Tíminn - 24.09.1988, Page 13
12 T'íminn
Laugardagur 24. september 1988
Laugardagur 24. sépfember 1988
Tíminn 13
ÓL-Siglingar:
„Erum að verða
nokkuð sjóaðir í
þessum bransa“
FrálPjetn Sigurðssyni fréttamanni Tímans:
„í kcppninni í gær gekk ukkur
siglingamönnum ágætlega og lcntum
í 15. sæti. í fyrradag gekk okkur hins
vegar ekki nógu vcl og vorum þá í
20. sæti,“ sagði Gunnlaugur Jónas-
son siglingamaður í samtali við Tím-
ann í gær, en hann stendur í ströngu
í siglingakeppninni í Pusam, ásamt
félaga sínum ísleifi Friðrikssyni.
ÓL-Kúluvarp:
Pétur kastaði
kúlunni 19,21 m
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
keppti í grein sinni á Ólympíuleikun-
um í gær og komst ekki í úrslita-
keppnina.
Pétur kastaði 19,21 m í sínu fyrsta
kasti, en gerði næstu tvö köst ógild.
Kast Péturs í 2. umferð var vel yfir
20 ni en Pétur gerði það naumlcga
ógilt. Hann komst því ekki í úrslit
kúluvarpsins, en þar keppa þeir 12
kúluvarparar sem náðu bestum ár-
angri í gær.
Pétur hafnaði því í 14. sæti keppn-
innar. BL
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
ÓL-Áhorfendur:
Ekki trufla
íslensku
leikmennina
Frá I*jelri Sigurrtssyni fréltumanni limuns f
Seoul:
Fagnaðarlæti íslcnskti stuðning-
smannanna hafa vakið mikla at-
hygli, en sumir hafa þó misskilið
tilganginn með þeim.
Pegar lcikur íslands og Alsírs
var nýhatlnn með viðeigandi lúðra-
blæstrí og látum, komu nokkrír
Kóreu-búar að ináli við hópinn og
báðu þá vinsumlegast að hætta
þessum látum. F.kki það að lúðr-
urnir trufluðu þá nokkuð, heldur
voru þeir hræddir um að lætin
myndu trufla leik islenska liðsins
eða jafnvel hvetja alsirska liðið til
dáða og verða þcss valdandi að
islcnska liðið tapaði leiknum. Það
vildu þeir ekki, liöið hcfur greini-
lega unnið hug og hjörtu Kóreu-
búa. PS/BL
„Okkur gekk frekar illa framan af
í gær, en náðum okkur upp og ætli
15. sætið sé ekki nokkurn veginn
okkar staður, samkvæmt bókinni.
Það er erfitt að segja hvar við erum
í heildina, cn flóknar útreikning-
sreglur skera úr um það. Ég giska á
að við séúm í 20. sæti. Við lítum
nokkuð björtum augum fram á við
og við erum að verða nokkuð sjóaðir
í þessum bransa og lausir við taug-
aveiklun. „
Veðurspáin í dag er nokkuð óljós,
spáð er miklum vindi, ef fresta þarf
keppni þá er bara að drífa sig í bæinn
og skoða sig um," sagði Gunnlaugur
og bað fyrir kveðjur heim.
Samkvæmt síðustu fréttum eru
þeir félagar nú í 20. sæti siglinga-
keppninnar. PS/BL
Biondi vann sín fimmtu verðlaun
þegar hann og félagar hans unnu
4X100 metra skriðsund og létu þeir
sig ckki muna um að bæta heimsmet-
ið, syntu þeir á tímanum 3:16,53. í
öðru sæti urðu Sovétmenn og Aust-
ur-Þjóðverjar í því þriðja.
Austur-þýska stúlkan Kristin Otto
sópar að sér verðlaunapeningum og
sigraði glæsilega í 100 metra flug-
sundi. Þegar hún kom að laugar-
bakkanum hafði hún sett nýtt ólymp-
íumet 59,00 sek.
Ogenn falla heimsmetin. Heimsmet
pólska sundkappans Artur Wojdat í
400 metra skriðsundi féll í gær. Nýi
heimsmethafinn Uwe Dassler frá
• Austur-Þýskalandi synti á tímanum
3:46,95 en gamla met Wojdat var
3:47,38 sett 25. mars síðastliðinn í
Orlando. Þess má geta að sá pólski
varð í þriðja sæti og í öðru sæti varð
Ástralíumaðurinn Duncan
Armstrong.
