Tíminn - 01.10.1988, Blaðsíða 13

Tíminn - 01.10.1988, Blaðsíða 13
Auglýsing um FRAMLENGINGU Á VERÐSTÖÐVUN TIL 28.FEBRÚAR 1989 íkisstjórnin hefur ákveðið samkvæmt lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti að framlengja gildandi verðstöðvun til 28. febrúar 1989, með þeirri breytingu að heimilt verður að hækka verð vöru og þjónustu sem nemur sannanlegri hækkun á erlendu innkaupsverði eða hækkun á verði á innlendum grænmetis- og fiskmörkuðum. Jafnframt hefur ríkisstjórnin falið Verðlagsstofnun að framfylgja ákvörðun þessari. Vill stofnunin koma eftirfarandi atriðum á framfæri um framkvæmd verðstöðvunarinnar. VERSLUNARFYRIRTÆKI Innflytjendum er heimilt aö hækka verö í sam- ræmi viö hækkun erlends innkaupsverðs þ.m.t. vegna breytinga á gengi. Jafnframt er smásölu- verslunum heimilt aö hækka verö í samræmi viö hækkun innkaupsverðs. Álagning í heildsölu og smásölu skal ekki vera hærri að krónutölu en hún var við upphaf verðstöðvunar 27. ágústs.i Innflytjendum er skylt aö senda Verðlags- stofnun verðútreikninga yfir innfluttar vörur áöur en sala hefst. Sé um verðhækkanir í erlendri mynt aö ræöa skal afrit af vörureikningi og toll- skýrslu fylgja með verðútreikningum svo og vörureikningur fyrir síðustu sendingu. Skulu gögn þessi vera í höndum Verðlagsstofnunar a.m.k. tveimur virkum dögum áöur en sala hefst. FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI Framleiöendum og þjónustufyrirtækjum er heimilt OG ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI að hækka verö í samræmi við hækkun á erlendum aöföngum. Tilkynningar um fyrir-hugaöar veröbreytingar skulu berast Verölagsstofnun a.m.k. 10 dögum áður en þeim er ætlað aö taka gildi ásamt greinargerö um ástæöur veröbreytinganna. SAMGÖNGUFYRIRTÆKI Samgöngufyrirtækjum er óheimilt aö hækka verö nema aö fengnu samþykki Verölagsráös. Sama gildir um fyrirtæki í öörum greinum þar sem í gildi er verö sem Verðlagsráð hefur ákveðið. * Oheimilt er á verðstöðvunartímabilinu ef það er kaupendum í óhag að breyta þeim afsláttarreglum og greiðslukjörum sem í gildi voru 27. ágúst 1988. VERÐIAGSSTOFNUN 30. september 1988 •d o ■ bí JVISMY,/ fTVNWSVWViVX

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.