Tíminn - 15.10.1988, Page 3
Laugardagur 15. október 1988
Tíminn 3
Atvinnutryggingarsjóður:
Vinnunefnd skoðar umsóknir
Reglugerð um Atvinnutryggingarsjóð útflutningsgreina
var gefin út í gær og í framhaldi af því er auglýst í dagblöðum
í dag eftir lánsumsóknum. Tekið er fram í auglýsingunni að
um sé að ræða annarsvegar lán vegna skuldbreytinga
útflutningsfyrirtækja og hinsvegar lán vegna hagræðingar
þeirra, framleiðniaukningar og endurskipulagningar.
Þess er einnig getið í auglýsing-
unni að aðeins þau fyrirtæki komi til
greina við úthlutun lána úr Atvinnu-
tryggingarsjóði sem framleiddu vör-
ur til útflutnings á síðasta ári að
verðmæti a.m.k. 10 milljónir króna.
Þá er tekið fram að fiskeidisfyrirtæki
og loðdýrabú komi ekki til greina
við lánaúthlutun á þessu ári þar sem
stjórnvöld séu nú að kanna sérstak-
lega málefni beggja þessara greina.
Gunnar Hilmarsson, formaður
stjórnar Atvinnutryggingarsjóðs,
sagði í samtali við Tímann að fjöl-
margir aðilar hafi leitað upplýsinga
um lánafýrirgreiðslu sjóðsins og því
væri fyrirsjáanlegur mikill fjöldi
lánsumsókna. Gunnarsagði aðflest-
ar fyrirspumir hefðu borist frá for-
svarsmönnum fiskvinnslufyrirtækja
en einnig hefðu t.d. fiskeldismenn
og iðnrekendur leitað upplýsinga
um úthlutun Atvinnutryggingar-
sjóðs. Hann sagði að stjórn sjóðsins
myndi afgreiða lánaumsóknir að
fenginni umsögn sérstakrar vinnu-
nefndar. í henni munu eiga sæti
fulltrúar atvinnuvegasjóðanna, t.d.
Fisveiðasjóðs, Stofnlánadeildar,
Iðnlánasjóðs og Byggðasjóðs og
bankanna. „Það liggur fyrir að um-
sóknir frá fiskvinnslufyrirtækjum
munu hafa forgang við fyrstu af-
greiðslu lána úr Atvinnutryggingar-
sjóði," sagði Gunnar.
Atvinnutryggingarsjóður mun
hafa aðsetur í húsakynnum Byggða-
stofnunar við Rauðarárstíg í
Reykjavík. Gunnar Hilmarsson
verður starfsmaður sjóðsins. Af
þeim sökum hefur hann fengið 6
mánaða ieyfi frá störfum sveitar-
stjóra á Raufarhöfn. Þennan tíma
mun stjórn Raufarhafnarhrepps
deilast á oddvita og starfsmann
hreppsskrifstofu.
Gert er ráð fyrir að Atvinnutrygg-
ingarsjóður fái 2 milljarða króna til
ráðstöfunar á næstu tveimur árum.
Sjóðnum er heimilt að taka að láni
allt að 1 milljarði króna hjá Seðla-
banka eða fyrir hans milligöngu. Þá
munu renna 300 milljónir króna á ári
til sjóðsins af árlegu framlagi ríkis-
sjóðs til Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs.
í sameiginlegri yfirlýsingu sem
ASÍ og VSl afhentu Steingrími
Hermannssyni, forsætisráðherra, í
gær segir að með skerðingu á lög-
boðnum framlögum ríkissjóðs til
Avinnuleysistryggingasjóðs sé ein-
hliða rofið áratuga samkomulag að-
ila vinnumarkaðarins, ríkisvaldsins
og sveitarfélaga um uppbyggingu og
fjármögnun Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs. Lögð er áhersla á að þessi
ákvörðun ríkisstjómarinnar sé með
öllu óviðunandi og gerð sú krafa að
ríkisvaldið standi við sinn hluta sam-
komulagsins og greiði að fullu um-
samið og lögbundið framlag sitt til
sjóðsins, ella sé stöðu hans teflt í
tvísýnu. óþh
Hugsjónir að norðan
Nú er Hljóðbylgjan norðlenska
á leið suður yfir heiðar. Það er
vissulega góðs viti og markar
jafnframt kaflaskil í sögu lands-
byggðarbaráttunnar. Suðurför
Hljóðbylgjunnar og huldumaður
Stefáns Valgeirssonar kemur til
með að standa hlið við hlið ó
spjöldum sögunnar og munu
bamaskólakennarar í framtíðinni
vitna með lotningu til frumherj-
anna sem uppgvötvuðu hagnýta
íslandsafbrigðið á arabíska lög-
málinu, „Komi fjallið ekki tii
Múhameðs þá verður Múhameð
að fara til f]allsins“. Með fullri
virðingu fyrir þeim Hljóðbylgju-
mönnum verður þó afrek Stefáns
að teljast öllu meira, þar sem
hann seilist inn í helgustu vé
borgarastéttarinnar eftir fuUtingi
við þingeyska bændur og grasrót-
armenn.
