Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn Miðvikudagur 12. október 1988 LEKUR : ER HEDDIÐ BLOKKIN? : SPRUNGIÐ? Viðgeröir á öllum heddum og blokkum. Plönum hedd og blokkir — rennum ventla. Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða. Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum — járnsmíði. Véismiðja Hauks B. Guðjónssonar Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin -Sími 84110 ÁSKRIFTASÍMI 68 63 00 VERTU I TAKT VIÐ Iíiiuinii Sunnlendingar - viðtalstími Guöni Ágústsson alþingismaður veröur til viðtals á eftirtöldum stööum föstudaginn 14. október n.k.: Selfossi aö Eyrarvegi 15 frá kl. 10 til 12, sími 98-22547. Hvolsvelli að Hlíðarenda frá kl. 15 til 17, sími 98-78187. KVENFÉLAGIÐ FREYJA í KÓPAVOGI Aðalfundur Framsóknarkvennafélagsins Freyju í Kópavogi veröur haldinn í Hamraborg 5, miðvikudaginn 12. október, kl. 8.30. Fundarefni: Venjuleg aöalfundarstörf. Valgeröur Sverrisdóttir, þingmaður, kemur í heimsókn og spjallar viö fundarkonur. Stjórnin Sveitastjórnarkonur! Viö minnum sveitastjórnarkonur okkar á matarspjallsfundinn fimmtu- dagskvöldiö 13. okt. n.k. í Lækjarbrekku kl. 19.00. Landsstjórnarkonur einnig velkomnar. Framkvæmdastjórn LFK Austurland Kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið í Hótel Valaskjálf Egilsstöðum dagana 14. og 15. október n.k. og hefst kl. 20.00. Nánar auglýst síðar. KSFA Framsóknarvist Framsóknarvist veröur haldin að Hótel Lind sunnudaginn 16. október kl. 14. Stutt ávarp flytur Guömundur G. Þórarinsson, alþingismaöur. Framsóknarfélag Reykjavíkur Norðurlandskjördæmi vestra Kjördæmisþing veröur haldið dagana 29. til 30. okt. n.k. í félagsheimil- inu á Blönduósi. Þingið hefst kl. 14. Dagskrá auglýst síðar. KFNV Vesturland Kjördæmisþing framsóknarfélaganna í Vesturlandskjördæmi veröur haldið á Akranesi laugardaginn 5. nóvember. Stjórnin. Stjórn Farmanna- og fiskimannasambands íslands mótmælir afnámi samningsréttar:___________ Sjómenn ekki við sama borð og aðrir Stjórn Farmanna- og fískimannasamband íslands mótmælti harölega afnámi samningsréttar, í nýsettum bráöabirgöalögum ríkisstjórnarinnar, á fundi sem haldinn var 7. október sl. Einnig mótmælir fundurinn þeirri ákvörðun að almcnnt fiskverð frá 3. júní sl. skuli gilda til 15. febrúar á næsta ári. Laun sjómanna lúta í megin atrið- um sömu lögmálum og tekjur út- flutningsatvinnugreinanna, þ.e.a.s. breytast með gengisskrán- ingu og verðbreytingum afurða á erlendum mörkuðum. Stjórnin bendir á í því sambandi að efnahags- aðgerðum ríkisstjórnar- innar væri fyrst og fremst ætlað að bæta stöðu útflutningsgreinanna, af tveimur ástæðum, sú fyrri er fast gengi á tímum verðbólgu á bilinu 25 til 35%, sú síðari er verðfall afurða á erlendum mörkuðum. Kjör sjóm- anna, segir í samþykkt stjórnarinn- ar, hafa rýrnað með svipuðum hætti og tekjur útflutn- ingsgreinanna, á sama tíma sem laun almennt í landinu hafa hækkað án tillits til breytinga á útflutnings- tekjum. í ljósi þessa er frysting fiskverðs til 15. febrúar afar ósann- gjörn segir í samþykktinni og ljóst að sjómenn sitji ekki við sama borð og aðrir launþegar. Þá mótmælir stjórnin einnig harð- lega fyrirhugaðri lántöku verðjöfnu- narsjóðs fiskiðnaðarins til þess að verðbæta ákveðnar greinar vinnsl- unnar. - ABÓ RC-Cola frá Ölgerðinni fæst í þremur stærðum. Ný endurskoðuð fjárhagsáætlun Húsavíkur segir níu milljónir vanta til að endar nái saman: Réttar útsvars- tekjur ókomnar Staða bæjarsjóðs Húsavíkur og fleiri sveitarfélaga er erfið um þessar mundir. Fjárhagsáætlun Húsavíkur hefur verið í endurskoðun að