Tíminn - 30.09.1988, Side 11
10 T'rminn
Föstudagur 30. september 1988
Föstudagur 30. september 1988
Tíminn 11
OL —
íþróttir:
Nær „Flo-Jo“ 4 gullum?
Svo gæti fariö að bandaríska
frjálsíþróttakonan Florence Griffith
Joyner ynni 4 gullvcrðlaun á Ól-
ympíuleikunum í Seoul.
Florence, eða Flo-Jo eins og hún
er kölluð af vinum sínum, hefur
þegar tryggt sér gullverðlaunin í 100
m og 200 m hlaupum og á eftir að
taka þátt í 4x100 m boðhlaupi, en
þar er bandaríska sveitin talin mjög
sigurstrangleg. Nú er talað um það í
Seoul að Flo-Jo verði einnig í 4x400
m boðhlaupssveitinni. Hún hefur að
vísu ekki hlaupið 400 m hlaup í 5 ár,
en vann bandaríska háskólameist-
aramótið í 400 m hlaupi 1983, á
50,94 sek. sem er hennar besti tími
í greininni.
Talsmaður bandarfska liðsins
sagði í gær að Flo-Jo yrði ekki bætt
í liðið til þess að hún gæti unnið 4.
gullverðlaun sín, heldur yrði henni
hugsanlega bætt við til þess að auka
sigurlíkur bandarísku sveitarinnar.
Mágkona Florence, Jackie Joy-
ner-Kersee, vann sín önnur gull-
verðlaun f gær, þegar hún sigraði í
OL - LYF:
langstökki í er hún stökk 7,40 m og
bætti eigið Ólympíumet, sem hún
setti í langstökkskeppni sjöþrautar-
innar í síðustu viku, en hún vann
einnig sjöþrautina. Jackie er systir
þrístökkvarans A1 Joyner, sem vann
þrístökkið á ÓL 1984, en hann er
sem kunnugt er eiginmaður og þjálf-
ari Florence Griffith Joyner. Þá veit
maður um hvað er talað við matar-
borðið í þeirri fjölskyldu. BL
íþróttamenn vilja
rannsókn á hver
gaf Johnson lyf
Florence Griffith-Joyner.
í gær var haldinn fundur með
forsvarsmönnum alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins og fulltrúum
frjálsíþróttamannanna sjálfra á Ól-
ympíuleikvanginum í Seoul, þar sem
íþróttamannirnir fóru fram á það að
rannsókn yrði gerð á því hver hefði
látið Ben Johnson lyf í té.
íþróttamennirnir sögðu að þeir
vildu að gripið yrði til aðgerða gegn
hverjum þeim sem útvegaði, eða
hcldi lyfjum að íþróttamönnum,
ekki síður en íþróttamanninum
sjálfum.
Eftir fundinn var gefin út yfirlýs-
ing þar sem segir að íþróttamennirn-
ir styðji stefnu alþjóðasambandsins
í lyfjamálum, þar með talið að setja
íþróttamenn í bann, sem verða upp-
vísir að lyfjaneyslu og einnig að þeir
ÓL - Körfuknattleikur:
Bandarískur sigur
Jackie Joyner-Kersee.
Bandaríkin sigruðu Júgóslavíu í
úrslitalcik kvenna á ÓL ■ Seoul í gær
með 77 stigum gegn 70. Eftir mikla
niðurlægingu í fyrradag, þegar
handarísku karlarnir töpuðu fyrir
Sovétmönnum í undanúrslitum, þá
tókst stúlkunum að verja heiður
Bandaríkjanna í þessari grein, sem
Bandaríkjamenn er svo góðir í.
Bandarísku stúlkurnar og þær
júgóslavnesku léku mjög ólíkan
körfuknattleik. Þær bandarísku
byggðu mjög upp á hraöaupphlaup-
um og léttleika á meðan þær júgó-
slavnesku treystu mjög á leikkerfi og
langskot. í hálfleik var staðan 42-36
þeim bandarísku í vil, og í síðari
hálfieik jókst munurinn og varð
mestur 17 stig, 73-56, en þær júgó-
slavnesku gerðu 14 af síðustu 21
stigunum og minnkuðu muninn í 7
stig, 77-70. Gullverðlaunin í kvenna-
flokki falla því Bandaríkjunum ■
skaut eins og 1984, en Júgóslavar
fengu silfrið. BL
sem aðstoða íþróttamennina við
þessa iðju eigi skilið að vera einnig
refsað. I framhaldi af því yrði gerð
rannsókn, tafarlaust, á því hver stóð
á bak við lyfjaneyslu Ben Johnsons.
