Tíminn - 30.09.1988, Page 16
16 Tímirin
Föstudagur 30. september 1988
llllllllllliilllllllllllllll DAGBÓK
ÚTVARP/SJÓNVARP
Neskirkja - Starf aldraðra
Samverustund á morgun, laugardaginn
1. okt. kl. 15:00 í safnaðarheimili kirkj-
unnar. Gunnar Ásgeirsson stórkaupmað-
ur flytur efni í máli og myndum.
Myndakvöld. - Fyrsta myndakvöld
vetrarins verður miðvikudaginn 12. okt-
óber á nýjum stað, Sóknarhúsinu, Skip-
holti 50A.
Ferðafélag fslands
Martin Rusenstiel
Kunnurþýskur háðfugl
skemmtir í Gerðubergi
Þýski háðfuglinn Martin Rosenstiel,
sem þekktur er fyrir þaö sem Þjóðverjar
kalla pólitískan kabarctt, verður með
skemmtun í Gerðubergi á morgun, laug-
ardaginn 1. október kl. 17:00. Söngvar
hans og yrkisefni einskorðast þó ekki við
dægurflugur stjórnmálanna, heldur lýsir
hann þýsku hugarfari og almennum ein-
kennum þjóðar sinnar á gamansaman
hátt.
f heimalandi sínu er hann af mörgum
dáður og virtur. Framarlega í hópi aðdá-
enda hans er fyrrum kanslari Vcstur
Þýskalands, Helmut Schmidt.
Rosenstiel hefur komið fram víða um
heim og hefur hvarvetna hlotið lofsam-
lega dóma. Hér á landi er hann í boði
Goethe-Insstitute og þýsk- íslenska fé-
lagsins Germaniu, og er skemmtunin
opin öllum þeim sem áhuga hafa.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardaginn
I. október. Lagt af stað frá Digranesvegi
12 kl. 10:00.
Markmið göngunnar er: Samvera, súr-
efni, hreyfing. Klúbburinn eropinnöllum
Kópavogsbúum, ungum sem öldnum.
Verið með í bæjarröltinu. Nýlagað mola-
kaffi á boðstólum.
Sunnudagsferðir
F.Í. 2. okt.
Kl. 09:00 Hafnarfjall (847 m) Ekiö að
Grjóteyri og gengið á fjallið að norðan.
(1000 kr.)
09:00 Melasveit - Melabakkar
Ekið verður niður að ströndinni að Belgs-
holti og gengið þaðan um Melabakka.
Létt gönguferð á láglendi (1000 kr.)
Höskuldarvcllir - Trölladyngja - (375
m) Ekið að Höskuldarvöllum og gengið
þaðan á Trölladyngju (600 m)
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl.
Lögtaksúrskurður
Að beiðni Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði, geta farið fram
lögtök fyrir gjaldföllnum en ógreiddum gjöldum ársins 1988
álögðum í Hafnarfirði, en þau eru. Tekjuskattur, eignaskattur,
sérstakur eignaskattur, slysatryggingargj. v/heimilisstarfa,
iðnlánasjóðs- og iönaðarmálagjald, slysatryggingargjald at-
vinnurekenda, lífeyristryggingargjald atvinnurekenda, at-
vinnuleysistryggingargjald, vinnueftirlitsgjald, útsvar, að-
stöðugjald, kirkjugarðsgjald og skattur af skrifstofu og verslun-
arhúsnæði. Þá úrskurðast, að lögtök geti farið fram fyrir
gjaldhækkunum sem orðið hafa frá því er síðasti úrskurður
var kveðinn uþp, þar með taldar skattsektir til ríkis- og
bæjarsjóðs.
Verða lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara á kostnað
gjaldenda en á ábyrgð Gjaldheimtu Hafnarfjarðar að 8 dögum
liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki verið
gerð.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði
28. september 1988
Warrior
Ný heilsárs dekk 175x14.
Verð kr. 2.790,- stk. m/söluskatti.
Reynir sf. Blönduósi, sími 95-7106.
Taktu eftir verðinu.
