Tíminn - 24.09.1988, Qupperneq 20

Tíminn - 24.09.1988, Qupperneq 20
20 Tíminn llllllllllllllllllllllllllll DAGBÓK Ámað heilla Óskar Guðnason frá Höfn í Hornafirði er 80 ára í dag, laugardaginn 24. sept. Heimili hans er nú að Ljósheimum 22 í Reykjavík. Hafnarfjarðarkirkja Guðsþjónusta kl. 14:00. Organisti Helgi Bragason. Sr. Gunnlaugur Garðarsson Prestafélag Hólastiftis 90 ára Prestafélag hins forna Hólastiftis er 90 ára á þessu ári, en það var stofnað 8. júní 1898 á heimili séra Árna Björnssonar á Sauðárkróki. Afmælishátíð verður haldin á Sauðárkróki nú um helgina. Hátíðin hefst með helgistund í Sauðár- krókskirkju í umsjá sr. Kristjáns Vals Ingólfssonar. Síðan er kvöldverður í Safnaðarheimilinu, sr. Birgir Snæbjörns- son stjórnar kvöldverðinum, en Jóhann Már Jóhannsson syngur einsöng við undirleik Sigurðar Daníelssonar. Afmælisfundurinn verður sunnud. 25. sept. Hann hefst mcð morgunbæn sr. Guðna Þórs Ólafssonarprófasts. Sr. Bolli Gússtavsson flytur erindi, „Úr sögu fé- lagsins", ensr. HjálmarJónssonprófastur flytur erindi er nefnist „Staða prestafé- lagsins í nútíð og framtíð". Þá þiggja afmælisgestir hádegisverðar- boð prófastshjónanna á Sauðárkróki, frú Signýjar Bjarnadóttur og sr. Hjálmars. Hátíðamessa verður í Sauðárkrókskirkju kl. 14.00 á sunnudag. Þar predikar sr. Pálmi Matthíasson. Fyrir altari þjóna biskup íslands Herra Pétur Sigurgeirsson og sr. Sigurður Guðmundsson vígslubisk- up ásamt sr. Döllu Þórðardóttur, sr. Ægi Sigurgeirssyni og sr. Sighvati Karlssyni. Kirkjukór Sauðárkróks syngur undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar organ- ista. Prestafélag Hólastiftis er elstu presta- samtök í landinu. Núverandi stjórn skipa: Sr. Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup á Hólum, formaður, sr. Bolli Gústavsson, sóknarprestur í Laufási, sr. Hjálmar Jóns- son prófastur á Sauðárkróki, sr. Guðni Þór Ólafsson, prófastur á Melstað og sr. Pétur Þórarinsson sóknarprestur á Möðruvöllum. Bústaðasókn Haustferð aldraðra verður farin mið- vikudag28. scpt. n.k. Farið verður austur fyrir fjall og m.a. farið yfir Óseyrarbrú. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 14. Dagmar sýnir í Nýlistasafninu í dag, laugardaginn 24. september kl. 16:00 verður opnuð sýning í Nýlistasafn- inu, Vatnsstíg 3B, á verkum listakonunn- ar Dagmar Rhodius. Dagmar Rhodius er vestur-þýsk mynd- listarkona, sem áður hefur sýnt á íslandi, í Nýlistasafninu 1983. Síðan þá hefur hún komið á hverju sumri og fcrðast um landið. Sýningin núna er einmitt innblásin af náttúru landsins. Listakonana kallar sýninguna í Nýlista- safninu STRAUMLAND, og er hún sett saman af Ijósmyndum, teikningum, ís- lenskum steinum og orðum. Steinar og orð eru e.k. mcgininntak sýningarinnar. Sýningunni fylgir vönduö skrá, sem Goethe-Institut í Múnchen og Reykjavík hefur kostað. Sýning Dagmar Rhodius í Nýlistasafn- inu er opin daglega kl. 16:00-20:00 og stendur hún til 9. októbcr n.k. Sunnudagsferðir Útivistar 25. sept. Kl. 08:00 Þórsmörk-Goðaland. Stans- að við Nauthúsagil á heimleið (1200 kr.) Kl. 10:30 - Gamla þjóðleiðin yfir Mosfcllsheiði. 3. ferðin um þjóðlciðina til Þingvalla, er frestað var frá júní. Gengið frá Miðdal yfir heiðina að Vilborgar- keldu. (900 kr.) Kl. 13:00 Nýi Nesjavallavegurinn - Þingvellir í haustlitum. Fyrst er ekið um nýja veginn á Nesjavelli og þaðan um Grafning á Þingvelli. Þjóðgarðurinn skoðaður í haustlitum. Létt ganga um gjár og fornar slóðir. (900 kr.) Ath. þetta er ekki söguskoðunar- ferð.Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Sími/ símsvari: 14606. Frítt fyrir börn með fullorðnum. Mánudagskvðldferð Útivistar Mánud. 26. sept. kl. 20:00: Tunglskins- ferð í Viðey. Brottför frá Kornhlöðunni Sundahöfn. Fyrst verður nýuppgerð Við- eyjarstofa skoðuð ásamt kirkjunni undir leiðsögn staðarhaldara, en síðan er létt ganga um eyjuna. Fjörubál. (400 kr.) Frítt fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd fullorðinna. Árbæjarsafn Árbæjarsafn er aðeins opið um helgar í septembermánuði. Opnunartfmi er kl. 10:00-18:00 Félag eldri borgara í Tónabæ Opið hús í Tónabæ í dag, laugardaginn 24. sept. frá kl. 13:30. Kl. 14:00 er frjáls spilamennska. Kl. 20:00 Dans. Á mánudag: Opið hús í Tónabæ mánudaginn 26. sept. frá kl. 13:30. Félagsvist hefst kl. 14:00. Félag eldri borgara í Goðheimum Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, er á morgun, sunnudag 25. sept. kl. 14:00. Frjálst spil og tafl. Kl. 20:00- Dans til kl. 23:30. lOOOáraafmæli kristnitöku i Rússlandi Sunnud. 25. sept. kl. 16:00 segir sr. Rögnvaldur Finnbogason, sóknarprestur á Staðastað, frá hátíðahöldum þcim, sem fram fóru í Sovétríkjunum í sumar í tilefni 1000 ára afmælis kristnitöku í Rússlandi. Fyrirlesturinn verður haldinn í bíósal MÍR, Menningartengsla fslands og Ráðstjórnarríkjanna, Vatnsstíg 10. Rögnvaldur Finnbogason var boðsgest- ur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar við hátíðahöldin, ásamt biskupi fslands, hr. Pétri Sigurgeirssyni og konu hans Sól- veigu Ásgeirsdóttur. Sr. Rögnvaldur mun einnig segja frá ferð að Jasnaja Poljana, ættarsetri skáldjöfursins Tolstojs, en um þessar mundir er þess minnst að 160 ár eru liðin frá fæðingu Tolstojs. Sýning á nokkrum eftirprentunum helgimynda og Ijósmyndum, sem tengdar eru starfi kristinnar kirkju og trúfélaga í Sovétríkjunum er nú í sýningarsal MIR, Vatnsstíg 10 og verður opnuð kl. 15:00 á sunnudag. og er síðan opin næstu vikur á mánudögum, miðvikudögum og föstu- dögum. kl. 17:00-18:30. Aðgangur að sýningunni og fyrirlestri sr. Rögnvaldar er öllum heimill. Að loknum fyrirlestrinum mun verða byrjað að afgreiða aðgöngumiða að kvik- myndasýningunni „Stríð og friður“, sem sýnd verður 1. okt. Björn Gunnlaugsson. 200 ár frá fæðingu Björns Gunnlaugssonar: Vísindafélag íslendinga heldur fund í Norræna húsinu Vísindafélag fslendinga - Societas Sci- entiarum Islandica - boðar til almenns fundar í Norræna húsinu sunnudaginn 25. sept. til að minnast þess, að þann dag cru liðin 200 ár frá fæðingu Björns Gunn- laugssonar stærðfræðings og landmæl- ingamanns. Á fundinum, sem hefst kl. 14:00, verða fluttir fimm fyrirlestrar um ævi Björns og störf. Dagskrá: Kl. 14:00-15:15: Bergsteinn Jónsson: Ævi og störf Björns Gunnlaugs- sonar, Ottó Björnsson: Tölvísi Björns Gunnlaugssonar, Gunnar Harðarson: Njóla og íslensk heimspeki. Kl. 15:15-15:45. Kaffihlé. Kl. 15:45-17:00: Haraldur Sigurðsson: íslandskort Björns Gunnlaugssonar, Ág- úst Guðmundsson: Landmælingar og kortagerð Björns Gunnlaugssonar. Fundarstjóri verður Magnús Magnús- son prófessor. Bridgefélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 19. september sl. hófst vetrarstarf félagsins með eins kvölds tví- menningi. 16 pör sk.«iðu sig til leiks og voru spiluð 30 spil. Úrslit urðu þcssi: 1. Björn - Guðlaugur 268 2. Njáll - Marinó 238 3. Ólafur - Sverrir 231 4. Árni - Guðjón 229 5.-6. Andrés - Stígur 227 5.