Tíminn - 23.09.1988, Blaðsíða 3
Föstudagur 23. september 1988
Tíminn 3
Ástráður hjá loðnunefnd segist ætla að afsanna að mánudagar séu til mæðu:
Loðnan byrjar á mánudag
„Þetta byrjar á mánudaginn. Ætli
ég fari ekki í skyrtuna strax eftir
helgi. Það er sagt að mánudagar séu
til mæðu og því best að afsanna
það,“ sagði Ástráður Ingvarsson hjá
loðnunefnd í samtali við Tímann,
aðspurður hvenær loðnan færi að
veiðast. „Ég er nýkominn frá Eng-
landi, var í fríi, enda hefur ekkert
verið að gerast."
Eins og lesendur Tímans vita
hefur Ástráður haldið þeirri kenn-
ingu á lofti að engin loðna veiðist,
nema hann sé í loðnuskyrtunni, sem
hann kallar svo, eða að móttökur
séu hjá Halldóri Ásgrímssyni í Sjáv-
arútvegsráðuneytinu. Móttökurnar
í ráðuneytinu, vegna stjórnarmynd-
unarviðræðnanna eru hins vegar af
öðrum toga og Ástráður í fríi, þann-
ig að ekki er nema von að engin
loðna veiðist. Eru margir orðnir
langeygðir eftir því að Ástráður
komi heim úr fríinu og klæðist
loðnuskyrtunni góðu.
Ástráður sagði að 10 til 12 vindstig
hefðu verið á miðunum í gærdag þar
sem bátarnir fjórir héldu sig, djúpt
norður af Kolbeinsey og búast mætti
við að stormurinn héldi eitthvað
áfram. „Ég gæti best trúað því að
skipin færu í var, á meðan stormur-
inn gengur yfir,“ sagði Ástráður. í
gær hafði Jón Kjartansson frá Eski-
firði fengið 300 til 400 tonn, en hin
skipin, Hólmaborgin frá Eskifirði,
Skarðsvíkin frá Hellissandi og Börk-
ur frá Norðfirði höfðu lítið sem
ekkert fengið. Örninn frá Keflavík
var á leiðinni á miðin og var búist við
að skipið kæmi á miðin með kvöld-
inu, eða í nótt.
Ástráður sagði það ekkert vafa-
mál að hægt yrði að standa við gerða
samninga. „Það fer allt á fullt á
mánudag. Hún fiefur dreift sér svo
mikið þegar hún kemur upp, en á
mánudag fer hún að lagast," sagði
Ástráður Ingvarsson hjá loðnunefnd segir ballið byrja á mánudag.
Ástráður, „þá fara líka fleiri bátar af mars. „Ég skal segja þér hvaða dag
stað, enda bíða margir í startholun- henni lýkur, þegar komið er fram á
um.“ Hann sagði að búast mætti við miðja vertíð," sagði Ástráður.
að vertíðin yrði búin í endann á -ABÓ
4000 manna allsherjaratkvæðagreiðsla boðuð af þeim sem eftir
eru í stjórn Fríkirkjunnar í Reykjavík:
Bíður með afsögn
fram yfir heildar
atkvæðagreiðslu
Safnaðarstjórn Fríkirkjunnar í
Reykjavík hefur ákveðið að sam-
þykkt nýlegs safnaðarfundar um
vantraust á hendur henni, sé með
öllu marklaus og verður því ekki við
áskorun um að segja af sér störfum.
Hér er þó ekki um að ræða nema
hluta stjórnarinnar þar sem formað-
ur og einn stjórnarmaður hafa þegar
gengið úr sætum sínum vegna áður-
nefndrar samþykktar. Bar formað-
urinn upp tillögu á stjórnarfundi að
öll stjórnin segði af sér, en það var
fellt með 4 atkvæðum gegn 2. Þau
sem eftir eru í stjórninni hafa samt
sem áður ákveðið, eins og málum er
komið, að nauðsynlegt sé að söfnuð-
urinn fái að tjá hug sinn í allsherjar-
atkvæðagreiðslu kosningarbærra
meðlima dagana 1.-2. október nk.
Mun stjórnin hlíta. niðurstöðum at-
kvæðagreiðslunnar.
Að sögn Bertu Kristinsdóttur,
varaformanns, eru um 4000 manns
með atkvæðisrétt í söfnuðinum, en
eitthvað á sjötta þúsund eru þar í
heild. Sagði hún jafnframt að nokk-
uð hafi borið á úrsögnum úr söfn-
uðinum eftir áðumefndan safnaðar-
fund í Gamla bíói. Sr. Gunnar hefur
nú ákveðið að freista þess að fá
uppsögn sinni hnekkt með fógeta-
valdi, en bíða ekki eftir því að
stjómin segi af sér.
Stjórnin hefur jafnframt lýst því
yfir að hin samþykkt áðurnefnds
fundar, um ógildingu uppsagnar sr.
Gunnars, að uppsögnin byggi á ótví-
ræðum ákvæðum 21. greinar safnað-
arlaganna. Vill stjórnin einnigbenda
á að framkvæmd uppsagnarinnar er
í fullu samræmi við erindisbréf það
sem fríkirkjupresturinn undirritaði
eftir að hann var endurráðinn árið
1985 að fengnum sáttum í „hinu
fyrra uppsagnarmáli", eins og það er
jafnan kallað.
Ástæður þess að núverandi stjórn,
sem skipuð er af Bertu Kristinsdótt-
ur, varaformanni, ísak Sigurgeirs-
syni, Guðmundi Hjaltasyni ogSigur-
borgu Bragadóttur, telur ekki ástæðu
til að fara frá að afstaðinni van-
traustsyfirlýsingu eru byggðar á laga-
túlkun. Segir í bréfi frá stjórninni að
aðeins standi brot atkvæðisbærra
• manna að baki samþykkt fundarins.
Þá álítur stjómin að almennur safn-
aðarfundur sé ekki bær um að víkja
stjórninni frá, enda sé samþykktin
einungis í áskorunarformi. Éinnig
skorti að umræður og tillögugerð í
þessa átt hafi komið fram í auglýs-
ingu um fundinn.
Berta Kristinsdóttir, var að því
spurð hver framkvæmd stjórnarinn-
ar væri varðandi ráðningu fríkirkju-
prests en staða hans var auglýst laus
til umsóknar til 15. september sl.
Sagði hún að hún vildi ekkert tjá sig
um neitt í sambandi við auglýsingar
þessar þar til eftir að niðurstöður
atkvæðagreiðslunnar lægju fyrir í
byrjun næsta mánaðar. KB
Leiðrétting
í leiðara í gær (fimmtudag) féll
niður eitt orð, sem nauðsyn er að
leiðrétta. Standa átti: „Þótt þeir
(þ.e. landsbyggðarþingmenn
Sjálfstæðisflokksins) séu tiltölu-
lega fjölmennir í þingflokknum,
þá em þeir daufir í hugsjónarbar-
áttu, þótt að öðm leyti.“
amm
... ■ ■..•... .
.
; ;
handa þér, ef þú hittír
á réttu tölumar.
Láttu þmar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: