Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 12

Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn Miðvikudagur 5. október 1988 FRÉTTAYFIRLIT Washington - Reagan Bandaríkjarorseti segir að eng- ar formlegar samningaum- leitanir hafi átt sér stað til þess að tryggja öryggi þeirra gísla sem leystir hafa verið úr gísl- ingu í Líbanon. Reagan greindi frá þessu í tilefni af því að sl. mánudag var Indverjinn Mithil- eshiwar Singh fluttur í hús bandaríska sendiherrans í Sýrlandi eftir frelsun hans í Libanon. Moskva — Sovéska frétta- stofan Tass greindi frá því í gær að fjórir menn hefðu látið lífið og 280 væru slasaðir eftir árekstur tveggja járnbrauta- lesta á svonefndu Sverdlovsk-/ svæði í Sovétríkjunum. Báðar lestarnar voru flutningalestar og var sprengiefni um borð í annarri. Moskva — Síðar í þessum mánuði verður efnt til formlegs stofnþings grasrótarsamtaka í Sovétríkinu Litháen sem vilja stuðla að þjóðfélagsuppstokk- un. Talsmaður samtakanna segir að frá því að samtökin voru stofnuð í júní hafi fjöl- margir lýst yfir stuðningi við markmið samtakanna. Moskva — Allsherjarþing Kommúnistaflokksins í Sovét- lýðveldinu Byelorussia sam- þykkti að vinna áfram að þvi ao gera lýðveldið efnahags- lega sjálfstætt. JerÚsalem — Fjöldi særðra Palestínumanna á Vestur- bakkanum og Gaza-svæðinu hefur allt að því tvöfaldast á liðnum vikum en þrátt fyrir það| hefur ekki dregið úr átökunum' á hernumdu svæðunum. Islamabad - Opinbert út- varp stjórnarinnar í Kabúl greindi frá því í gær að skæru- liðar, sem berjast gegn stjórn- inni í Kabúl, hafi gert strand- högg í austurhluta Gardez og drepið fimm manns og sært fjóra. TorOfltO — Þjálfari kanad- íska spretthlauparans Ben Jo- hnsons segir að eina skýringin á niðurstöðum lyfjaprófunar á Johnson sé sú að þær hafi verið vísvitandi falsaðar. Illllllll ÚTLÖND , y Bandaríkjamenn og írakar breiöa yfir ósætti: Irakar beita ekki efnavopnum aftur Bandaríkjamenn og Irakar virðast nú ætla að breiða yfir ósætti það er varð milli ríkjanna þegar Banda- ríkjamenn fordæmdu íraka fyrir notkun efnavopna gegn Kúrdum í síðasta mánuði. Afleiðing þess varð sú að írakar neituðu að færa friðar- viðræðurnar við írana frá Genf til Sameinuðu þjóðanna í New York. George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna átti fund með Tariq Aziz utanríkisráðherra íraka á mánudag og bar efnavopn þar sér- staklega á góma. Fór vel á með þeim eftir fundinn. Talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna Charles Redman sagði að fundurinn hefði verið „já- kvæður og uppbyggjandi“ og að Bandaríkjamenn fögnuðu afdráttar- lausum yfirlýsingum utanríkisráð- herrans um að írakar muni ekki nota efnavopn í framtíðinni. 1 septembermánuði gaf Tariq Aziz út yfirlýsingu um að lrakar myndu virða alþjóða samninga um bann við notkun efnavopna og neitaði því að þeir hefðu notað efnavopn gegn Kúrdum í norðurhluta landsins að undanförnu. „í dag staðfesti hr. Tariq Aziz að yfirlýsing hans frá því 17. september væri opinber stefna írakskra stjórn- valda," sagði Redman. fuisur! vm IRAQ Efnavopnanotkun fraka hefur verið harðlega mótmælt m.a. í Washington þar sem þessi mynd var tekin. Nú hafa írakar lýst því yfir að þeir muni ekki nota efnavopn aftur. Irakskir embættismenn hafa frönum, en einungis vegna þess að viðurkennt að írakski herinn hafi íranar hefðu áður gert efnavopna- beitt efnavopnum í stríðinu gegn árásir á íraka. Tíu Frakkar láta lífið í slagviðri í bænum Nimes Að minnsta kosti tíu Frakkar létust í gífurlegu slagviðri er gekk yfir frönsku borgina Nimes við Miðjarðarhaf á mánudag, en tólf manna var enn saknað í gær- kveldi. Óttast er að fleiri hafi farist. Fimm hinna látnu drukknuðu í leðjuflaumi sem rann um götur borgarinnar í kjölfar hinnar gíf- urlegu úrhellisrigningar. Hinn sjötti lést í gassprengingu en ekki var tiltekið hvernig hinir létust. f Nimes eru um 130 þúsund íbúar og var borgin undirlögð metrasdjúpu vatni og leðju eftir rigninguna. Jean Bousquete borgarstjóri í Nimes sagðist myndi biðja innan- ríkisráðherra Frakklands um að lýsa yfir neyðarástandi í borginni á ríkisstjórnarfundi í dag. „Efnahagslíf þessa svæðis hef- ur gersamlega stöðvast. Verslan- ir, verksmiðjur, vöruhús, allt þetta hefur orðið fyrir skemmd- um og mun taka þó nokkurn tíma að komast í gagnið á ný.