-6. Magnús - Höröur 227 Meðalskor 210 Næsta mánudagskvöld verður aftur spilaður eins kvölds tvímenningur, en þar á eftir verður spilaður tveggja kvölda Mitchetvímenningur. Spilað er sem fyrr í íþróttahúsinu við Strandgötu (uppi) og hefst spilamennskan kl. 19:30. Louis Andriessen. Hollensk-kanadísk vika hjá MUSICA N0VA Hollenska tónskáldið Louis Andries- sen og kanadíski sellóleikarinn Frances- Marie Uitti verða gestir Musica Nova og Tónlistarskólans í Reykjavík dagana 25. sept. til 1. október. Haldnirverða tvennir tónleikar og tveir fyrirlestrar. Sunnudaginn 25. sept. ki. 20:30 verða haldnir tónleikar með verkum eftir Louis Andriessen í Norræna húsinu. Flytjendur verða Frances-Marie Uitti, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Hlíf Sigurjónsdóttir, Maarten van der Valk, Þóra Fríða Sæ- mundsdóttir, Örn Magnússon og Þóra Kristín Johansen, sem kemur sérstaklega frá Hollandi til að taka þátt í þessum tónleikum. Frances-Marie Uitti verður með ein- leikstónleika í Norræna húsinu þriðjudag- inn 27. sept. kl. 20:30, þar sem hún mun leika verk fyrir einleiksselló. Eingöngu verða á dagskrá ný verk eftir þau Jona- than Harvey, Áskel Másson, Per Nor- gaard, Krzystof Penderecki, Giacinto Scelsi, Salvatore Sciannino, Iannis Xena- kis og Frances-Marie Uitti sjálfa. Tveir fyrirlestrar verða haldnir á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík í „Stekk“, húsnæði skólans að Laugavegi 178, 4. hæð. Mánudaginn26. septemberkl. 17:00 mun Francees-Marie Uitti halda fyrirlest- ur um nýja tónlist og nýjar hugmyndir í sellótækni ásamt sýnikennslu. Miðviku- daginn 26. sept. kl. 17:00 mun svo Louis Andriessen halda fyrirlestur um tónsmíð- ar sínar á sama stað. Aðgangur að fyrirlestrunum er ókeypis og öllum heim- ill. Háskólaerindi um umhverfismál í verkfræðideild Háskóla íslands verða á næstu vikum flutt lOerindi um umhverf- ismál. Til þeirra er stofnað fyrir nemcnd- ur í deildinni, en aðgangureröllum frjáls, eins þeim, sem ekki eru nemendur í háskólanum. Umsjón hefur Einar B. Pálsson, prófessor og veitir hann upplýs- ingar. Erindin verða flutt á mánudögum kl. 17:15 i stofu 158 í húsi verkfræðideildar, Hjarðarhaga 6. Mánudaginn 26. september: Unnsteinn Stefánsson, prófessor í haffræði: Sjórinn sem umhverfi. 3. október: Gísli Már Gíslason, próf- essor í líffræði: Ýmis undirstöðuatriði í vistfræði. 10. október: Ólafur K. Pálsson, fiski- fræðingur, Hafrannsóknastofnun: Auð- lindir sjávar og nýting þeirra. 17. október: Ingvi Þorsteinsson MS, Rannsóknastofnun landbúnaðarins: Eyð- ing gróðurs og endurheimt landgæða. 24. október: ArnþórGarðarsson, próf- essor í líffræði: Rannsóknir á röskun lífríkis. 31. október: Þorleifur Einarsson, próf- essor í jarðfræði: Jarðrask við mann- virkjagerð. 7. nóvember: Jakoh Björnsson, verk- fræðingur, orkumálastjóri: Orkumál og umhverfi. 14. nóvember: Vilhjálmur Lúðvíksson, verkfræðingur, framkvæmdastjóri Rann- sóknaráðs ríkisins: Verkfræðiíegar áætl- anir og valkostir. 21. nóvember: Eyþór Einarsson. grasa- fræðingur, formaður Náttúruverndar- ráðs: Náttúruvernd í framkvæmd. 28. nóvember: Einar B. Pálsson, verk- fræðingur: Matsatriði, m.a. náttúrufeg- urð. Fundarsamþykkt Sjómannafélags Reykjavíkur Fundur í stjóm og trúnaðarmannaráði Sjómannafélags Reykjavíkur haldinn 21. sept. 1988 tekur ekki afstöðu til þeirra deilna sem upp hafa risið vegna söluand- virðis hlutabréfa Reykjavíkurborgar í Granda h.f. Fundurinn fagnar áframhaldandi út- gerð og rekstri Granda h.f. Einnig þeim áhuga sem fram hefur komið hjá forsvars- manni nýrra hluthafa í viðræðum við fulltrúa Sjómannafélags Reykjavíkur um frekari eflingu fyrirtækisins hér í Reykja- vík. Laugardagur 24. september 1988 ÚTVARP/SJÓNVARP Laugardagur 24. september 6.45 Veðurtregnir. Bæn, séra Solveig Lára Guð- mundsdóttir flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur“. Pétur Pétursson sér um þáttinn. Fréttir sagðar kl. 8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum heldur Pétur Pétursson áfram að kynna morgunlögin. