Tíminn - 30.09.1988, Síða 7
Föstudagur 30. september 1988
Tíminn 7
Samtök tölvubæja, TCI, kynna merkilega hugmynd á íslandi
í samvinnu við Upplýsingadeild H.Í.:
Tölvuþorp og
byggðaþóunin
í smábænum Vemdalen í Svíþjóð
hefur tekist í fyrsta skipti í þrjátíu ár
að koma í veg fyrir fólksfækkun og
flótta ungs fólks til stórborga. Hefur
þetta tekist með því að koma á fót
starfsemi sem byggist á því að kenna
íbúum á tölvur og að hagnýta sér
ritvinnslu og gagnavinnslu til ýmissa
aðsendra verkefna frá ýmsum stofn-
unum. Það var árið 1985 að opinber-
ir aðilar veittu styrki til verksins er
nam einni milljón sænskra króna.
Fyrir þetta fé var hægt að koma á fót
tölvu- og samskiptamiðstöð og vinna
þar núna sjö manns og er markmiðið
að veita sem flestum vinnu og að
framtakið standi undir sér að öllu
leyti. Alls hafa sprottið upp um 30
slíkar miðstöðvar víða um Norður-
lönd og er stöðin í Vemdalen fyrir-
mynd þeirra. Framkvæmdastjórinn,
Karen Blach, var stödd hér á landi í
vikunni og kynnti fyrirbærið í
Norræna húsinu. Með henni var
Henning Albrechtsen, formaður
norðurlandasamtaka slíkra tölvu-
þorpa og einnig formaður alþjóðas-
amtakanna, Tele-Cottage Inter-
national.
Karen lýsti þessari þróun þannig
að starfsemi þessara tölvumiðstöðva
væri rekin áfram af eigin tekjum að
öllu leyti, en stofnframlag í hverju
landi hefur yfirleitt verið frá opin-
berum aðilum, byggðasjóðum, sveit-
arfélögunum sjálfum, verkalýðsfé-
lögum og póst- og símamálastofnun-
um. í flestum tilfellum er einnig um
að ræða nokkra stuðningsaðila sem
eru í flestum tilfellum nálægir há-
skólar.
Hér á landi hefur þessi hugmynd
ekki verið kynnt mikið en þó eru
innlendir tengiliðir búnir að vera í
sambandi við þau Henning og Karen
sem fara víða um lönd og kynna
tölvuþorpin. Meðal þeirra eru Jón
Erlendsson hjá upplýsingaþjónustu
Háskóla íslands og Ólafur Valdi-
marsson, ráðuneytisstjóri í sam-
gönguráðuneytinu, auk aðila hjá
Pósti og síma.
I tölvuþorpinu í Vemdalen er
unnið að ýmsum verkefnum og nægir
að nefna skýrslugerðir og gagna-
vinnslu fyrir opinberar stofnanir og
sænska herinn. Starfsmenn tölvu-
miðstöðvarinnar vinna að mestu við
að viðhalda samböndum og útvega
ný og ný verkefni en einnig er starf
þeirra að verulegu leyti fólgið í
kennslu fyrir áhugasama íbúana.
Tölvumiðstöðin þar er opin milli níu
á morgnana og til tíu á kvöldin til að
einstaklingar geti unnið að verkefn-
um sínum. Hafa sótt í miðstöðina
íbúar allt frá þriggja ára og upp í
sjötugt.
„í fyrstu höfðu yngri íbúarnir
mestan áhuga á leikjum og skemmt-
un við tölvurnar,'" sagði Karen, „en
núna eru til einkatölvur á 35 heimil-
um í þessum 800 manna bæ og þar
er unnið að raunverulegum verkefn-
um sem hægt er að vinna fjarri
viðkomandi stofnunum. Sparnaður
viðskiptavinanna er mikill þar sem
þeir geta notað þjónustu tölvuþorp-
anna á álagstímum í fyrirtæki sínu
og komið verkefnum á milli með
aðstoð telefax og á beinum línum.
Þannig losna viðskiptavinirnir við að
ráða starfsmenn en nota n.k. verk-
taka til smærri og stærri verkefna.
Þeir sem nú eru mest áberandi í
starfi þessu eru ungar konur, sem
áður fluttu í burtu vegna fárra at-
vinnutækifæra áður. Við Vemdalen
var lítið annað að vinna að en
skógarhögg og jarðvinna og það
Kynningarmynd úr nýjasta tímariti Samtaka tölvuþorpa (TCI).Dæmigert
norrænt tölvuþorp.
hefur til þessa ekki heillað til sín
ungar stúlkur til framtíðarstarfa. Er
ekki að efa að sveitarstjórnir víða á
íslandi standa frammi fyrir svipuð-
um aðstæðum þar sem karlmenn eru
í meirihluta trillueigenda og ungt
fólk flytur í burtu til náms og frama,
en þó einkum ungar stúlkur. Því
hefur þegar verið farið að tala um,
að sögn Karenar Bach, að stofnuð
verði íslands-, Færeyja- og Græn-
landsdeild í TCl, enda áhugi mikill
í Færeyjum þar sem þessi hugmynd
hefur nýlega verið kynnt. í Evrópu
er þegar farið af stað með þessa
hugmynd í Bretlandi, V-Þýskalandi,
Frakklandi og Hollandi og athuganir
eru hafnar í Portúgal og á Grikk-
landi. í Bandaríkjunum hefur Long
Island-háskóli beitt sér fyrir kynn-
ingu á þessari hugmynd að tölvu-
þorpum víða í Asíu og í Afríku.