undanförnu. og eins og nú horfir vantar níu milljónir til að endar nái saman. Þó segir bæjarstjórinn, Bjarni Þór Einarsson, að þegar menn tali um níu milljónirnar þá undanskilji þeir útsvarstekjur, en upplýsingar um hversu miklar þær verði á árinu skortir algerlega. Enn sé ekki farið að skipta út- svarstekjum milli sveitarfélaga þannig að rétt sé. Til þess að svo geti orðið stendur á að taka í notkun nýtt ríkistölvukerfi, en því hefur verið frestað æ ofan í æ að sögn Bjarna Þórs. Bjarni Þór sagði að samkvæmt síðasta loforði ætti tölvukerfið að komast í gangþann 20. þessa mánað- ar og þangað til vildi hann ekki tjá sig um hversu mikill vandi bæjar- sjóðs Húsavíkur væri. Bjarni Þór sagði að launaliðir fjárhagsáætlunarinnar yrðu að lík- indum fjórum milljónum lægri en gert var ráð fyrir í upphafi ársins, bæði vegna aðhalds og eins vegna launafrystingarinnar. Að þessu leyti stæði bærinn mun betur en mörg önnur sveitarfélög. _ sá Framkvæmdir við Stjórnarráðið Það hefur ekki farið fram hjá vegfarendum í miðbæ Reykjavíkur að miklar framkvæmdir standa nú yfir á lóð Stjórnarráðsins. Ástæða þessara framkvæmda er sú að gamli múrveggurinn sem um- kringdi Stjórnarráðslóðina var far- inn að molna og því orðið nauðsyn- legt að endurnýja hann. Verktaki við endurnýjun múr- veggsins er Reisir s.f. Henning Þorvaldsson, einn af forráðamönnum fyrirtækisins er um- sjónarmaður með verkinu. Tíminn setti sig i samband við hann og forvitnaðist um gang framkvæmd- anna. Kom fram hjá Henning að engar meiriháttar útlitsbreytingar væru fyrirhugaðar og stefnt væri að því að Ijúka verkinu í síðasta lagi um miðjan nóvember. I tengslum við framkvæmdir þess- ar varð að rífa tré eitt mikið og fornt, er stóð skammt frá veggnum. Borg- arráð lagði blessun sína yfir niðurrif trésins. RC-Cola í verslanir Ölgerðin Egill Skallagrímsson er þessa dagana að dreifa nýjum gos- drykk í verslanir á Islandi. Er um að ræða kóladrykk, ættaðan frá Banda- ríkjunum. Drykkurinn ber nafnið RC-Cola. RC stendur fyrir Royal Crown, eða hina konunglegu kór- ónu. Drykknum verður tappað á þrennskonar umbúðir. í fyrsta lagi á áldósir og í öðru lagi á plastflöskur, sem taka hálfan lítra og heilan. Ölgerðin sendi Tímanum í gær sýnishorn af þessari nýju vöru, til smökkunar. Það verður að segjast eins og er að drykkurinn er bragð- góður. Hann er hvorki betri né verri en aðrir kóladrykkir. RC-Cola hefur verið framleitt frá því rétt eftir aldamót, í Bandaríkj- unum. í fréttatilkynningu frá Öl- gerðinni segir að von sé á fleiri drykkjum frá RC-Cola framleiðslu- línunni. Bilun í Múlastöð Pósts ogsímaígærmorgun Vararaf- stöðin virkaði ekki Útvarp fór af í morgun um kl 9.15 vegna þess að rafmagn fór af húsi Pósts og síma við Árrnúla. Samkvæmt upplýsingum starfs- manns Pósts og síma varð bilun í rafhreyfli og öryggi fór og húsið varð allt rafmagnslaust. Þegar slíkt gerist á Ijósavél að fara í gang en í þetta sinn brást hún, þannig að rafmagn komst ekki á húsið fyrr en orsakavaidur- inn var fundinn. Sendingar útvarpsstöðvanna Rásar 2, Bylgjunnar og Stjörn- unnar féllu út meðan rafmagns- laust var, vegna þess að stöðvarn- ar senda útsendingargeisla sína í stöð Pósts og sfma við Ármúla, sem síðan sendir geislana áfram upp á Vatnsenda og þaðan f örbylgjudreifikerfið út um land. Ljósavélin fór ekki í gang að sögn starfsmannsins, vegna þess að hleðslutæki sem'á að halda rafgeymum hússins fullhlöðnum hafði bilað. Hann sagði að oft hefði reynt á vararafkerfið áður og það aldrei brugðist fyrr en nú. - sá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.