Undir þessa yfirlýsingu skrifuðu Ól-
ympíumeistarinn í stangarstökki,
Sovétmaðurinn Sergei Bubka, Ól-
ympíumeistarinn í maraþonhlaupi
kvenna, Rosa Mota frá Portúgal,
bronsverðlaunahafinn í 400 m
grindahlaupi karla, Bandaríkjamað-
urinn Ed Moses og Alberto Juantor-
ena, fyrrum frjálsíþróttastjarna frá
Kúbu, sem starfar sem eftirlitsmaður
fyrir alþjóðafrjálsíþróttasambandið
á leikunum.
Iþróttamennirnir sögðu að þeir
bæru fyllsta traust til þeirra lyfja-
prófa sem framkvæmd væru í Seoul
og bentu á að Johnson væri eini
frjálsíþróttamaðurinn, af þeim 93
sem prófaðir hefðu verið, sem hefði
fallið.
„Sem fulltrúar íþróttamanna í
heiminum, þá erum við staðráðnir í
því að styðja hcils hugar á næstu
mánuðum og árum, baráttu alþjóða-
frjálsíþróttasambandsins fyrir því að
koma í veg fyrir neyslu á ólöglegum
lyfjurn". BL
íslandsmótið í körfuknattleik:
Keppni hefst á sunnudag
í Flugleiðadeildinni
- KKÍ semur við Flugleiðir- Leikið verður í Ameríkuriðli og Evrópuriðli - Fjögur lið komast á Saga-Class
Pálmar Sigurðsson og félagar ■ íslansdsmeistaraliði Hauka sitja hjá ■ fyrstu umferð íslandsmótsins.
Tímamynd Pjetur.
Á sunnudaginn hefst keppni á
íslandsmótinu í körfuknattleik. í
Flugleiðadeildinni leika ÍBK og
Tindastóll í Keflavík kl. 16.00 og er
það fyrsti leikur Sauðkrækinga í
efstu deild í boltaíþrótt frá upphafi.
Kl. 20.00 leika KR og ÍR í Haga-
skóla, Valur og ÍS að Hlíðarenda og
Grindvíkingar fá Þórsara frá Akur-
eyri í heimsókn. íslandsmeistarar
Hauka og Njarðvíkingar sitja hjá í
fyrstu umferðinni.
Samningar hafa tekist á milli KKl
og Flugleiða h/f um að nefna efstu
deild karla í körfuknattleik Flug-
leiðadeild. En eins og mönnum er
kunnugt nefndist sú deild áður Úr-
valsdeild og hefur það nafn nú verið
lagt niður.
Keppnisfyrirkomulag í Flugleiða-
deildinni er mjög breytt frá því á
síðasta keppnistímabili þegar níu
félög léku hvert við annað hefð-
bundna tvöfalda umferð, heima og
heiman.
f Flugleiðadeildinni eru 10 félög
og er þeim skipt í tvo riðla sem
nefndir eru Ameríkuriðill og Evr-
ópuriðill.
Skiptingin í riðlana er sem hér
segir:
OL - Körfuknattleikur:
NBA-leikmenn
á Ólympíuleika?
Á aukafundi Alþjóðakörfuknattleiks-
‘sambandsins sem haldinn verður ■ aprfl ■
borginni Bercelona á Spáni verður tekin
ákvörðum um það hvort leyfa skuli at-
vinnumönnum úr NBA deildinni að taka
þátt í körfuknattleikskeppni Ólympíuleik-
Fótbolti:
Nokkur lið vilja fá Ben
Johnson til liðs við sig
Þrátt fyrir að vera kominn í að
minnsta kosti tveggja ára keppnis-
bann frá frjálsum íþróttum og hafa
tapað um 10 milljónum dala vegna
auglýsingasamninga, ætti kanad-
■ski hlauparinn Ben Johnson ekki
að verða atvinnulaus lengi. Þegar
eru nokkur vesturheimsk fótbolta-
lið óð og uppvæg á eftir honum og
vilja fá hann til jiess að spila fyrir
sig fótbolta að hætti Ameríkubúa.