Helgarferð Ferðafélagsins
til Landmannalauga
Landmannalaugar - Jökulgil: Jökulgil
er fremur grunnur dalur, sem liggur upp
undir Torfajökul til suðausturs frá Land-
mannalaugum. Jökulgil er rómað fyrir
litfegurð fjalla sem að því liggja. Þau eru
úr líparíti og soðin sundur af brennisteins-
gufum. Jökulgilið er einungis ökufært á
haustin, þegar vatn hefur minnkað í
Jökulgilskvíslinni. Ekið meðfram og eftir
árfarvegi. Gist í sæluhúsi F.í. í Land-
mannalaugum. Farmiðasala og upplýs-
ingar á skrifstofu F.f. Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands
Útivist,
(jilliJj Simar ,4606 og 23732
Gönguferð frá Þorlákshöfn að
Óseyrarbrú á sunnudaginn
Lokaáfangi í strandgöngunni
Sunnud. 2. okt. verður farin 22. og
síðasta ferð í „Strandgöngu Útivistar í
landnámi Ingólfs", en það er ferðasyrpa
sem byrjað var á um síðustu áramót. Búið
er að ganga með allri strandlengjunni frá
Reykjavík, fyrir Reykjanesskagann til
Þorlákshafnar og er þá aðeins eftir lokaá-
fanginn, um Hafnarskeið að Ölfusárósum
við Óseyrarbrú. Þátttaka hefur verið góð
og hafa á níunda hundrað manns tekið
þátt í göngunni á sunnudaginn.
Fyrirhugað er að halda áfram næsta ár
með strandgöngu frá Reykjavík í Hval-
fjarðarbotn.
Gangan á sunnudaginn er við allra hæfi
og rúta fylgir hópnum þannig að þeir sem
vilja geta stytt gönguna. Brottför er frá
BSf, bensínsölu kl. 13:00.
Úlivist, ferðafélag
Helgarferðir Útivistar
30. sept.-2. okt.
Landmannalaugar - Jökulgil: Ein fjöl-
breyttasta ferð haustsins. Skoðað hið
litríka Jökulgil, farið bæði um Fjallabaks-
leið nyrðri og syðri, í Eldgjá o.fl. Gist í
góðum upphituðum húsum. Aðeins þessi
eina ferð.
Haustlitaferð í Þórsmörk.: Gist í Úti-
vistarskálunum Básum. Ferð fyrir þá sem
vilja kynnast haustlitadýrð Þórsmerkur.
Skipulagðar gönguferðir. Upplýsingar og
farmiðar á skrifstofunni Grófinni 1. Símar
14606 og 23732.
Sunnudagsferðir
Útivistar 2. okt.
Kl. 13:00 Strandganga í landnámi Ing-
ólfs 22. ferð Þorlákshöfn - Hafnarskeið -
Ölfusárósar (Óseyrarbrú) Þetta er lokaá-
fanginn. Rúta fylgir hópnum Brottför frá
BSL bensínsölu. Farmiðar við bíl (900
kr.) Frítt er fyrir börn með fullorðnum.
Einsdagsferð í Þórsmörk: Haustlita-
ferð. Farmiðar við bíl (1200 kr.) Brottför
frá BSÍ bensínsölu.
Árbæjarsafn
Árbæjarsafn er aðeins opið um helgar
í septembermánuði. Opnunartími er kl.
10:00-18:00.
Flokksstarf
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Vestfjöröum verður haldið á
Súðavík dagana 30. sept. til 1. okt. 1988 og hefst kl. 18.
Dagskrá:
1. Þingsetning.
2. Kjör starfsmanna þingsins.
3. Avörp gesta og þingmanna: Steingrímur Hermannsson formaður
Framsóknarflokksins, Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður, Unnur
Stefánsdóttir formaður LFK, Gissur Pétursson formaður SUF og
Sigurður Geirdal framkvæmdastióri.
4. Skýrsla stjórnar og blaðstjórnar Isfirðings.
5. Mál lögð fram.
6. Nefndarstörf.
7. Afgreiðsla mála.
8. Kjör í stjórnir og deildir.
9. Önnur mál.
10. Þingslit áætluð síðdegis 1. október.
Stjórnin
Kjördæmisþing á Suðurlandi
Kjördæmisþing Framsóknarflokksins á Suðurlandi verður haldið í
Vestmannaeyjum dagana 28.-29. október n.k.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
BILALEIGA
með utibú allt í kringurri
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi$
interRent
Bílaleiga Akureyrar
©
Rás I
FM 92,4/93,5
Fimmtudagur
29. september
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Guðni Gunnarsson
flytur.
7.00 Fróttir.
7.05 í morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið út forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00. Valdimar Gunnarsson talar um daglegt
mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. „Alís í Undralandi" eftir
Lewis Carroll í þýðingu Ingunnar E. Thorarens-
en. Porsteinn Thorarensen les (16). (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 andpósturinn - Frá Norðurlandi. Umsjón:
Gestur Einar Jónasson. (Einnig útvarpað mánu-
dagskvöld kl. 21.00).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Edward J. Frederiks-
en.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn. Umsjón: Sigríður Pétursdótt-
ir.