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.05 Litli barnatíminn. „Alis í Undralandi" eftir Lewis Carroll í þýðingu Ingunnar E. Thorarens- en. Þorsteinn Thorarensen les (12). (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Sígildir morguntónar. a. Divertimento í B-dúr K. 270 fyrir tvö óbó, tvö horn og tvö fagott eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Félagar úr Orpheus kammersveitinni leika. b. „Fantasie- Impromptu" í sís-moll op. 66 og „Mínútuvals- inn“, vals i Des-dúr op. 64 nr. 1 eftir Friedrich Chopin. Arthur Rubinstein leikur á píanó. c. Adagio og allegro í As-dúr op. 70 eftir Robert Schumann. Heinz Holliger leikur á óbó og Alfred Brendel á píanó. d. Fyrsti þáttur úr konsert fyrir flautu og hljómsveit nr. 1 í G-dúr KV 313 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Wolfgang Schulz leikur á flautu með Mozarteum hljómsveitinni í Salzburg; Leopold Hager stjórnar. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir 10.25 Ég fer í fríið. Umsjón: Pálmi Matthíasson. (Frá Akureyri) 11.00 Tilkynningar. 11.05 Vikulok. Fréttayfirlit vikunnar, hlustenda- þjónusta, viðtal dagsins og kynning á dagskrá Útvarpsins um helgina. Umsjón: Sigrún Björns- dóttir. 12.00 Tilkynningar. Dagskrá. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. 13.10 í sumarlandinu með Hafsteini Hafliðasyni. (Einnig útvarpað nk. miðvikudag kl. 15.03). 14.00 Tilkynningar. 14.05 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir og 16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.30 Leikrit: „Lokaðar dyr“ eftir Jean-Paul Sartre. Þýðandi: Þórunn Magnea Magnúsdóttir. Útvarpsgerð og leikstjórn: María Kristjánsdóttir. Leikendur: Arnar Jónsson, Guðrún Gísladóttir, Edda Heiðrún Backman og Ámi Tryggvason. (Einnig útvarpað nk. þriðjudagskvöld kl. 22.30). 18.00 Sagan: „Útigangsbörn" eftir Dagmar Galin. Salóme Kristinsdóttir þýddi. Sigrún Sig- urðardóttir lýkur lestrinum (8). Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar. 19.35 Óskin. Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar. (Einnig útvarpað á mánudagsmorgun kl. 10.30) 20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinnfrá morgni). 20.15 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Sigurður Al- fonsson. 20.45 Af drekaslóðum. Úr Austfirðingafjórðungi. Umsjón: Ingibjörg Hallgrímsdóttir. (Einnig út- varpað nk. föstudag kl. 15.03). 21.30 íslenskir einsöngvarar syngja atriði úr óperum. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Skemmtanalíf - „Meinilla við töluna 13“. Ásta R. Jóhannesdóttir ræðir við tónlistarmenn- ina Gísla Helgason og Herdísi Hallvarðsdóttur. 23.10 Danslög. 24.00 Fréttir. 00.10 Um lágnættið. Jón öm Marinósson kynnir sígilda tónlist. 01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. 02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri og flugsamgöngum kl. 4.55 og 6.15. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 4.00 Ólympiuleikarnir í Seúl - Handknattleik- ur. Lýst leik Islendinga og Svía. 5.15 Vökulögin, framhald. 