Framlag Hljóðbylgjunnar til
landsbyggðarbaráttunnar skal þó
ekki vanmetið, því sú saga gengur
fjöllum hærra ’ á Akureyri að
ónefndur athafnamaður þar í bæ
gangi nú stórlega á eignir rótgró-
ins ættarveidis síns til þess að
halda rekstri bylgjunnar gang-
undi. Hafi hann m.a. selt Borgar-
söluna í þeim tilgangi. Það er
ánægjulegt til þess að vita að enn
skuli vera til hugsjónamenn og
nú er bara að biða og sjá hvort
eigendaskipti halda áfram í Hafn-
arstrætinu með komu Hljóð-
bylgjunnar suður.
Svart-hvítar
Bylgjufréttir
Nú er orðið Ijóst að HaUgrímur
Thorsteinsson fréttastjóri á
Bylgjunni mun hætta um áramót-
in. Leita þeir Bylgjumenn nú
með logandi Ijósi að eftirmanni
Hallgríms en fáir reyndir frétta-
menn munu hafa áhuga á starf-
inu. Þykir metnaður útvarps-
stöðvarinnar í fréttalegu tiUiti
heldur rish'tiU og aiveg Utlaus
þrátt fyrir auglýsingar um annað.
Lítið er af frumsömdum fréttum
og því meira af upplestri úr
dagblöðum. Þó ber mönnum
saman um að í þættinum „Hvað
finnst þér?“ risi islensk dagskrár-
gerð í sínar hæstu hæðir. Einkum
hafa menn faliið fyrir heimspeki-
legum umræðum um hamborgara
og hamborgarastaði og ber öUum
saman um að fáir geti rætt um
hamborgara af meiri skilningi en
Hallgrímur fréttastjóri. Innan-
húsmaður á Bylgjunni er þó tal-
inn iíklegur eftirmaður Hail-
gríms, en það er Steingrímur
Sævarr Ólafsson. Hann er þegar
farinn að leysa Hallgrím af í
hamborgaraþáttunúm, og þykir
jafnvel sína áhyggjufullum hlust-
endum enn meiri skilning en
sjálfur fréttastjórinn.
Sveinn til Sjónvarpsins
Sveinn Einarsson, rithöfundur og
leikstjóri, hefur verið ráðinn dag-
skrárstjóri innlendrar dagskrárdeild-
ar Sjónvarps til næstu fjögurra ára,
í fjarveru Hrafns Gunnlaugssonar,
sem veitt hefur verið leyfi frá
störfum.
Sveinn er fæddur í Reykjavík 18.
september 1934. Frá því hann lauk
námi hefur Sveinn starfað sem
leikhússtjóri Leikfélags Reykjavík-
ur 1963 til 1983, ráðunautur í menn-
ingarmálum í menntamálaráðuneyt-
inu frá 1983 og verið starfandi leik-
stjóri frá 1965.
Á fundi Útvarpsráð í gær var mælt
með Sveini í stöðuna og fór atkvæða-
greiðsla þannig að Sveinn Einarsson
fékk 5 atkvæði og Bryndís Schram 1
atkvæði.
Aðrir umsækendur um stöðuna
voru Björn Emilsson, Guðmundur
Kristjánsson, Helgi Ragnar Sverris-
son, Hlín Agnarsdóttir, Jón Her-
mannsson, Lárus Ýmir Óskarsson,
Óli Örn Andreasen, Sigrún Stefáns-
dóttir, Sigrún Valbergsdóttir, Sig-
urður Snæberg Jónsson og einn ósk-
aði nafnleyndar. - ABÓ
Obeint gengur þú sjálfur
fyrir rafmagni!
Láttu rafmagnsreikninginn hafa forgang!
Finndu þrjú heimilistæki sem eru ekki rafknúin!
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVIKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI 6862 22