málum,11 sagði Magnús. Brennisteinslykt í Grímsey ekki talin bendatilgoss: Skjálftarnir eru í rénun „Það töldu sig einhverjir hafa fundið brennisteinslykt í gær og að hún kæmi úr vesturátt, en ég tel nú litlar líkur á því að gos sé að hefjast," sagði Hafliði Guðmunds- son fréttaritari Tímans í Grímsey í gær. Hafliði sagði að jarðeðlisfræðing- ar hefðu talið að um eitthvert gas- streymi gæti verið að ræða, enda væri Grímsey á miðjum Atlantshafs- hryggnum. Hafliði sagði að tveir jarðeðlis- fræðingar væru komnir til Grímseyj- ar og varðskip væri í viðbragðsstöðu að flytja íbúana á brott ef skjálfta- virkni ykist enn og mannvirki færu að skemmast og fólk yrði jafnvel í hættu. Skjálftar héldu áfram í Grímsey í gær þótt ekki væru þeir jafn snarpir og sá sem kom kl. rúmlega 8 í fyrrakvöld, en skjálftavirkni var nokkuð stöðug og jöfn og á 15. tímanum í gær urðu nokkrir all- snarpir skjálftar, meðan á samtali Hafliða og blm. Tímans stóð. Hafliði sagði að þrátt fyrir hve mikið hefði gengið á undanfarna daga væru ekki merkjanlegar neinar skemmdir á mannvirkjum enn, en erfitt væri að segja ákveðið af eða á um slíkt að óathuguðu máli. Tíminn ræddi við Pál Einarsson jarðeðlisfræðing í Grímsey í gær- kvöldi og sagði hann að jafnt og þétt drægi úr skjálftum, en þó væri virkni enn talsverð. Páll sagði að hrinan að þessu sinni hefði nú staðið frá því síðasta föstu- dag og virtist sem hún hefði náð hámarki í fyrrakvöld. Hann sagði að strax eftir stóra skjálftann laust eftir kl. 20 á mánu- dag hefði fólk fundið talsverða brennisteinslykt, en engin sérstök skýring á henni hefði fundist enn. Hann taldi ólíklegt að skjálftahrinan nú og brennisteinslyktin væri undanfari eldgoss fremur en áður. Grímseyj arskj álftar stöfuðu af því að jarðskorpuflekar væru að ganga í sundur til austurs og vesturs um Atlantshafshrygginn og við það kæmu þessir skjálftar. Hann sagðist ekki merkja neinn ótta lengur hjá Grímseyingum en skiljanlega hefði verið óhugur í fólki þegar mest gekk á. -sá

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.