Tíminn - 30.09.1988, Síða 5

Tíminn - 30.09.1988, Síða 5
Föstudagur 30. septerhber 1988 Tíminn 5 Steingrímur Hermannsson og Ólafur Ragnar Grímsson um skattlagningu fjármagnstekna: Sparifé almennings á ekki að skattleggia deild“ eins það var nefnt í leiðara Morgunblaðsins í gær. Stærsti spari- fjáreigandinn... „Morgunblaðið gleymir því að fsland er eitt af fáum löndum í Evrópu sem gert hefur stóreigna- mönnum mögulegt að hafa margar milljónir í skattfrjálsar vaxtatekj- ur. Slíkar tekjur eru m.a. skatt- lagðar á hinum Norðurlöndunum. í Bandaríkjunum þykir eðlilegt að stóreignamenn og stórgróðaöfl greiði til sameiginlegra sjóða þjóð- félagsins af vaxtatekjum eins og hverjum öðrum tekjum", sagði Ólafur. Hann benti m.a. á að íslenskir aðalverktakar væru stærstu sparifjáreigendur á íslandi. Nánari útfærðar reglur á þessum nýja skatti liggja enn ekki fyrir. En að sögn Ólafs Ragnars er hug- myndin að leiða í lög hliðstæða skipan eins og t.d. á hinum Norður- löndunum og í Bandaríkjunum. Þetta hafi verið til umræðu í mörg ár. Ástæðu þess að það hafi ekki komist til framkvæmda fyrr kvað Ólafur þá, að Sjálfstæðisflokkur- inn vilji skapa peningum forrétt- indi fram yfir vinnuna. „Það er athyglivert að þegar ákveðið er að innleiða siðaðra manna reglur í þessu efni hér á landi, þá brjálast Sjálfstæðisflokk- urinn og Morgunblaðið. Það segir stóra sögu um afturhaldssemi þess- ara manna“, sagði Ólafur Ragnar. „Það er líka sérkennilegt að sjá Gunnar Helga Hálfdánarson, for- stjóra stærsta verðbréfafyrirtækis landsins birtast sem formaður í félagi sparifjáreigenda, í nafni Jóns Jónssonar í Vesturbænum.“ Mest hætta ef ótti ervakinn upp Már Guðmundsson, hagfræðing- ur í Seðlabankanum, er einn þeirra sem nýlega fjölluðu um skattlagn- Forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson. ingu á fjármagnstekjur, m.a. hér í blaðinu. Aðspurður sagðist hann telja það heldur ólíklegt að skatt- lagning fjármagnstekna ein sér hefði í för með sér samdrátt í sparnaði þjóðarbúsins, sparnaður í einkageiranum gæti að vísu eitthvað dregist saman, en skattur- inn myndi auka framlag hins opin- bera til þjóðhagslegs sparnaðar sem skattinum nemur. „Reynsla undanfarinna ára bendir ekki til þess að sparnaður sé það næmur fyrir vöxtum að fyrri áhrifin verði meiri en þau seinni. Fólk myndi etir sem áður halda eftir meiri hluta raunvaxtanna," sagði Már. Megin hættuna sagði Már hins vegar þá að einhver óskynsamleg hræðsla kynni að hlaupa í sparend- ur. Því þyrftu þeir sem vilja stuðla að sparnaði í þjóðfélaginu, t.d. forsvarsmenn peningastofnana, ekki hvað síst að gæta þess að kynna málið með þeim hætti að fólk sem áhuga hefur á að spara fældist ekki frá sparnaði vegna misskilnings. -HEl Sitt sýnist hverjum, að því er virðist, um hugmyndina um skattlagningu fjármagnstekna. Forstjóri Fjárfestingarfé- lagsins og fleiri segja hættu á að slík skattlagning muni draga úr sparnaði. Hagfræðingur í Seðlabankanum telur þá hættu miklu fremur felast í því að vakin yrði upp hræðslu vegna slíkrar skattlagningar, sem tíðkist í flestum löndum hins vestræna heims. Fjármálaráðherra segir aldrei hafa staðið til að gera vexti af einhverjum smáupphæðum sem venjulegum launþegum hafi tekist að safna í bankabók að skattstofni. Forsætisráðherra telur óréttlátt að skattleggja allan arð af vinnu verkamannsins fremur en arð af peningunum. Forsætisráðherra: Óréttlátt að skattleggja vinnutekjur fremur en vaxtatekjur í viðtali við forsætisráðherra, Steingrím Hermannsson, sagðist hann vilja leggja áherslu á að það væri ekki ætlunin að skattleggja sparifé almennings. „Þetta er áróð- ur sem er stórhættulegur. Mér finnst hins vegar óréttlátt að skatt- leggja allan afrakstur af vinnu verkamannsins en ekki arðinn af fjármagninu. Hvers vegna á fjár- magnið að njóta sérréttinda?