Kanadíska liðið Hamilton Tiger-
Cats hefur þegar tryggt sér réttinn
á hlauparanum og skákaði þar
öðru kanadísku liði, B.C. Lions.
„Við erum tilbúnir til þess að
gefa Johnson tækifæri, það er allt
og sumt,“ sagði Mike McCarthy
aðstoðarframkvæmdastjóri Ham-
ilton Tiger-Cats liðsins.
McCarthy sagðist ekki hafa
áhyggjur af því þótt Johnson hefði
fallið á lyfjaprófi. „Ég hef engar
áhyggjur af því, vegna þess að það
eru notuð horniónulyf í CFL-deild-
inni (kanadíska atvinnumanna-
deildin í amerískum fótbolta), það
vita allir þótt hér séu aldrei fram-
kvæmd lyfjpróf“.
f bandarísku atvinnumanna-
deildinni NFL, munu lyfjapróf
framkvæmd í fyrsta sinn í vetur, en
í Kanada mun lyfjastcfna vera í
mótum hjá forráðamönnum CFL
dcildarinnar.
Eitt'af stóru liðunum í NFL
deildinni hefur einnig lýst yfir
áhuga á að fá Johnson til liös við
sig. „Með þá íþróttahæfileika og
hraða sem Ben Johnson hefur, þá
hljótum við að hafa áhuga á
honum,“ sagði Bob Ackles hjá
stórliðinu Dallas Cowboys. „Eg
get ímyndað mér að Ben sé nokkuð
ráðvilltur sem stendur. Við höfum
kannski samband við hann þegar
um hægist,“ sagði Ackles.
í fyrra sagði Ben Johnson við
þjálfara Himilton liðsins að Ól-
ympíuleikarnir ættu hug sinn allan
og eftir þá mundi hann ef til vill
hlaupa í 1 ár til viðbótar. Árið 1990
mundi hann ef til vill snúa sér að
fótboltanum.
Roy Shivers starfsmannastjóri
B.C. Lions liðsins sagðist vera
sorgmæddur yfir meðferðinni á
Johnson. „Það er eins og hann hafi
framið fjöldamorð og nauðgað 15
konum. Morðingi fengi betri um-
fjöllun í fjölmiðlunsagði Shivers.
Margar frjálsíþróttastjörnur
hafa snúið sér að fótbolta t.d. Bob
Hayes, sem var stjama með Dallas
Cowboys á sjöunda áratugnum og
Renaldo Nehemiah, sem á heims-
metið ■ 110 m gríndahlaupi lék
nokkur keppnistimabil með San
Francisco 49ers. Þá lék Ron
Brown, sem var í Ólympíuliði
Bandaríkjanna á ÓL í Los Angeles
1984, með LA Rams.
Kannski finnur Ben Johnson
huggun i fótboltanum og nær þann-
ig að vinna fyrír sér eftir að milljón-
irnar flugu út um gluggann.
BL
Aðalritari Alþjóðakörfuknattleiks-
sambandsins, Júgóslavinn Borislv Stank-
ovic, sem nýlega var kjörinn í alþjóðaól-
ympínefndina, sagði að það væri skoðun
miðstjórnar alþjóðasambandsins að leyfa
ætti atvinnumönnum að taka þátt í Ólym-
píuleikunum.
„Það eru núna 178 þjóðir í FIBA og það
eru 250 milljónir manna sem leika körfu-
knattleik í hverjum krók og kima á jörð-
inni. FIBA finnst ekki rétt að útiloka
aðeins 300 þeirra frá ÓL, þá 300 bestu“.
„Allir íþróttamenn og körfuknattleiks-
menn, sem eru í fremstu röð þiggja
peninga og þar af leiðandi, frá siðferðilegu
sjónarmiði er ekki rétt að útiloka NBA-
leikmennina af þvt' að þeir viðurkenna
það“.