Heimsmethafinn í sjöundaþraut
Jackie Joyner-Kersee hefur forystu
eftir fjórar greinar með 4264 stig en
181 stig skilur hana og austur-þýsku
stúlkuna Sabine John sem hefur
4083 stig.
Maraþonhlaup kvenna fór fram í
gær og tók það sigurvegarann aðeins
tvær klukkustundir 25 mínútur og
39,4 sek. að komast í mark. Sigur-
vegari varð sú knáa portúlgalska
stúlka Rosa Mota. Nokkrum metr-
um síðar kom áströlsk stúlka Lisá
Martin að nafni og í þriðja sæti varð
Katrin Doerre sem á ættir sínar að
rekja til Austur-Þýskalands.
Bandaríkjamenn virðast vera með
sterkasta körfuknattleiksliðið á þess-
um ólympíuleikum sem og áður. f
gær tóku þeir Kínverja í kennslu-
stund og sigruðu 108-57. í hinum
riðlinum sigruðu Sovétmenn Suður-
Kóreumenn 110-73.
í handknattleik kvenna eru línur
farnar að skýrast og eru sovésku,
norsku og júgóslavnesku stúlkurnar
nokkuð í sérflokki. í gær sigruðu
júgóslavnesku stúlkurnar þær kór-
esku 22-19. í b-riðli unnu þær norsku
kínversku stúlkurnar 22-20. Júgosl-
avar eru efstir í a-riðli en sovésku og
norsku stúlkurnar eru jafnar og
efstar í b-riðli.
OL-Sund:
„Góður dagur hjá okkur“
sagöi Guðmundur Haraldsson landsliðsþjálfari í sundi
Frá Pjetri Sigurðssyni fréttamanni Tímans í
Seoul:
„Þetta var góður dagur hjá okkur
fslendingum í dag. Þetta er allt á
uppleið og öll sundin voru vel
útfærð, enda 2 íslandsmet sett í 3
sundum,“ sagði Guðmundur Harð-
arson landsliðsþjálfari í sundi í sam-
tali við fréttamann Tímans.
„Ragnheiður Runólfsdóttir synti
mjög vel og bætti íslandsmet sitt um
34/100 hluta úr sekúndu. Einnig
synti Ragnar mjög vel, nema hvað
þriðji spretturinn var of hægur. Þá
synti Arnþór vel og hann var aðeins
6/10hl.úrsek. frásínum besta tíma.“
„Þetta slæma gengi hingað til er
eflaust bara af óöryggi. Hér eru allar
heimsins stjörnur saman komnar og
krakkarnir hafa einfaldlega misst
einbeitingu í öllum stjörnufansinum,
en nú er allt annað að sjá þá synda
svo greinilegt er að einbeitingin er
komin".
„Það er gott að vera kominn í hóp
þeirra sem bæta sigá þessum leikum.
Eitt hefur komið í ljós á þessum
leikum og það er að það er sama
hvað íþróttamaðurinn heitir, hann
er ekki öruggur um neitt, slík er
keppnin," sagði Guðntundur Harð-
arson. PS/BL
ÓL-Sund:
Ragnheiður Runólfsdóttir setti íslandsmet í 200 m bringusundi í Seoul í gær. .... | Símamynd Pjetur.
ÖL-Sund:
Arnþór í 43. sæti
í 200 m bringusundi
Ragnar setti
íslandsmet
Frá Pjctri SigurAssyni fréttamanni Tímans í Seoul:
„Mér gekk mjög vel þelta var jákvætt sund,
ncnia það vantaði bætinguna,“ sagði Arnþór
Ragnarsson, sem keppti í 200 m bringusundi í
gær. Arnþór varð í 43. sæti af 52 keppendum.
„Þetta var andlega mjög sterkt, afslappað,
kannski vegna þess að þetta var mitt síðasta
sund og það var engin taugaveiklun. Þetta var
mjög erfitt og kláraði mig algerlega. Tíminn
var ágætur 2.27,90 mín. sem er stutt frá mínum
besta tíma, sem er 2.27,32 mín.“
„Það sem spilar ef til vill inní það að ég næ
ekki bætingu hér í Seoul er að í apríl varð ég
fyrir meiðslum í hné og hefur það áhrif,
sérstaklega á undirbúning minn fyrir 200 m
bringusundið." Arnþór sagði að lokum nú tæki
við að hvetja landann og skoða sig um hér í
Seoul. " PS/BL
Frá Pjetri Sigurðssyni fréttamanni Tínians í
Seoul:
Ragnar Guðmundsson setti i gær
nýtt íslandsmet í 400 m skriðsundi á
leikunum hér. Ragnarsynti á 4.05,12
mín. og sló íslandsmet Magnúsar
Ólafssonar í greininni sem var
4.,5,70 mín. Ragnar varð 6. í sínum
riðli og í 37. sæti í heildina af 49
keppendum.