8.10 Á nýjum degi með Erlu B. Skúladóttur sem leikur létt lög fyrir árrisula hlustendur, lítur í blöðin og fleira. Pistill frá Ólympíuleikunum í Seúl kl. 8.30. 10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson tekur á móti gestum í morgunkaffi, leikur tónlist og kynnir dagskrá Ríkisútvarpsins. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Á réttri rás með Halldóri Halldórssyni. 14.00 Tekið á rás. Fylgst með síðustu leikjum sumarsins á íslandsmótinu í knattspymu, í 1. og 2. deild. 16.05 Laugardagspósturinn. Umsjón: Rósa Guðný Þórsdóttir. 17.00 Lög og létt hjal - Svavar Gests. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi. 22.07 Út á lífið. Skúli Helgason ber kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög. 02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 12.20,16.00,19.00, 22.00 og 24.00. SJÓNVARPIÐ Laugardagur 24. september 08.15 Ólympíusyrpa - Handknattleikur. ísland - Svíþjóð. 09.45 Hlé. 16.00 íþróttir. Umsjón Jón Óskar Sólnes. 17.00 Olympíusyrpa. M.a. sýndur leikur islands og Svíþjóðar í handknattleik. 18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir. 19.00 Mofli - síðasti pokabjörninn. (Mofli El Ultimo Koala) Spænskur teiknimyndaflokkur fyrir börn. Leikraddir Arnar Jónsson og Anna Kristín Arngrímsdóttir. Þýðandi Steinar V. Árna- son. 19.25 Barnabrek. Umsjón Ásdís Eva Hannesdótt- ir. 19.50 Dagskrárkynning 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Lottó. 20.35 Já, forsætisráðherra. (Yes, Prime Minister). Nýr flokkur - Fyrsti þáttur. Breskur gaman- myndaflokkur í átta þáttum, framhald fyrri þátta um stjórnmálaferil Jim Hackers forsætisráð- herra og aðstoðarmenn hans, þá Sir Humphrey Appleby og Bernard Woolley. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 21.00 Maður vikunnar. 21.15 Rooster Cogburn. (Rooster Cogbum). Bandariskur vestri frá 1975. Leikstjóri Stuart Millar. Aðalhlutverk John Wayne og Katharine Hepburn. Þegar miklu magni af sprengiefni er stolið er hörkutólinu Cogburn falið að veita þjófunum eftirför. í för með honum slæst kona sem hefur harma að hefna þar sem sömu menn myrtu föður hennar. Þýðandi Jón O. Edwald. 23.05 Ólympíusyrpa. Ýmsar greinar. 00.20 Útvarpsfréttir. 00.30 Ólympíuleikarnir '88 - Bein útsending. Frjálsar íþróttir, fimleikar, dýfingar og sund. 06.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Laugardagur 24. september 08.00 Kum, Kum. Teiknimynd. Þýðandi: Sigrún Þorvarðardóttir. 08.25 Einherjinn.Lone Ranger. Teiknimynd. Þýð- andi: Hersteinn Pálsson. Filmation. 08.50 Kaspar. Teiknimynd. Þýðandi: Guðjón Guðmundsson. Worldvision._____________________ 09.00 Með Afa. Meðal efnis í þættinum hans Afa í dag erteiknimyndaröðin Óskaskógur. í hverjum þætti af Óskaskógi fær bam sem á við óham- ingju og vanda að stríða tækifærí til þess að ferðast inn í Óskaskóg þar sem það fær ósk sína uppfyllta. Óskaskógur er með íslensku tali eins og allar myndir sem afi sýnir. Aðrar myndir í þættinum eru Lafði Lokkaprúð, Jakari, Depill, Emma litla, Selurinn Snorri og fræðsluþáttaröð- in Gagn og Gaman. Leikraddir: Guðmundur Ólafsson, Guðný Ragnarsdóttir, Guðrún Þórð- ardóttir, Júlíus Brjánsson, Kolbrún Sveinsdóttir, Pálmi Gestsson og Saga Jónsdóttir. 10.30 Penelópa punturós. The Perils of Penelope Pitstop. Teiknimynd. Þýðandi: Alfreð S. Böðv- arsson. Worldvision. 10.55 Þrumukettir. Thundercats. Teiknimynd. Þýðandi: Ágústa Axelsdóttir. Lorimar. 