Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 1
Long John Silver
neitarað kaupa
íslenskan fisk
• Blaðsíða 2
Jakob Jakobsson
kosinn forseti
Hafrannsóknaráðs
• Blaðsíða 5
Guðrún Helgad.
kosin forseti
sameinaðs þings
• Baksíða
Höskuldur Einarsson ritstjóri Slökkviliðsmannsins og kennari í bruna-
vörnum hjá SVFI segir að stjórn brunamála í landinu sé öll í molum:
Skylt að tryggja
eldgildrur í topp
Brunaverðir á íslandi eru áhyggjufullir vegna ástands
brunamála á hérlendis og kemur þetta m.a. fram í nýjasta
félagsblaði þeirra, Slökkviliðsmanninum. Tíminn ræddi
þessi mál við Höskuld Einarsson, ritstjóra blaðsins og
kennara í brunavörnum í Slysavarnaskóla sjómanna og
var hann ómyrkur í máli. Benti hann á að á landsbyggðinni
virtust engar kröfur gerðar til þeirra sem verða slökkvi-
liðsstjórar. Svipaða sögu væri að segja um æðstu
yfirmenn brunamála. Allt væri á sömu bókina lært í
þessum efnum, æfingar ónógar og reglur þverbrotnar.
Benti hann á að þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir Eldvarna-
eftirlits um eldgildrur t.d. í frystihúsum væri þeim í engu
sinnt enda allt tryggt upp í topp. Hjá Brunabótafélaginu
fengust þær upplýsingar að skylt væri að tryggja slíkar
eldgildrur þó þeir hefðu heimild til að hækka iðgjöld ef
ákveðin atriði væru í ólagi. £ Blaðsíða 5