13.35 Miðdegissagan: „Hvora höndina viltu“
eftir Vítu Andersen Inga Bima Jónsdóttir les
þýðingu sína (11).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Heitar lummur. Umsjón: Unnur Stefánsdótt-
ir. (Frá Akureyri) (Einnig útvarpað aðfaranótt
þriðjudags að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Ríkarður Jónsson myndhöggvari. Páttur í
aldarminningu hans, áður fluttur í Sinnu 17.
september. Umsjón: Porgeir Ólafsson. Lesari:
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir. M.a. rætt við dr.
Jakob Jónsson.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Kynnt bók vikunnar, „Herra
Hú“ eftir Hannu Mákelá í þýðingu Njarðar P.
Njarðvík. Umsjón: Kristín Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Prokofiev, Brítten og
Stravinsky. a. Valsasvíta op. 110 eftir Sergei
Prokofiev. Skoska þjóðarhljómsveitin leikur;
Neeme Járvi stjórnar. b. Sex ummyndanir eftir
Ovid op. 2 fyrir óbó eftir Benjamein Britten. Arne
Akselberg leikur á óbó. c. „Spilað á spil“,
balletttónlist í þrem þáttum eftir Igor Stravinsky.
Fílharmoníusveitin í Rotterdam leikur; James
Colon stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið. Umsjón: Jón Gunnar Grjetarsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Valdimar Gunnarsson flytur.
19.40 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni).
20.15 Tónlistarkvöld Ríkisútvarpsins. Þjóðleg
tónlist frá Kóreu í tilefni Ólympíuleika 1988.
Bergþóra Jónsdóttir segir frá tónlistarlífi Kóreu-
búa fyrr og nú og kynnir hljóðritanir með
kóreskum tónlistarmönnum.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Ævintýri nútímans. Fimmti og lokaþáttur
um afþreyingarbókmenntir. Umsjón: Anna Mar-
grét Sigurðardóttir. (Einnig útvarpað á þriðjudag
kl. 15.03).
23.10 Píanótríó í a-moll op. 50 eftir Pjotr Tsjaík-
ovskí. Itzhak Perlman leikur á fiðlu, Lynn
Harrell á selló og Vladimir Ashkenazy á píanó.
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
&
FM 91,1
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Að loknum fréttum kl. 2.00 verður vins-
ældalisti Rásar 2 endurtekinn frá sunnudegi.
Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri
og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veður-
fregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.05 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30 og síðan pistill frá
Ólympíleikunum í Seúl.
9.03 Viðbit - Pröstur Emilsson. (Frá Akureyri)
10.05 Miðmorggnssyrpa - Eva Ásrún Albertsdóttir
og Óskar Páll Sveinsson.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála - Eva Ásrún Albertsdóttir og
Óskar Páll Sveinsson.
16.03 Dagskrá
Dægurmálaútvarp.
18.03 Sumarsveifla - Ólafur Pórðarson.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Langlífi. Atli Bjöm Bragason kynnir tónlist af
ýmsu tagi og fjallar um heilsurækt.
21.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Af fingrum fram - Rósa Guðný Pórsdóttir.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Þessa nótt er leikið um 5. til
11. sæti í handknattleiknum frá miðnætti til kl.
7.00. Leik íslendinga lýst verði þeir í þeim hópi.
Að loknum fréttum kl. 2.00 verður endurtekinn
frá mánudegi þátturinn „Á frívaktinni" þar sem
Þóra Marteinsdóttir kynnir óskalög sjómanna.
Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri
og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veður-
fregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30,
9.00, 10.00, 11.00,12.00, 12.20,14.00,15.00,
16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
Umsjón: Inga Rósa Pórðardóttir.
SJÓNVARPIÐ
Fimmtudagur
29. september
09.25 Ólympiulelkarnir '88 - bein utsending.
Úrslit í handknattleik kvenna og blaki karla.
12.30 Hlé.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Heiða. Teiknimyndaflokkur byggður á skáld-
sögu Jóhönnu Spyri. Þýðandi Rannveig
Tryggvadóttir. Leikraddir Sigrún Edda Björns-
dóttir.