11.20 Ferdinand fljúgandi. Leikin barnamynd um tíu ára gamlan dreng sem getur flogið. Þýðandi: Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir. WDR. 12.05 Laugardagsfár. Tónlistarþáttur. 12.50 Viðskiptaheimurinn. Wall Street Joumal 13.15 Sofið út. Do not Disturb. Gamanmynd um eiginkonu sölumanns á faraldsfæti sem leiðist einveran og bregður á það ráð að gera eigin- manninn afbrýðisaman til að vekja athygli hans. 14.55 Ættarveldið. Dynasty. 15.45 Ruby Wax. Breskur spjallþáttur þar sem bandaríska gamanleikkonan og rithöfundurinn Ruby Wax tekur á móti gestum. Umræðuefnin eru hversdagsleg mál eins og kynlífið, dauðinn og peningar og gestimir úr ýmsum stéttum og atvinnuhópum þjóðfélagsins. Channel 4/NBD. 16.20 Listamannaskálinn. The South Bank Show. Saga Boogie-Woogie. Umsjónarmaöur er Melvyn Bragg. Þýðandi: Örnólfur Árnason. LWT. 17.15 Torfærukeppnin. Umsjón: Birgir Þór Braga- son. 17.45 Snóker. Snillingurinn Stephen Hendry kepp- ir við nokkra af okkar bestu mönnum. Umsjón: Birair Þór Bragason. 18.05 Iþróttir á laugardegi. Heimir Karlsson í beinni útsendingu. Fréttir af lokaumferðinni í SL-deildinni og sýnt frá Kraft '88 þar sem Bill Kazmeyer, Jón Páll og Hjalti Úrsus og fleiri jötnar taka á honum stóra sínum. Umsjón: Heimir Karlsson og Birgir Þór Bragason. 19.19 19.19 Fróttir og fréttatengt efni ásamt veður- og íþróttafréttum. 20.30 Verðir laganna. Hill Street Blues. Spennu- þættir um líf og störf á lögreglustöð í Bandaríkj- unum. Aðalhlutverk: Michael Conrad, Daniel Travanti og Veronica Hamel. NBC. 21.25 Séstvallagata 20. All at No 20. Viö hittum aftur ekkjuna ráðagóðu og leigjendur hennar í þessum vinsæla breska gamanmyndaflokki. Aðalhlutverk: Maureen Lipman. Þýðandi: Guð- mundur Þorsteinsson. Thames Television 1987. 21.50 Lagarefir. Legal Eagles. Þau Robert Red- ford og Debra Winger fara með aðalhlutverkin í þessari margbrotnu, gamansömu spennumynd og glíma við svik, pretti og morð. Það var leikstjórinn Ivan Reitman sem valdi Robert í hlutverk harðjaxlsins og aðstoðarsaksóknar- ans, sem dansar steppdans til að vinna bug á svefnleysi og Debru í hlutverk hugmyndaríka verjandans, sem meðal annars kallar á hund í vitnaleiðslu. Eftir margra ára karp í dómsölunum standa þau dag einn frammi fyrir því að vera á sama máli þegar verja þarf mál léttgeggjaðrar listakonu, sem leikin er af Daryl Hannah. Ekki við hæfi barna. 23.45 Saga rokksins. The Story of Rock and Roll. Áhrif rokksins á stjórnmál og sögu verða kynnt í þessum þætti. Meðal þeirra sem koma fram eru Bob Dylan, Peter, Paul and Mary, The Byrds, Simon and Garfunkel, John Lennon og aðstandendur hljómplötunnar „We are the World“. Þýðandi: Björgvin Þórisson. LBS. 00.10 Eftirförin.Trackdown. Unglingsstúlka hleyp- ur á brott frá heimili sínu og fer til Los Angeles þar sem hún flækist í miður góðan félagsskap. Bróðir hennar hyggst hafa upp á henni og neytir allra bragða til þess. Hörkuspennandi mynd. Aðalhlutverk: Jim Mitchum, Karen Lamm, Ann Archer, Erik Estrada og Cathy Lee Crosby. Leikstjóri: Richard T. Heffron. Framleiðandi: Bernard Schwarz. United Artists 1976. Sýning- artími 100 mín. Ekki við hæfi barna. 01.50 Saga hermanns. A Soldier's Story. Spennu- mynd sem fjallar á áhrifamikinn hátt um kynþátt- ahatur meðal sverlingja í Bandaríkjunum. Aðal- hlutverk: Howard E. Rollins Jr., Adolph Caesar, Dennis Lipscomb og Art Evans. Leikstjóri: Norman Jewison. Þýðandi: Ingunn Ingólfsdóttir. Columbia Pictures 1983. Sýningartími 95 mín. Ekki ætluð börnum. 03.30 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.