Síðast þegar greidd voru atkvæði á þingi
FIBA um NBA-leikmenn, var 31 á móti
því að leyfa þeim að leika með, en 27 því
samþykkir. 25 sátu þá hjá.
Víðast hvar í heiminum þar sem leik-
menn fá greitt fyrir að leika körfuknattleik
er það viðkomandi samband sem tekur við
peningunum og greiðir síðan allan kostnað
fyrir leikmennina.
Á þinginu í apríl munu Sovétmenn
leggja til að tveimur atvinnumönnum verði
leyft að Ieika með hverju landsliði. Fjórir
sovéskir leikmenn eru á leiðinni í NBA-
deildina, ef þeir fá samþykki frá sovéskum
yfirvöldum, en það mun verða tekið fyrir
að Ólympíuleikunum loknum. BL
Úrslit í NFL
deildinni:
Um síðustu helgi var leikin heil umferð í bandarísku
NFL fótboltadeildinni.
Buffalo Bills-Pittsburgh Steelers 36 . . 28
Cincinnati Bengals-Cleveland Browns 24 . . 17
Dallas Cowboys-Atlanta Falcons 26 . . 20
New YorkJets-DetroitLions 26 . . 20
Chicago Bears-Green Bay Packers 24 . . 6
Houston Oilers-New England Patriots 31 . . 6
Indianapolis Colts-Miami Dolphins 15 . . 13
Minnesota Vikings-Philadelphia Eagles 23 . . 21
New Orleans Saints-Tampa Bay Buccaneers 13 . . 9
San Diego Chargers-Kansas City Chiefs 24 . . 23
Los Angeles Rams-New York Giants 45 . . 31
Phoenix Cardinals-Washington Redskins 30 . . 21
San Francisco 49ers-Seattle Seahawks 38 . . 7
Los Angeles Raiders-Denver Broncos 30 . . 27
Ameríkuriðill:
UMFN, Valur, UMFG, Þór og ÍS.
Evrópuriðiil:
Haukar, ÍBK, KR, ÍR og UMFT.
Leikin verður fjórföld umlerð í
hvorum riðli og tvöföld umferð á
milli félaga í andstæðum riðlum.
Mótið er byggt upp á eftirfarandi
hátt:
í fyrstu umferð leika félög saman
innan sinna riðla.
Umferðin verður leikin dagana 2.
okt.-16. okt.
f annarri umferð leika félög úr
Evrópuriðli gegn félögum úr Amer-
íkuriðli. Umferðin fer fram dagana
18. okt.-3. nóv.
í þriðju og fjórðu umferð leika
félög saman innan sinna riðla. Þriðja
umferðin hefst 6. nóv. og lýkur 20.
nóv.
Fjórða umferðin hefst 22. nóv. og
lýkur 15. jan. en frá 4. des.-15. jan.
verður hlé á Flugleiðadeildinni
vegna landsliðsverkefna.
I fimmtu umferð leika félög úr
Evrópuriðli gegn félögum úr Amer-
íkuriðli. Umferðin fer fram dagana
22. jan.-5. feb.
í sjöttu og lokaumferðinni leika
félög saman innan sinna riðla. Um-
ferðin fer fram dagana 14. feb.-9.
mars.
Með þessu fyrirkomulagi verða
leiknir 130 leikir í Flugleiðadeildinni
fyrir utan Saga-Class keppnina, en
það er aukning um 58 leiki frá í fyrra.
Þessi leikjafjöldi gerir það að
verkum að leikið verður tvisvar í
viku allt keppnistímabilið. Leikið
verður á föstum leikkvöldum í vetur
og fer ein umferð fram á sunnudög-
um og næsta umferð skiptist á milli
þriðjudaga og fimmtudaga o.s.frv.
Að lokinni riðlakeppni eru riðl-
arnir sameinaðir og raðast félög í
lokastöðu eftir stigafjölda sem þau
hafa. Neðsta félagið fellur og það
næst neðsta leikur einn leik við
félagið sem lenti í öðru sæti í fyrstu
deild.