“ Vel rúmum sólarhring eftir ósköpin voru sautján þyrlur við björgunarstörf í borginni og enn rigndi. Símalínur og raflínur slitnuðu í flóðunum og var unnið að viðgerðum á þeim í gær. Bandarískirfjölmiðlar hlaupa á sig í fréttum af gíslalausn: INDVERSKUM GÍSL SLEPPT í BEIRÚT, EKKIBANDARÍSKUM Bandarískir fjölmiðlar hlupu heldur betur á sig í fyrradag þegar NBC sjónvarpsstöðin fullyrti að mannræningjar í Ltbanon hefðu leyst Bandaríkjamanninn Alann Steen prófessor úr haldi. Þannig skapaði sjónvarpsstöðin falsvonir hjá ættingjum Steen, því það var alls ekki Steen sem leystur hafði verið úr haldi, heldur kollegi hans Indverjinn Mithileshwar Singh. Singh var prófessor við háskóla í Beirút og var hann tekinn í gíslingu fyrir tuttugu mánuðum ásamt þrem- ur Bandaríkjamönnum sem einnig kenndu við háskólann, þar á meðal Alann Steen. Eftir að Singh var látinn laus var ekið með hann til utanríkisráðuneyt- is Sýrlands í Damaskus en þar tóku bandarískir og indverskir embættis- menn á móti honum. „Ég er mjög hamingjusamur," sagði Singh við komuna til Damask- us. Hann sagði að vel hefði verið um hann hugsað í gíslingunni. „Ég fékk betri meðferð en ég átti von á en það er ekkert sem kemur í stað frelsis," sagði Singh á fréttamannafundi í utanríkisráðuneytinu. „Ég hef dval- ið með vinum mínum þremur og hef ekki séð nokkurn annan.“ Þegar Singh var inntur eftir ítar- legri skýringum á vist sinni hjá mannræningjunum og hvar hinir gíslarnir væru í haldi vildi hann lítið segja. „f>að er betra fyrir mig að segja ekki neitt. Vinsamlegast virðið frelsi mitt og leyfið mér að þegja um þetta. Það er betra fyrir félaga mína“. 3000 verkamenn mótmæla viö þinghús Júgóslava: Milosevic sagði: „Haldið til vinnu" og þeir hlýddu! Um þrjú þúsund verkamenn stóðu mótmælastöðu utan við þing- hús Júgóslavíu í Belgrad í gær og kröfðust hærri launa, betri lífskjara og aukinna áhrifa þeirra sjálfra við mótun stjórnmálastefnu í landinu. „Þjófar, þjófar," kölluðu þeir há- stöfum og áttu þá við leiðtoga kommúnistaflokksins sem mistek- ist hefur að ná tökum á efnahags- kreppunni í landinu, en þar ríkir nú 200% verðbólga. „Við viljum Sloba,“ kölluðu þeir og áttu þá við Slobodan Milosevic leiðtoga kommúnistaflokksins í Serbíu, stærsta ríkinu í Júgóslavíu. Hann er mjög vinsæll meðal al- ntennings í Serbíu þar sem hann hefur barist fyrir auknum áhrifunt Serba í Júgóslavíu að undanförnu. Og Slobodan fcngu þeir. „Verið vissir um að öll þau vandamál sem þið hafið nefnt verða rædd tafarlaust í stjórnum og ráðum þessa lýðveldis og hjá ríkinu. Allir saman, haldið þið aftur til vinnu,“ sagði Slobodan Milosevic við verkamennina er hann kom út á tröppur þinghússins. Verkamennirnir hlýddu orðum leiðtogans, stormuðu inn í strætis- vagna og héldu til vinnu á ný. AVRIL SEGIFt AD LÝDRÆDI VERÐIKOMIÐ Á Á HAITI Prosper Avril leiðtogi herforingja- stjórnarinnar á Haiti sem tók völdin á dögunum lýsti því yfir í gær að hann væri að undirbúa frjálsar kosn- ingar á Haiti og að borgaraleg ríkis- stjórn muni taka við í kjölfar þeirra. Sagði Avril að kjörnefndir yrðu nú þegar skipaðar til að hefja undirbún- ing kosninganna. „Væntingar mínar eru að festa lýðræði endanlega í sessi í þessu landi. Það þýðir að við stefnum að kosningum til að kjósa nýja ríkis- stjórn," sagði Avril í blaðaviðtali við franskt dagblað. Avril sagði að líklega yrði fyrsta skrefið sveitarstjórnarkosningar og forsetakosningar síðar. Sagðist hann telja að forsetakosningar nú muni einungis auka á ringulreið í landinu. Avril hefur rekið úr hernum á annan tug foringja sem hliðhollir voru Henry Namphy, sem Avril hrakti frá völdum í síðasta mánuði, og Jean-Claude Duvalier fyrrum ein- ræðisherra landsins. Þá hefur hann sagst ætla að afvopna öryggislög- reglu landsins, en hópar úr henni eru taldir bera ábyrgð á því ofbeldi sem ríkt hefur á þessari eyju í Karabíska hafinu um áratugaskeið. Avril hefur beðið um stuðning annarra ríkja við að koma á eðlilegu ástandi í stjórnmálum á Haiti, ann- ars sé viðbúið að það takist ekki. Prosper Avril hershöfðingi sem nú er í forsæti á Haiti segist stefna að frjálsum kosningum og endurreisn lýðræðis á Haiti. Gorbatsjov hitti ekki Ceausescu Mikhail Gorbatsjov hinn nýi forseti Sovétríkjanna var ekki í veislu er haldin var til heiðurs Nicolae Ceausescu forseta Rúm- eníu er hann kom til Moskvu í gær. Þykir þetta benda til þess að Gorbatsjov hyggist ekki taka á sig allar hefðbundnar skyldur forsetaembættisins. Einnig þykir þetta benda til að Ceausescu sé ekki efstur á vinsældalista Kreml- verja um þessar mundir, enda rekur hann gallharða stalínska stefnu í Rúmeníu og hefur komið af stað væringum milli Rúmena og Ungverja vegna aðgerða sinna gegn ungverska minnihlutanum í Rúmeníu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.