19.25 Ólympíusyrpa. Ýmsar greinar.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Costa Rica (Fjárrlinjen: Costa Rica-con-
sensus í Centralamerica) I þessari finnsku
mynd er fjallað um Costa Ricu, lítið ríki í
Mið-Ameríku, sem reynt hefur að beita sér fyrir
friði í þeim heimshluta. (Nordvision - Finnska
sjónvarpið). Þýðendur Trausti Júlíusson og
Sonja Diego.
21.25 Matlock. Bandarískur myndaflokkur um lög-
fræðing í Atlanta og einstæða hæfileika hans
og aðstoðarmanna hans við að leysa flókin
sakamál. Aðalhlutverk Andy Griffith. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.15 Ólympíusyrpa - Ýmsar greinar.
23.15 Útvarpsfréttír.
23.25 Ólympíuleikarnir ’88 - bein útsending
Frjálsar íþróttir og körfuknattleikur.
06.30 Dagskrárlok.
16.25 Merki Zorro. Mark of Zorro. Tyrone Power í
hlutverki grimuklædda mannsins sem ríður um
í skjóli nætur og tekur réttlætið í sínar hendur.
Aðalhlutverk: Tyrone Power og Basil Rathbone.
Leikstjóri: Rouben Mamoulian. Framleiðandi:
Raymond Griffith. Þýðandi: Tryggvi Þórhalls-
son. 20th Century Fox 1940 s/h. Sýningartimi
90 mín.
17:55 Blómasögur. Flower Stories. Teiknimynd
fyrir yngstu áhorfenduma. Þýðandi: Sigrún Þor-
varðardóttir. Sögumaður: Júlíus Brjánsson.
RPTA.
18.10 Olli og félagar. Ovid and the Gang. Teikni-
mynd með íslensku tali. Leikraddir: Hjálmar
Hjálmarsson, Saga Jónsdóttir og Pröstur Leó
Gunnarsson. Þýðandi: Jónína Ásbjörnsdóttir.
18.20 Þrumufuglarnir. Thunderbirds. Teiknimynd.
Þýðandi: Gunnhildur Stefánsdóttir. ITC.___________
18.45 Um víða veröld. World in Action. Tíu ár eru
liðin síðan Vietnamar hófu að flýja land sitt. I
þættinum er ferðast til Hong Kong þar sem 5000
manns, svokallað bátsfólk, eru nú í haldi og
biða þess að fá vist i vestrænum löndum.
19:1919:19 Lifandi fréttaflutningur ásamt umfjöllun
um málefni líðandi stundar.
20:30 Vímulaus æska. Þáttur tileinkaður vímu-
lausri æsku. I þættinum kemur fram fjöldi
þekktra popptónlistarmanna og fleiri góðir
gestir. Dagskrárgerð: Maríanna Friðjónsdóttir.
Stöð 2.
21:05 Einskonar líf. A Kind of Living. Breskur
gamanþáttur. Aðalhlutverk: Richard Griffiths,
Frances de la Tour og Christopher Rothwell.
Central 1988._____________________________________
21:30 Refsivert athæfi. The Offence. Spennu-
mynd sem fjallar um lögreglumann sem haldinn
er bældri ofbeldishneigð. Honum er falið að
yfirheyra mann sem er ákærður fyrir að leita á
börn, en það reynist honum um megn. Aðalhlut-
verk: Sean Connery og Trevor Hovard. Leik-
stjóri: Sidney Lumet. Framleiðandi: Denis
O’Dell. United Artists 1972. Sýningartími 110
mín. Ekki við hæfi barna.
23:20 Viðskiptaheimurinn. Wall Street Journal.
Nýir þættir úr viðskipta- og efnahagslífinu sem
eru framleiddir af Wall Street Journal og eru
sýndir hér á Stöð 2 í sömu viku. Þýðandi: Bjöm
Baldursson. Þátturinn verður endursýndur laug-
ardaginn 1. okt. kl. 12.00.
23:55 Píslarblómið. Passion Flower. Ungur
Bandaríkjamaður í Singapore er að hefja feril
sinn í viðskiptalífinu. Hann kynnist giftri konu,
dóttur vellauðugs Breta sem hagnast hefur á
smygli og öðrum vafasömum viðskiptaháttum.
Fyrr en varir er hann flæktur í mun alvariegri mál
en hann hafði áður kynnst. Aðalhlutverk: Bar-
bara Hershey, Bruce Boxleitner, Nicole Wil-
liamson og John Waters. Leikstjóri: Joseph
Sagent. Framleiðandi: Doris Keating. Þýðandi:
Jón Sveinsson. Columbia 1985. Sýningartími
90 mín.
01:25 Dagskrárlok.