Tvö efstu félög úr hvorum riðli
komast í Saga-Class keppnina sem
hefst 12. mars og lýkur 22. mars. f
Saga-Class keppninni leikur efsta lið
úr Ameríkuriðlinum við félagið sem
endar í öðru sæti úr Evrópuriðlinum
og efsta félagið í Evrópuriðlinum
leikur við félagið sem verður í öðru
sæti í Ameríkuriðlinum. Það félag
sem fyrr sigrar í tveimur leikjum,
leika síðan til úrslita. Það félag sem
fyrr sigrar í tveimur leikjum telst
fslandsmeistari í körfuknattleik.
Erlendir þjálfarar
Af þeim 10 liðum sem nú skipa
„Flugieiðadeildina“ í körfuknatt-
leik hafa fjögur ráðið til sín erlenda
þjálfara. Suðurnesjaliðin 3,
Njarðvík, Keflavík og Grindavík,
hafa ráðið þjálfara frá Bandaríkj-
unum, en KR-ingum stjórnar
Laszlo Nemeth, landsliðsþjálfari.
Á blaðamannafundi sem haldinn
var ■' gær voru erlendu þjálfararnir
mættir og blm. Tímans spurði þá
hvernig þeim litist á íslenskan
körfuknattleik og hvernig þeir
teldu að liðum þeirra muni ganga í
vetur.
Chris Fadness
þjálfari Njarðvíkinga:
„Körfuknattleikurinn hérna er
mjög svipaður því sem ég þekki í
3. deild háskólakörfuknattleiksins
í Bandaríkjunum. Deildin er sterk,
en Njarðvíkurliðið er gott og ég tel
að við eigum góða möguleika á því
að sigra í deildinni.“
Doug Harvey
þjálfari Grindvíkinga:
„Hér er töluvert margir góðir
leikmenn og körfuknattleikurinn
hér er í líkum gæðaflokki og há-
skólaboltinn í Bandaríkjunum.
Grindavíkurliðið er 3 vikum á eftir
öðrum liðum í þjálfun, vegna þess
að þcir misstu þann þjálfara sem
þeir voru búnir að ráða“.
Laszlo Nemeth þjálfari KR:
„Liðin hér eru eins og meðallið
í Evrópu og leikmennirnir hér eru
tilbúnir til þess að leggja mikið á
sig til þess að ná árangri. Ef ég
stcfndi ekki að því sigra þá væri ég
lélegur þjálfarí og nyti ekki trausts
lcikmannanna. Við stefnum að
sigri í öllum leikjum og munum
gera okkar besta til þess að ná sem
lcngst í deildinni.“
Lee Nober
þjálfari Keflvíkinga:
„Ég hef nú lítið séð af körfu-
knattleiknum ennþá, mér er alltaf
vísað út úr húsinu af dómurunuin,
en ég hef heyrt að hér séu ágætir
leikmenn. Ég er óánægður með að
skilja ekki livað fer hérna fram. Ef
ég skil ekki um hvað er verið að
tala, þá munu dómararnir halda
áfram að henda mér út úr íþrótta-
húsunum. Ég tel að ÍBK liðið geti
unnið hvaða lið sem er hér og
hvaða lið sem er geti unnið ÍBK.
Annars skil ég ekkert hvað ég er
að gera á þessum fundi því ég tala
ekki og skil ekki íslensku,“ sagði
Lee Nober og var mjög óhress með
að fundarmenn skyldu ekki tala
engilsaxnesku. Vonandi útskýrír
einhver fyrir þjálfaranum að á
fundum í islcnsku íþróttahreyfing-
unni er töluð íslenska, en útlend-
ingar ávarpaðir á erlendum
tungum. BL
%>
<áP\
BROSUM /
og ¥
allt gengur betur *
Leikur Magic Johnson í landsliði
Bandaríkjanna á næstu Ólympíu-
leikum?
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐWGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1980-2. fl. 25.10.88-25.10.89 kr. 1.532,53
1981-2. fl. 15.10.88-15.10.89 kr. 959,71
1982-2. fl. 01.10.88-01.10.89 kr. 658,94
‘Innlausnarverö er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteinaríkissjóðsferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, september 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS