Tíminn - 24.09.1988, Síða 3
Laugardagur 24. september 1988
Tíminn 3
Nemendur í félagsvísindadeild sýna lítinn áhuga á Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni:
Námskeið Hannesar
voru felld niður
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
nýráðinn lektor í stjórnmálafræði
við félagsvísindadeild Háskóla
fslands, mun engin námskeið kenna
við deildina á haustönn, sem nú er
hafin. Nemendur hafa sýnt lítinn
áhuga á þeim námskeiðum sem stóð
til að Hannes kenndi og hafa þau
verið felld niður vegna ónógrar þátt-
töku.
í kennsluskrá fyrir önnina er
Hannes skrifaður fyrir einu nám-
skeiði - „Frelsi, ríkisvald og lýð-
ræði“ - en það hefur verið fellt niður
þar sem enginn nemandi hefur skráð
sig í það. Ákveðið hafði verið að
Hannes fengi einnig til umsjónar
„Heimspeki félagsvísindanna", sem
hann var reyndar ekki skráður fyrir
í kennsluskrá. t>að hefur einnig verið
fellt niður vegna ónógrar þátttöku,
aðeins þrír nemendur höfðu skráð
sig í námskeiðið. Deildin hefur um
nokkurra ára skeið fellt niður nám-
skeið þar sem innan við fimm nem-
endur skrá sig.
Eins og kunnugt er tók deildar-
fundur afdráttarlausa afstöðu í sum-
ar gegn því að Hannes kenndi
skyldunámskeið viðdeildina. Höfðu
nemendur gert þá kröfu að þeim
yrði ekki gert skylt að sækja nám-
skeið í umsjón kennara sem ekki
hafði hlotið ótvíræðan hæfnisdóm.
Hannes fær því ekki að kenna
skyldunámskeió og enginn vill sækja
þau valnámskeið sem hann er skrif-
aður fyrir.
Dómnefnd sem fjallaði um stöðu-
veitinguna dæmdi Hannes, sem
kunnugt er, óhæfan til að gegna
stöðunni en Birgir ísleifur Gunnars-
son, menntamálaráðherra, setti
hann í hana þrátt fyrir það og gekk
framhjá þeim Ólafi P. Harðarsyni
og Gunnari Helga Kristinssyni, sem
dæmdir voru hæfir.
Nefnd hefur verið starfandi á
Hannes Hólmsteinn fékk engan
nemanda. Því voru námskeiðin felld
niður.
vegum Háskólaráðs til að kanna
mögulegar leiðir til að hnekkja
stöðuveitingunni og munu þar eink-
um sitja lögfræðingar, samkvæmt
hcimildum Tímans. Mun Jónatan
Þórmundsson vera einn þeirra.
Nefndin hefur enn ekki lagt sína
greinargerð fyrir Háskólaráð. JIH
Lánskjara-
vísitala
hækkar
um 0,44%
Lánskjaravísitalan hækkar úr
2254 nú í septemmber í 2264 sem
gildir fyrir október. Það svarar til
0,44% hækkunar milli mánaða. Sú
mánaðarhækkun svarar til 5,5% á
heilu ári. Hækkunin s.l. 3 mánuði
svarar til 22% verðbólgu á heilu ári.
Frá október 1987 hefur vísitalan
hækkað um 26%.
Hækkun lánskjaravísitölunnar s.l.
þrjá mánuði (ág.okt.) er rúmlega
5% eða nánast jafn mikið og sú
hækkun sem varð á einum mánuði
milli júní og júlí. -HEI
Úlflutningur jan./maí aðeins 1,2%
meiri en á sama tíma 1987:
Vöruskipta-
halli um 3.000
milljónir króna
Nær tveggja milljarða slakari
staða var á vöruskiptajöfnuði
landsmanna fyrstu fimm mánuði
þessa árs en á sama tíma 1987,
samkvæmt frétt frá Hagstofunni.
Rúmlega 3.000 milljóna króna halli
var orðinn á vöruskiptajöfnuðinum
fob/cif en um 550 millj. fob/fob í
maílok.
Verðmæti vöruútflutningsins var
tæplega 21.700 milljónir tímabilið
jan./maí (um 88 þús. krónur á hvern
íbúa). Það var tæplega 7% hækkun
frá fyrra ári í krónum talið, en
aðeins 1,2% aukning miðað við
sama verð meðalgengis.
fslendingar halda áfram að kaupa
fyrir meiri gjaldeyri en þeir afla. Á
sama tíma og aðeins 265 milljónum
meira fékkst fyrir útflutningsafurð-
irnar jukust innkaupin hins vegar
um 2.200 milljónir króna, reiknað á
sama gengi bæði árin, sem þýðir-
10% aukningu að raungildi.
Vörur voru fluttar til landsins fyrir .
um 24.700 milljónir fob, tímabilið
jan./maí, eða rétt um 100 þús.
krónur að meðaltali á hvern íslend-
ing. Munurinn á útflutningi og inn-
flutningi var því að meðaltali um 12
þús. krónur. Það svarar til þess að
hver ísiendingur hafi að meðaltali
þurft að slá 12 þús. króna erlend
vörukaupalán á þessu fimm mánaða
tímabili. -HEI
Ný verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs.
Orugg leið til að ávaxta sparifé þitt.
Þér kann að finnast vandasamt að ráðstafa sparifé þínu á sem arðbærastan hátt. En til eru margar
traustar og góðar leiðir til ávöxtunar.
Ný spariskírteini ríkissjóðs.
Þau fást hjá okkur á öllum afgreiðslustöðum og við innleysum jafnframt eldri spariskírteini. Þú
getur valið um 3 ára bréf með 8,0% ársávöxtun, 5 ára bréf með 7,5% ársávöxtun og 8 ára bréf
með 7,0% ársávöxtun. Spariskírteinin eru ríkistryggð, tekju- og eignarskattfrjáls og fást j 5.000,
10.000, 50.000, 100.000 og 1.000.000 króna einingum.
Verðtryggður sparireikningur og veðdeildarbréf.
Til ávöxtunar sparifjár þíns bjóðum við einnig aðrar hagkvæmar leiðir: Nýjan 18 mánaða verðtryggð-
an sparireikning með 7.5% vöxtum og veðdeildarbréf með 9,5% voxtum hjá Verðbréfamarkaði
Samvinnubankans.
Hugsaðu þig vel um hvernig þú vilt ráðstafa sparifé þínu, hafðu samband, við ráðleggjum þér heilt.
SAMVINNUBANKI fSLANDSHF