“ Steingrímur benti á að t.d. í Bandaríkjunum eru tekjur af vinnu og tekjur að fjármagni skattlagðar með nákvæmlega sama hætti. Svip- að eigi við um Norðurlöndin að íslandi undanskildu. Nákvæmlega hvernig þessari skattlagningu verður háttað sagði Steingrímur ekki hafa verið útfært ennþá. Hvort um einhvers konar skattleysismörk yrði að ræða eða að einhver ákveðin sparnaðar- form, t.d. bundnir reikningar, yrðu skattfrjáls. Þessar eða aðrar leiðir eigi eftir að skoða betur. Fjármálaráðherra: Ákveðin mörk „Það er mikill misskilningur að það standi til að skattleggja al- mennan sparnað venjulegs fólks - fólks sem á kannski einhver hundr- uð þús. krónur í bankanum. Það er fyrst og fremst um að ræða skatt- lagningu á þá sem skapað hafa sér milljónagróða með skattfrjálsum fjármagnstekjum. Þarna verða sett ákveðin mörk,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráð- herra í samtali við Tímann, er hann var spurður hvað fælist í hugmyndum um skattlagningu vaxtatekna, eða „refsiskatt á ráð- Fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson. Timamyndir: Ámi Bjama „Ætti að verðlauna sparifjáreigendur" Starfsemi Samtaka sparifjáreig- enda á íslandi, sem stofnuð voru nú í vikunni, mun hefjast með almenn- um borgarafundi á Hótel íslandi n.k. laugardag (1. október). Þar gefst öllum sem hug hafa á kostur á að skrá sig í samtökin. Að sögn stjómarformanns, Gunn- ars Helga Hálfdánarsonar, var að- eins nokkurra daga aðdragandi að stofnun samtakanna. Ástæða þess að þau eru stofnuð séu þær yfirlýs- ingar sem stjórnmálamenn hafi verið svo ósparir á að undanförnu um aðgerðir sem margar hverjar hafi beinst gegn hagsmunum sparifjár- eigenda, s.s. á sviði skatta- og vaxta- mála. Talsmenn samtakanna telja tíma til kominn að sparifjáreigendur verði virkari en áður. Þeir hafi fulla ástæðu til að vera stoltir af framlagi sínu til þjóðarbúsins, nú þegar eyðsla og erlend skuldasöfnun sé verulegt áhyggjuefni. Við núverandi aðstæð- ur ætti að verðlauna sparifjáreigend- ur en ekki refsa þeim. Þeir benda jafnframt á að spari- Gunnar Helgi Hálfdánarson. fjáreigendur f landinu skipti tugum þúsunda. í þeirra hópi séu t.d. eldra fólk, lífeyrisþegar, unglingar og böm sem og allir þeir sem séu að reyna að koma sér upp sjóði, til öryggis eða annarra nota síðar. - HEI Jafnréttisáætlun til fjögurra ára Félagsmálaráðuneytið hefur far- ið þess á leit við ráðuneytin að jafnréttisáætlanir verði gerðar fyrir næstu fjögur árin á vegum ráðu- neyta, stofnana og ríkisfyrirtækja. Þetta er í samræmi við tillögu félagsmálaráðherra scm samþykkt vará ríkisstjórnarfundi 26. maí sl. Tillagan felur í sér að ráðuneytin og ríkisstofnanir geri hvert fyrir sig jafnréttisáætlun fyrir tímabilið 1. janúar 1989 til 31. desember 1992, þar sem fram komi, í fyrsta lagi, hvernig staðan er nú innan ráðu- neytis eða stofnunar. f öðru lagi að ráðuneyti, fyrirtæki og stofnanir setji sér markmið í jafnréttismál- um, sem stefnt verði að að náist á tilsettum tíma, s.s. hvað varðar stöðuveitingar, launamál, starfs- auglýsingar, námskeið og tilnefn- ingar í nefndir, stjórnir og ráð. Félagsmálaráðúneytið hefur kynnt málið á fundi með forstöðumönn- um ráðuneyta og ríkisstofnana, jafnframt sem haldinn var kynning- arfundur með sveitarstjórnum. í samræmi við ofangreinda sam- þykkt hefur félagsmálaráðuneytið gert áætlun unt jafnréttismál fyrir tímabilið. Þar kemur m.a. fram að í dag vinni auk ráðherra og aðstoð- armanns, 12 konur og 5 karlar hjá ráðuneytinu. í stjórnunarstöðum er svipaður fjöldi af báðum kynjum, feú í almennum skrifstofu- störfum eru eingöngu konur. í nefndum óg^starfshópum á vegum ráðuneytisins um sveitarstjórnar- mál eru 32^ karlar og 9 konur. í ncfndum og starfshópum um hús- næðismál eru 23 karlar og 10 konur og í nefndum, ríðum og stjórnum varðandi vinnumarkaðsmál eru 25 karlar og 4 konur. Um málefni fatlaðra fjalla 21 karl og 13 konur og um jafnréttismál fjallar 1 fasta- nefnd og 2 aðrar nefndir. í þeim sitja 14 konur og 1 karl. Markmið ráðuneytisins er að jafna hlutfall kynja í hinum ýmsu störfum innan ráðuneytisins, auka hlut kvenna í nefndum þess og jafna hlutfall kynja í stofnunum ráðuneytisins. Um almenn mark- mið segir í áætlun ráðuneytisins að vinnutími taki mið af því, að margir starfsmenn cru með börn undir eða á skólaaldri og sveigjan- legri vinnutími sé forsenda þess að foreldrar geti bæði sinnt börnum sínuni og stundað launað starf utan hcimilis. Þá er cinnig stefnt að því að fyllsta jafnræðis verði gætt milli karla og kvenna varðandi allar hlunnindagreiðslur, yfirvinnu og afnot af bifreiðum. - ABO

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.