Tíminn - 24.09.1988, Page 11

Tíminn - 24.09.1988, Page 11
Laugardagur 24. september 1988 Tíminn 11 Kaupfélag Skaftfellinga í Vík: Eitt þúsund kröfuhafar Kröfuhafar á hendur Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík í Mýrdal eru um 1000 talsins, en með bréfi dagsettu 26. ágúst 1988 féllst sýslumaður Vestur-Skaftafellssýslu á greiðslu- stöðvun Kaupfélagsins til 1. nó- vember nk. Fram til þess dags verða undirbúnir nauðasamningar við alla kröfuhafa. Skuldir Kaupfélags Skaftfellinga í Vík þann 15. ágúst sl. voru rúmar 159 milljónir króna, þar af eru kröfur almennra kröfuhafa nálægt 110 milljónum. Áætlað rekstrartap Kaupfélagsins á tímabilinu l.janúar til 15. ágúst á yfirstandandi ári er rúmar 48 millj- ónir króna. óþh Á námskeiöum Björgunarskóla LHS, er lögð áhersla á að þjálfa við raunverulegar aðstæður. Fjöldi námskeida Björgunarskóli Landssambands hjálparsveitar skáta er nú að hefja sitt tólfta starfsár undir kjörorðun- um, „Aukin kunnátta - bætt þjálfun - betri árangur“. Björgunarskóli LHS býður upp á fjölda námskeiða og er lýsing á þeim í námsskrá skólans, sem endurnýj- uð var fyrir ári og send öllum björgunarsveitum, almannavarna- nefndum og lögregluembættum. Þessum aðilum er gefinn kostur á að panta námskeið fyrir sitt fólk og útvegar skólinn þá leiðbeinendur og kennslugögn. í vetur verða einnig haldin námskeið í ferðamennsku fyrir almenning, eins og verið hefur undanfarin ár á vegum hjálparsveit- anna. I nýútkominni vetraráætlun skólans eru ýmis námskeið tímasett, má þar nefna námskeið í skyndi- hjálp, fjarskiptum, ferðamennsku, þjálfun björgunarhunda, akstri björgunarbifreiða og leiðbeinenda- námskeið í snjóflóðaleit, svo eitthv- að sé nefnt. -ABÓ Verslunarhúsnæði til sölu - Laugarásvegur 1 Kauptilboð óskast í verslunarhúsnæði ÁTVR að Laugarásvegi 1, Reykjavík á 1. hæð, en því fylgja 2 geymslur í kjallara og bílskúr, samtals 152,3 m2. Brunabótamat er kr. 8.535.847,- Húsnæðið er til sýnis í samráði við Gústaf Níelsen skrifstofustjóra ÁTVR, simi 24280. Tilboðseyðublöð liggja frammi að Laugarásvegi 1 og á skrifstofu vorri. Tilboðum sé skilað á skrifstofu .vora fyrir kl. 11.00 f.h. þriðjudaginn 4. okt. n.k. iNNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 Fyrirlestur um borgaralega fermingu Mánudagskvöldiö 26. september 1988 kl. 20.30 í Geröubergi. Steinar Nilsen, forseti Human-Etisk Forbund í Noregi talar á ensku en svarar spurningum einnig á Noröurlandamálum. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Skoðunarferð um Reykjavík og nágrenni n.k. laugardag 24. sept. Farið verðurfrá B.S.Í. kl. 13.00. Kaffi drukkið í Skíðaskálanum Hveradölum. Nánari upplýsingar og skráning í síma 24480, Þórunn, til kl. 14.00 á föstudag. Leiðsögumaður Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi. Mætum vel. Stjórnin. AKRANES -BÆJARMÁL Fundur um bæjarmálin verður haldinn í Framsóknarhúsinu laugar- daginn 24. sept. n.k. kl. 10.30. Bæjarfulltrúarnir Kjördæmisþing Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið á Súðavík dagana 30. sept. til 1. okt. 1988. Nánar auglýst síðar. Stjórnin SAMVINNU TRYGGINGAR ARMÚLA 3 108 REYKJAVlK SÍMI (91)681411 Útboð Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Dodge Aries 4 DR árgerð 1988 AMC Jeep Wagoneer árgerð 1988 Toyota Corolla árgerð 1988 Ford Escort 1300 CL árgerð 1988 Fiat Uno S 60 árgerð 1988 Saab 900 i 4 DR árgerð 1988 Peugeot 309 GL árgerð 1987 Lada station 1500 árgerð 1987 Chevrolet Monsa árgerð 1986 Toyota Landcruiser HT árgerð 1986 B.M.W. 323 i árgerð 1985 Fiat 127 GL árgerð 1984 V.W. Golf GL árgerð 1982 Mercedes Benz 307 D árgerð 1982 Mercedes Benz 280 E árgerð 1981 Subaru 1800 st. GL árgerð 1981 Dodge Aries Custom árgerð 1981 Vél í Ford Escort 1900 árgerð 1987 Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, Reykjavík, mánudaginn 26. september 1988, kl. 12-16. Á sama tíma: Á Höfn í Hornafirði: Ford Mustang árgerð 1979 Á Sauðárkróki: Man 19281 vörubifreið árgerð 1982 Á Hvammstanga: Volvo 244 GL árgerð 1979 Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t. Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl. 12, þriðjudaginn 27. september 1988. Samvinnutryggingar g.t. - Bifreiðadeild - rMiðuní^ hraða ávallt við aðstæður A Hvernig sem á stendur Við erum á vakt allan sólarhrínginn Ul.. 68 55 22 6 /ó) I l

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.