Tíminn - 30.09.1988, Qupperneq 20
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
® 28822
Canon
Ljósritunarvélar
FC-3, 43.600 stgr.
FC-5, 46.300 stgr.
Skrifvélin, sími 685277
STRUMPARNIR
m
^TTV •
liniinn
Riðuniðurskurður í Svarfaðardal
Nálega
kindur
urðaðar í fjöldagröf
Undir lok næstu viku verður lokið við dilkaslátrun í
sláturhúsi Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík. Þá tekur við
það óskemmtilega verk að aflífa hátt í 4000 kindur úr
Svarfaðardal og frá Dalvík vegna allsherjar riðuniður-
skurðar á svæðinu. Þessi niðurskurður hófst sl. haust en
verður lokið að fullu á þessu hausti. Svæðið verður því
fjárlaust næstu tvö ár samkvæmt niðurskurðarsamningum
milli bænda og Sauðfjárveikivarna.
Sá háttur verður hafður á í ár að Svarfaðardal og á Héraði, t.d. í
kindurnar verða aflífaðar í slátur-
húsinu á Dalvík og hræin síðan
urðuð í fjöldagröf í landi Hamars,
sem er eyðibýli í eigu Svarfaðar-
dalshreppssunnan Dalvíkur. Gröf-
in vcrður tekin skammt frá þeim
stað sem fé var urðað á sl. hausti.
Þá var það aflífað á grafarbakka,
en frá því var horfið nú vegna
óánægju bænda með þá tilhögun.
Stefnt er að því að lóga um 1000
kindum á dag.
Bændur í Svarfaðardal hafa
flestir lýst sig andvíga þeirri hug-
mynd íandbúnaðarráðuneytis að
greiða förgunarbætur eftir vigt og
aldri hverrar kindar. Þeir hafa talið
rétt að greiða fast verð á hverja
kind eins og sl. haust. Landbúnað-
arráðherra, Steingrímur J. Sigfús-
son, ákvað í gær að bændur í
Vallahreppi, ættu þess kost að
velja um ákveðnar förgunarbætur
á hverja kind eða hvort þær
ákvörðuðust af vigt og mati hverrar
kindar. Með fastri greiðslu er mið-
að við 24 kílóa skrokka og haust-
grundvallarverð.
Björn Þórleifsson, oddviti
hreppsnefndar Svarfaðardals-
hrepps, segir þessa afgreiðslu ráð-
hcrra í samræmi við óskir bænda
um hvernig standa skyldi að
málum. Hann segist fastlega búast
við að langflestir bændur velji þá
leið að fá fastar förgunarbætur
fyrir hverja kind.
Sauðfjárveikivarnir munu greiða
200 krónur á hverja aflífaða kind.
Þetta gjald rennur til Kaupfélags
Eyfirðinga á Dalvík, sem annast
framkvæmd riðuniðurskurðarins í
Svarfaðardal. óþh
Það verður heldur tómlegt í svarfdælskum fjárhúsum í vetur. Bændur í Svarfaðardal hafa sameinast um allsherjar
niðurskurð á sauðfé í haust til að freista þess að útrýma riðuveikivágestinum.
Kurr meöal afleysingabílstjóra á leigubílum
vegna nýrrar reglugerðar sem segir:
Of margir
leigubílar
KRON yfirtekur rekstur matvörumarkaðar JL við Hringbraut:
Mikligarður vestur í bæ
KRON hefur tekið við verslun-
arhúsnæði því sem matvörumark-
aður JL var í þar til hann lagði upp
laupana vegna rekstrarerfiðleika á
fimmtudag í síðustu viku.
Þröstur Ólafsson stjórnarfor-
maður KRON sagði að stefnt væri
að því að opna verslunina að nýju
upp úr miðri næstu viku undir nýju
nafni, eða “Mikligarður vestur í
bæ“.
KRON verður með verslun sína
á jarðhæðinni þar sem matvöru-
markaður JL var en verður ekki
með verslunarrekstur á efri hæðum
hússins né í öðrum hlutum þess.
Heyrst hefur að viðræður um
yfirtöku KRON á matvörumarkaði
JL hafi verið hafnar nokkru áður
en JL versluninni var lokað á
fimmtudag í síðustu viku. Þröstur
Ólafsson vildi hvorki staðfesta það
né neita þvf. - sá
Atvinnutryggingasjóður útflutningsgreina:
Reglugerðin tilbúin
fyrir lok næstu viku
Nokkur kurr er kominn upp meðal
manna sem stunda akstur leigubíla
sem launþegar.
Þessir menn aka venjulega bílum
manna sem hafa leyfi til leiguaksturs
en eru forfallaðir af einhverjum
orsökum. Launþegarnir eru oftast
menn sem eru að reyna að afla sér
leyfis sjálfir.
Nú hefur verið samin ný reglugerð
um leigubíla sem taka átti gildi um
þessi mánaðamót en hefur enn ekki
verið birt í stjórnartíðindum.
Þessari reglugerð er ætlað að
grisja í röðum leigubíistjóra þannig
að menn, sem nú stunda önnur störf
meðfram leiguakstri, verða eftir
gildistöku reglugerðarinnar, að velja
annað hvort að vera í leiguakstrinum
alfarið, eða hætta ella. Þá er ætlunin
að fækka leigubílum nokkuð, þar
sem þeir eru taldir bæði of margir og
vannýttir.
Þá er ætlunin að halda námskeið
fyrir verðandi leigubílstjóra og verð-
ur frammistaða manna á prófi í lok
námskeiðsins látin ráða hvort þeir
fái leyfi eða ekki.
Samkvæmt gömlu reglugerðinni
fóru leyfisveitingar nokkuð eftir því
hvort menn hefðu ekið leigubílum
sem launþegar um lengri eða
skemmri tíma og telja nú launþeg-
arnir að nú séu þrengdir möguleikar
þeirra á að fá leyfið langþráða.
Segja þeir að verði gildistöku nýju
reglugerðarinnar frestað nú, hljóti
að verða að úthluta samkvæmt
gömlu reglugerðinni nú á þessu
hausti, en taki hún gildi nú, verði
ekki úthlutað leyfum næst fyrr en
seint á næsta ári. -sá
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, segir að stefnt sé að
því að fyrir lok næstu viku verði
lokið samningu reglugerðar um At-
vinnutryggingasjóð útflutnings-
greina, sem ætlað er að leysa úr
fjárhagsvanda fyrirtækja í útflutn-
ingsgreinum. Ékki er frágengið
hvaða menn muni vinna að samn-
ingu þessarar reglugerðar en gert er
ráð fyrir að frá því verði gengið í dag
eða í síðasta lagi á mánudag.
Sjóðsstjórn verður skipuð 5
mönnum en ekki 10 eins og rang-
hermt var í Tímanum í gær. Sam-
kvæmt bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar skipar forsætisráð-
herra alla stjórnarmenn. Fjármála-,
iðnaðar-, sjávarútvegs-, og við-
skiptaráðherra tilnefna einn stjórn-
armann en forsætisráðherra skipar
formann án tilnefningar.
Á næstu dögum verður gengið frá
skipun inanna í stjórn Atvinnutrygg-
ingasjóðs. Fyrir liggur að Gunnar
Hilmarsson, sveitarstjóri á Raufar-
höfn, verður formaður sjóðsstjórn-
ar. óþh