Segir Henning Albrechtsen, formað-
ur TCI að hann vonist til að þessi
tölvuþorp verði orðin að veruleika
um allan heim innan fárra ára, því
þannig fái tölvubyltingin best notið
sín samstíga eðlilegri byggðaþróun.
KB
Hálka og snjór
á fjallvegum
Hálka og snjór er víða á fjallveg-
um á Austur- og Norð-Austurlandi
og nokkrir fjallvegir ófærir. Búið er
að opna Lágheiði, og því greiðfært
milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.
Víða norðan- og austanlands eru
fjallvegir illfærir vegna hálku og
snjóa. Fjarðarheiði er ófær og sömu
sögu er að segja með Öxarfjarðar-
heiði, en fært er til Vopnafjarðar
meðfram ströndinni. í gær var unnið
að því að ryðja veginn um Hólssand,
frá Grímsstöðum á Fjöllum niður í
Kelduhverfi, sem tepptur hefur ver-
ið undanfarna daga.
Vegir á Vestfjörðum eru að sögn
vegaeftirlitsmanna allir færir.
ABÓ
Amarflug aöili aö nýju sölukerfi:
Galile/Arnarflug
Amadeus/Flugleiðir
Arnarflug hefur gerst aðili að
bókunar-, dreifi- og sölukerfi sem
nefnist Galileo.
Kerfið er í raun gríðarlegur gagna-
banki í Swindon í Englandi og í
honum eru geymdar upplýsingar um
ferðamöguleika með flugfélögum
sem aðild eiga að gagnabankanum
og alla hugsanlega þætti sem tengjast
ferðalögum fólks, svo sem hótel,
bílaleigur, ferjur os.frv.
Geta ferðaskrifstofur með aðstoð
kerfisins og aðgangi að því, bókað
Leiðrétting
Nöfn tveggja leikara misrituð-
ust í Tímanum þegar fjallað var
um leikritið Marmara. Nafn Jó-
hönnu Pétursdóttur var ritað í
stað Bryndísar Pétursdóttur. Þá
var nafn Gísla Halldórssonar rit-
að í stað Helga Skúlasonar.
og samþætt alla ferðaþætti fólks á
örskotsstund.
Galileo kerfið er stofnað að frum-
kvæði British Airways og eiga nú
aðild að kerfinu auk Arnarflugs, tíu
evrópsk flugfélög.
Fyrirtækið sem rekur Galileo kerf-
ið starfar sjálfstætt og reynt verður
að nota sem mest staðlaðan tölvu-
vélbúnað sem þegar er fyrir hendi á
ferðaskrifstofum.
Fulltrúar Galileo eru staddir á
íslandi þessa dagana að kynna ferð-
askrifstofum kerfið og kosti þess.
Annað kerfi svipaðrar gerðar er
komið á laggirnar í Evrópu og ber
það nafn annars andans manns og
heitir Amadeus og munu Flugleiðir
í þann veginn að tengjast því kerfi,
enda hefur SAS, sem Flugleiðir hafa
all náið samstarf við, þegar tengst
því.
Jim Kutas, sölustjóri Galileo sagði
að kerfið væri ákaflega auðvelt í
notkun og ferðaskrifstofur þyrftu
ekki að eyða nema óverulegum tíma
og fjármunum til að þjálfa starfsfólk-
ið í notkun þess og áhersla væri lögð
á góða þjónustu við notendur, bæði
hvaðvarðaðivél-oghugbúnað. -sá
Foldaskóli í Grafarvogi.
Bygging Foldaskóla
situr enn á hakanum
„Það væri nær að veita byggingu
Foldaskóla í Grafarvogi forgang, í
stað þess að ráðast nú í umdeildar
og kostnaðarsamar framkvæmdir við
færslu Hringbrautar,“ sagði Sigrún
Magnúsdóttir í samtali við Tímann í
gær. Foldaskóli, einn yngsti grunn-
skóli borgarinnar, er orðinn þriðji
stærsti grunnskóli í Reykjavík og er
þó tæplega hálf-byggður. Treglega
hefur gengið að fá borgaryfirvöld til
að hraða byggingu skólans og eru
þrengslin þar orðin mikil. Fjölgun
nemenda var á milli ára síðast 200 og
hefur þurft að aka nemendum út um
allan bæ til að fá pláss í skóla.
„Aðalröksemdarfærsla borgar-
stjórnar fyrir því að hraða ekki
uppbyggingu skólans er að ríkið
standi ekki við sitt, en ríkið á að
standa straum af helmingi bygging-
arkostnaðar skóla. Á sama tíma á að
keyra áfram framkvæmdir við
Hringbrautina án þess að samið hafi
verið við ríkisvaldið um endur-
greiðslur vegna þeirra, sem kosta
hundruð milljóna króna,“ sagði
Sigrún.
„Að tryggja börnum viðunandi
aðstöðu til náms hlýtur að ganga
fyrir þessum framkvæmdum við
gatnakerfið sem menn eru ekki á eitt
sáttir um.“ Tíminn fjallar nánar um
flutning Hringbrautar á öðrum stað
í blaðinu í dag.
Pétur Sigurðsson, formaður For-
eldra- og kennarafélags Foldaskóla,
ritar borgaryfirvöldum opið bréf sem
birtist í Morgunblaðinu í gær, þar
sem óþolinmæði Grafarvogsbúa
kemur berlega í ljós.
„Borgaryfirvöld ættu að sjá sóma
sinn í því að sinna þessu fremur
afskekkta og gjöfula hverfi af meiri
alúð en hingað til. Það er ekki nóg
að úthluta lóðum til íbúðabygginga
ef hin félagslega þjónusta situr á
hakanum,“ segir í bréfi Péturs.
JIH