„Þetta var mjög gott sund og ég er
virkilega ánægður. Þetta er góð
vísbending fyrir 1500 m, sem er mín
sterkasta grein og ég stefni á að
synda undir 16 mín. í þeirri grein. I
gær synti ég á 4.05,12 mín. sem er
hálfrar sekúndu bæting."
„Ég var í góðum riðli fyrir mig,
þetta var jafnt í byrjun, síðan vann
ég mig á, en þegar 100 m voru eftir
þá stungu þeir mig af. 1500 m
leggjast vel í mig, það er mín
sterkasta grein og ég hlakka rosalega
til,“ sagði Ragnar Guðmundsson.
PS/BL
ÓL-Sund:
„Ætla að bæta
mig í dag“
- segir Ragnheiður Runólfsdóttir sem setti
íslandsmet í 200 m bringusundi í gær
Frá Pjetri Sigurðssyni fréttamanni límans í
Seoul:
Ragnhciður Runólfsdóttir,
sundkonan snjalla, keppti í gær í
200 m hringusundi á Ólympíu-
lcikunum hér í Seoul. Ragnheiður
setti íslandsmet í greininni, synti
1.13,01 mín. fyrra metið var
1.13,58 mín. og átti hún það sjálf.
Hún varð í 23. sæli kcppninnar af
40 keppcndum.
„Ég átti við cinhvcrja byrjunar-
erfiðleika að striða í sundinu í gær
og er fcgin að þeir eru að baki. Ég
er ánægð með mctiö og að liafa
hætf mig. Eg þjófstartaöi í dag, en
það var bctra, mér fannst gott að
komast aöeins i vatnið. í dag keppi
ég í 400 in fjórsundi cn ég á
Islandsmetið 2,23 mín. og er
ákveðin í aö liæta mig í þeirri grein
líka,“ sagöi Ragnhciöur Runólfs-
dóttir.
ÓL-Seoul:
Bandarískir
ferðamenn
streyma
til Seoul
Frá Pjetri Sigurðs.syni fréttamanni Tímans í Seoul:
Fréttir frá Seoul þess efnis að hér séu
hvorki hryðjuverkamenn né óeirðir, hafa
orðiö þess vahlandi að bandarískir ferða-
menn streyma til Seoul í þúsunda tali til
að fylgjast með Ólympíuleikunum.
Þetta hefur þær afleiðingar í för með
sér að eftirspurn eftir miðum á leikana, á
svarta markaðnum fer ört vaxandi og
verður æ erfiðara að fá miða og á
miðaverð eftir að tvöfaldast eða þrefald-
ast á næstu dögum. PS/BL
ÓL-Leigubílar
Leigu bí Istjórar
með viðskiptavit
Frá Pjetri Sigurdssyni fréttamanni Tímans í Seoul:
Leigubílstjórum í Seoul þykir ekki
tiltökumál að stoppa 2-3 sinnum í hverri
ferð til þess að taka upp fleiri farþega til
viðbótar. Kemur þá upp sú staða að í
bílnum eru jafnvel 3 farþegar hver úr
sinni áttinni og allir borga fullt gjald. Þeir
eru sem sé með viðskiptavitið í lagi
leigubílstjórarnir hér í Seoul. PS/BL
,/i
7
,Pjetur Sigurösson
yfréttamaöur Tímans
skrifar frá Ólympíu-
leikunum í Seoul
HAPPDRÆTTI
4 Ford Bronco - 30 Fiat Uno
Dregið 7. október
Heildarverðmæti vinninga 16,5 millión
fi/tt/r/ mark
Timmermann
sigraði í
kúluvarpi
Kúluvarp. Ulf Timmermann frá A-Þýska-
landi sigraði í kúluvarpi karla, með 22,46 m
kasti í síðustu umferðinni. Þar með setti hann
Ólympíumet, en það féll alls 4 sinnum í
keppninni Rany Barnes frá Bandaríkjunum
varð í öðru sæti með 22,39 m og Svisslending-
urinn Werner Gunther varð í þriðja sæti
kastaði 21,99 m.
Ulf Timmermann
ERSMAMAL
með karamellubragði
- málið sem getur bæði veríð daglegt mál og sparimál